Morgunblaðið - 11.01.2012, Side 15

Morgunblaðið - 11.01.2012, Side 15
FRÉTTIR 15Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 STUTTAR FRÉTTIR ● Útlendingar voru stærstu eigendur ríkisverðbréfa í lok nýliðins árs. Áttu þeir 31% af ríkisverðbréfum, lífeyr- issjóðir áttu 27% og verðbréfasjóðir áttu 17%. Fjárhæð útistandandi rík- isverðbréfa nam um 586 milljörðum króna í árslok 2011, samkvæmt Morg- unkorni Greiningar Íslandsbanka. Útlendingar stærstir ● Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði nokkuð í gær. Áhrif til hækkunar voru m.a. aukin einkaneysla í Bandaríkjunum og óeirðir í Nígeríu. Í New York hækkaði verð á hráolíu til afhendingar í febrúar um 1,38 dali og var 102,69 dalir tunnan. Í Lundúnum hækkaði Norðursjávarolía um 82 sent og var 113,27 dalir tunnan. Heimsmarkaðsverð olíu hækkaði nokkuð í gær Oddný Harðardóttir fjármálaráð- herra sagði í gær á Skattadegi Delo- itte að ekki væri gert ráð fyrir frek- ari hækkun skatta á næstunni. Hún varði þær skattabreytingar sem þessi ríkisstjórn hefði staðið fyrir. Hún minnti á að ríkisstjórnin hefði líka lækkað skatta, t.d. vegna ný- sköpunar, endurgreiðslu á virðis- aukaskatti í byggingariðnaði og með upptöku frítekjumarks á fjármagns- tekjur. Oddný sagði að ríkisstjórnin hefði ekki átt annan kost en að styrkja tekjuöflun ríkissjóðs eftir að tekjur ríkisins lækkuðu mikið eftir 2008 samhliða auknu atvinnuleysi. Bogi Nils Bogason, framkvæmda- stjóri fjármála hjá Icelandair Group, hélt einnig ræðu á deginum og sagði að Flugfélag Íslands hefði þurft að bregðast við hækkun skatta með því að draga saman í rekstri og minnka þjónustu. Fyrirtækið þarf á þessu ári að greiða 443 milljónir í skatta en greiddi 206 milljónir árið 2009. Á þessu tímabili hefur farþegum fækk- að um 2%. Bogi sagði að skattahækkun á inn- anlandsfluginu væri það mikil að engin leið væri að koma þessum kostnaði öllum út í verðlagið til við- skiptavina. Því yrðu þeir að draga saman seglin. Búið er að leggja út- blástursgjald á flugið í samræmi við stefnumörkun Evrópusambandsins. Bogi sagði að það væri hins vegar líka lagt kolefnisgjald á það elds- neyti sem flugvélar hér á landi not- uðu. Hann sagðist ekki vita um að það væri annars staðar í heiminum lagður á tvöfaldur kolefnisskattur með þessum hætti. Bogi varaði einnig eindregið við því að lagður yrði komuskattur á far- þega en slík skattlagning á Schiphol- flugvelli í Amsterdam hefði leitt til þess að tekjur uppá 1,3 milljarða evra hefðu tapast. Bogi sagði ferðaþjónustuna áhættusama atvinnugrein og stjórn- völd yrðu að gæta hófsemi í skatt- lagningu og leyfa fyrirtækjum að safna fé til að takast á við niðursveifl- ur. Vilhjálmur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, gerði auðlegðarskattinn að umræðu- efni og velti því upp hvort sá skattur væri ekki nær því að flokkast undir eignarnám en skatt. Hann sagði stjórnlagadómstól í Þýskalandi hafa verið í vafa um hvort slíkur skattur samrýmdist stjórnarskránni enda óvíða innheimtur. borkur@mbl.is Frekari hækkun skatta verður ekki á næstunni  Skattgreiðslur Icelandair tvöfaldast frá 2009  Auðlegðarskattur er eignarnám Grand Hótel Morgunverðarfundur var haldin í gærmorgun með nokkrum erindum í tilefni Skattadags Deloitte og Samtaka Atvinnulífsins. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Aukin skattbyrði » Frá árinu 2009 hefur farþeg- um hjá Icelandair fækkað um 2% en skattgreiðslur aftur á móti aukist úr 206 milljónum 2009 í 443 milljónir 2011. » Komuskattur var settur á far- þega á Schiphol-flugvelli 2008 sem leiddi strax til samdráttar og óháð nefnd mat tapið á að- gerðinni upp á 1,3 milljarða evra. » Vilhjálmur Bjarnason viðraði á fundinum þá skoðun margra að auðlegðarskattur væri nær því að vera eignarnám en skattur.                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-./- +01.0+ +,+.++ ,+.,- ,1.213 +3.440 +-1.+- +.215- +44.30 +53.0 +,-.3, +0+.-3 +,+./2 ,+.,0, ,1.224 +3.0/+ +-1./0 +.2+ +40.-5 +54.-/ ,+3.002+ +,/.1+ +0+.4- +,+.4+ ,+.-5/ ,1.3,0 +3.00- +-1.45 +.2+/3 +40.0+ +54.34 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á www.ruedenet.is Rue de Net Reykjavík - Vesturgötu 2a, 101 Reykjavik - Sími: 414 5050 - ruedenet@ruedenet.is REYNSLA, ÞJÓNUSTA OG PERSÓNULEG RÁÐGJÖF Rue de Net hefur yfir að ráða samstíga hópi sérfræðinga með áralanga reynslu af rekstri viðskiptakerfa, innleiðingu og samþættingu viðskiptalausna. Við leggjum áherslu á nána og persónulega ráðgjöf þar sem ráðgjafi Rue de Net kemur að verkferlinu frá byrjun til enda, frá sölu til afhendingar vöru, lausnar og þjónustu. RÁÐGJÖF Hjá Rue de Net starfar samstíga hópur sérfræðinga með áralanga reynslu af rekstri og innleiðingu viðskiptakerfa. VIÐSKIPTALAUSNIR Bjóðum uppá þrautreyndar viðskiptalausnir, eins og Microsoft Dynamics NAV og LS Retail. SAMÞÆTTING Við hjálpum þér að fá meira út úr fjárfestingu í viðskiptalausnum með samþættingu við önnur upplýsingakerfi. KERFISÖRYGGI Við tryggjum hámarks virkni og áreiðanleika viðskiptalausna þinna. Framúrskarandi lausnir á einum stað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.