Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2003, Blaðsíða 17

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2003, Blaðsíða 17
eldi á risarækju á Bakka í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur. Fiskeldi Eyjafjarðar rekur stöð fyrir lúðueldi í Þorlákshöfn og mannvirki einnar eldisstöðvar standa ónotuð. Ólafur Áki segir sárt að horfa upp á þessi mannvirki ónotuð og verðugt verkefni væri að finna starfsemi sem gæti nýtt þau til frambúðar. Ráðhús með fullkominni ráðstefnuaðstöðu Atvinnulífið í Þorlákshöfn einkennist annars vegar af útvegsstarf- semi og hins vegar af þjónustu. Nokkur meðalstór útvegsfyrirtæki eru staðsett þar, einnig höfuðstöðvar sveitarfélagsins, grunnskóli, leikskóli, bankaútibú, heilsugæsla og pósthús svo nokkuð sé nefnt. Ölfusingar hafa byggt upp myndarlegt ráðhús sem var formlega tekið í notkun í maí í fyrra. Þar er meðal annars að finna skrifstofu sveitarfélagsins, bóksafn þess og útibú frá Lands- banka íslands. 1 húsinu er funda- og ráðstefnusalur sem tekur allt að 300 manns í sæti auk minni salar sem sveitarstjórnin notar meðal annars til reglulegra bæjarstjórnarfunda. Ólafur Áki segir húsið henta mjög vel til funda- og ráðstefnuhalds en það hafi ekki verið markaðssett að því leyti enn sem komið er. Hins vegar verði að huga að því hvaða möguleikar séu fyrir hendi til þess að veita slíka þjónustu. Engin gistiaðstaða er í Þorlákshöfn og segir Ólafur Áki það geta skapað vanda þegar ráðstefnuþjónusta sé annars vegar. Gistingu sé þó að finna á nokkrum stöðum í Ölfus- inu. Hins vegar sé Þorlákshöfn svo skammt frá höfuðborgarsvæð- inu að mjög auðvelt sé að sækja fundi og ráðstefnur þangað, ekki síst þegar um eins dags fundarhöld sé að ræða. Miklir möguleikar í landrýminu Sveitarfélagið Ölfus er landmikið sveitarfélag og segir sveitarstjór- inn að í því felist ýmsir kostir, bæði hvað varðar íbúðabyggð og einnig landrými fyrir iðnað og aðra atvinnustarfsemi. Með þeim hafnarframkvæmdum sem standa yfir stóraukist möguleikar til þess að byggja upp iðnfyrirtæki og sé til þess hugsað við gerð nýs aðalskipulags er taki til alls sveitarfélagsins. Þar sé ekki síst verið að hugsa til þeirra möguleika sem orkuöflun á Suðurlandi gefur, auk hafnaraðstöðunnar sjálfrar. Um 50 íbúðir á teikniborðinu En íbúar Ölfussins horfa ekki aðeins til eflingar atvinnulífs og uppbyggingar nýrra atvinnugreina heldur einnig að skapa fólki aðstöðu til að koma sér upp heimilum í sveitarfélaginu. Nú er að hefjast bygging nýs íbúðahverfis í Þorlákshöfn þar sem ætlunin er að byggja allt að 50 íbúðir í einbýlishúsum, parhúsum og ráðhús- um. „Við höfum orðið vör við áhuga fólks á að setjast hér að og með þessu viljum við gefa fólki tækifæri á að koma hing- að og skapa sér heimili til frambúðar," segir Ólafur Áki. Hann segir ætlunina að mark- aðssetja Þorlákshöfn sem ró- legt búsvæði fyrir fjölskyldu- fólk í nálægð við atvinnustarfsemi þar sem höfuðborgarsvæðið sé ekki undanskilið. Suðurstrandarvegur breytir miklu í framhaldi af því berst bygging Suðurstrandarvegar í tal. Sunn- lendingar hafa lagt mikla áherslu á að fá veginn frá Þorlákshöfn um Selvog og Krísuvík til Grindavíkur byggðan upp og tengdan við Reykjanesbrautina. Miklar vonir eru bundnar við að samein- ing Suðurlands og Reykjaness í eitt kjördæmi muni verða til þess að flýta þessari vegagerð sem vart hefur komist á dagskrá fyrr en nú þrátt fyrir augljósa kosti. Undirbúningur að byggingu vegarins er hafinn og hann mun breyta miklu um samgöngur Sunnlend- Góð aðstaða er til netnotkunar í bókasafni Sveitarfélagsins Úlfuss, sem er til húsa í Ráðhúsi þess í Þorlákshöfn. inga við höfuðborgarsvæðið og einnig flugvallarsvæðið á Reykja- nesi. Ólafur Áki tekur undir þau sjónarmið af fullum þunga. „Suðurstrandarvegurinn eykur möguleika á að flytja ferskar sjáv- arafurðir beint á erlenda markaði með flugi og hann mun einnig tryggja fólki héðan af svæðinu betri og tryggari samgöngur - ekki síst því fólki sem kýs að stunda vinnu á höfuðborgarsvæðinu eða á Reykjanesi. Möguleikar aukast einnig á því að fá ferðahópa beint á Suðurland úr flugi til Keflavíkur," segir Ólafur Áki. Virkar tæknin aðeins í aðra áttina? Talið berst að möguleikum tækninnar og fjarvinnslu af ýmsum toga sem hentað gæti til atvinnusköpunar á landsbyggðinni. Ólaf- ur Áki kveðst ekki skilja tregðu margra forstöðumanna opin- berra stofnana á höfuðborgar- svæðinu að láta vinna ýmis verkefni úti á landi hvort sem er með því að opna útibú eða starfsstöðvar viðkomandi stofn- ana eða kaupa þjónustu af fyr- irtækjum heimamanna. Það sé eins og þeir haldi að tæknin virki bara í aðra áttina. Hann bendir á að verið sé að byggja yfir opin- berar stofnanir á mjög dýrum lóðum í Reykjavík þar sem hver Ætlunin er að rækta hör á allt að 450 hekturum lands í framtíðinni og gert er ráð fyrir að fá þannig um þrjú þúsund tonn af hráefni til fram- leiðslunnar. 17

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.