Morgunblaðið - 23.02.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.02.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 SVIÐSLJÓS Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Starfsmenn Reykjavíkurborgar eru ósáttari í starfi sínu nú en árið 2009, samkvæmt niðurstöðum viðhorfs- könnunar á meðal starfsmanna sem kynntar voru á fundi borgarráðs í síð- ustu viku. Niðurstöðurnar voru aftur ræddar á fundi borgarstjórnar á þriðjudag að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins og Vinstri-grænna. Markmið könnunarinnar er m.a. að fá viðhorf starfsmanna til starfsum- hverfis, stjórnunarhátta og sam- skipta, meðal annars í þeim tilgangi að bæta árangur borgarinnar í starfs- mannamálum. Könnunin náði til 6.738 starfs- manna. Svarhlutfall var 67%. 2 af 10 hugsa oft um uppsögn Samkvæmt niðurstöðunum sjá 59% starfsmanna sig áfram í sama starfi eftir tvö ár, en þetta hlutfall var 70% árið 2009. Þá hugsa 22% oft um að hætta í starfi, en einungis 14% voru oft í þeim hugleiðingum á árinu 2009. Einkunn fyrir þáttinn stöðugleika í starfi er nú 6,6, en var 7,3 fyrir tveim- ur árum. Af átta sviðum borgarinnar lækkar þessi einkunn hjá fjórum sviðanna á tveimur árum. Fram kemur að starfsánægja starfsmanna minnkar talsvert á milli kannana. Starfsmenn gefa þættinum upplýsingaflæði lægri einkunn 2011 en árið 2009 og athygli vekur að starfsmenn í ráðhúsi Reykjavíkur gefa einungis 5,2 í einkunn fyrir þennan þátt. Sömu starfsmenn gefa einnig lága einkunn þegar kemur að þættinum um viðurkenningu í starfi, en hann fær 5,6 hjá þeim. Áreitni gagnvart starfsmönnum borgarinnar af hendi þjónustuþega er að aukast á ný og sögðust 16% starfsmanna hafa orðið fyrir henni 2011, þar af hafa 23% orðið fyrir lík- amlegri áreitni. Þá segjast 58% starfsmanna hafa fengið starfsþróunarviðtal síðustu 12- 15 mánuðina, en það hlutfall var 65% árið 2009. Hjá fjórum af átta sviðum borgarinnar fór innan við helmingur í slík viðtöl. Ráðhúsið kemur þar verst út, en einungis 35% starfsmanna ráð- hússins sögðust hafa farið í starfsþró- unarviðtöl. Hjá velferðarsviði var hlutfallið aðeins hærra, eða 37%. Best var það hjá skipulags- og bygg- ingarsviði þar sem 90% fengu viðtal. 84% starfsmanna eru ánægð í vinnunni nú, en hlutfallið var 90% tveimur árum áður og hafði þá aukist um 8% á milli áranna 2008 og 2009. Spurningin um ánægju með markmið og stefnu vinnustaðarins fær eink- unina 7,6 nú, en 7,9 2009. Starfsmenn borgarinnar voru spurðir hversu vel þeir þekktu mann- réttindastefnu Reykjavíkurborgar. Athygli vekur að einungis 12% starfs- manna borgarinnar þekkja stefnuna vel, sem er aukning um 5% frá síð- ustu könnun. 42% þekkja hana lauslega, en árið 2009 svöruðu 35% þannig. Mesta athygli vekur að rúmlega þriðjungur borgarstarfsmanna veit af stefnunni en þekkir hana ekki vel. Þetta hluthfall hefur þó minnkað um 3% frá árinu 2009. Þá sögðust 12% starfsmanna ekki hafa heyrt af mannréttindastefnu Reykjavíkur- borgar, en það hlutfall hefur þó minnkað talsvert þar sem 21% starfs- manna svaraði spurningunni á þann veg árið 2009. Minni ánægja starfsmanna Könnun frá 2005 » Könnunin var gerð árlega á árunum 2005-2009. Þá var ákveðið að gera hana annað hvert ár til samræmis við það sem aðrar höfuðborgir Norður- landanna gera. » Niðurstöðurnar benda til minni ánægju á meðal starfs- manna borgarinnar og yfir 40% þeirra hugsa sér til hreyf- ings og sjá sig ekki á sama stað eftir tvö ár.  Aðeins 58% starfsmanna Reykjavíkurborgar fengu starfsþróunarviðtal  Flestir þættir viðhorfs- könnunar fá lægri einkunn nú en árið 2009  Ráðhúsið fær lægstu einkunnina fyrir upplýsingaflæði Einkunnir fyrir þætti þar sem breytingar eru mestar Hafa farið í starfsþróunarsamtal á síðustu 12-15 mánuðum Hversu gagnlegt var starfs- þróunarviðtalið (einkunn 1-5) Starfsmenn sem hafa orðið fyrir áreitni frá þjónustuþegum 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% 25% 20% 15% 10% 5% 0% 4,0 3,0 2,0 1,0 0 2008 2009 2011 2008 2009 2011 2008 2009 2011 64% 65% 58% 3,5 3,7 3,4 23% 14% 16% St ar fs án æ gj a M ar km ið og ár an gu r Up pl ýs in ga flæ ði Fr um kv æ ði Vi ðu rk en ni ng St jó rn un Fr æ ðs la og þj ál fu n Ja fn ré tti og ja fn ræ ði St ar fs an di Vi nn ua ðs ta ða Sv ei gj an le ik i í st ar fi Hæ fil eg t v in nu ál ag St ar fs m an na st öð ug le ik i St ar fs ör yg gi 9,0 8,0 7,0 6,0 5,0 4,0 3,0 2,0 1,0 0 2008 2009 2011 „Þessar niðurstöður stað- festa því miður að á svo til öllum mælikvörðum eru viðhorf starfsmanna nei- kvæðari en þau voru í síð- ustu könnun og í mörgum tilvikum neikvæðari en þau hafa verið til langs tíma,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, en hún var borgarstjóri árið 2009 þegar niðurstöður síðustu könnunar komu fram. „Við bentum á það í umræðunni að það skiptir engu hvort spurt er um starfs- ánægju, stjórnun, samskipti, vinnuálag, starfsanda eða hvað sem er. Á öllum þessum mælikvörðum sem notaðir eru eru viðhorfin neikvæðari en þau hafa verið,“ segir hún og bætir við: „Talsvert færri sjá sig áfram í starfi hjá borginni og fleiri hugsa oftar um það að hverfa til annarra starfa.“ Um fundinn á þriðjudag segir hún: „Í um- ræðunum í borgarstjórn á þriðjudag bentum við á að ánægja starfsfólks á fjölskyldusvið- um og í ráðhúsinu hefði minnkað á öllum kvörðum. Við teljum mikilvægt að taka þess- ar breytingar alvarlega.“ Hún segir einnig að það hafi tekist að auka starfsánægju árið 2009 frá fyrra ári og bæta starfsanda hjá starfsmönnum borgarinnar þrátt fyrir erf- iðar aðstæður. „Það sem kom okkur kannski mest á óvart var að borgarstjóri sagði að málið ætti ekki erindi til umræðu í borgarstjórn. Þetta væri mál sem ætti bara að vera á vettvangi emb- ættismanna. Þetta er auðvitað alrangt hjá borgarstjóra, við auðvitað berum ábyrgð á starfi Reykjavíkurborgar og þar með talið hvernig starfsfólki líður og hvernig þjónustu það veitir almenningi.“ Á fundinum komu þær skýringar fram að þessar breytingar væru vegna ytri að- stæðna. „Árið 2009, í byrjun árs, vorum við að vinna að verulegri hagræðingu í starfs- umhverfi Reykjavíkurborgar, minnka yf- irvinnu og breyta aksturssamningum. Allt á þessum tíma sem þessi könnun er gerð. Þannig að við hefðum nú sannarlega þá átt að finna fyrir þeim ytri aðstæðum,“ segir Hanna Birna. „Það eru bara mjög eindregin skilaboð í þessari könnun að starfsfólk telur að það þurfi að gera betur á flestöllum sviðum.“ Hanna Birna segir að starfsmenn kvarti greinilega undan því að þeir fái litlar upp- lýsingar um það sem er í gangi á þeirra vinnustað, þrátt fyrir að borgin hafi nú ráð- ið sérstakan upplýsingastjóra. Hún segir að starfsmenn séu almennt sátt- ir við atvinnuval sitt, en að í niðurstöðunum komi fram skilaboð sem borgarstjórn og sér- staklega æðsti embættismaður borgarinnar, borgarstjóri, verði að taka alvarlega. Niðurstöðurnar eru alvarlegar  Viðhorfin eru neikvæðari en þau hafa verið um langt skeið  Skilaboðin þau að gera þurfi betur Hanna Birna Kristjánsdóttir „Það eru flestir þættir sem fara aðeins niður frá 2009,“ segir S. Björn Blön- dal, aðstoðarmaður borg- arstjóra, aðspurður um könnunina. Björn var spurður um nokkra þætti sem vekja at- hygli í niðurstöðunum. Um minnkandi hlutfall þeirra starfsmanna sem fara í ár- leg starfsmannaviðtöl sagði Björn að þetta væri nokkuð sem þyrfti að taka á. Þá sagði hann að það ætti að vera markmiðið að starfsmenn færu árlega í slík viðtöl. Hann sagði að samanburður á þessum þátt- um á milli sviða borgarinnar væri pínulítið vafasamur og benti á skipulags- og bygging- arsvið í þeim efnum og sagði um árangurinn þar: „Það er reyndar að hluta til vegna þess að þar var gert sérstakt átak, því fyrir nokkr- um árum komu þeir verst út í ýmsum þáttum og þeir unnu mjög vel úr þeirri könnun og bættu sig gríðarlega. Það er náttúrega fyrst og fremst markmiðið sem menn þurfa að setja sér með svona; að vinna úr þeim þáttum sem þarf að bæta.“ Björn sagði aukna tíðni áreitni gagnvart starfsmönnum borgarinnar beina afleiðingu af hruninu. Talsvert af henni væri úti á þjón- ustumiðstöðvum og einnig hjá þeim starfs- mönnum sem ynnu störf sem ekki væru bein- línis vinsæl. Þetta þyrfti að greina betur. Björn segir að útskýringar mannauðs- stjóra á fundi borgarstjórnar um starfs- öryggi – en einkunn fyrir þann þátt lækkaði hvað mest, úr 7,7 í 6,6 árið 2011 – hafi verið þær að um ytri aðstæður væri að ræða og að á árinu 2009 hafi starfsöryggiseinkunn kom- ið vel út vegna þess að yfirlýsing hafi verið gefin út um að engum yrði sagt upp. „Það var síðan tekið úr sambandi 2010,“ segir Björn og bætir við: „Við þurfum að greina þetta miklu betur, niður á svið og annað slíkt, og það er verið að vinna það. Útkoman er bara fín, en lengi má gott bæta.“ Segir að lengi megi gott bæta  Taka þarf á fækkun starfsmannaviðtala  Þarf að greina niðurstöðurnar betur S. Björn Blöndal Ráðhús Starfsmenn ráðhúss gefa lægstu ein- kunn, af öllum sviðum, fyrir upplýsingaflæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.