Morgunblaðið - 23.02.2012, Page 11

Morgunblaðið - 23.02.2012, Page 11
mánuði að reka bíl sem ég keyrði tæpa þrjátíu kílómetra í og úr vinnu daglega, en þá tók ég allt inn í reikn- ingsdæmið, viðhald, smurningu, dekk, afföll, bensín, tryggingar og bifreiðagjöld. Og það munar um minna, fyrir þann pening sem ég spara með því að hjóla get ég farið með fjölskylduna til útlanda annað hvert ár.“ Ekki í spandexgalla í brjáluðu vetrarveðri „Ég byrjaði að hjóla í vinnuna að vetri til og komst fljótt að því að færðin gat verið þung fyrir hjólreiða- mann. Ég fjárfesti því í rafbúnaði fyrir reiðhjól og setti rafmótor á ann- að reiðhjól sem ég á. Ég er því með tvö reiðhjól, nota fjallahjólið mitt yfir sumarið og líka marga daga yfir vet- urinn, en ef færðin er ömurleg, snjór eða brjálað rok, nota ég rafhjólið. Þessi hjálparrafmagnsmótor er frá- bær í snjónum, því það er ekki nærri alltaf búið að moka hjólastígana eld- snemma á morgnana þegar ég fer til vinnu.“ Hlynur segir að vissulega þurfi að klæða sig samkvæmt veðri þegar ferðast er á reiðhjóli til og frá vinnu á hverjum degi í hvaða veðri sem er. „Það segir sig sjálft að maður er ekki í spandexgalla í brjáluðu vetrarveðri og stórhríð. Í slíkum veðrum er best er að vera í ull næst líkamanum og yfirhöfnin þarf helst að vera góður goretexgalli svo maður svitni ekki of mikið. Á veturna er ég líka með snjó- brettahjálm, skíðagleraugu og lamb- húshettu. Þá er ég eiginlega klæddur eins og Alaskafari og veitir ekki af. Óhjákvæmilega kófsvitnar maður á því að hjóla svona langa leið og sturtuaðstaða í vinnunni er því nauð- synleg.“ Hefur smitað nokkra af hjólalífsstílnum Hlynur segir að hann sé nánast orðinn háður því að hjóla. „Þetta er lífsstíll og ég reyni að breiða út fagn- aðarerindið. Mér hefur tekist að smita nokkra félaga mína. Margir eru sérstaklega spenntir fyri rafhjól- inu og einn vinnufélagi minn hefur þegar komið sér upp slíkri græju, einnig mágur minn og fleiri í kring- um mig. Enda er eina vitið að skipta úr bílnum og fá sér rafmagn á reið- hjólið. Rafreiðhjól eru framtíðin og þau eru frábær í íslenskum að- stæðum þar sem er mikill vindur og miklar brekkur. Það þarf ekki annað en einn slíkan slæman dag til að fólk gefist upp á því að hjóla. Þannig var það einmitt með mig einu sinni, ég gafst alltaf upp á hjólinu þegar vet- urinn kom með öllu sínu roki, snjó og hálku. En þegar maður hefur raf- búnaðinn til að hjálpa sér að komast í gegnum leiðinlegustu kaflana gefst maður síður upp. En ég tek það fram að ég stíg alltaf hjólið þótt mótorinn létti mér vinnuna.“ Ætlar að hjóla Laugaveginn í sumar Hlynur segir hjólalífsstílinn gef- andi, bæði fyrir sál og líkama. „Vinur minn, sem er nýfarinn að hjóla í vinnuna, var einmitt að segja mér að sér liði miklu betur eftir útiveruna og súrefnisupptökuna. Hugsunarhátt- urinn breytist líka, maður fer að sjá veðrið í öðru ljósi. Það er nefnilega ekki eins slæmt og allir halda, þetta snýst bara um að klæða sig eftir að- stæðum og maður þjálfast í því. Mað- ur verður víkingur af því að hjóla,“ segir Hlynur og hlær. Hann ætlar að taka hjólreiðarnar skrefinu lengra og stefnir á frama í fjallaferðum á fjallahjólinu sínu. „Við ætlum að reyna nokkrir félagar að hjóla Laugaveginn í sumar, leiðina frá Landmannalaugum yfir í Þórsmörk. Þetta verður krefjandi enda er allt annað að hjóla á malbiki en í lausa- möl og grjóti á fjöllum. Og þar þarf að fara yfir ár og móa. Við ætlum að hafa þetta dagsferð en göngufólk fer þetta yfirleitt á þremur til fjórum dögum. Við ætlum að taka nokkra túra í Heiðmörkinni til að þjálfa okk- ur í því að hjóla á malarvegum. Þetta verður gaman.“ www.rafhjol.is Morgunblaðið/Kristinn Rafhjólið Hér má sjá hvar rafmótorinn er festur á hjólið. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Bónus Gildir 23. - 26. febrúar verð nú áður mælie. verð KF kryddað heiðarlambalæri ....... 1.395 1.598 1.395 kr. kg KS frosið lambasúpukjöt 1 fl....... 698 759 698 kr. kg Skólaostur í sneiðum tilb.merk.... 1.298 1.598 1.298 kr. kg KF frosið nautahakk, 620 g ........ 798 898 1.287 kr. kg Euroshopper núðlur, 85 g ........... 15 29 176 kr. kg Ali ferskar kjúklingabringur ......... 2.298 2.898 2.298 kr. kg Ali ferskar kjúklingalundir ........... 2.298 2.898 2.298 kr. kg ÍN ferskar ungnautagúllas........... 1.998 2.498 1.998 kr. kg ÍN ferskt ungnautasnitsel............ 1.998 2.498 1.998 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 23. - 25. febrúar verð nú áður mælie. verð Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 1.198 1.498 1.198 kr. kg Nautainnralæri úr kjötborði......... 2.698 3.298 2.698 kr. kg Hamborgarar m/brauði, 2x115g . 396 480 396 kr. pk. FK saltkjöt................................. 998 1.229 998 kr. kg SS sænskar kjötbollur, 750 g...... 958 1.198 958 kr. kg Fjallalambs kindahakk frosið ...... 998 1.139 998 kr. kg Pepsi/pepsi max, 2 ltr................ 195 229 98 kr. ltr Kjúlla kjúklingabringur án skinns . 1.998 2.349 1.998 kr. kg Hagkaup Gildir 23. - 26. febrúar verð nú áður mælie. verð Íslandsnaut hakk 4% ................. 1.679 2.098 1.679 kr. kg Ísl. naut ribeye........................... 2.999 3.998 2.999 kr. kg Hagkaups lambalæri kryddlegið .. 1.819 2.798 1.819 kr. kg Holta kjúklingalundir .................. 2.238 2.798 2.238 kr. kg Tómatbrauð............................... 299 449 299 kr. stk. Croissant .................................. 199 349 199 kr. stk. Egils pepsí max ,2 ltr.................. 199 299 199 kr. stk. Egils pepsí, 2 ltr......................... 199 299 199 kr. stk. Krónan Gildir 23. - 26. febrúar verð nú áður mælie. verð ÍM kjúklingur ferskur ................... 698 798 698 kr. kg ÍM kjúklingabringur .................... 1.998 2.498 1.998 kr. kg ÍM kjúklingabitar ........................ 598 698 598 kr. kg ÍM kjúklingaleggir ...................... 698 899 698 kr. kg ÍM kjúklingalæri ......................... 798 945 798 kr. kg ÍM kjúklingavængir..................... 298 398 298 kr. kg Holta BBQ vængir í fötu, 800 g ... 498 698 498 kr. pk. Holta kjúkl.borgar. m/br., 2 stk. .. 398 475 398 kr. pk. Nóatún Gildir 23. - 26. febrúar verð nú áður mælie. verð Lambalæri heiðmkry.úr kjötborði . 1.498 1.598 1.498 kr. kg Lamba sirloinsneiðar úr kjötborði 1.278 1.598 1.278 kr. kg Lambalærissneiðar úr kjötborði... 1.598 1.998 1.598 kr. kg Lambaframhryggjarsn. úr kjötb.... 1.998 2.298 1.998 kr. kg Lambakótilettur úr kjötborði........ 1.998 2.298 1.998 kr. kg Ungnautahakk úr kjötborði ......... 1.298 1.598 1.298 kr. kg Ungnauta gúllas úr kjötborði ....... 1.698 2.498 1.698 kr. kg Ungnauta snitzel úr kjötborði ...... 1.698 2.498 1.698 kr. kg Meistara sjónvarpskaka .............. 599 815 599 kr. stk. Þín Verslun Gildir 23. - 26. febrúar verð nú áður mælie. verð Lambalæri frá Fjallalambi ........... 1.498 1.798 1.498 kr. kg Lambahryggur frá Fjallalambi...... 1.698 1.998 1.698 kr. kg Ísfugl BBQ leggir ........................ 764 899 764 kr. kg MS skyr.is, 500 g....................... 285 316 570 kr. kg Findus lasagne, 375 g ............... 598 685 1.595 kr. kg Hälsans Kök kjúklingab., 375 g .. 649 799 1.731 kr. kg Findus Oxpytt, 700 g.................. 739 951 1.056 kr. kg Rits kex, 200 g .......................... 198 249 990 kr. kg Wertheŕs Original sælgæti, 135 g 269 359 1.993 kr. kg Blue Drag. Sushi matarsett, 315 g .............................................. 989 1.198 3.140 kr. kg Helgartilboðin Morgunblaðið/Jim Smart Ljósmyndasýning þýska ljósmyndarans Claus Ster- neck með myndum frá Ís- landi verður opnuð í Kirsu- berjatrénu í dag. Claus er mikill Íslandsaðdáandi og hefur búið og starfað hér á landi í nokkurn tíma. Á sýningunni mun gefa að líta hluta þeirra rúm- lega 200 mynda sem Claus sýndi á Djúpavík á síðasta ári. Alls verða um 100 ljósmyndir til sýnis og þær verður hægt að kaupa á staðnum. En allur ágóði af sölu á sýningunni mun renna til framkvæmda við gömlu síldarverksmiðjuna á Djúpavík. Nýjustu myndirnar úr smiðju Claus eru flestar teknar í Reykjavík á síðasta ári. Þær hefur Claus haft til sýnis á Fa- cebook-síðu sinni Iceland Claus-In-Iceland og við 14 myndanna verður hægt að lesa athugasemdir og skoðanir sem fólk hefur sett inn um þær á síðuna. Opnunarhóf verður í dag frá 17-19 en annars er opið á sama tíma og verslunin, kl. 11-18 mánudag til föstudaga og 11-16 á laug- ardögum. Ljósmyndasýning Ljósmynd/Ágúst Atlason Ljósmyndari Claus Sterneck á sýningu sinni á Djúpavík. Íslandsmyndir Claus Sterneck Vetur Ljósmynd sem Claus tók af vetrarríkinu í janúar. Icepharm a KEMUR HEILSUNNI Í LAG ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA / FÆST Í APÓTEKUM UM LAND ALLT LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA SJÁ NÁNAR Á VITAMIN.IS EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.