Morgunblaðið - 23.02.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Leitin að hæfileikaríkasta Íslendingnum hefst á
mánudag, hinn 27. febrúar. Þá verður opnað fyrir
umsóknir keppenda inni á mbl.is í Hæfileika-
keppni Íslands sem er samstarfsverkefni vefj-
arins og sjónvarpsstöðvarinnar Skjás eins.
Keppnin gengur þannig fyrir sig að keppendur
senda upptöku af sér og atriði sínu sem dómarar
munu svo velja úr. Bestu atriðin verða sýnd í
fimm undanþáttum á Skjá einum en með úrslita-
þætti verða þættirnir alls sex.
Sjónvarpsþættirnir, sem framleiddir eru hjá
Saga Film, fara í loftið 30. mars næstkomandi en
úrslitaþátturinn verður sýndur í byrjun maímán-
aðar í beinni útsendingu þar sem sigurvegari
verður kjörinn af þjóðinni með dyggri aðstoð
dómnefndar keppninnar. Verðlaunaféð er ein
milljón króna og fær sigurvegarinn auk þess nafn-
bótina Hæfileikaríkasti Íslendingurinn.
Aukið samstarf miðlanna
„Þetta er eitt stærsta verkefnið sem við höfum
ráðist í sem sjónvarpsstöð og náttúrlega mik-
ilvægt þetta samstarf okkar við mbl.is sem er
mest lesni vefur landsins,“ segir Hilmar Björns-
son, dagskrárstjóri Skjás eins.
„Það er milljón í verðlaun og ef fólk kann eitt-
hvað fyrir sér, sama hvort það er dans, söngur eða
bara hvað sem er, þá er um að gera að senda upp-
töku af sér inn á mbl.is,“ segir hann.
„Í raun er þetta í fyrsta sinn sem stærsti net-
miðill landsins fer í svo stórt verkefni enda sjáum
við ákveðin tækifæri í að auka samstarf þessara
tveggja miðla, sjónvarps og nets, sem sífellt hafa
nálgast hvor annan á undanförnum árum,“ segir
Gylfi Þór Þorsteinsson, framkvæmdastjóri mbl.is.
Mbl. sýnir myndbrot frá Skjá einum
Samstarfsyfirlýsing Skjás eins og mbl.is var
undirrituð í gær af fulltrúum miðlanna sem þegar
hafa boðað enn frekara samstarf. Stærsta sam-
starfsverkefnið er Hæfileikakeppni Íslands en
auk þess mun MBL Sjónvarp birta myndbrot frá
Skjá einum, til að mynda úr Málinu með Sölva
Tryggvasyni, Innliti/Útliti og Matarklúbbi
Hrefnu Sætran, svo eitthvað sé nefnt.
Allar frekar upplýsingar um skráningu í Hæfi-
leikakeppni Íslands er að finna á mbl.is.
Leita að hæfileikaríku fólki
Mbl.is og Skjár einn kynna nýja Hæfileikakeppni Íslands sem hefst á mánudag
Milljón króna verðlaunafé og nafnbótin Hæfileikaríkasti Íslendingurinn í boði
Morgunblaðið/Golli
Samstarf Hilmar Björnsson, dagskrárstjóri Skjás eins, Þór Freysson, framleiðslustjóri hjá Saga Film,
og Gylfi Þór Þorsteinsson, framkvæmdastjóri mbl.is, skrifa undir samstarfsyfirlýsinguna í gær.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Talsmenn samtaka sjómanna, út-
vegsmanna og fiskverkafólks segjast
ekki hafa átt beina aðkomu að vinnu
við gerð nýs stjórnarfrumvarps um
fiskveiðistjórnun sem er í undirbún-
ingi. Steingrímur J. Sigfússon
sjávarútvegsráðherra greindi frá því
í gær að hann hefði haldið upplýs-
ingafundi með ýmsum í greininni og
nefndi m.a. LÍÚ, Sjómannasamtökin
og Starfsgreinasambandið.
„Við höfum enga aðkomu að þess-
ari vinnu,“ sagði Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna (LÍÚ), um gerð frumvarps-
ins. Hann sagði að LÍÚ hefði hitt
ráðherra á stuttum fundi 19. janúar.
„Eitt er að
hitta fólk en ann-
að að það sé eitt-
hvert raunveru-
legt samráð þar
sem menn geta
komið með sín
sjónarmið, unnið í
málum og reynt
að vinna sig til
niðurstöðu. Það
er ekkert svoleið-
is og hefur ekki verið,“ sagði Friðrik.
Hann sagði að LÍÚ hefði óskað
eftir að fá að eiga beina aðkomu að
vinnunni við frumvarpsgerðina. Þeir
hefðu verið með í stóru nefndinni
sem Guðbjartur Hannesson velferð-
arráðherra stýrði og skilaði af sér
haustið 2010. „Eftir það hefur þetta
alfarið verið á borði stjórnarflokk-
anna,“ sagði Friðrik. Hann reiknaði
með því í gær að þeir fengju að hitta
ráðherrann á stuttum fundi í dag.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands Íslands (SSÍ),
sagði að engin efnisatriði væntan-
legs frumvarps hefðu komið fram á
fundi þeirra með sjávarútvegsráð-
herra. Einungis að ráðherrann
stefndi að því að koma með frumvarp
og að hafa samráð við hagsmuna-
aðila. Aðspurður neitaði Sævar því
að SSÍ hefði komið að vinnu við
frumvarpsgerðina.
„Við komum okkar sjónarmiðum á
framfæri við hann,“ sagði Sævar um
fundinn með ráðherranum. Hann
sagði að sjónarmið SSÍ hefðu lengi
verið ljós og þau kæmu m.a. fram í
umsögn um fiskveiðistjórnunar-
frumvarpið frá síðasta vori.
„Við kynntum þessi sjónarmið fyr-
ir nýjum ráðherra til að tryggja að
þau kæmu fram,“ sagði Sævar.
„Hann talaði um að boða okkur til
skrafs og ráðagerða. Við vonum að
hann standi við það.“
Björn Snæbjörnsson, formaður
Starfsgreinasambands Íslands
(SGS), sagði aðspurður að ekki hefði
verið haft samráð við þá um frum-
varpsgerðina. Fiskverkafólk er m.a.
innan SGS.
„Þessi fundur var meira til að
segja hver staðan í málinu væri,“
sagði Björn. „Við höfum ekki komið
að þessu með einum eða neinum
hætti.“ Á fundinum var kynnt fyrir-
ætlan um að leggja frumvarpið fram
og það sem verið væri að gera.
„Við gátum komið okkar skoðun-
um á framfæri, en það er ekkert
meira,“ sagði Björn um kynningar-
fundinn. Hann sagði aðspurður að
ekkert hefði verið talað um frekara
samráð sem slíkt og fulltrúar SGS
ekki verið boðaðir á annan fund svo
hann vissi. „Þetta var ekki fundur
um að við værum að koma að sam-
ráði eða samvinnu. Það er ekki þann-
ig,“ sagði Björn.
Ekkert samráð um frumvarpið
Talsmenn sjómanna, útvegsmanna og fiskverkafólks segjast hingað til ekki hafa átt beina aðkomu að
gerð nýs frumvarps um fiskveiðistjórn Fundir með sjávarútvegsráðherra einungis til upplýsingar
Sævar
Gunnarsson
Friðrik J.
Arngrímsson
Björn
Snæbjörnsson
„Það er bara mjög mikið að gera.
Vetrarfríin eru farin að sanna sig
fyrir ferðaþjónustuna. Fólk er farið
að nota þau sem frí hér innan-
lands,“ segir Sigrún Björk Jak-
obsdóttir, hótelstjóri Icelandair-
hótelsins á Akureyri.
Hún segir að mikið sé af fjöl-
skyldufólki á hótelinu sem ætli að
dvelja fyrir norðan yfir helgina en
tveggja daga vetrarfrí í grunn-
skólum landsins hefst í dag. „Það
hefur alltaf verið mikil traffík til
Akureyrar í vetrarfríum en ég held
að það aukist stöðugt að fólk geri
sér dagamun þá,“ segir hún.
Að sögn Árna Gunarssonar,
framkvæmdastjóra Flugfélags Ís-
lands, fara ívið fleiri farþegar til
Akureyrar nú en um venjulega
helgi. Allt að 5.400 manns eigi bók-
að far með félaginu frá föstudegi til
sunnudags.
Ferðamannastraum-
ur til Akureyrar í
vetrarfríi skólanna
Frí Margir ætla sér eflaust á skíði með
börnin í Hlíðarfjalli í vetrarfríinu.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Hou Yifan, heimsmeistari kvenna
í skák, verður á meðal keppenda
á öflugu Reykjavíkurskákmóti
sem stendur frá 6. til 13. mars og
fer fram í Hörpu.
„Það er stórkostlegt að fá Hou
Yifan til að taka þátt í Reykjavík-
urskákmótinu,“ segir Gunnar
Björnsson, forseti Skáksambands
Íslands. „Hún er mikill karakter
og fyrirmynd í Kína, reyndar í
öllum skákheiminum.“
Einnig lætur Fabiano Caruana,
19 ára Ítali, eflaust til sín taka
við skákborðið, en hann er sjö-
undi á heimslistanum. „Þetta eru
einfaldlega heitustu skákmenn
heims í dag,“ segir Gunnar. „Hou
Yifan verður án efa einn sterk-
asti skákmaður heims innan fárra
ára.“
Hou er yngst kvenna til að
verða stórmeistari og einnig til
að verða heimsmeistari. Hún
sigraði ásamt Nigel Short á firna-
sterku móti 55 stórmeistara á
Gíbraltar í janúar, þar sem ellefu
keppendur voru um eða yfir
2.700 stig.
Heimsmeistari kvenna í
skák keppir hér á landi
Hou Yifan yngst kvenna til að verða stórmeistari
Að tafli Hou Yifan hefur vakið
mikla athygli í skákheiminum.
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A