Morgunblaðið - 11.01.2012, Síða 11

Morgunblaðið - 11.01.2012, Síða 11
Leiðbeiningar Í bókinni eru foreldrar leiddir áfram skref fyrir skref og kennt að nudda barnið sitt. Í svona verkefni er ekki hægt að vera á klukkunni. Sumar myndirnar tók- um við líka aftur og aftur. Það er vandaverk að mynda lítil börn og maður þarf smám saman að byggja upp traust hjá fólki en nú eru kríla- ljósmyndir mjög vinsælar. Ég byrjaði á að mynda mín eigin börn og gat not- að fæðingarorlofin til að æfa mig. Maður þykist eiga dálítið í börn- unum þegar maður myndar þau, kúrir sig í þeim og talar við þau, þá líður þeim betur,“ seg- ir Heiða. Beið eftir Heiðu í 20 ár Það er svolítil saga á bak við það hvernig samstarf þeirra Dillu og Heiðu hófst. En Dilla sá fyrst myndir Heiðu á hennar fyrstu krílaljósmyndasýningu. Mikið var um að vera og náði Dilla ekki tali af Heiðu fyrr en í þriðju heimsókn sinni á sýninguna. „Þegar hún kom í þriðja sinn sagði hún að nú yrði hún að fá að tala við mig. Hún væri búin að bíða eftir mér í rúm 20 ár. Um leið og ég var tilbúin að halda sýningu þá lágu leiðir okkar saman svo kannski var það alls engin tilviljun. Ég hefði líka gjarnan viljað þekkja Dillu þegar elsti strákurinn minn fæddist. Höf- uðbeinin í honum voru eiginlega sam- vaxin. Þetta olli honum ýmsum óþæg- indum þannig að hann átti erfitt með að sitja kyrr í skólanum þegar að því kom. Nú er hann tíu ára og í nuddi hjá Dillu sem ber góðan árangur. Ég sé líka á börnum í nuddi hvað þau eru sterk og eiga auðveldara með að sitja upprétt í myndatöku,“ segir Heiða. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 Á nýju ári er alltaf gott að taka sér eitthvað nýtt fyrir hendur og þeir sem hafa kannski lengi látið sig dreyma um að sinna sjálfboðastörf- um úti í hinum stóra heimi ættu hik- laust að mæta á morgun, fimmtu- dag, á kynningarfund á sjálfboðaliðastarfi í Palestínu 2012, á vegum félagsins Ísland-Palestína. Kynningarfundur þessi verður í fundarsal Reykjavíkurakademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð kl. 17:00. Í tilkynningu segir að frá árinu 2002 hafi á fimmta tug sjálfboðaliða lagt sitt af mörkum með milligöngu félagsins, en þörf sé á fleirum. Sjálfboðaliðar á vegum félagsins hafa komið að skólastarfi og fræðslu í flóttamannabúðum, aðstoðað heimamenn við að skipuleggja frið- samleg mótmæli gegn hernámi og aðskilnaðarmúr, liðsinnt á heilsu- gæslu og staðið vörð um réttindi hinnar kúguðu þjóðar með einum eða öðrum hætti. Á árinu 2012 er fyrirhugað að fjölga samstarfsaðilum í Palestínu og koma á legg skyndi- hjálparverkefni í flóttamannabúðum. Hvað svo sem sjálfboðaliði tekur sér fyrir hendur hefur vera hans á Vesturbakkanum áhrif. Hermenn hika við hrottaskap í viðurvist Vesturlandabúa. Heimamenn skynja að umheiminum stendur ekki full- komlega á sama. „Gríðarlega gest- risnir“ eru orð sem sjálfboðaliðar hafa notað til lýsa kynnum sínum af Palestínumönnum þegar heim er komið og við tekur síðasta en ekki sísta hlið sjálfboðastarfsins: Að vera til frásagnar. Áætlað er að kynningarfundurinn standi í um 30 mínútur. Nánari upplýsingar veitir Egill Bjarnason á netfanginu: egillbjarnason@gmail.com, og eða í síma 865-6284. Vert er að taka fram að fundurinn er öllum opinn og mætingu fylgja engar skuldbindingar. Kynningarfundur á morgun, fimmtudag Ljósmynd/Egill Bjarnason Sjálfboðastörf í Palestínu 2012 Nuddókin er skrifuð á ein- faldan og aðgengilegan hátt. Bókin er hugsuð þannig að foreldrar geti lesið hana saman. En leið- beiningar eru gefnar skref fyrir skref og þegar fólk er orðið vant getur annað foreldrið lesið þær upp en hitt nuddað. Þannig getur fjölskyldan átt kærleiksríka sam- verustund. Kærleiksrík samvinna UNGBARNANUDD

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.