Morgunblaðið - 11.01.2012, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 1. J A N Ú A R 2 0 1 2
Stofnað 1913 8. tölublað 100. árgangur
LEIÐBEININGAR
UM NUDD
UNGBARNA
EMMANUEL STÓÐ
VEL UNDIR NAFNI Í
HÁSKÓLABÍÓI
FJÖLMENNI HJÁ
FÖTLUÐUM Í
LAUGINNI
GALDRAMAÐUR 31 NÝÁRSSUNDIÐ ÍÞRÓTTIRKÆRLEIKSRÍK SAMVERA 10
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fjöldi fólks komst ekki leiðar sinnar innanlands í
gær vegna óveðurs og ófærðar. Vegir voru ýmist
þungfærir eða lokaðir um vestanvert landið og
skafrenningur og éljagangur byrgði ökumönnum
sýn.
Öllu flugi var aflýst hjá Flugfélagi Íslands í
gær og komust um 600 farþegar ekki leiðar sinn-
ar. Flugfélagið Ernir aflýsti líka öllu flugi og
voru það líklega 50-60 manns sem ekki gátu
ferðast með félaginu. Flugfélögin ætluðu bæði að
athuga með flug nú í morgunsárið. Seinkun varð
á flugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Eng-
lands og Bandaríkjanna síðdegis í gær vegna
hvassra élja.
Sterna fór eina rútuferð í Borgarnes síðdegis í
gær en aflýsti öllum öðrum áætlunarferðum.
Hvorki var hægt að fara á Snæfellsnes né til
Norðurlands vegna ófærðar. Stefnt var að því að
fara þangað nú í morgun.
Leiðir Strætó bs. frá Reykjavík til Suðurlands
og eins upp á Akranes voru ekki eknar í gær
vegna óveðurs. Á venjulegum degi má búast við
a.m.k. rúmlega 300 farþegum á þessum leiðum.
Aðrar leiðir Strætó bs. voru eknar en miklar taf-
ir voru á ferðum. Vanbúnir bílar, ýmist fastir eða
spólandi, og umferðaróhöpp töfðu ferðir stræt-
isvagna.
Starfsmenn Aðstoðar & Öryggis (arekstur.is)
aðstoðuðu ökumenn sem lentu í um 30 umferð-
aróhöppum í gær á höfuðborgarsvæðinu. Þar af
urðu sex árekstrar í Mosfellsbæ á aðeins þremur
klukkutímum síðdegis. Ungur ökumaður lenti í
tveimur árekstrum á sama klukkutímanum. Flest
óhappanna mátti rekja til hálku og ófærðar. Haft
var samband við lögreglu höfuðborgarsvæðisins
vegna tíu umferðaróhappa. Ætla má að þar að
auki hafi einhverjir ökumenn fyllt sjálfir út tjón-
stilkynningar án þess að kalla eftir aðstoð. Lög-
reglan fékk auk þess margar aðstoðarbeiðnir
vegna ófærðarinnar og fastra bíla.
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar höfðu í nógu að snúast við að aðstoða
fólk sem festi bíla í ófærð. Einnig voru nokkur
útköll vegna foks í óveðrinu.
Margir sátu fastir
Morgunblaðið/RAX
Samgöngur lamaðar Ökumenn á vesturhluta landsins lentu víða í miklum vandræðum í umferðinni í gær vegna
veðurs og ófærðar. Samgöngur í lofti, á láði og legi urðu fyrir miklum truflunum og lágu niðri mjög víða.
Óveður lamaði eða truflaði samgöngur á landi og í lofti í gær Mörg umferð-
aróhöpp á höfuðborgarsvæðinu Ungur ökumaður lenti í tveimur árekstrum
Nóg var að gera hjá
Vöku í gær við að
draga burtu vanbúna
bíla sem töfðu umferð í
ófærðinni.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Björgunarsveitum í Slysavarnafélag-
inu Landsbjörg hefur verið bent á að
forðast eftir megni að draga bíla sem
eru fastir vegna þess að tjón sem
verður á bílunum lendir á björg-
unarsveitunum.
Lárus Kristinn Guðmundsson, for-
maður Hjálparsveitar skáta í Hvera-
gerði, segir að á einum vetri hafi orðið
tjón á allt að fimm bílum sem verið
var að draga. Þá hefur sveitin þurft
að greiða sjálfsábyrgð, 100.000 krón-
ur, en heildartjónið er bætt með húf-
tryggingu viðkomandi björgunar-
sveitarbíls. Hann segir dæmi um að
fólk hafi undirritað yfirlýsingu um að
björgunarsveit skuli ekki vera ábyrg
en samt sótt bætur til sveitarinnar
vegna tjóns. „Þessum peningum er
betur varið í þjálfun eða búnaðar-
kaup,“ segir Lárus. Aðrir hafa ákveð-
ið að greiða sjálfir tjónið og ekki sótt
bætur.
Lárus bendir á að hætta á tjóni hafi
aukist enda séu bílar ekki eins sterk-
byggðir og áður og henti því verr til
dráttar. Reynt sé að komast hjá því
að draga bíla en hvert tilvik sé metið.
Sé bíll fastur úti á miðjum vegi eða
augljóst sé að lítið átak þurfi til sé
hann dreginn upp. Að öðrum kosti
reyni björgunarsveitarmenn að moka
frá bílum og ýta. Oft sé hins vegar
betra að skilja bílana eftir og vitja
þeirra þegar veður er skaplegra.
Hjá Landsbjörg fengust þær upp-
lýsingar að tillaga um að ábyrgð verði
færð frá björgunarsveitum yfir á bíl-
eigendur sé til meðferðar á Alþingi.
Björgun Stundum þarf sveitin að
aðstoða 20-30 bíla í einu útkalli.
Forðast að draga vegna tjónamála
Ef tjón verður á bílum sem eru dregnir upp er ábyrgðin á bílnum sem dregur
Hjálparsveit skáta í Hveragerði þurfti að bera allt að fimm tjón á einum vetri
Fimmtíu og tvær konur hér á landi
höfðu í gær ákveðið að taka þátt í
málsókn vegna frönsku PIP-
brjóstapúðanna. Lögmaður
kvennanna, Saga Ýrr Jónsdóttir, á
von á því að þeim fjölgi á næstu
dögum. Af þessum konum hafa yfir
10 fengið það staðfest að þær séu
með sprungna púða eða hafa látið
fjarlægja sprungna púða. „Flestar
þeirra eru svo með einhver ein-
kenni. Dæmin um fjarlægða púða
eru mun fleiri en þetta eina atvik
sem Jens talar um,“ segir Saga og á
þar við Jens Kjartansson lýtalækni
sem flutti inn púðana og fram-
kvæmdi aðgerðir á nær öllum þeim
440 konum sem ríkið hefur boðið
ókeypis ómskoðun. Málið var rætt í
ríkisstjórn í gær. »6
Reuters
Brjóstapúðar Ríkið býður 440 íslenskum
konum ókeypis ómskoðun.
Minnst 52 konur
ætla í mál vegna
brjóstapúðanna
Mörg löng mannanöfn eru skamm-
stöfuð í tölvuútgáfu þjóðskrár. Þar
er aðeins mögulegt að fullskrifa
nöfn með 31 staf, ásamt stafabilum,
eða færri.
Börn geta borið allt að sex nöfn
og kenninöfn, það er að segja þrjú
eiginnöfn, millinafn og tvö kenni-
nöfn. Ákveðnar reglur gilda um
hvernig beri að skammstafa nöfn
barna, ef ekki næst samkomulag
við foreldra.
Þjóðskrá er að hefja undirbúning
að lagfæringum á hugbúnaði svo
hægt sé að birta fleiri nöfn
óskammstöfuð. Áfram verður eitt-
hvert hámark. Ekki liggur þó fyrir
hvenær breytingarnar ná fram að
ganga. »4
Skammstafa þarf
löng nöfn í þjóðskrá
Rafmagn fór af á Vestfjörðum,
Vesturlandi og hluta Suður-
lands um kl. 18 í gærkvöldi.
Komst það fljótlega á aftur.
Truflunin varð vegna veðursins,
að sögn Landsnets. Rafmagn
fór af álverinu á Grundartanga
fyrir kl. 19 og var að komast þar
aftur á á ellefta tímanum.
Rekstrartruflanir urðu einnig
hjá OR vegna rafmagnstrufl-
ananna. Hellisheiðarvirkjun sló
út um kl. 18.50 og heitavatns-
dælur á höfuðborgarsvæðinu
um kl. 20.30.
Bilun á flutningslínu frá
Vegamótum til Ólafsvíkur
fannst loks í gærkvöldi eftir
talsverða leit í vondu veðri. Við-
gerð átti að ljúka um miðnætti.
Veðrið olli
bilunum
RAFMAGNSTRUFLANIR
URÐU VÍÐA Í GÆR
MMartröð öskukarlsins »14
Neyðarlínan,
112, fékk tals-
vert margar
hringingar
vegna óveðurs-
ins í gær. Fólk
hringdi m.a.
vegna foks,
fastra bíla og
rafmagnstrufl-
ana. Alls bárust
112 yfir 800 hringingar frá mið-
nætti í fyrrinótt. Flestar hringing-
arnar í gær bárust frá vestanverðu
landinu, að sögn stjórnstöðvar 112.
Nokkrir toppar voru í hringing-
unum í gær. Erindin urðu flest frá
kl. 18 til 19 eða 79 talsins. Næst
hæsti toppurinn var frá kl. 8.00 til
9.00 um morguninn eða 73 beiðnir.
Yfir 800 símtöl í
Neyðarlínuna í gær