Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Blaðsíða 34

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2003, Blaðsíða 34
um umhverfismat þannig að þær verði skýrari en nú. Með álykt- un fundarins fylgdi svohljóðandi greinargerð um það mál. „Mikið fjármagn rennur til rannsókna á mati á umhverfisáhrifum ýmissa framkvæmda og er það vel. Hins vegar er nauðsynlegt að nýting þess sé bæði gegnsæ og gagnleg vegna fyrirhugaðra fram- kvæmda. Ákveðnar kröfur um rannsóknir hafa vakið athygli og virðast á tíðum vera hrein skattlagning á framkvæmdir." í ályktun fundarins kemur fram nauðsyn þess að allir vegir með yfir 100 bíla umferð á dag verði lagðir bundnu slitlagi á allra næstu árum en aðrir vegir verði lagðir unnu malarslitlagi. Þá sé nauðsynlegt að tryggja fjármagn til girðinga meðfram öllum þjóðvegum lands- ins og veghaldara verði skylt að sjá um viðhald á öllum girðing- um meðfram vegum sem hafa meiri umferð en 300 bíla á dag miðað við sumarumferð. Auk þess ályktaði aðalfundur SSV að leitað verði allra leiða til að lækka veggjaldið í gegnum Hval- fjarðargöng og hvatti til þess að settur verði kraftur þá í vinnu samgönguráðuneytisins að leita leiða til að ná því markmiði. Fundurinn hvatti einnig til þess að lagningu Sundabrautar verði hraðað þar sem um sé að ræða eitt meginhagsmunamál Vestur- lands. Reglugerð um eftirlits- nefnd með fjármálum sveitarfélaga breytt Reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga nr. 374/2001 hefur verið breytt með reglugerð nr. 829/2003. Megin- breytingin varðar viðmið sem eftirlitsnefndin styðst við í mati á fjárhagsstöðu sveitarfélaga, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar og 74. gr. sveitarstjórnarlaga. Einnig eru skilgreiningar í 4. gr. reglugerðarinnar lagaðar að ákvæðum auglýsingar nr. 790/2001 um reikningsskil sveitarfé- laga. Loks eru breytingar sem miða að því að laga ákvæði reglu- gerðarinnar að breytingum sem gerðar voru á VI. kafla sveitar- stjórnarlaga með lögum nr. 74/2003, þar sem kveðið er á um skyldu sveitarstjórnar til að tilkynna eftirlitsnefnd um tilteknar ráðstafanir varðandi fjármál sveitarfélagsins. Breytingin var gerð í samráði við Samband íslenskra sveitarfé- laga og hefur hún þegar tekið gildi. Enn nýir vefir Mikil vinna er greinilega í það lögð hjá sveitarfélögum víða um land að búa til nýja eða endurbæta gamla vefi sveitarfélaganna á Netinu. Allmargir nýir vefir voru taldir upp í síðasta tölublaði Sveitarstjórnarmála og enn hefur bæst við. Reykhólahreppur og Húnaþing vestra hafa nýlega komið á fót og opnað nýja vefi, www.reykholar.is og www.hunathing.is, sem eru hefðbundnir sveitarfélagavefir með upplýsingum um uppbyggingu og starf- semi sveitarfélaganna í bland við upplýsingar um annað sem tengist viðkomandi svæðum og fréttir af starfi sveitarfélaganna og úr samfélaginu. Á fundi Hafnasambands sveitarfélaga var formlega opnaður nýr vefur sambandsins á slóðinni www.hafnasamband.is aebók -gVBTA»Fr>Ag. ..., Árbók sveitarfélaga komin út Árbók sveitarfélaga fyrir árið 2003 er komin út. Bókin hefur að geyma ýmsar tölulegar upplýsingar um sveitarfélögin í landinu, meðal annars úr ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2002. Einnig eru birtar í árbókinni upplýsingar um ýmis önnur atriði sem varða sveitarfélögin og rekstur þeirra sem gagnlegt er að hafa samandregið á einum stað. Heildarmynd af rekstri og fjárhag sveitarfélaganna frá ári til árs hefur mikið gildi í umræðu um stöðu og hlutverk sveitarfélaganna í þjóðfélaginu, sem verður sífellt umfangsmeira. Meginefni árbókarinnar er tölfræðilegar upplýsingar um rekstur og afkomu sveitarfélaganna en þar er jafnframt að finna ýmsar aðrar upplýsingar um starfssvið þeirra og verk- efni. Árbók sveitarfélaga á því að nýtast vel öllum þeim sem vilja glöggva sig vel á rekstri og fjár- “**- hag sveitarfé- laganna og fylgjast vilja með málefnum þeirra og viðfangsefnum. Árbók sveitarfélaga 2003 fæst á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga og er hægt að panta hana í síma 515 4900 eða með tölvupósti á netfangið sigridur@samband. is. Bókin kostar 2.500 krónur. 34

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.