Morgunblaðið - 12.01.2012, Page 34

Morgunblaðið - 12.01.2012, Page 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2012 Ekki fylgir sögunni hvaða karlleikari hef- ur verið orðaður við hlutverk Burtons. 37 » Strengur, diskur bassaleikarans Tómasar R. Einarssonar sem kom út á síðasta ári, var í síðustu viku valinn ein af latin-plötum ársins 2011 á bandaríska tónlistarvefnum Descarga.com sem rekinn er í New York. Vefurinn Descarga, sem stofn- aður var 1991, er helgaður latin- tónlist. Á umræddum disk er upptaka af samnefndu verki sem frumflutt var á Listahátíð í Reykjavík á síðasta ári af Tómasi og slagverksleikaranum Matthíasi MD Hemstock, en einnig nýtti Tómas umhverfishljóð af ám, lækjum, vötnum og hafi á ættar- slóðum sínum. Disknum fylgir mynddiskur. Strengur hlaut þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem afhent verða á næstu vikum. Á lista Descarga.com eru margir þekktir flytjendur latin-tónlistar, til að mynda Los Van Van, Jerry González og Isaac Delgado, en Strengur er eini diskurinn sem kem- ur frá landi utan Norður- og Suður- Ameríku. Morgunblaðið/Sigurgeir S Tilnefndir Tómas R. Einarsson og Matthías MD Hemstock. Strengur með bestu plötum  Valin ein af latin-plötum ársins Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Landið þitt er ekki til. Þessi setning ljómar í neonstöfum framan á Lista- safni Íslands og er eitt verkanna á sýningu Libiu Castro og Ólafs Ólafs- son, sem verður opnuð þar annað kvöld. Á sýningunni, sem spænsk- íslenska listtvíeykið kallar „Í af- byggingu“, má sjá verkin sem þau settu upp og sýndu á Feneyjatvíær- ingnum í fyrra, en þau voru þar fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Eða „fulltrúar íslenskrar myndlistar,“ eins og Ólafur segir. Á sýningunni eru skúlptúrar og myndbandsverk, meðal annars Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, tónverk Karólínu Eiríksdóttir sem kammerkórinn Hymnodia flytur. Það verk hefur verið sýnt víða upp á síðkastið, meðal annars í Pompidou- safninu í París og er það á einkasýn- ingu þeirra í samtímalistasafninu í Sevilla um þessar mundir. „Þar hef- ur þetta verk vakið mikla athygli, ef til vill vegna erfiðs efnahagsástands á Spáni,“ segir Libia. „Á Spáni hefur mikið verið horft til viðbragða fólks á Íslandi við kreppunni.“ Myndbandsútgáfa af Landið þitt er ekki til, sem þau gerðu í Fen- eyjum, verður sýnd hér í fyrsta skipti. Þar má sjá Ásgerði Júníus- dóttur söngkonu syngja serenöðu eftir Karólínu þar sem siglt er með hana og tónlistarmenn í gondól um síki borgarinnar. Gjörningurinn var sýndur í beinni útsendingu á sýning- unni á sínum tíma. Þá er einnig sýnt hér í fyrsta sinn verkið Burtrekstur gamalla drauga, sem er hljóðverk í grískum vasa. Hvort frá sínu landinu „Við erum mjög ánægð með hvernig tókst til í Feneyjum,“ segja þau Libia og Ólafur þar sem þau eru að setja upp sýninguna. „Þetta var blanda nýrra verka og annarra sem við höfðum unnið með lengi og tóku á sig nýja mynd í Feneyjum. Við sýndum verk gerð á ólíkum stöðum þar sem við höfum starfað og búið, Napolí, Berlín, Íslandi og Feneyjum og verkin endurspegluðu listsköpun okkar vel. Við komum hvort frá sínu landinu og búum í því þriðja, og það má sjá á sýningunni.“ Þau bæta við að í Feneyjum hafi þau fellt verkin að húsnæðinu sem íslenski skálinn var nú í fyrsta skipti í, þvottahúsi gamals armensks skóla. Afar góð aðsókn var að skálanum á opnuninni en um kvöldið var plötu- snúður á sviði þar fyrir utan, þar sem er stór grasflöt, og komust færri að en vildu. Þá var jöfn og góð aðsókn allan sýningartímann. Mikið hefur verið fjallað um íslenska skál- ann, einkum í tímaritum, dagblöðum og ljósvakamiðlum í Þýskalandi, Hollandi og á Ítalíu. Í Listasafninu verður seld vegleg sýningarskrá sem kom út þegar sýn- ing Libiu og Ólafs var opnuð í Fen- eyjum, en þar fjallar á annan tug höfunda um list þeirra. Fulltrúar íslenskrar listar sýna framlag sitt frá Feneyjum  Sýning Libiu og Ólafs opnuð í Listasafni Íslands Birt með leyfi Collezione Tullio Leggeri Íslenski skálinn Hér má sjá neon-textaverkið Landið þitt er ekki til, eftir Libiu Castro og Ólaf Ólafsson á framhlið íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum síðasta sumar. Tugir þúsunda gesta sáu sýningu þeirra í skálanum. Ari Bragi Kárason var kjör-inn bjartasta vonin í ís-lensku tónlistarlífi í fyrraog hann er nú í fram- haldsnámi í trompetleik í New York. Hann hefur verið í stöðugri sókn síðan hann sló í gegn fyrir fjórum árum er hann flutti með kvintetti sínum svítu Johns Coltra- nes „A Love Supreme“. Þar var val- inn maður í hverju rúmi og svo var á tónleikum kvintettsins er hann kom á laggirnar fyrir stuttu til að flytja tónlist einnar framsæknustu djasssveitar New York um þessar mundir – Kneebody. Þó fátt sé ein- faldara á okkar tímum en að kynn- ast nýrri tónlist gegnum netið þarf oft einhvern sem býr í suðupott- inum – í þessu tilviki New York – til að hreyfa við mönnum sem eru á kafi í daglegu amstri og fá þá til að leika nýja tónlist. Ekki það að fé- lagar Ara Braga séu staðnaðir gaur- ar, þeir eru allir framsæknir skap- andi tónlistarmenn og léku þessa tónlist Kneebody af innlifun. Tónlist Kneebody er í senn ein- föld og flókin. Hún sækir í smiðju frjálsdjassins og fjölbreyttrar rokk- ættaðrar tónlistar frá fönki til hipp- hopps. Laglínur eru yfirleitt ein- faldar. Riff (eða lúpur), síendurtekinn og gamaldags sam- hljómur ríkjandi hjá blásurum á stundum. Takturinn er oftar en ekki flókinn og þarf reynda menn til að telja rétt í. Samspilið er aðal Knee- body frekar en einleiksspuninn. Ari Bragi og félagar sem kalla sig „Knémeistara“ fluttu sex verk eftir félagana í Kneebody og hófu leikinn á verki af fyrstu plötu þeirra frá 2005, „Never Remember“. Þetta virtist samsafn sáraeinfaldra riffa en leyndi á sér. Jóel blés fantagott sóló eins og oftar þetta kvöld – ekki síst í „Unforseen Influences“ og „Nerd Mountain“ af nýjustu skífu sveitarinnar, en þaðan voru öll lögin ættuð utan það fyrsta. „Teddy Ruxpin“ var annað lag á efnis- skránni og einnig aukalag í styttri búningi, en síhröðun í riffinu í lokin byggði upp sterka spennu og áhrifa- mikla. Áhugaverðasta tónsmíðin í mínum eyrum var þó „No Thanke You Mr. West“ þar sem Kjartan fór eigin leiðir í spuna sínum eins og jafnan. Ari Bragi verður sífellt betri og heitur breiður tónninn hæfir vel spunahugmyndunum hans. Róbert og Scott fataðist ekki í þrælerfiðum hrynleiknum og hljómsveitin var jafnan samstiga og sjálfstæð í túlk- un sinni á tónlist Keenbody. Það er ekki lítið afrek að leika þessa sam- annjörvuðu tónlist á jafn persónu- legan hátt og þeir fimmmenningar gerðu á Rosenberg og verða þessir tónleikar lengi í minnum hafðir. Kneebody á íslensku Morgunblaðið/Árni Sæberg Innlifun Ari Bragi Kárason, Jóel Pálsson, Kjartan Valdimarsson, Róbert Þórhallsson og Scott McLemore léku tón- list New York-sveitarinnar Kneebody af innlifun á Rósenberg á þriðjudagskvöld. Café Rosenberg Knémeistarar bbbbm Ari Bragi Kárason trompet, Jóel Pálsson tenórsaxófón, Kjartan Valdimarsson hljómborð, Róbert Þórhallsson rafbassa og Scott McLemore trommur. VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST Í afbyggingu / Under decon- struction er heiti sýningar spænsk- íslenska listatvíeykisins Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar sem verður opnuð í Listasafni Íslands annað kvöld. Þau Libia og Ólafur voru fulltrúar Íslands á Feneyja- tvíæringnum á síðasta ári og á sýn- ingunni í Listasafninu getur að líta verkin sem þau sýndu þar. Listamennirnir eru sagðir kanna ríkjandi efnahagslegar og pólitískar áherslur á Íslandi og víðar og nota til þess myndbandsverk, gjörninga, hljóð og tónlist. Á sýningunni má m.a. sjá útgáfur verks sem Libia og Ólafur hafa unn- ið lengi með, Landið þitt er ekki til, og kallast það á við verkið Stjórnar- skrá lýðveldisins Íslands. Þá verður verkið Burtrekstur gamalla drauga sýnt hér í fyrsta sinn. Beita ýmsum miðlum KANNA EFNAHAGSLEGAR OG PÓLITÍSKAR ÁHERSLUR Libia Castro og Ólafur Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.