Sveitarstjórnarmál - 01.09.2004, Síða 8
Alþjóðamál
Norræn sveitarfélög á tímum
alþjóðavæðingar
Framtíð sveitarfélaganna í alþjóðlegu samhengi, ESB og hin samnorrænu grundvallargildi voru til um-
ræðu á tíundu norrænu sveitarstjórnarráðstefnunni.
Tíunda norræna sveitarstjórnarráðstefnan
var haldin hér á landi dagana 13. til 15.
júní sl. en norrænu sveitarstjórnarráðstefn-
urnar eru haldnar annað hvert ár á vegum
norrænu sveitarfélagasambandanna. Anna
Cuðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar-
og alþjóðasviðs Sambands fslenskra sveit-
arfélaga, hafði veg og vanda af undirbún-
ingi og framkvæmd raðstefnunnar af hálfu
sambandsins. Sveitarstjóramál fengu hana
til þess að segja nokkuð frá ráðstefnunni,
þema hennar, umræðum og niðurstöðum.
Sveitarfélög í alþjóðlegu
samhengi
„Meginþema þessarar ráðstefnu var staða
norrænna sveitarfélaga á tímum alþjóða-
og hnattvæðingar og hvernig samnorræn
sveitarfélagagildi eins og opinber velferð-
arþjónusta, þátttaka íbúanna í lýðræðinu
og virkni muni standa af sér þær gífurlegu
breytingar sem hafa átt sér stað í umhverfi
sveitarfélaga undanfarin ár og eru fyrirsjá-
anlegar næstu ár. Ráðstefnan hófst með
erindi forseta íslands, Ólafs Ragnars
Grímssonar, en hann fjallaði um stöðu
norrænna sveitarfélaga í hnattvæddum
heimi, undir yfirskriftinni „Að hugsa á
heimsvísu og skapa á heimaslóð". Mjög
góður rómur var gerður að erindi hans
en rétt er að geta þess að það er hægt
nálgast öll þau erindi sem voru flutt
á ráðstefnunni á heimasíðu
hennar www.nordkonf.com."
Ný stjórnarskrá ESB
jákvæð fyrir sveitar-
stjórnarstigið
Anna Cuðrún segir einnig
áhugavert fyrir fslenska sveitar-
stjórnarmenn að kynna sér er-
indi Astrid Thors um stöðu
sveitarfélaga á vettvangi Evrópusambands-
ins sem er líka að finna á heimasíðunni.
„Hún starfaði við sveitarstjórnarmál í
Finnlandi í mörg ár en hefur sl. átta ár
verið þingmaður á Evrópuþinginu. Hún er
Anna Cuörún Björnsdóltir, sviösstjóri þróunar- og
alþjóðasviðs Sambands íslenskra sveitaríélaga.
fremur bjartsýn á stöðu sveitarstjórnar-
stigsins innan ESB og telur t.d. þær breyt-
ingar sem ný stjórnarskrá ESB mun hafa í
för með sér, geta verið jákvæðar fyrir
sveitarstjórnarstigið í Evrópu, s.s. heimildir
þjóðþinga til að bregðast við ef þau telja
að ESB-löggjöf brjóti f bága við nálægðar-
regluna."
Að fá íbúa til að taka virkan þátt
Anna Guðrún segir að Sænska sveitarfé-
lagasambandið hafi á síðasta ári staðið
fyrir víðtækri framtíðarrannsókn, sem 100
sænskir sveitarstjórnarmenn og starfsmenn
sveitarfélaga frá 75 sveitarfélögum í Sví-
þjóð tóku þátt í. „Markmiðið var að fá vís-
bendingar um hver verða mikilvægustu
úrlausnarefni sænskra sveitarfélaga næstu
15 árin og hvernig sveitarfélög geta búið
sig undir og brugðist við þróun næstu ára.
Á ráðstefnunni kynnti Eva Joelsson, borg-
arstjóri í Linköping, rannsóknina. Niður-
stöður hennar eru áhugaverðar fyrir ís-
lenska sveitarstjórnarmenn þar sem búast
má við að þróunin hér á landi muni verða
í sömu átt. Hægt er að kynna sér rann-
sóknina á heimasíðunni
www.svekom.se/framtidsprojekt/index.htm
en í stuttu máli voru niðurstöður hennar
þær að það skipti mestu máli fyrir framtíð
sænskra sveitarfélaga hvort takist að fá
íbúana til að taka virkan þátt í samfélag-
inu í stað þess að þeir fylgi bara með
straumnum. Önnur mikilvæg forsenda er
hvort munurinn á lífsskilyrðum í mismun-
andi hlutum landsins eigi eftir að aukast
eða hvort það takist að snúa þeirri þróun
við. Sveitarfélög á hinum Norðurlöndun-
um eigi nefnilega við hliðstæð úrlausnar-
efni að glíma og íslensk sveitarfélög sem
fylgja tilflutningi íbúa úr hinum dreifðu
byggðum í stóru þéttbýlisstaðina."
Örsmáu sveitarfélögin
illskiljanleg
Anna Guðrún segir að þessi þrjú fram-
söguerindi hafi verið eins kon-
ar inngangur fyrir vinnu í fjór-
um vinnuhópum. í þeim var
fjallað um sveitarfélagaskipan-
ina og sjálfræði sveitarfélaga,
pólitíska stjórnun í framtíðar-
sveitarfélaginu, stöðu norræna
velferðarkerfisins og þróun í
átttil þátttökulýðræðis. í
vinnuhópunum hafi áhersla
verið lögð á umræður og virka þátttöku
þátttakenda.
„Á öllum Norðurlöndunum, nema e.t.v.
í Finnlandi, eru nú miklar umræður og
breytingar í undirbúningi á sveitarstjórnar-
Sveitarstjórnarmenn þurfi að bregðast við þessu
með því að nota í meiri mæli óformlegar leiðir til
að ná til íbúa sinna og til þess að fá þá til að
starfa saman og taka virkan þátt í í framþróun
samfélagsins.
8
tölvumiðlun H-Laun www.tm.is