Vikublaðið Gestur - 04.12.1955, Side 8

Vikublaðið Gestur - 04.12.1955, Side 8
8 ífA G E S T U R FUWflMSlJDÍDflGWI á /\ jr^ jjt a H,ir 711 V \ T/ i / / /1 Torry Budlong HRÍFANDI ÁSTARSAGA. „ÉG ER forvitinn um þig, Angela“, sagði hann skyndilega. „Það hefur enginn minnzt á þig — en svo kemur þú allt í einu, og ert eins og einn með- limur fjölskyldunnar". „Ætli það gleymi mér ekki flestir milli þess, sem ég kem í heimsókn", svaraði Angela þurrlega. „Ég gleymi hins vegar engu. Endranær lifi ég blá- snauðu, tilbreytingarlausu lífi“. Hún fór að segja honum frá því, hversu mikils virði Branford væri henni, og ef hún þagnaði, hvatti hann hana með spurningum til að halda áfram. „Hvað er það eiginlega, þessi uppeldisheimili?“ spurði hann einu sinni. „Ég býst við, að ég hafi verið frem- ur óheppin", svaraði hún. „Þessum heimilum er ætlað að koma börnunum í stað raunverulegra heim- ila, og þau eru undir opinberu eftirliti. En í hvert skipti og ég var farin að kunna vel við rnig á einu heimilinu, var ég send á annað. Þetta kom þrisvar sinnum fyrir. Einhverjum var alltaf í nöp við mig. Ætli það komi ekki fyrir flesta, þegar þeir reynast ekki sannur meðlimur fjölskyldu; en hvað sem því líður, henti þetta mig“. „Svívirðilegt", tautaði hann. „En nú ertu þó laus, er það ekki?“ „Ég hef lokið verzlunarskólanámi", sagði Angela. „Nú verð ég að fá mér vinnu og herbergi. En fyrst verð ég hérna í þrjár vikur. Þessar þrjár vikur eru mér eins og opnar dyr, hér bíður mín allt“. Hún hikaði. „Eins og núna — við gætum farið hvert, sem okkur langar til —“. „Hvert langar þig til að fara?“ spurði hann. ,,Á einhvern stað, þar sem ég hef aldrei komið áður. Það finnst mér ég aldrei hafa gert áður. Nú veit ég það — Silfurbrekku. Ég hef heyrt svo marga tala um þann stað“. „Það er bara venjulegt veitingahús". V „Veiztu nokkuð? Ég hef aldrei kom- ið á veitingahús“, sagði Angela. „Þú myndir ekki trúa mér ef ég færi að segja þér frá öllu, sem ég hef ekki gert. Þegar ég var sautján ára, fór ég einu sinni sjálf í dýragarðinn, vegna þess, að enginn gaf sér tíma til að fara með mig þangað, þegar ég var lítil“. KEN SNERI bifreiðinni við á þröng- um veginum og hélt sömu leið til baka. „Hvert ertu að fara?“ spurði hún. „Til Silfurbrekku", svaraði hann. „Þér stendur vonandi á sama um það, þótt fólkið sperri upp augun, þegar það sér okkur?“ „Ég er því vön“, svaraði Angela. „Er það virkilega satt, að við gætum farið þangað?“ Hún gerði rödd sína eins barnalega ákafa og hún gat. „Því miður get ég ekki galdrað fram dýragarð svona fyrirvaralaust", svar- aði hann, „svo að við verðum að láta okkur nægja veitingahús. Sko, það gæti verið gaman að upplifa eitthvað af því, sem þú hefur ekki reynt áður“. „Er það?“ spurði Angela. Þegar hann sneri sér að henni, brosti hún, og tunglskinið varpaði töfrabjanna á and- lit hennar. Það var ekkert barnalegt í fari An- gelu, þegar hún stóð við upplýstar dyr veitingahússins. Hún gerði sitt ýtrasta til þess að stæla hefðbundnustu stell- ingu Meg, þegar yfirþjónninn sneri sér að Ken. Ekki fannst henni Ken skeyta mikið um augnatillit fólksins, þegar þau komu inn. Inni voru þó nokkrir gestir, sem Ken varpaði kveðju á. Þau gengu í átt- ina að upplýstu borði úti í horni, og Ken var fjarska tillitssamur við An- gelu. „Er þetta jafn gott og dýragarður- inn?“ spurði hann. Angela leit í kringum sig, á fólkið á dansgólfinu, sem leið áfram í daufri glætu kertaljósanna. „Þú þarft ekkert að hafa fyrir því að færa mér neina fíla. Þetta er dá- samlegt. Ég fékk ekki einu sinni að fara út með drengjum á seinasta heim- ilinu, sem ég dvaldi á“. „Hvers vegna ekki?“ „Nú — það hafði frétzt frá heimil- inu, sem ég dvaldi á áður, að son for- stöðumannsins hefði langað til þess að bjóða mér út, svo að ég var undir sí- felldu eftirliti“. „Skyldi eftirlitið hafa kennt þér að dansa?“ spurði Ken kíminn. „Eigum við að reyna?“ Hún stóð hreyfingarlaus um stund eftir að hann hafði lagt handlegginn um mitti hennar. Síðan leið hún hægt upp að honum og tónarnir hrifu þau út í dansinn. Ken var þögull, og hún gat ekki fundið neitt til að tala um, en hún fann hann taka fastar utan um sig, og hún færði sig nær honum. Og hún fann hjartað hamast í brjósti sér við nálægð hans. Henni fannst það ómögulegt, að slík tilfinning gæti gagn- tekið hana, nema hann yrði hennar var líka. En hún gat ekkert lesið úr andlits- svip hans^ þegar dansinum lauk, og rödd hans gaf heldur ekkert til kynna. Hann sagði aðeins blátt áfram: „Minntu mig á það að spyrja þig að því, hvar þú hafir lært að dansa svona?“ Síðan sneru þau aftur að borðinu, og þjónninn tók að snúast í kringum þau. Til hvers ætlaðist Ken, sem hún gat boðið honum? Eitthvað hlaut það að vera. „Hefur þig alltaf langað til þess að verða stjórnmálamaður?“ spurði hún. Ken hristi höfuðið. „Ég stundaði lög- fræði og ætlaði mér ekki að verðá annað en lögfræðingur. En þegar ég kom aftur úr herþjónustunni, kom ég auga á ýmsa möguleika. Mér gefast ýms tækifæri, ef mér heppnast að verða þingmaður. Ég er enginn siðbóta- maður. En það eru ýmsir hérna, sem gaman væri að hrófla dálítið við. Og ég hefði ekkert á móti því að taka það að mér“.

x

Vikublaðið Gestur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.