Morgunblaðið - 11.01.2012, Page 18

Morgunblaðið - 11.01.2012, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ÁskattadegiDeloitte,sem haldinn var í gær, fór ekki á milli mála að Oddný Harð- ardóttir, sem nú vermir stól fjármálaráðherra, er sátt við skattastefnu rík- isstjórnarinnar. Hún telur skattahækkanir forvera síns hafa verið nauðsynlegar og ekkert bendir til að jákvæðra breytinga sé að vænta. Aðrir sem tóku til máls á fundinum höfðu töluvert aðra sýn á skattastefnu stjórnvalda, svo ekki sé fastar að orði kveð- ið. Innlegg framkvæmdastjóra fjármála hjá Icelandair Group, Boga Nils Bogasonar, mætti að ósekju verða til að hreyfa við ráðherranum. Í máli Boga kom fram að skattar Flugfélags Ís- lands hefðu ríflega tvöfaldast í tíð þessarar ríkisstjórnar og að fyrirtækið hefði þurft að bregðast við með því að draga úr þjónustu og að farþegum hefði fækkað. Þá væri hér lagð- ur á tvöfaldur kolefnisskattur sem þekktist ekki annars stað- ar og Bogi varaði við hug- myndum um komuskatt, sem hann sagði suma enn reyna að koma á. Áhyggjur fulltrúa Icelandair Group af nýjum og hækkuðum sköttum eru skiljanlegar þegar skattastefna stjórnvalda og reynslan af henni er höfð í huga. Svo að segja allir skatt- ar hafa verið hækkaðir, sumir ítrekað, og til við- bótar hafa nýir skattar verið lagðir á. Eins er það svo að engu breytir hvað á dynur, skatta- lækkun er ekki inni í myndinni hjá ríkisstjórninni. Þannig mega bifreiðaeigendur nú greiða yfir 240 krónur fyrir bensínlítrann og yfir 250 krón- ur fyrir dísellítrann og ríkið hagnast sem aldrei fyrr af hverjum lítra, en lækkun kem- ur ekki til greina. Og ekki gefa áform Odd- nýjar Harðardóttur um skoðun á skattkerfinu góðar vonir um batnandi hag skattgreiðenda. Á skattadeginum upplýsti hún að hún hefði óskað eftir stöðu- mati frá starfshópi sem hafði það hlutverk að endurskoða skattkerfið. Þennan starfshóp skipaði Steingrímur J. Sigfús- son með sínum hætti og það eina sem hingað til hefur komið út úr starfinu eru endalausar tillögur að hærri sköttum. En þar með er ekki sagt að hóp- urinn lumi ekki á nýjum til- lögum fyrir nýjan ráðherra, þannig að vissulega er full ástæða fyrir fólk og fyrirtæki að hafa áhyggjur af framhald- inu. Full ástæða er til að óttast frekari skattahækkanir og nýja skatta} Ástæða til að óttast Viðtal Der Spie-gel við utanríkisráðherra Tékklands, Karl Fürst zu Schwar- zenberg, afhjúpar málflutning stjórn- valda hér á landi. Á þetta bend- ir Björn Bjarnason í leiðara á Evrópuvaktinni, þar sem birt er þýðing hluta viðtalsins. Björn vitnar í svar Schwar- zenbergs við spurningu um áhrif Þjóðverja innan Evrópu- sambandsins: „Á fyrstu stigum kreppunnar spurði ég einu sinni hóp samstarfsmanna í Evrópu: Hvers vegna allar þessar flóknu ályktanir? Við skulum bara setja ESB- reglugerð um að það verði þýskur endurskoðandi í öllum fjármálaráðuneytum innan ESB. Allir hlógu, en við nálg- umst þetta nú hægt og síg- andi.“ Og um áhrif smáríkja hafði Schwarzenberg þetta að segja: „Málum er háttað á þennan veg: Ríki frændinn sem réttir þér hjálparhönd og gerir mikið veður út af því fer í taugarnar á þér. Smáríki eiga einkum erfitt með að kyngja þessu. Þau fagna því ekki endilega þegar Merkel og Sarkozy hittast og berja saman stefnu og tilkynna síðan öðr- um niðurstöðuna. Þetta gengur ekki til lengdar.“ Hér á landi láta stjórnvöld og smáríkjafræðingar Samfylk- ingarinnar eins og Ísland hefði eitthvað að segja um þróun mála innan Evrópusambands- ins. Þessari blekkingu hefur lengi verið beitt til að telja Ís- lendingum trú um að ekkert sé að óttast við inngöngu í Evr- ópusambandið, landið verði áfram ráðandi í eigin málum. Staðreyndin er hins vegar sú að Evrópusambandið hefur aldrei verið þannig að smáríki hefðu þar áhrif og þróunin er hröð í þá átt að treysta enn frekar áhrif stóru ríkjanna tveggja, þó einkum Þýskalands. Það er ömurlegt að íslensk stjórnvöld séu svo heillum horf- in í ákafa sínum vegna umsókn- arinnar að þau haldi að Íslend- ingar séu betur settir með því að hlusta á forystumenn ann- arra ríkja um ástandið innan Evrópusambandsins. Schwarzenberg hitt- ir naglann á höfuðið um áhrif smáríkj- anna í ESB} Áhrif smáríkja innan ESB Ö llu virðist nú hægt að snúa upp í pólitískt argaþras. Meira að segja veðrinu. Desember 2011 var sá snjóþyngsti í Reykjavík síðan 1984 og eftir hressilega ofankomu í lok mánaðarins var snjódýptin í höfuðborginni sú mesta síðan mælingar hófust árið 1921. Síð- an hefur snjóað og hlánað til skiptis með til- heyrandi hálku. Nú síðast í gær gekk svo á með stormi og hríðarbyl. Sveiflurnar í veðrinu eru sem sagt í öfgafyllri kantinum. Þetta vitið þið reyndar vel sem lesið þessi orð því öll höfum við lent í basli vegna færðarinnar og sum verið svo óheppin að meiðast. Sjálf flaug ég á hausinn þegar ég skaust yfir götuna heima til að sækja mér pizzu. Þakkaði bara fyrir að fallið varð áð- ur en ég fékk pizzuna og gætti þess að stíga varlegar til jarðar á bakaleiðinni. Því þótt mild- ir vetur hafi verið reglan fremur en undantekningin í höf- uðborginni reynum við flest að taka þessu bara með ró og haga ferðum okkar og hegðun eftir aðstæðum. Við Íslend- ingar kunnum jú að temja okkur æðruleysi gagnvart nátt- úruöflunum, ekki satt? Samt finna margir það í sér að nenna að verða ógurlega reiðir út í borgarstjóra fyrir að láta það gerast að það séu hálka og skaflar á götunum. Það er vinsælt sport á Íslandi þessi dægrin að leita að söku- dólgum, og helst hengja þá líka, en áður en fólk stekkur upp á nef sér og krefst þess að einhver verði dreginn til ábyrgðar á veðrinu mætti íhuga nokkur atriði. Fyrst er það auðvitað snjóþunginn, sá mesti frá 1984, sá mesti eins og áður segir. Í því ljósi má skoða þá staðreynd að á síðustu 25 árum hefur bílum fjölgað all- verulega á höfuðborgarsvæðinu. Ég sé greini- leg merki þess í þeim tveimur götum sem ég þekki best, við æskuheimili mitt og heimili ömmu minnar, því við báðar þessar götur standa að jafnaði um tvöfalt fleiri bílar en gerðu um miðjan 10. áratuginn svo lagt er í botnlöngum og meðfram gangstéttaköntum, þar sem áður var eingöngu lagt á bílastæðum. Þetta gerir það að verkum að það hlýtur að vera erfiðara í dag en fyrir 25 árum að ryðja svo almennilegt sé, ekki síst þegar á okkur fell- ur mesti snjór í 25 ár. Borgin virðist alla jafna ágætlega í stakk búin til að hreinsa göturnar þegar snjóar og ég er ekki viss um að það þætti vel farið með peninga að eiga lager af aukasnjómoksturstækjum til taks í þau fáu skipti sem færðin verður óvenjuslæm eins og nú. Og sama í hvaða átt er rutt, þá hverfur snjórinn víst ekki, hann safnast í skafla þar til hann bráðnar. Því náttúrulögmáli verður ekki breytt. Talsvert hefur verið um hálkuslys síð- ustu daga en þau verða reyndar á hverju ári. Veturinn 1994-1995 gerði Landlæknisembættið t.d. rannsókn á hálkuslysum. Þá var óvenjumildur vetur en samt urðu 520 slys, að jafnaði fimm á hvern hálkudag. Flest slysin urðu þá við heimahús eða fyrirtæki og á bílastæðum, ekki á um- ferðargötum. Áhugavert væri að kanna hvar flestir runnu nú um helgina. Kannski þurfum við að líta okkur aðeins nær og fá okkur mannbrodda. una@mbl.is Una Sighvatsdóttir Pistill Það er hált á svellinu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is O ft verða sveiflur á álverði á heimsmarkaði, á seinni árum hefur það verið hátt sem kemur sér vel fyrir Landsvirkjun. En niðursveifla getur fljótt þýtt millj- arðatap í krónum. Síðustu mánuði hefur álverð lækkað um 27% sé miðað við hæsta verðið á sl. ári. Fram kemur í vefritum um álmarkaðinn í árs- byrjun að vandinn á evrusvæðinu dragi úr væntingum og valdi und- irliggjandi óvissu. Skortsala í kjölfar versnandi efna- hagsaðstæðna í heiminum og birgða- söfnun lækki síðan enn verðið, hins vegar megi búast við að það nái lág- marki einhvern tíma á fyrsta ársfjórð- ungi. Þess ber að geta að álverðið var óvenju hátt um tíma í fyrra og mun hærra en menn höfðu gert ráð fyrir. Ef miðað er við upphaf ársins og lok þess er lækkunin aðeins um 15%. Og 2008 fór áltonnið niður í 1400 doll- ara en er nú um 2000 dollarar. Reynd- ar hækkaði verðið hressilega í gær, um 76-80 dollara tonnið. Skýringin er m.a. sögð vera að birgðir minnkuðu af því að Kínverjar fluttu inn ál í desem- ber sem þeir þurfa yfirleitt ekki að gera, þeir eru yfirleitt sjálfum sér nógir. En stóru fyrirtækin hafa allan var- ann á. Alcoa, sem á og rekur Fjarðaál, hefur skýrt frá því að heildar- framleiðslan, nú um 4,5 milljónir tonna á ári, verði minnkuð um 12% eða rösklega hálfa milljón tonna. Er það talsvert meira en öll ársfram- leiðsla Fjarðaáls. Lokað verður verk- smiðju í Tennesse og framleiðsla minnkuð í álverum í Texas, á Spáni og Ítalíu. Einnig verður reynt að draga eftir mætti úr kostnaði hjá öllu fyr- irtækinu. „Hverfandi líkur“ á samdrætti Fjarðaál á Reyðarfirði er þriðja stærsta álbræðsla Alcoa. Í frétta- tilkynningu er haft eftir Janne Sig- urðsson, nýjum forstjóra Fjarðaáls, að þar sem verið sé ein nýjasta og hagkvæmasta verksmiðja fyrirtæk- isins álíti hún að „hverfandi líkur“ séu á að dregið verði úr framleiðslu. Rio Tinto Alcan er stærsti álfram- leiðandi í heimi, það er eigandi Alcan á Íslandi sem rekur álverið í Straums- vík. Rio Tinto Alcan hyggst draga úr framleiðslu í verum í Quebec í Kan- ada. Einnig er talið líklegt að sum kín- versk álfyrirtæki muni minnka fram- leiðsluna á næstunni. Allar þessar samdráttaraðgerðir munu að lík- indum verða til þess að draga úr lík- um á frekara verðfalli, að sögn sér- fræðinga á álmarkaði. En hvað með álverið í Straumsvík og Norðurál á Grundartanga? Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir engar breytingar á framleiðsl- unni fyrirhugaðar, unnið sé á fullum afköstum. Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi hjá Alcoa á Íslandi, segir að ekki liggi fyrir nein áform um breytingar á framleiðslunni í Straumsvík. Árstekjur Landsvirkjunar voru í fyrra um 450 milljónir dollara, helm- ingur þeirra er tengdur álverði. Hvaða áhrif hefur verðlækkunin? „Álverð er alltaf sveiflukennt en þetta hefur að sjálfsögðu neikvæð áhrif á tekjustreymið hjá okkur á árinu þótt það hafi ekki endilega áhrif á sjóðsstreymið,“ segir Hörður Arn- arson, forstjóri Landsvirkjunar. „Það er kannski það sem er alvarlegast í mínum huga. Við höfum hins vegar á undanförnum árum reynt að draga úr tengingu við álverð. Fyrir rúmu ári var samið við Rio Tinto Alcan um að vera ekki með álverðstengingu. Það hjálpar núna en eftir sem áður eru um 50% af tekjum okkar tengd álverði, áður var hlutfallið rúmlega 70%.“ Álverðið er óvenju dyntóttur dansfélagi Morgunblaðið/Golli Álbræðsla Önnum kafinn starfsmaður í álverinu í Straumsvík. Óvissan í efnahagslífi heimsins veldur miklum verðsveiflum á álmörkuðum. Í raun og veru er mjög flókið að reikna út heildaráhrifin á stöðu Landsvirkjunar af niðursveiflum á álverði, að sögn Harðar Arn- arsonar. „Þau eru annars vegar beint á tekjurnar en svo eru raf- orkufyrirtæki með svokallaðar innbyggðar afleiður sem geta sveiflast gríðarlega mikið til með þessum breytingum á ál- verðinu á heimsmarkaði. En við erum auk þess með ákveðnar skammtímavarnir sem draga úr sveiflunum á okkar tekjum og ég geri ráð fyrir að þær virki ágætlega á þessu ári.“ Reynt að minnka áhrif VARNIR GEGN SVEIFLUM Þróun álverðs 2011 2.800 2.700 2.600 2.500 2.400 2.300 2.200 2.100 2.000 1.900 1. jan. 2011 27. des. 2011

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.