Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Page 23

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Page 23
sveitarfélagið sem slíkt hefur aftur á móti reynt að rækja þá skyldu að búa þannig að atvinnuumhverfinu að hægt sé að reka fyrirtæki með sómasamleg- um hætti. Af þeim sökum hefur Dalvík- urbyggð komið að ýmsum fyrirtækjum og lagt fram tímabundið hlutafé til þess að efla atvinnulffið þótt það sé ekki til- gangur sveitarfélaga að standa f al- mennum atvinnurekstri. Ég lít hins veg- ar svo á svo á að með því séum við að skapa umhverfi og reyna að standa við bakið á þeim sem vilja efna til atvinnu- sköpunar og atvinnulífs." Verður að vinna heimavinnuna fyrst Kristján hefur átt sæti í sveitarstjórnum tveggja sveitarfélaga; Dalvíkurbæjar og Dalvíkurbyggðar, en það síðarnefnda var myndað með sameiningu þriggja eldri sveitarfélaga við norðanverðan Eyjafjörð. Kristján var inntur eftir tildrög- um sameiningarinnar og þeirri reynslu sem fengist hefur af henni. „Á árinu 1997 hófust viðræður milli Dalvíkurbæjar, Ár- skógsstrandarhrepps, Svarfaðardalshrepps, Hríseyjarhrepps og Ólafsfjarðarbæjar um að sameina þessi fimm sveitarfélög í eitt. Því miður drógu Ólafsfirðingar sig fljót- lega út úr viðræðunum og kusu að halda sér fyrir utan málið. Fulltrúar hinna sveit- arfélaganna fjögurra héldu viðræðunum hins vegar áfram sem leiddi til þess að kosið var um sameiningu þeirra. Hrísey- ingar felldu sameininguna þannig að kosningin var endurtekin á meðal íbúa hinna þriggja sem eftir voru. Sú sameining var samþykkt með miklum meirihluta íbú- anna og Dalvíkurbyggð varð til á þeim grunni." Kristján kveðst þess fullviss um að núverandi eining sé mun sterkari en á meðan gömlu sveitarfélögin voru rekin hvert í sínu lagi. „Við höfum meira bol- magn til að halda rekstrarkostnaði niðri og einnig til framkvæmda á veg- um sveitarfélagsins. Hvað varðar frekari sameiningu nú á árinu 2003 þá er mikill þrýst- ingur frá stjórnvöldum um að fækka sveitarfélögum í land- inu. Það gengur hins vegar ekki að krafan um fækkun þeirra komi ofan frá með skipunum um að sameina eigi þessi og hin sveitarfélögin; að stjórnvöld búi til landakort sem fara eigi eftir við sameininguna. Það gengur Að undanförnu hefur Kristján fengist viö söfnun gamalla bú- véla og á oröiö hátt í 50 tæki þótt þau séu í misjöfnu ástandi. Hér stendur hann viö dreifara sem smföaöur var á Akureyri fyrir miÖbik síöustu aldar til þess aö dreifa hús- dýraáburði. Dreifarinn er þeirrar einstöku geröar þeirra tfma aö geta bæöi fyllt sig og losaö. ekki upp í hugum fólksins til þess að það taki jákvæða afstöðu til mála. Ef menn ætla að sameina sveitarfélög þá verður að byrja á heimavinnunni. Fyrst verður að gera sér grein fyrir því hvernig hin nýju sveitarfélög eiga að líta út og skýra það fyrir íbúunum. Ef það verður ekki gert má að mínu mati gleyma öllum sameiningar- áformum, hversu slæmt sem það annars kann að verða." Eyjafjörð í eitt sveitarfélag Kristján segir að nú séu hafnar samein- ingarviðræður á milli kaupstaðanna fjög- urra á Eyjafjarðarsvæðinu en eins og mál- in standa f dag séu Ólafsfirðingar ekki til- búnir í verk af þessum toga. „Ég vona engu að síður að þeir eigi eftir að sjá sig um hönd vegna þess að ef við eigum að ganga til frekari sameininga sveitarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu þá eigum við að sam- eina allt svæðið, öll sveitarfélögin í eitt sveitarfélag. En í því sambandi vil ég ít- „Frágangurinn má ekki verða svo losaralegur að einhverjir misvitrir embættismenn í ráðuneytum geti breytt þeim reglum sem fara á eftir, kannski með engum fyrirvara og sveitarfélögunum í óhag. reka að leggja verður mikla vinnu í undir- búning sameiningar, bæði hér við Eyja- fjörð og einnig annars staðar. Það kostar mikið starf að undirbúa stofnun hvers og eins nýs sveitarfélgs og það starf þarf að vinna eigi árangur að nást." Fjármunir verða að fylgja Kristján segir að við undirbúning að sameiningu sveitarfélaga verið hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að liggja fyr- ir og hvert það eigi að vera í sameining- arferlinu. „Ef það verður ekki gert og við fáum ekki skýr svör um það af hálfu yfirvalda þá verður ekki hægt að kynna málin fyrir þeim sem eiga að taka ákvörðun um sameininguna í atkvæða- greiðslu. Mörkin á milli ríkis og sveitar- félaga þurfa að vera skýr. Það þýðir ekk- ert að vera sífellt að ræða um flutning verkefna frá ríkinu til sveitarfélaganna nema að þeim verði tryggðir fjármunir til þess að standa sómasamlega að þeim. Við getum ekki haldið uppi þeirri þjónustu við íbúana sem okkur ber og mun bera með fjölbreyttari verkefnum nema tekjugrundvöllurinn sé tryggður. Verkefnum og útgjöldum verður ekki endalaust velt yfir á sveitarfélögin án þess að þau hafi tök á að afla tekna á móti. Það verður líka að búa svo um hnútana að sú verka- og tekjuskipting sem kann að verða ákveðin standist og að farið verði eftir henni. Frágangurinn má ekki verða svo losaralegur að einhverjir misvitrir embættismenn í ráðuneytum geti breytt þeim reglum sem fara á eftir, kannski með engum fyrirvara og sveitarfélögunum í óhag. Því erum við sveitarstjórnarmenn sí- fellt að hamra á að tekjuskipting ríkis og sveitarfélaganna verði endurskoðuð og þau óljósu mörk, sem sums staðar er að finna verði gerð skýrari. Að mínu mati er það alger nauðsyn þess að hægt verði að kynna sameiningaráformin og fá fólk til þess að líta kosti stærri og öflugri sveitarfé- laga jákvæðum augum. Þegar sameiningar- kosningarnar fóru fram hér í Dalvíkurbyggð 1998 skýrðum við nákvæmlega út fyrir fólki hvernig málunum yrði háttað áður en gengið var til kosninganna. Við höfum líka staðið við það sem við sögð- um. Þess vegna held ég að góð sátt hafi orðið um þessa sam- einingu. Að ætla að kjósa um sameiningu sveitarfélaga án þess að vinna heimavinnuna, og þá á ég bæði við sveitarstjórnir og ríkisvaldið, er ekkert annað en sóun á fjármunum og tíma," segir Kristján Ólafsson að lokum. 23

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.