Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Page 32
Aðalfundir landshlutasamtaka sveitarfélaga
Samræmi verði á milli
verkefna og tekna
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) telur mikilvægt að samræmi verði á
milli verkefna og tekna sveitarfélaganna og einnig að allur rekstur framhaldsskólans verði kostaður
af ríkinu.
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ítrekaði
þá stefnumörkun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga að
tekjustofnar sveitarfélaga skuli vera í samræmi við verkefni þeirra
og lögbundnar skyldur. Aðalfundurinn lagði áherslu á að tekju-
stofnarnir verði í samræmi við lögskyld og venjubundin verkefni
sveitarfélaga og að reglur um fjárhagsleg samskipti ríkis og sveit-
byggingar framhaldsskóla. Með öðrum orðum að skýr lína verði
dregin á milli kostnaðar við rekstur grunn- og framhaldsskóla þar
sem sveitarfélögin annist uppbyggingu og rekstur grunnskólans
en ríkið sjái um framhaldsskólastigið.
Talsverðar umræður urðu á aðalfundinum um almenningssam-
göngur í þéttbýli og þann kostnað sem sveitarfélögin verða að
bera þeirra vegna. Cagnrýni kom fram á
skipulag þeirra á höfuðborgarsvæðinu og
því haldið fram að það þjónaði ekki þörfum
almennings. Einnig kom fram í umræðum
að unnið væri að nýju heildarskipulagi
þeirra á vegum Strætó bs. Aðalfundurinn
ályktaði að allir skattar sem ríkið innheimtir
af almenningssamgöngum íþéttbýli verði
felldir niður. Aðalfundurinn ályktaði einnig
um að undanþágur frá greiðslu fasteigna-
skatta verði afnumdar að mestu og að sveit-
arfélögunum verði bættur sá tekjumissir er
þau verða fyrir vegna breytinga úr einka-
rekstri yfir í einkahlutafélög sem greiða
mun lægra skattahlutfall en einstaklingar
þótt þeir hafi rekstur með höndum á eigin
kennitölum. f ályktuninni er lagt til að sveit-
arfélögum verði bættur mikill kostnaðarauki
vegna fráveitumála sem hlýst af nýjum
reglugerðum um meðhöndlun úrgangs. Að
lokum ályktaði aðalfundur Samtaka sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu um að fjár-
magn til uppbyggingar stofnvegakerfis á
svæðinu verði í samræmi við þær miklu
þarfir sem þéttbýlið skapar og að hlutverk
Vegagerðarinnar gagnvart afleiðingum sífellt
aukinnar umferðar verði ótvírætt.
Frá aöalfundi SSH. Fremsl á myndinni er Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í GarÖabæ, en fyrir aftan
hana sitja, frá vinstri: Einar Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi í Garöabæ, Þórólfur Árnason borgarstjóri og
borgarfulltrúarnir Björk Vilhelmsdóttir, Anna Kristjánsdóttir og Guörún Ebba Ólafsdóttir.
arfélaga séu virtar. Fundurinn benti á að nýlega hafi verið skipuð
verkefnisstjórn til að hafa með höndum yfirumsjón með störfum
nefnda um átak í sameiningu sveitarfélaga, endurskoðun á tekju-
stofnum sveitarfélaga og verkaskiptingu ríkisins og sveitarfélag-
anna. í ályktun fundarins segir að afar brýnt sé að unnið verði
hratt og öll þau álitamál sem uppi eru verði tekin til meðhöndl-
unar.
Skýr lína á milli grunnog framhaldsskóla
í ályktun aðalfundarins er lögð áhersla á nokkur atriði er snerta
rekstur sveitarfélaga. Lagt er til að ríkið greiði kostnað vegna tón-
listarfræðslu á framhaldsskólastigi og allan stofnkostnað vegna
Hlutverk á reiki
í skýrslu formanns SSH, Sigurðar Geirdal, bæjarstjóra í Kópavogs-
bæ, kom fram að landshlutasamtökin átta hafi óskað eftir því að
nefnd skipuð fulltrúum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og
fulltrúum úr röðum formanna landshlutasamtakanna komi saman
og fari yfir stöðu og samskipti þeirra. Hann sagði að með breyttri
kjördæmaskipan hafi mál skipast með þeim hætti að þrjú lands-
hlutasamtök sveitarfélaga starfi í sumum kjördæmum á meðan
starfssvæði SSH nái til þriggja kjördæma. Við slíkar breytingar
verði starfsvettvangur og hlutverk landshlutasamtakanna mjög á
reiki hjá sumum þeirra og því þurfi að fara yfir öll þau mál.
32