Morgunblaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2012 konu minni,“ sagði ég við hana. Það reyndist rétt og þegar ég kynntist henni betur sá ég að þær frænkur voru ekki bara lík- ar í útliti heldur einnig í viðmóti og fasi. Við Magnea tókum að okkur miðasölu á knattspyrnuleikjum hjá Val fyrir tveimur árum. Það var í raun ekki af áhuga á knatt- spyrnu sem við stóðum vaktina, því við vissum varla hvað rang- staða var, en þetta starf, eins og mörg önnur störf hjá íþrótta- félögum, er unnið í þágu félags- ins. Við göntuðumst með að nóg væri að þekkja rauða litinn á búningi Valsmanna. Við áttum saman margar góðar stundir við miðasölu og í félagslífi hjá félag- inu og margt var spjallað þegar tími gafst. Magnea var góður kennari. Ég varð oft vitni að því þegar gamlir nemendur hennar komu og heilsuðu henni, jafnvel nem- endur sem hún hafði kennt fyrir áratugum fyrir norðan. Hún þekkti þá alla og gaman var að sjá hlýtt bros hennar og glampa í augum. Þá sá ég hvað henni þótti vænt um nemendur sína og að hver nemandi skipti hana máli. Magnea talaði oft um Ragnar bróður sinn sem nú er nýlega látinn. Greinilegt var að kært var með þeim systkinum. Mér hefur verið sagt að í æsku hafi þau Raggi og Magga, eins og þau voru kölluð, alltaf verið nefnd í einu svo náin voru þau og nú hafa þau bæði kvatt með stuttu millibili. Ég sendi foreldr- um þeirra og fjölskyldu allri innilegar samúðarkveðjur. Magnea Hrönn var traust, hlý og orðvör kona. Við áttum sam- an margar góðar stundir og oft var mikið hlegið að skemmtileg- um sögum og atburðum. Ég kveð Valsvinkonu mína með miklum söknuði. Við Höskuldur sendum Jóni vini okkar, Kristínu og Guðríði ásamt fjölskyldum, okkar dýpstu samúðarkveðjur. Helena. Þegar Magnea Hrönn Stef- ánsdóttir íslensku- og umsjónar- kennari á unglingastigi Háteigs- skóla lést miðvikudaginn 4. janúar var höggvið stórt skarð í samstarfshópinn. Það tekur mik- ið í þegar kennara á hátindi fer- ils síns er kippt út úr umhverfi þar sem ríkir einhugur, metn- aður og starfsgleði. Starfsgleði sem er, meðal annarra, viðkom- andi kennara að þakka. Magnea skapaði öryggi í kringum sig með hógværð, ósérhlífni og góðu skipulagi. Starfsgleði Magneu var hófstillt en svo innileg og merkingarbær að glettið bros hennar hlýjaði öllum um hjarta- rætur. Ljóslifandi situr hún í minningu okkar við kaffiborðið og leggur varlega en örugglega gott eitt til málanna í hverju um- ræðuefni. Allir sem störfuðu með Magn- eu fundu að í hennar höndum voru verkin klár og auðvelt var að fletta upp hjá henni upplýs- ingum um fundi eða fyrri verk- efni til að kanna hvernig til hefði tekist. Það var í hillu og auðvelt að finna ef Magnea var spurð. Magnea hóf störf við skólann haustið 1999 og sýndi strax að veganestið sem hún kom með að norðan var mikið og gott. Hún blómstraði sem íslenskukennari á unglingastigi, sýndi nemend- um hlýju, umhyggju og mildan en ákveðinn aga. Það var eins og nemendur væru börnin hennar. Háttsemi Magneu og framkoma við nemendur var þannig að nemendur báru virðingu fyrir greininni og henni svo að þeir náðu að jafnaði frábærum ár- angri. Ef einhver hefði það al- vald að skapa góða kennara þá hefði Magnea verið í þeirra hópi. Þegar nemendur úr 9. og 10. bekkjunum tóku þátt í Skrekk, sem sýndur var á Skjá einum í haust, þá tóku þeir upp hjá sér að biðja þulina um að skila kveðju til Magneu í veikindum hennar. Það segir mikið um nemendur og viðhorf þeirra að þeir skyldu hugsa til kennara síns í íslensku þegar þeir áttu að ganga inn á svið og keppa í hæfileikakeppni grunnskólanna. Á slíkum stund- um gerir maður fremur ráð fyrir að unglingar séu fyrst og fremst uppteknir af sjálfum sér en það var öðru nær og það segir sína sögu. Í framhaldi af sigri Há- teigsskóla í keppninni kom ítrek- að fram í viðtölum við nemendur sá hugur sem þeir báru til Magn- eu og það var mikill styrkur fyrir hana í veikindum hennar. Magnea sýndi mikla hetjulund og skyldurækni við nemendur sína og samstarfsmenn. Fárveik kom hún í skólann 20. desember og tók þátt í hátíðarstund nem- enda í Háteigskirkju. Þar faðm- aði hún innilega nánast hvert einasta barn, tók kveðju þeirra og þakkaði fyrir umhyggju þeirra og óskaði gleðilegra jóla. Hún þurfti að fara heim til að hvíla sig en kom síðan aftur síð- degis sama dag til að vera með starfsfólki í hátíðarmatnum. Þrátt fyrir mikil veikindi hennar var öll hennar ásýnd hæversk, sterk og svo ótrúlega stór. Nær- vera hennar jók okkur bjartsýni en svo fór á annan veg. Það er við hæfi að vitna í nem- anda hennar sem varð að sitja með kennara afsíðis þegar andlát Magneu var tilkynnt og rætt í bekknum: „Hún dó í þeirri full- vissu að það elskuðu hana allir.“ Við vottum fjölskyldu Magn- eu, eiginmanni Jóni Höskulds- syni og fjölskyldu djúpa samúð okkar. F. h. starfsfólks Háteigsskóla, Ásgeir Beinteinsson skólastjóri. Við Magnea ólumst upp á Ak- ureyri og ég kynntist henni vel þegar við settumst saman á skólabekk í MA. Árin þar liðu hratt og voru skemmtileg. Við fórum síðan báðar í gegnum kennaranámið í KHÍ og áttum þannig þátt í því að spádómur okkar góða kennara Gísla Jóns- sonar rættist en hann sá fljótt að í A-bekknum voru mörg kenn- araefnin. Við skólasysturnar vor- um nú ekki eins vissar og hann, ætluðum á þessum árum örugg- lega flestar að læra eitthvað allt annað. Þegar ég hóf störf við Há- teigsskóla var ég svo heppin að hitta fyrir Magneu og verða sam- kennari hennar sl. 5 ár. Það var ótrúlega notalegt að hitta hana aftur með sitt fallega bros og njóta nærveru hennar og styrks alla daga upp frá því. Magnea var svo skemmtileg og jákvæð. Henni varð aldrei misdægurt fram að veikindunum í haust, mætti alltaf snemma á morgnana og tók á móti okkur hinum, af- slöppuð og hress. Magnea sá um alla íslensku- kennslu unglinganna í Háteigs- skóla til margra ára. Faglega var hún mjög sterk og hæfileiki hennar til að ná því besta fram hjá öllum var einstakur. Hún náði persónulegu sambandi við hvern og einn og hugsaði um alla nemendur sína eins og þeir væru hennar eigin börn. Sem dæmi um væntumþykju nemenda má nefna að þau tileinkuðu henni sigur sinn í Skrekk, hæfileika- keppni grunnskólanna 2011. Ég veit að það snart Magneu mjög að heyra það. Dóttir mín Sunna Mjöll og Inga Rán systurdóttir mín nutu þess einnig vel að hafa Magneu sem kennara og senda hlýjar kveðjur. Þeim eins og öll- um þótti mjög vænt um Magneu. Söknuðurinn er mikill en styrk- inn er að finna í ljúfri minningu. Við Einar sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur til Jóns, skólabróður okkar, foreldra Magneu og fjölskyldu vegna þessa sviplega fráfalls. Helena Pálsdóttir. Mig langar fyrir hönd 10. bekkjar að skrifa nokkur orð til minningar um kennarann Magn- eu Hrönn sem mörg okkar hafa þekkt frá því í 3. bekk. Magnea var æðislegur kenn- ari og ég held að allir í bekknum geti tekið undir það. Hún kvart- aði aldrei þótt eitthvað bjátaði á og hvarflaði ekki að neinum að hún myndi kveðja okkur svona fljótt. Magnea hélt oftast ró sinni en þaggaði niður í okkur þegar henni þótti nóg komið. Hún gerði miklar kröfur og vildi að við skiluðum verkefnum eins vel og okkur var unnt. En ef eitt- hvað kom upp á þannig að við gátum ekki skilað á tilsettum tíma þá sýndi hún okkur mikinn skilning og skilafrestur var auð- sóttur. Ef viðfangsefnið var ekki það skemmtilegasta þá gerði hún það alltaf auðveldara og áhugaverðara og finnst okkur að engum kennara hafi tekist það eins vel og henni. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá henni Magneu, ef einhver var t.d. með leiðindi í bekknum þá átti hún ávallt frábært mótsv- ar sem gerði viðkomandi alveg kjaftstopp en olli hláturskasti hjá restinni. Við munum líka ef- laust flest eftir því þegar hún sagði okkur söguna af því þegar hún handleggsbrotnaði og var með þvílíkar skrúfur í hendinni og þurfti að kenna þannig í nokkurn tíma, þá lærði hún að skrifa með vinstri, sem er nú aðdáunarvert, eftir það þýddi ekkert að kvarta yfir íþrótta- meiðslum á hægri hendi og erf- iðleikum sem því fylgdi í tímum hjá henni. Hún var líka alltaf til staðar fyrir okkur og hefur stutt marga í gegnum erfið tímabil. Ég veit einnig að Magnea var svo stolt af okkur og tók þótt í ánægju okkar þegar við unnum Skrekk núna í nóvember og vorum við öll þakk- lát fyrir að geta glatt hana í veik- indum hennar með því að til- einka henni sigurinn. Elsku Magnea, í farteski okk- ar út í lífið munum við taka svo margt sem þú kenndir okkur. Bæði hvað varðar íslenskt mál og bókmenntir en ekki síður það sem góð manneskja og frábær kennari hefur miðlað til nem- enda sinna. Við söknum þín sárt. Íslenska er ekki söm án þín. Fyrir hönd 10. bekkjar í Há- teigsskóla, Rúna Oddsdóttir. Þegar ég settist niður og ætl- aði að skrifa gerði ég mér grein fyrir því að það er alls ekki svo auðvelt að koma því sem manni liggur á hjarta á blað. Það er svo margt sem maður vill koma á framfæri. Stundum er þó bara einfald- ast að segja að við söknum henn- ar sárt. Magnea var æðislegur kennari sem ég mun aldrei gleyma. Hún setti gott fordæmi með því að vera ætíð góð og þol- inmóð. Ég hreinlega dáist að því hversu róleg hún var, upp að ákveðnu marki auðvitað. Hún hélt alltaf ró sinni og lét engan vaða yfir sig. Mér fannst hún alltaf skemmtilega hnyttin og langar mig að nefna eitt dæmi. Við vorum að fara yfir efni í Englum alheimsins og allir voru að vinna í spurningunum sem því fylgdu. Einn nemandi spurði: „En hvað sagði Guð honum að gera?“ Magnea svaraði þá: „Að fara út að hjóla! Nei, hvað held- urðu, lastu ekki kaflann væni?“ Þetta er bara eitt dæmi af mörg- um. Magnea var skilningsrík í fari sínu. Veturinn 2010 missti ég afa minn og það var skelfileg lífs- reynsla. Magnea ásamt öðrum kennurum var svo yndisleg að votta mér samúð og var til staðar ef svo mætti segja. Hún lét sig varða um aðra nemendur og var yndisleg alveg í gegn. Ég held ég hafi aldrei heyrt neinn nemanda nefna eitthvað neikvætt í fari hennar, hún var að vísu rosalega hæg á lykla- borði. Það tók að sjálfsögðu mjög á að sjá heilsu hennar fara í sífellu versnandi. Hún var gríðarlega sterk, rétt eins og Magneu var einni lagið. Hún var alla tíð bjartsýn á framtíð sína og trúði ekki öðru en að henni myndi batna. Því þótti öllum sjálfsagt að elsku Magnea okkar myndi snúa aftur hress á ný, annað væri ólíkt henni. Það tók því rosalega á að frétta af andláti hennar. Hjartað tók kipp og allt virtist dofna að innan og tárakirtlarnir tóku við. Það vildi enginn trúa þessu. Ég sakna alls í fari Magneu. Ég mun sakna skírmæltu radd- arinnar hennar. Ég mun sakna þess að heyra hana fara yfir skammstafanir fornafna. Ég mun sakna þess að sjá hana teikna upp á töfluna hvernig for- síðan á ritgerðinni okkar átti að líta út, og ég mun jafnvel sakna orðflokkagreiningarinnar sem hún fór svo listilega vel yfir með okkur. Ég trúi því að Magnea sé ennþá að fylgjast með okkur og sjái okkur útskrifast líkt og hún lofaði. Hvíldu í friði, elsku besta Magnea Hrönn. Ég er ekki ein þegar ég segi að ég sakni þín gíf- urlega mikið. Það er bara ekki það sama að læra íslensku án þín. Steinunn Ólína Haf- liðadóttir, 10. HB. Elsku Magnea. Ég man eitt sinn þegar ís- lenskutíminn var að klárast og þú baðst mig um að vera aðeins eftir og þá vildirðu bara hrósa mér, þú gerðir það svo innilega að ég monta mig oft og mörgum sinnum af því. Þú varst alltaf svo skilningsrík við okkur öll, þótt við gætum verið algjörir vand- ræðagemlingar stundum. Þegar ég kom á unglingastigið, að byrja í áttunda bekk og hrædd við alla unglingana, fannst mér alltaf svo notalegt að koma í stofuna þína því nærvera þín var einstök, þú varst einstök. Ég veit fyrir víst og vona að allir finni það líka, að þú lifir áfram í hjörtum okkar allra, sem vorum svo heppin að fá að þekkja manneskju eins og þig. Ég er svo þakklát fyrir allt sem þú kenndir mér og ólýsanlega þakklát fyrir að hafa fengið að sjá og knúsa þig í síðasta sinn, áður en þú þurftir að yfirgefa okkur hér. Því gleymi ég aldrei. Ég á eftir að sakna þín og er þeg- ar byrjuð að sakna þín. Við minn- umst þín á hverjum degi á fal- legan hátt og munum aldrei gleyma þér. Þú mátt sko vera stolt yfir því að hafa verið besti íslenskukennarinn á öllu Íslandi. Þú varst og verður alltaf ein- stök og falleg sál. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Megi englar Guðs vernda þig og umvefja. Ég sendi fjölskyldu þinni inni- legar samúðarkveðjur, og megi Guð gefa þeim styrk á þessum erfiðu tímum. Við hittumst aftur síðar, Magnea Hrönn. Þinn stolti nemandi, Alena Elísa da Silva. Magnea Hrönn Stefánsdóttir Ég kynntist Einari Olgeirs- syni skömmu eftir að hann flutti til Húsavíkur 1975. Það var mikill hugur í Húsvíkingum á þessum árum. Þeir höfðu reist glæsilegt félagheimili í lok sjöunda áratugarins og byggðu síðan hótel samfast því. Það voru ekki margir staðir á landsbyggðinni sem gátu státað af glæsilegri aðstöðu fyrir ferðamenn. Einar var þá þegar með meira en 20 ára reynslu úr hótel- og veitingabransanum og hafði verið aðstoðarhótelstjóri á Hótel Sögu næstu 10 árin á undan. Strax varð ljóst að Einar var enginn venjulegur maður á þessu sviði. Hann var hug- myndaríkur með afbrigðum og óragur við að hrinda hugmynd- um sínum í framkvæmd. Hann var gæddur ríkum persónutöfr- um og eldmóði og hreif fólk með sér. Hann kom heldur ekki einn til Húsavíkur. Emilía (Milla) kona hans tók þátt í æv- intýrinu og síðar börn þeirra hjóna ásamt gömlum vildarvini, Gústav Axel Guðmundssyni, matreiðslumanni. Það var mikill glæsibragur yfir Hótel Húsavík á þessum árum. Hver ráðstefnan rak aðra, meðal annars alþjóðlegar ráðstefnur á vegum hins op- inbera. Og til dæmis lýsti Gylfi heitinn Gíslason þáverandi menntamálaráðherra því nán- ast sem upplifun að koma til Húsavíkur, njóta móttökunnar á hótelinu og ekki síður leið- sagnar Ingvars heitins Þórar- inssonar í Húsavíkurkirkju auk framlags margra „alþýðulista- manna“, sem Einar með næmi sínu hafði þefað uppi og tókst að virkja hótelgestum til ómældrar ánægju. Þarna var hin íslenska strandmenning í hávegum höfð, án þess að hún væri því nafni nefnd á þeim tíma. Á undanförnum árum hafa nokkrir haldið því fram að hvalaskoðunin hafi komið Húsavík á kortið sem ferða- mannabæ. Það kann að vera rétt ef litið er aðeins nokkur ár til baka. En í mínum huga og margra annarra var það fyrst og fremst Einar Olgeirsson og samstarfsfólk hans sem kom Húsavík á kortið sem ferða- mannabæ og Húsavík hefur ávallt notið orðspors þeirra síð- an. Allar stundir með Einari og Millu voru skemmtilegar, ferskar og flögrandi, slíkt var hugmyndaflugið. Einar hafði mjög gott skopskyn og var hláturmildur með afbrigðum, næmur og lá ekki á skoðunum sínum. Greiðvikinn og góður vinur sem alltaf var gott að hitta. Og við héldum alltaf sam- bandi þótt samfundir yrðu fáir með árunum vegna fjarlægðar. Einars er því sárt saknað. Við Kata þökkum af alhug fyrir allar gömlu, góðu sam- verustundirnar og sendum Em- ilíu, börnum þeirra ásamt öðr- um aðstandendum, okkar dýpstu samúð vegna fráfalls Einars. Minning hans mun lengi lifa. Gísli G. Auðunsson Heiðursmaðurinn Einar Ol- geirsson var einn þeirra sem settu mark á íslenska ferða- Einar Olgeirsson ✝ Einar Olgeirs-son, Sóltúni 11, fæddist í Reykjavík 2. desember 1934. Hann lést á sjúkra- húsinu í Volda, Noregi, 21. desem- ber 2011. Útför Einars fór fram frá Bústaða- kirkju 3. janúar 2012. þjónustu og fleyttu henni áfram til þess nútíma sem við nú þekkjum. Á sjöunda ára- tug síðustu aldar var það án efa veit- inga- og gistihúsa- iðnaðurinn sem dró ferðaþjónustuna áfram. Til marks um framfarir þess tíma má nefna að á átta ára bili frá 1962 til 1970 voru fjögur af stærstu og glæsilegustu hótelum landsins reist: Saga, Holt, Loftleiðir og Esja. Þetta var ekki bara fyrir þörf á auknu og bættu gisti- rými, ekki síður var að hér var að springa út mikill metnaður og sjálfstraust sem sáð var til með aukinni fagmennsku í framreiðslu og matreiðslu. Úr þessum suðupotti framþróunar kom Einar Olgeirsson, fram- reiðslumaðurinn sem hafði þjónað konungum, forsetum og borgurum af öllum stigum á Gullfossi og bestu veitingahús- um bæjarins og lært það af bestu vertum að enginn gestur er svo aumur að hann verð- skuldi ekki góða þjónustu jafn- vel þótt það kosti að bera á borð „Schnitzel Derby“, sem mörgum borgurum hins hverf- andi sveitasamfélags geðjaðist best að sögn Einars. Við Einar kynntumst árið 1981 þegar við báðir hófum störf hjá Flugleiðum. Ég sem ungur og minna reyndur milli- stjórnandi, Einar sem hótel- stjóri á Hótel Esju hlaðinn reynslu gestgjafans. Sex árum áður hafði Einar tekið að sér stjórn Hótels Húsavíkur og fór það svo vel úr hendi að eftir var tekið. Einar heillaði mig fljótt með þeim brennandi áhuga og ákefð sem hann gekk með til sinna verka. Þegar starf hótelstjóra Lofteiða, stærsta hótelsins, losnaði 1985 var Ein- ar fenginn til að færa sig um set og stjórnaði hann hótelinu næstu tvö árin, þar til hann færði sig aftur yfir í „rólegheit- in“ á Esju eftir að hafa fengið nokkuð alvarlega heilsuaðvör- un. Ég lenti í þeirri aðstöðu 1988, en þá heyrði hótelrekstur Flugleiða undir mig, að vanta hótelsstjóra á Loftleiðir. Eins og svo oft áraði ekki vel og þörf fyrir að spara. Mér datt í hug að fá Einar til að stjórna báð- um hótelunum, Esju og Loft- leiðum. Óvissa nagaði mig þó þar sem Einar hafði lengi verið veill fyrir hjarta og óvíst hvað á hann væri leggjandi. Ég ákvað þó að bera málið varlega upp og það var eins og við manninn mælt, Einar treysti sér ekki að- eins í verkefnið, hann skyldi taka það enda kannaðist hann ekki við nein heilsufarsvanda- mál. Loftleiðir voru í brýnni þörf fyrir endurnýjun eftir 22 ára rekstur og Einar einhentist í það af sinni ákefð. Herbergi voru endurnýjuð og ný ráð- stefnuaðstaða, sú besta í bæn- um, var byggð. Í hamagang- inum fékk Einar reyndar nýtt hjartaáfall, sem auðvitað varð samvisku okkar félaga hans enn meira áfall. Morguninn eft- ir þegar við Sigurður Helgason heimsóttum hann á spítalann með boð um rólegra starfsum- hverfi, sat Einar uppi við dogg með farsíma sem hann hafði sennilega ekki fengið að lækn- isráði, gefandi fyrirmæli í allar áttir. Rólega starfsumhverfið varð greinilega að bíða um sinn. Það var gaman að vinna með Einari og fyrir það er ég þakklátur. Ég sendi eiginkonu og fjöl- skyldu Einars mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Pétur J. Eiríksson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.