Morgunblaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2012
Sú saga var sögð, vafalítið ósönn,að fyrrverandi forseti Banda-
ríkjanna hefði átt erfitt með að
leggja nafn forseta Írans á minnið.
Viðurkenna má aðnafnið Ahmad-
inejad er ekki það
þægilegasta af þeim
sem mikilvægir
fyrirmenn bera.
Þótt varla sé þaðannar eins
tungubrjótur og
Eyjafjallajökull.
Og fyrrnefndasagan var sú að
embættismenn Hvíta hússins hefðu
auðveldað sínum manni að fara rétt
með hið flókna nafn Íransforseta
með því að hugsa sér það sem: „Ah,
mad indeed.“ Eftir þetta hafi hann
komist klakklaust í gegnum blaða-
mannafundi með nafnið.
Nöfn forseta Venesúela, Ník-aragva og Kúbu, Chaves, Or-
tega og Kastró, eru mun viðráðan-
legri, þótt hugsanlega hefði
viðkomandi forseti viljað nota sama
nafnið á alla þrjá.
Chaves hefur að undanförnu háðbaráttu við krabbamein, eins
og því miður fleiri leiðtogar Suður-
Ameríku. Chaves varpaði fram
þeirri tilgátu nýlega að leyniþjón-
usta CIA hefði með einhverjum
hætti plantað krabbanum í hina
veiku leiðtoga. Virtist forsetinn
setja þessa tilgátu fram í fúlustu al-
vöru.
Fyrri fréttir af einstaklegakauðskum og afkáralegum til-
burðum CIA við að koma Fídel
Kastró fyrir kattarnef gera tilgátur
Chavesar ekki sennilegar, hvað sem
má að öðru leyti segja.
Fídel Kastró
Kenningar um
launmorð
STAKSTEINAR
Chaves
Veður víða um heim 11.1., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Bolungarvík -6 heiðskírt
Akureyri -5 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -2 léttskýjað
Vestmannaeyjar 1 léttskýjað
Nuuk -1 snjókoma
Þórshöfn 1 skúrir
Ósló -2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 6 heiðskírt
Stokkhólmur 2 heiðskírt
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 10 skýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 8 skýjað
London 11 skýjað
París 11 skýjað
Amsterdam 8 skýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 7 súld
Vín 7 skýjað
Moskva -2 skýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 6 léttskýjað
Winnipeg -15 snjókoma
Montreal -13 alskýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 7 léttskýjað
Orlando 19 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:03 16:10
ÍSAFJÖRÐUR 11:37 15:45
SIGLUFJÖRÐUR 11:21 15:27
DJÚPIVOGUR 10:39 15:32
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fulltrúar í samninganefnd ASÍ voru
ekki bjartsýnir eftir fund með þrem-
ur ráðherrum ríkisstjórnarinnar í
gærmorgun um efndir loforða í yf-
irlýsingu stjórnvalda vegna kjara-
samninganna frá 5. maí sl. Taka þarf
ákvörðun um uppsögn samninga í
síðasta lagi á föstudag í næstu viku.
„Það er ekkert sem bendir til að
[stjórnvöld] muni gera breytingar á
þessum stóru atriðum sem við ger-
um athugasemdir við, annars vegar
hækkun almannatryggingabótanna
og hins vegar aðförinni að lífeyris-
sjóðunum,“ sagði Stefán Einar Stef-
ánsson, formaður VR, eftir fundinn.
Hann segist hafa haldið fundi með
trúnaðarmönnum og trúnaðarráði að
undanförnu og endanleg ákvörðun
félagsins verði svo tekin í trúnaðar-
ráði 16. janúar. „Eins og ég les í að-
stæður þá telur fólk mikilvægt að
samningarnir haldi, sérstaklega
vegna þess að Samtök atvinnulífsins
hafa staðið við sinn hluta samkomu-
lagsins. Hins vegar er gríðarleg
kergja út í framgöngu ríkisstjórnar-
innar í þeim málum sem tengjast yf-
irlýsingunni frá 5. maí, sem ekki hef-
ur verið staðið við. Að sjálfsögðu
hefur margt verið gert og augljóst að
stjórnkerfið hefur lagt mikið á sig til
að koma ákveðnum málum í gegn en
það eru stór og mikil mál sem ekki
hafa fengið þá afgreiðslu sem lofað
var heldur þvert á móti.
Ég heyri á mínu fólki að menn
gráta það mjög að við skulum ekki
hafa þau vopn í höndunum sem til
þarf til þess að þvinga fram þann
rétt sem við teljum okkur eiga gagn-
vart yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.“
Verði samningum sagt upp fá
launþegar ekki þá 3,5% hækkun sem
kveðið er á um 1. febrúar á almenna
markaðinum og 1. mars hjá opinber-
um starfsmönnum. Forseta ASÍ var
falið að halda áfram að ræða við
stjórnvöld fram á fimmtudag í næstu
viku. „Það er mitt mat eftir þennan
fund að það sé ekkert að ræða. Það
er ljóst að það á ekki að standa við
þessi atriði og ég tel að þau mál verði
ekkert gerð upp fyrr en þá í kosn-
ingum,“ segir Stefán.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að viðræður hafi verið óform-
legar og ljóst sé hvað út af stendur.
„Það er ljóst að það er forsendu-
brestur í okkar kjarasamningi og við
höfum kallað eftir því að fá viðræður
og viðbrögð stjórnvalda áður en við
tökum ákvarðanir.“ Gylfi segir að
sum þessara atriða verði ekki
leyst fyrir 20. janúar en
engu að síður sé mikilvægt
að móta þeim ákveðinn far-
veg.
Björn Snæbjörnsson,
formaður Starfsgreinasam-
bandsins, segir aðildarfélög-
in funda þessa dagana, 17.
janúar er svo boðaður
120 manna fundur samn-
inganefndar og trúnað-
arráðs og formanna-
fundur SGS verði 18.
janúar.
„Gríðarleg kergja“ í fólki
Segir lítinn árangur af fundi ASÍ með þremur ráðherrum
Stjórnvöld gagnrýnd en mikilvægt að samningar haldi
Morgunblaðið/Ómar
Kjaramál Ekki er ljóst hvort samn-
ingar launafólks standa eða falla.
„Menn hafa ekki oft lent í því
að íhuga það alvarlega að
segja upp kjarasamningi
gagnvart samningsaðila, sem
hefur staðið við allt sitt. Það
er mjög óvanaleg aðstaða og
mönnum líður mjög illa með
það,“ segir Stefán Einar Stef-
ánsson, formaður VR.
Flestum ber saman um að
forsendur samninganna
sjálfra haldi en upp á vanti að
ríkisstjórnin standi við sitt.
Við endurskoðun samninga
ASÍ og SA eru í reynd allir
kjarasamningar í húfi. Í samn-
ingum félaga opinberra
starfsmanna segir að komi
til þess að samningum á al-
mennum vinnumarkaði verði
sagt upp nú á grund-
velli forsendu-
ákvæðis þeirra sé
aðilum heimilt að
segja upp samn-
ingnum fyrir 15.
febrúar.
Mjög óvana-
leg aðstaða
FÉLÖGIN ÍHUGA UPPSÖGN
Stefán Einar
Stefánsson
Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðs-
félags Akraness lýsir í ályktun yfir
algeru vantrausti á ríkisstjórnina
vegna síendurtekinna svika og van-
efnda við launafólk og krefst þess
að stjórnin fari frá og boðað verði
til kosninga við fyrsta tækifæri.
Að mati stjórnar og trúnaðarráðs
er þó ekki grundvöllur fyrir því að
segja upp kjarasamningum þó að
forsenduákvæði gagnvart ríkis-
stjórninni hafi „kolbrostið“, enda
muni ekkert annað gerast gagnvart
launþegum, ef samningum verður
sagt upp, en að launahækkanir 1.
febrúar verði hafðar af launafólki.
Vilja kosningar en
samningar haldi