Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Qupperneq 22
Viðtal nánaðarins
Verka- og tekjuskiptingin
verður að liggja fyrir
Kristján Ólafsson á Dalvík hefur átt sæti í sveitarstjórn í 14 ár. Fyrst í bæjarstjórn Dalvíkurbæjar frá
1986 til 1994 og síðan Dalvíkurbyggðar frá 1998. Hann segir að ákveðnar hugmyndir um verka- og
tekjuskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga verði að liggja fyrir áður en kosið verður um frekari sam-
einingu sveitarfélaganna.
„Ég er búinn að vera alltof lengi í þessu,"
sagði Kristján Ólafsson, þjónustustjóri VÍS
á Dalvík og bæjarfuIItrúi f Dalvíkurbyggð,
líklega fremur í gamni en alvöru þegar
hann var inntur eftir því hversu lengi hann
hefur starfað að sveitarstjórnarmálum.
Hann kvaðst vera félagslyndur að eðlisfari,
hafa gaman af að umgangast fólk og trú-
lega megi rekja áhugann á sveitarstjórnar-
málum að einhverju leyti til þess. En
einnig til viljans til að berjast fyrir byggð-
arlagið og reyna að láta eitthvað gott af
sér leiða. Kristján segir nauðsynlegt fyrir
sveitarstjórnarmann að vera í góðu sam-
bandi við íbúana og hlusta á það sem þeir
hafa fram að færa er varðar þjónustu og
uppbyggingu í sveitarfélaginu. Pólitísk
sjónarmið megi ekki verða of ráðandi. I
litlu samfélagi eins og Dalvíkurbyggð sé
hún mönnum sjaldan til trafala, helst þó
þegar líði að kosningum. Þá fari menn að-
eins að skerpa röddina og láta vita af því í
hvaða flokki þeir séu.
Góð þjónusta og öflugt félagslíf
Kristján segir að margt hafi breyst og ýmsu
hafi verið áorkað á þeim tíma sem hann á
að baki í sveitarstjórnarmálum í Dalvíkur-
bæ og síðar í Dalvíkurbyggð. Öll þjónusta
hafi verið efld, íbúar Dalvíkurbyggðar búi
við góðan skóla og góða heilsugæslu, lok-
ið sé við byggingu sundlaugar og stefnt að
byggingu íþróttahúss á næstunni. Þá hafi
umtalsverðar framkvæmdir verið unnar á
gatnakerfi þéttbýliskjarnanna í
Dalvíkurbyggð; Dalvík, Litla-
Árskógssandi og Hauganesi
þar sem allar götur hafi nú ver-
ið lagðar bundnu slitlagi.
Hann segir einnig mjög öflugt
menningarlíf í Dalvíkurbyggð
enda margir hæfir einstakling-
ar á því sviði búsettir á Dalvík og í ná-
grenni. Sem dæmi um gróskuna í menn-
ingarlífinu nefnir hann að sex kórar starfi í
sveitarfélaginu er hljóti að verða að teljast
Kristján Ólafsson er mikill safnari og er söfnunar-
starf hans meðal annars grunnur að öflugu
byggðasafni í Hvoli í Dalvíkurbyggð. Kristján hef-
ur einnig fengist við söfnun bóka og á nú orðið
um 10 þúsund bókatitla auk nærri fimm þúsund-
um tfmaritatitla. Hér er Kristján staddur í bóka-
safninu á jarðhæð íbúðarhúss hans á Dalvík.
nær einsdæmi í ekki stærra samfélagi. Þá
megi nefna ölfugt starf á meðal eldri borg-
ara og einnig heimilismanna á dvalar-
heimilinu Dalbæ sem meðal annars urðu
víðkunnir fyrir glöggar veðurspár sínar
sem Ríkisútvarpið og fleiri fjölmiðlar
kepptust um að birta. Hluti viðtalsins við
Kristján Ólafsson var raunar tekinn á
göngu um byggingu Dalbæjar með við-
komu í hýbýlum heimilismanna. Hvergi
fór á milli mála að vel er búið að fólki og
félagslíf er gott. Á vinnustofu Dalbæjar
sátu konur og unnu að jólaföndri þótt enn
væri október og Jóhann Daníelsson, fyrr-
um kennari, söngvari og hestamaður, sat
við orgelið í setustofunni, lék undir og
stýrði fjöldasöng heimilsfólks og einstakra
gesta á föstudagseftirmiðdegi.
Um 20 þúsund manns
á fjölskyldudegi
Atvinnuástandið í Dalvíkurbyggð hefur
tæpast verið betra um langan tíma en á
þessu ári, að sögn Kristjáns. „Ég er búinn
að búa hér í rúm 30 ár og tel mig geta
fullyrt að atvinnuástandið hefur ekki verið
betra í aðra tíð. Rekstur fyrirtækja, bæði
stærri og smærri, virðist ganga vel. Minni
fyrirtækjunum hefur ekki blætt út þótt stór
atvinnurekandi hafi komið á staðinn." Þar
á Kristján við útvegsfyrirtækið Samherja
sem rekur stóra fiskverkun í Dalvíkur-
byggð auk þess sem minni fiskvinnslufyrir-
tæki og fiskmarkaður starfa þar einnig og
skapa umtalsverða atvinnu. „Útvegsfyrir-
tækin í Dalvíkurbyggð hafa staðið saman
að því að bjóða öllum landsmönnum í
mat einn dag á ári á undanförnum árum.
Það er á Fiskideginum mikla sem orðinn
er árlegur viðburður á Dalvík líkt og
síldarævintýrið á Siglufirði og ýmsir við-
burðir sem byggðir og byggðarlög nota til
þess sem vekja athygli á sér, sögu sinni og
þeim störfum sem þar eru unnin. Ég tel að
þessi fyrirtæki, bæði stærri og smærri, hafi
lagt mikið af mörkum til að
þessi fjölskyldudagur, sem um
20 þúsund manns sóttu á
liðnu sumri, gæti orðið að
veruleika."
Kristján segir rekstur fyrir-
tækja hafa gengið mjög vel
þegar á heildina er litið þótt
alltaf geti verið um einhverjar undantekn-
ingar að ræða. „Við höfum verið heppin
með atvinnurekstur að því leyti að hæfir
stjórnendur hafa valist að fyrirtækjum en
„Að ætla að kjósa um sameiningu sveitarfélaga án
þess að vinna heimavinnuna, og þá á ég bæði við
sveitarstjórnir og ríkisvaldið, er ekkert annað en
sóun á fjármunum og tíma."
22