Morgunblaðið - 23.02.2012, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skúli Bjarnason, lögmaður Gunnars
Þ. Andersen, forstjóra Fjármálaeft-
irlitsins, kveðst líta svo á að frestur
stjórnar eftirlits-
ins til handa
Gunnari um and-
mælarétt vegna
brottvikningar úr
starfi byrji ekki
að líða fyrr en
stjórnin hafi svar-
að spurningum
lögmannsins. Lít-
ur Skúli því svo á
að fresturinn
renni ekki út í kvöld.
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum tilkynnti stjórn eftirlitsins
Gunnari á föstudaginn var að honum
yrði vikið úr starfi forstjóra. Fékk
Gunnar einn virkan dag til andmæla
og framlengdi stjórn eftirlitsins þann
frest svo um þrjá daga að kvöldi síð-
asta mánudags, eða aðeins nokkrum
klst. áður en upphaflegi fresturinn
átti að renna út.
Ítrekað spurt en ekki svarað
Nýi fresturinn gildir til miðnættis í
kvöld, tímasetning sem Skúli segir
ekki gilda vegna skorts á svörum.
„Stjórnarformaðurinn [innsk.
Aðalsteinn Leifsson] er búinn að
halda því ítrekað fram í fjölmiðlum að
mér hafi verið send fullnægjandi svör
við þessum spurningum. Það er fjarri
öllum sanni eins og sést þegar bréf
mitt frá 20. febrúar til stjórnar eft-
irlitsins og svo aftur svarbréfið sem
ég birti eru borin saman.
Ég ítrekaði þær spurningar sem ég
hef ekki fengið svör við og auðvitað
krefst ég þess að fá skýr svör. Jafn-
framt lýsi ég því yfir að þessi þriggja
sólarhringa frestur byrjar ekki að
líða fyrr en við erum búnir að fá full-
nægjandi gögn og svör.“
Bréfaskipti Skúla og stjórnarinnar
hafa verið gerð opinber og segir hann
það gert í nafni gagnsæis.
Vildi ekki birta bréfin
„Við birtum tvö bréf sem stjórnar-
formaðurinn hefur verið ófáanlegur
til að birta af einhverjum ástæðum.
Hann hafði sjálfur áður opnað inn á
þessa fjölmiðlaumræðu og við höfð-
um því skorað á hann að birta þetta.
Þetta eru prívat bréf sem eru stíluð á
umbjóðanda minn og mig og enginn
trúnaður sérstakur á þeim. Það er því
best, úr því að þetta er komið í loftið
sem fjölmiðlamál, að menn hafi alla
myndina en ekki hálfa.“
Svo hlaupið sé á umræddum bréfa-
skiptum má fyrst nefna það sjón-
armið stjórnar FME í bréfi til Skúla
dagsett 17. febrúar að úr því ekki
verði af samkomulagi milli eftirlitsins
og Gunnars um starfslok sé honum
þar með kynnt sú fyrirætlan stjórnar
FME að segja honum upp störfum
sem forstjóra stofnunarinnar. Var
uppsögnin með sex mánaða fyrirvara
og sú fyrirætlan stjórnar tekin fram
að ekki yrði óskað eftir vinnuframlagi
Gunnars á uppsagnartímanum en
uppsagnarfrestur er sex mánuðir.
Var skýringin sú að forsendur áfram-
haldandi ráðningar Gunnar væru
brostnar, með vísan til aðkomu hans
að málefnum Landsbankans árið
2001 og að hann héldi fast við að
skýrslugjöfin vegna þess máls væri
rétt.
Í bréfi stjórnar FME til Skúla dag-
sett 20. febrúar er Gunnari veittur
frekari frestur til að koma á framfæri
andmælum en þar segir: „Stjórnin
telur veigamikil rök fyrir því að hafa
frestinn í þessu máli ekki mjög lang-
an nú þar sem sú staða er komin upp
að öll samskipti aðila eru til opinberr-
ar umfjöllunar.“
Var jafnframt áréttað að stjórnin
hefði ekki tekið ákvörðun um að víkja
Gunnari frá störfum heldur væri það
mál til skoðunar og „mikilvægt að
andmæli hans komi fram áður en
ákvörðun er tekin“.
Dularfullur sendiboði
Skúli svaraði bréfinu með bréfi
sem var dagsett 22. febrúar þar sem
farið er fram á með nákvæmum hætti
að hin nýju gögn sem eigi að liggja
uppsögninni til grundvallar séu til-
greind. Sendiboði, „liðlega þrítug
dökkhærð kona“, hafi komið með
ómerkta sendingu, 123 blaðsíður af
glærukynningum, skýrslum, fund-
argerðum o.fl. sem hafi verið kunn-
ugleg og virst stafa af rannsókn
Andra Árnasonar nr. II á máli Gunn-
ars (sjá hnotskurn hér fyrir ofan).
Enn sé ósvarað hvort málið sé enn til
rannsóknar sem og vægi lögfræðiá-
lita. Þá sé fyrri andmælum Gunnars
algerlega ósvarað og ekkert tillit tek-
ið til þeirra í lokaniðurstöðu. Ekkert
sé heldur fjallað um réttindi Gunnars
sem embættismanns. Hins vegar hafi
verið staðfest að fyrirhuguð uppsögn
byggist eingöngu á stjórnsýslulögum.
Ítrekaði Skúli í bréfinu fimm af sex
spurningum sem hann lagði fyrir
stjórn FME í bréfi til hennar 17. febr-
úar sl. Telur hann þeim ósvarað.
Telur frest FME enn
ekki byrjaðan að líða
Lögmaður Gunnars Þ. Andersen krefur eftirlitið svara
Ástráður eða Andri?
» Í bréfi Skúla til stjórnar FME
20. febrúar sl. er spurt hvað
ráði því að svo virðist sem áliti
Ástráðs Haraldssonar um mál
Gunnars skuli gert hærra undir
höfði en tveimur lögfræðiálit-
um Andra Árnasonar.
» Telur Skúli í bréfi til FME 22.
feb. að þessu sé enn ósvarað.
Skúli Bjarnason
- nýr auglýsingamiðill
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Þú minnkar
um eitt númer
Næg bílastæði
www.lifstykkjabudin.is
www.hjahrafnhildi.is • Sími 581 2141
Opnum í dag
með fulla
verslun af
nýrri vorvöru!
Stærðir 36-52
í
ll
l
i
i -
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI
EKKI MISSA AF ÞESSUM
NÁMSKEIÐUM HJÁ NTV!
Atvinnulausir fá 25% afslátt frá NTV
af auglýstu staðgreiðsluverði og geta
sótt um styrk frá vinnumálastofnun.
Kerfisstjórinn (2 annir - 365 stundir)
Nám fyrir þá sem vilja hasla sér völl sem kerfisstjórar
hjá fyrirtækjum og stofnunum.
» Morgunnámskeið byrjar 13. mars
» Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 14. mars
Tölvuviðgerðir (72 stundir)
Fyrir þá sem vilja starfa við tölvuviðgerðir eða fá góðan
grunn til frekara náms, til dæmis fyrir kerfisstjóranám.
» Morgunnámskeið byrjar 13. mars
» Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 14. mars
Skrifstofu- og tölvunám (258 stundir)
Hentar öllum sem annað hvort eru á leið út á vinnumarkaðinn,
oft eftir nokkurra ára hlé, eða vilja styrkja stöðu sína í starfi.
» Morgunnámskeið byrjar 19. mars
Grunnnám í bókhaldi (114 stundir)
Markmiðið með námskeiðinu er að þjálfa fólk til starfa við
bókhaldsstörf. Námið er mikið byggt á verklegum æfingum.
» Morgunnámskeið byrjar 28. mars
» Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 25. febrúar
Grafísk hönnun (156 stundir)
Hagnýtt nám fyrir þá sem vilja vinna auglýsingar fyrir prent-
og netmiðla og ganga rétt frá þeim til afhendingar.
» Morgunnámskeið byrjar 26. mars
Laugavegi 63 • S: 551 4422
LAGERSALA
Í NOKKRA DAGA
60-70% AFSLÁTTUR
VETRARYFIRHAFNIR
PEYSUR
BOLIR
BLÚSSUR