Morgunblaðið - 23.02.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012
Nytjamarkaður Samhjálpar.
Samhjálp biðlar til fólks að leggja
sitt af mörkum til starfseminnar og
segir að undanfarnar vikur hafi ver-
ið fullt út úr dyrum á Kaffistofunni.
„Sumir bíða skjálfandi fyrir utan
þegar opnað er og fara jafnvel ekki
út úr kaffistofunni allan daginn því
þeir hafa ekki í önnur hús að venda,“
segir í tilkynningu.
Samhjálp bendir á að til sölu séu
m.a. barmmerki, Hjálparhönd, til
styrktar starfseminni. Nánari upp-
lýsingar má finna á heimasíðu Sam-
hjálpar, samhjalp.is.
Samhjálp biður
fólk um aðstoð
Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjavík
og á Reykjanesi er nú komin með
fullkomna þjófavörn en Securitas
hefur sett upp þjófavarnakerfi á
báðar starfsstöðvar samtakanna
þeim að kostnaðarlausu.
Brotist var inn í starfsstöð Fjöl-
skylduhjálpar Íslands í Reykja-
nesbæ um síðustu jól og stolið tölvu
og barnafatnaði auk þess sem
skemmdir voru unnar á húsnæðinu.
Innbrotið hefur ekki verið upplýst.
Fyrsta reglulega matarúthlut-
unin á nýju ári fór fram hjá Fjöl-
skylduhjálpinni í Eskihlíð í Reykja-
vík í gær. Á morgun verður
matarúthlutun í Reykjanesbæ.
Fram hefur komið að 9.900 ein-
staklingar nutu mataraðstoðar á
vegum Fjölskylduhjálparinnar í
desember sl. og þar af voru 3.000
börn.
Yfirlýst hlutverk Fjölskyldu-
hjálparinnar er að reyna hjálpa öll-
um þeim sem minna mega sín,
hvort sem það eru öryrkjar, at-
vinnulausir, einstæðar mæður eða
feður, eldri borgarar, fátækar fjöl-
skyldur eða einstæðingar.
Aðstoðin er í formi úthlutunar á
mat og úr lyfjasjóði og sölu á ódýr-
um fatnaði.
Morgunblaðið/Sigurgeir.
Þjófavörn sett upp Ragna Rósantsdóttir, stjórnarkona Fjölskylduhjálpar Íslands, og
Egill Baldursson, tæknimaður Securitas, í húsnæði samtakanna í Eskihlíð.
Þjófavörn sett upp hjá Fjölskylduhjálpinni
Uppsveitabrosið, árleg viðurkenn-
ing sem veitt er fyrir framlag til
ferðaþjónustu í uppsveitum Árnes-
sýslu, var afhent í vikunni á fundi á
Hótel Heklu á Skeiðum.
Að þessu sinni hlaut Uggi Æv-
arsson, minjavörður Suðurlands,
viðurkenninguna fyrir einstaklega
góða samvinnu við ferðaþjónustu á
svæðinu.
Í tilkynningu segir, að Upp-
sveitabrosinu, sem sé óáþreifan-
legt, fylgi alltaf hlutur unninn af
listamanni í uppsveitunum. Að
þessu sinni hafi það verið krítar-
teikning eftir myndlistarkonuna
Sigurlínu Kristinsdóttur sem á gall-
eríið Myndlist í hesthúsi í Reykholti
í Biskupstungum.
Sveitarstjórnarmenn úr upp-
sveitum Árnessýslu og Flóa sátu
fundinn á Hótel Heklu. Sérstakir
gestir fundarins voru Ólöf Ýrr
Atladóttir ferðamálastjóri, Sveinn
Rúnar Traustason, umhverfis-
fulltrúi Ferðamálastofu, og Áslaug
Briem, starfsmaður Vakans.
Uppsveitabrosið Ásborg Arnþórsdóttir,
ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu, af-
hendir Ugga Ævarssyni viðurkenninguna.
Minjavörður hlaut
Uppsveitabrosið
Davíð Logi Sigurðsson fjallar í dag um sambandið
milli Sýrlands og Líbanons, stöðuna eins og hún er
nú og veltir fyrir sér þróun mála á næstunni.
Fundurinn fer fram í stofu 101 í Odda frá klukkan 12
til 13.
Davíð Logi hefur starfað hjá Sameinuðu þjóðunum
í Líbanon og um hríð í Jerúsalem en er nú sérfræð-
ingur í utanríkisráðuneytinu.
Í tilkynningu frá Alþjóðamálastofnun Háskóla Ís-
lands segir að staðan í Sýrlandi versni dag frá degi
en hernaður stjórnvalda gegn eigin borgurum hafi
leitt af sér fordæmingu alþjóðasamfélagsins, bæði á
vettvangi Arababandalagsins og Sameinuðu þjóðanna. Þræðir átak-
anna í Sýrlandi liggja víðar, þá megi rekja til klofningsins innan íslam
en jafnframt hangi á spýtunni deilan um kjarnorkuáætlanir Írana.
Vaxandi líkur séu á því að til tíðinda muni draga í þeim efnum.
Fjallar um samband Sýrlands og Líbanons
Frá Damaskus, höf-
uðborg Sýrlands.
Landsbankinn hefur ákveðið að
veita í fyrsta sinn afreksstyrki úr
Samfélagssjóði Landsbankans ætl-
uðum afreksfólki sem stundar ein-
staklings- eða paraíþrótt.
Einnig fyrirhugar bankinn að
styrkja efnilegt ungt íþróttafólk.
Umsóknarfrestur er til og með 2.
mars.
Veittir verða 6-10 afreksstyrkir
að upphæð allt að 500 þúsund krón-
ur hver og 2-3 styrkir til afreks-
fólks framtíðarinnar að upphæð
allt að 200 þúsund krónur hver.
Forsenda fyrir styrkveitingu er
að einstaklingur hafi náð fram-
úrskarandi árangri á Íslandi og á
alþjóðlegum vettvangi í grein sinni.
Afreksstyrkir
STUTT
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Öskudagurinn er alltaf líflegur á
Akureyri og engin breyting varð á í
gær. Frí er í grunnskólum og í stað
þess að vakna til þeirra skyldustarfa
er dagurinn tekinn snemma og ung-
viðið syngur í hinum ýmsu fyrir-
tækjum og þiggur góðgæti fyrir.
Ljóst var að ýmsir höfðu æft sig
lengi og lagt mikla vinnu í bún-
ingagerð, en aðrir minni, eins og
gengur. Enn var lagið Allir hlæja á
öskudaginn vinsælt.
Öskudagslið sem Morgunblaðið
hafði spurnir af æfði mörg lög, ís-
lensk og erlend, en fékk heldur kald-
ar kveðjur á einum staðnum. – Þetta
er íslenskur siður, hafið í huga að
syngja næst á íslensku, þrumaði
einn fullorðinn áheyrandi en færði
gestunum þó nammi að launum! Ég
man ekki betur en siðurinn hafi
komið til landsins frá Danmörku.
Kannski væri ráð að syngja bara á
dönsku í þessu fyrirtæki næst …
Akureyrarbær verður 150 ára í
ágúst eins og áður hefur komið fram.
Yfirvöld hafa hvatt fyrirtæki til þess
að halda upp á afmælið og geta þau
fengið leyfi til þess að nota afmæl-
ismerkið. Bakaríið við brúna reið á
vaðið og kynnti í vikunni afmæl-
istertu sem í boði verður út árið að
minnsta kosti. Tryggvi Gunnarsson
og félagar í afmælisnefnd bæjarins
fnegu að smakka, og þótti tertan
bæði ljúffeng og saðsöm að sögn …
Hljómsveitirnar Sólstafir og
Dimma koma fram á Græna hatt-
inum annað kvöld ásamt ásamt Ak-
ureyrarsveitinni Gruesome Glory.
Sólstafir gáfu nýverið út sína fimmtu
plötu, Svarta sanda, sem hefur feng-
ið einróma lof gagnrýnenda og var
einmitt valin besta íslenska plata
síðasta árs af Morgunblaðinu. Óhætt
er að reikna með fjörugu kvöldi.
Ekki er loku fyrir það skotið að
einhverjir skelli upp úr á Græna
hattinum á laugardagskvöldið. Þá
mæta Þorsteinn Guðmundsson og
Pétur Jóhann Sigfússon ásamt
Helga Svavari Helgasyni trommara
með sýninguna Steini / Pési og gaur
á trommu sem sýnd hefur verið í
Gamla bíói undanfarið við fádæma
undirtektir. Tvær sýningar verða
þetta kvöld, kl. 20.00 og 23.00.
Hláturrokur munu heyrast strax
í kvöld í Hofi. Þar kemur fram uppi-
standarinn Ari Eldjárn, einn vinsæl-
asti grínisti Íslands. „Þetta er hans
fyrsta sýning í Hofi og það er aldrei
að vita nema honum takist að láta
salinn hlæja eina kvöldstund eða
svo. Mestu skiptir þá að hann er ætt-
aður frá Norðurlandi,“ segir í til-
kynningu …
Svo er ein smáleiðrétting í lokin.
Skíðamót Íslands var haldið á Siglu-
firði 1944 en ekki 1942 eins og sagði í
síðasta pistli. Myndin af skíðasveit
MA sem þá birtist var þar af leiðandi
tekin 1944. Rétt skal vera rétt.
Hlegið á öskudegi og áfram
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gaman Þetta þriggja manna öskudagslið beið eftir því að fá að syngja í
Dýraríkinu í gær. Á meðan kíktu stelpurnar á kanínur sem voru til sölu.
Olga Björt Þórðardóttir
olgabjort@gmail.com
Ný hefð hefur skapast á öskudag sem er keimlík amerísku
hrekkjavökunni, að ganga á milli húsa og syngja og biðja
um sælgæti. Í gær var þetta í fyrsta skipti reynt í Vatns-
endahverfi í Kópavogi og hús þátttakenda auðkennd með
útikertaljósum.
Ágústa Jónsdóttir, fulltrúi í foreldraráði Vatnsenda-
skóla, segir að á æskuárum sínum á Ísafirði hafi börn
gengið hús úr húsi og sníkt gotterí, reyndar á bolludag. Á
Akureyri sé bæði sungið og sníkt í heimahúsum á öskudag
og einnig í Ólafsvík.
Að sögn Ágústu verða mörg börn fyrir vonbrigðum þeg-
ar þau leggja leið sína í stærri verslunarmiðstöðvar á
öskudag. Starfsfólk verslana setji snemma dags tilkynn-
ingar í glugga um að sælgætið sé búið.
Ágústa sér fram á að skemmtilegra gæti orðið fyrir
börnin að ganga á milli húsa í hverfinu sínu, á fyrirfram
ákveðnum tíma, og fyrir foreldra að vita af þeim í hverfinu
í stað flakks víðs vegar um borgina.
Meðal nemenda í Breiðagerðisskóla hefur í fjögur ár
verið hefð fyrir því að ganga síðdegis á milli húsa og
syngja. María Helen Eiðsdóttir, kennari við skólann, segir
þetta mælast vel fyrir meðal foreldra og nemenda. Sam-
heldni og eftirvænting einkenni öskudag og foreldrum
finnist gott að hafa börnin í hverfinu. Sértilbúnir miðar
séu festir á glugga eða dyr heimilanna sem taki þátt.
„Grikkur eða gotterí“ víða
orðið að nýrri hefð á öskudag
Foreldrar vilja hafa börnin sín í hverfinu frekar en á flakki
Morgunblaðið/Golli
Syngjandi glöð Börn syngja fyrir verslunareiganda í miðborg Reykjavíkur í tilefni af öskudeginum í gær.