Morgunblaðið - 23.02.2012, Side 21

Morgunblaðið - 23.02.2012, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Öldungar Þessir Akureyringar, sem Morgunblaðið hitti í miðbænum í gærmorgun, kváðust hátt í 300 ára gamlir samanlagt. Þegar betur var að gáð kom í ljós að öskudagslið var á ferðinni. Skapti Hallgrímsson Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru. En staðreyndin er sú að til að geta tek- ið upp evru með aðild að ESB þurfum við að uppfylla ákveðin skilyrði sem kallast Maastricht-skilyrðin en þau eru: 1) Að verðbólga sé ekki meiri en 1,5 prósentustigum meiri en verðbólga í þeim þremur ESB-löndum sem eru með minnsta verðbólgu. 2) Að vextir séu ekki meira en 2 pró- sentustigum hærri en vextir í þeim þremur ESB-löndum sem eru með minnsta verðbólgu. 3) Halli á fjárlögum má ekki vera meiri en 3% af landsframleiðslu. 4) Heildarskuldir ríkissjóðs mega ekki vera meiri en 60% af landsfram- leiðslu. 5) Að landið hafi tekið þátt í geng- issamstarfi Evrópu (ERM) í tvö ár án gengisfellingar og að gengið sé innan vikmarka. Ísland uppfyllir ekki þessi skilyrði og er talsvert langt frá því. Þess vegna er tómt mál að tala um að Ísland gangi í ESB, taki upp evru og leysi með því öll vandamál. Ég er á þeirri skoðun að stefnt skuli að því að uppfylla Maast- richt-skilyrðin. Ekki með það fyrir augum að taka upp evruna heldur vegna þess að skilyrðin eru í raun almenn lýsing á heil- brigðu hagkerfi. Þegar við náum því marki verða vextir lágir, verðbólga lítil, skuldastaða ríkissjóðs lítil og hann vel rekinn og gengi krónunnar traust. Við slíkar aðstæður eru okkur allir vegir færir. Það verður ekki ESB sem mun leysa efnahagsvanda Íslands. Það þurfum við að gera sjálf með því að hlúa að atvinnulífinu, nýta auðlindir okkar, beita aðhaldi í ríkisrekstri og horfa blákalt á hlut- ina eins og þeir eru í stað þess að boða falskar töfralausnir. Eftir Unni Brá Konráðsdóttur »Rétt er að stefna að því að uppfylla Maastricht- skilyrðin. Ekki til að taka upp evru heldur vegna þess að þau eru í raun lýsing á heil- brigðu hagkerfi. Unnur Brá Konráðsdóttir Höfundur er þingmaður. Töfralausnin ESB? Nú hátt í sex árum eft- ir að varnarliðið fór af landi brott er Isavia ohf. með góðri aðstoð yf- irvalda að takast að út- rýma fagstétt sem á sér talsvert langa sögu og nefnist flugvallarslökk- vilið. Við brotthvarf hers- ins hvarf bakhjarl Slökkviliðs Keflavík- urflugvallar (Kef.) og ís- lenska ríkið tók við rekstrinum. Slökkvilið Kef. var margverðlaunað, sérhæft í að fást við flugvélaelda og bjarga fólki við mjög erfiðar aðstæður. Í grein sem undirritaður skrifaði í mbl. í apríl 2008 og nefnist „Að lifa af í flug- slysi“ http://mbl.is/greinasafn/ grein/1206306/ er gerð grein fyrir þeim hættum og tímatakmörkunum sem eru við flugslys. Þrír rekstraraðilar hafa komið að rekstri slökkviliðs Kef. frá brotthvarfi hersins, nú síðast Isavia ohf. sem er rekstraaðili allra flugvalla á Íslandi. Það sem forsvarsmenn allra þessara fyrirtækja hafa átt sameig- inlegt er að skera niður í slökkviliðinu og gera það eins óþarft og hægt er án þess þó að brjóta lög og reglur og þar komum við að kjarna málsins. Lög og reglugerðir Lítið var hugsað um reglur vegna flugvallaslökkviliða á meðan herinn sá um Kef. Eftir brotthvarf hersins voru sett bráðabrigðalög um slökkvilið Kef., ráðist var í endurskoðun á reglugerð um flugvelli á kafla sem snýr að slökkviþætti á flugvöllum, og breyt- ingar á lögum 75/2000, um brunamál. Mikill ágreiningur var um breytingar á reglugerðinni. Samgönguráðuneytið fór að vilja Isavia ohf. sem vildi helst að ekki væri neitt slökkvilið á flugvöllum heldur einhvers konar viðbúnaðarþjón- usta sem ekki færi eftir neinum öðrum reglum en þeim sem Flugmálastjórn Íslands setti. Umhverfisráðu- neytið hins vegar barðist fyrir því að um slökkvi- liðsmenn á flugvöllum giltu lög og reglur sem gilda um aðra slökkviliðs- menn á Íslandi. Breytingar á bruna- varnarlögum og reglu- gerð um flugvelli hafa verið samþykktar og segja má að Isavia ohf. hafi náð markmiði sínu að mestu, þingmenn höfðu ekki þann styrk að setja þann texta í lögin að slökkvistörf við flugvélar væru ekki síð- ur hættuleg en við húsbruna. Ráðherra gat ekki tekið af skarið með þetta atriði við breytingu á reglugerð um flugvelli heldur er málið skilið eftir í uppnámi. Að öllum líkindum þarf dómstóla til að fá úr því skorið hvort líf flugvallar- slökkviliðsmanna sé minna virði en líf annarra slökkviliðsmanna á Íslandi, hvort stofna eigi lífi þeirra sem kunna ekki til verka í eldi í hættu, einnig hvort það sé á hendi rekstraraðila flugvalla á Íslandi hvernig öryggisreglum á flug- völlum er háttað. Ásættanlegur áhættustuðull Breyting reglugerðar um flugvelli fól m.a. í sér að rekstraraðilum flugvalla er í sjálfsvald sett hvort notuð eru reyk- köfunartæki við flugslys og ef notuð eru reykköfunartæki þá er ekki sjálfgefið að farið sé eftir reglugerð Mannvirkj- astofnunar um reykköfun, að rekstr- araðilum Keflavíkurflugvallar verði heimilt að hafa einungis fimm manns á vakt í slökkvi- og björgunarþjónustu, þar af einn sérmenntaðan sem slökkvi- liðsmann, allir sem vilja sjá að þessir fimm munu ekki vera til stórræðanna ef til flugslyss kemur á Keflavík- urflugvelli. Reynsla er fyrir því að ekki er von á utanaðkomandi hjálp við flug- slys á Kef. fyrr en eftir 30-50 mín. En eins og einn þingmaður orðaði það svo skemmtilega þegar breytingar á lögum 75/2000 um brunamál voru til umræðu í des. 2010: „Það má segja að áhættu- stuðull flugvalla sé nálægt núllinu. Flugslys á flugvöllum eru mjög sjald- gæf og aukinn viðbúnaður til þess að auka viðbragð á flugvöllum er fyrst og fremst til þess fallinn að leiða af sér aukinn kostnað. Eftir að hafa í mörg ár fylgst með þessum málaflokki hef ég verið að reyna að rifja upp flugslys á t.d. Reykjavíkurflugvelli þar sem hefur þurft að slökkva elda. Ég man bara eft- ir einu slysi.“ Vissulega er sá möguleiki fyrir hendi að ekki komi til alvarlegs flugslyss, en er það áhættunnar virði að bíða og sjá til? Tryggingafélögin fá verulega fjár- muni frá fólki og fyrirtækjum sem er ekki tilbúið að bíða og sjá til hvort eitt- hvað gerist. Ég skora á alþingi og ráð- herra að eyða allri þeirri óvissu sem flugvallarslökkviliðsmenn búa við og tryggja einnig sem best öryggi flug- farþega með lögum og reglum sem setja kröfur á rekstraraðila flugvalla. Hvorki slökkviliðsmenn á flugvöllum né flugfarþegar og áhafnir eiga að búa við það að reglur um slökkvi- og björg- unarstörf séu sniðnar að þörfum rekstraraðila flugvalla. Hrunið ætti að hafa kennt okkur að það er engum til góðs að fara á svig við lög til að ná fram hagnaði. Eftir Ólaf Inga Tómasson » Að öllum líkindum þarf dómstóla til að fá úr því skorið hvort líf flugvallarslökkviliðs- manna sé minna virði en líf annarra slökkviliðs- manna á Íslandi. Ólafur Ingi Tómasson Höfundur er aðalvarðstjóri í slökkviliði Keflavíkurflugvallar. Deyjandi stétt slökkviliðsmanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.