Morgunblaðið - 23.02.2012, Síða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012
✝ Bertha Sigurð-ardóttir fædd-
ist í Reykjavík 31.
maí 1931. Hún lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 13. febr-
úar 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurður
Sigurðsson verk-
stjóri, f. 4.9. 1890 á
Fossi á Skaga, d.
30.8. 1965, og Sig-
ríður Jóhannesdóttir húsfreyja,
f. 19.9. 1891 í Brekkholti, d. 21.2.
1956. Systkini Berthu: Bryndís,
f. 1916, d. 1984, Bergljót, f. 1918,
d. 2006, Jóhanna (uppeld-
issystir), f. 1922, d. 1993, Guð-
björg, f. 1922, d. 1980, Erla, f.
1923, Aðalheiður, f. 1925, d.
2010 og Jóhannes, f. 1933.
Í æsku bjó Bertha lengst af
ásamt foreldrum sínum og
systkinum á Norðurstíg 5 í
Reykjavík.
Bertha giftist Stefáni J. Rich-
ter 2. maí 1951, þau skildu. Börn
þeirra: 1) Jakob Helgi Richter, f.
6.9. 1951, maki Þorgerður
Bjargmundsdóttir, f. 1949. Börn
þeirra: a) Kristín, f. 1973, maki
Darri Ólason, börn Kristínar og
Hilmars Þórs Petersen eru Alex-
ander, f. 1994 og Thelma Karen,
Valur Guðnason, f. 1957. Börn
þeirra: a) Þórhildur Ýr, f. 1974,
maki S. Reynir Harðarson,
þeirra synir: Jökull Máni, f.
1997, og Hörður Valur, f. 2006.
b) Guðni, f. 1980, maki Gianny
Sanchez. 5) Bertha, f. 8.1. 1959.
Börn hennar: Karen Drífa, f.
1983, og Ástþór Magnús, f. 1990.
6) Stefán, f. 6.9. 1960, maki Kar-
en Hansen Richter, f. 1966.
Þeirra börn: a) Katrín, f. 1995. b)
Laura, f. 1997. c) Jakob, f. 1999
og d) Karl, f. 2002. Dóttir Stef-
áns og Svandísar Ingimund-
ardóttur er Inga Dís, f. 1982,
sambýlismaður Tryggvi Þór
Marinósson. Sonur Stefáns og
Önnu Arnardóttur er Ísak, f.
1991. 7) Guðrún Sigurlaug, f.
7.10. 1962, dóttir hennar og
Ragnars Þórissonar er Hrafn-
hildur Lára, f. 1981, maki Ellert
Þór Arason. Þeirra börn: Viktor
Muni, f. 2006, og Embla Guðrún,
f. 2011. Sonur Hrafnhildar og
Hauks Más Böðvarssonar er Ar-
on Hugi, f. 2000.
Fyrstu búskaparárin sinnti
Bertha barnauppeldi og hús-
móðurstörfum. Á sjöunda ára-
tug síðustu aldar hóf hún að
vinna utan heimilisins og var
lengst í Bókabúð Máls og menn-
ingar á Laugavegi 18. Þar hafði
hún umsjón með barna-
bókadeildinni sem hún átti sinn
þátt í að byggja upp með miklum
metnaði og stolti.
Útför Berthu fer fram frá
Neskirkju í dag, 23. febrúar
2012 kl. 13.
f. 1998. b) Stefán, f.
1980 og c) Kjartan,
f. 1986. 2) Guðlaug
Richter, f. 13.5.
1953, giftist Stefáni
Kristmannssyni, f.
1953. Þau skildu.
Þeirra börn: a)
Gunnar Örn, f.
1973, sambýliskona
Gyða Einarsdóttir
og þeirra dóttir
Freyja, f. 2006. Son-
ur Gunnars og Berglindar
Ágústsdóttur er Funi, f. 1999. b)
Lilja, f. 1982, maki Bergur Finn-
bogason, þeirra sonur er Högni,
f. 2011. 3) Gyða, f. 24.6. 1955,
maki Steinar Viggósson, f. 1951,
d. 2000. Þeirra börn: a) Unnur, f.
1990. b) Gísli, f. 1974, faðir Sig-
urjón Kristmannsson. Sambýlis-
kona Gísla er Hafdís Hreið-
arsdóttir og sonur þeirra er
Kári, f. 2006, sonur Gísla og
Drífu Jóhannsdóttur er Alex
Birgir, f. 1994. c) Eiríkur, sonur
Steinars og Oddnýjar S. Eiríks-
dóttur, fóstursonur Gyðu, f.
1972, maki Oddný Helga Sigurð-
ardóttir. Þeirra börn: Elmar
Örn, f. 1995, Steinar Logi, f.
2000, Hrafn Viggó, f. 2004, og
Oddný Sigríður, f. 2006. 4) Bryn-
dís Sigrún, f. 8.11. 1957, maki
Ég kynntist Berthu fyrir
mörgum árum þegar ég var
ungur maður og hafði byrjað
samband mitt við dóttur hennar
sem varð eiginkonan mín.
Bertha var skemmtileg og
fjörug kona og mér fannst mik-
ils virði hversu góður félagi og
vinur hún reyndist mér þegar
fyrstu spor fullorðinsáranna
voru tekin. Hún tók mér alltaf
sem jafningja og í mínum huga
tókst henni að eyða hjá mér
ímynduninni sem var kynslóða-
bilið.
Bertha var gestrisin kona
með afbrigðum og naut ég þess
ósjaldan. Þrátt fyrir að vera
komin af fátæku fólki úr
Reykjavík tók ég aldrei eftir að
hún sparaði við okkur yngra
fólkið svo að allir fengu að njóta
sín.
Mikið var gaman að geta
smávegis endurgoldið góð-
mennsku hennar og vinsemd
þegar ég tók þátt í byggingu
sumarhúss fyrir hana og nán-
ustu ættingja. Þar naut hún
vafalaust góðra fría frá önnum
dagsins en Bertha afkastaði
miklu sína löngu vinnuævi sem
lauk í deildarstjórastöðu barna-
bóka í stórri verslun í miðbæ
Reykjavíkur.
Margs er að minnast frá
mörgum samverustundum gegn-
um árin og er ég þakklátur fyrir
þær allar. Ég votta afkomend-
um mína samúð við fráfall
merkrar konu og blessuð sé
minning Berthu Sigurðardóttur.
Stefán Sólmundur
Kristmannsson.
Amma Bertha.
Elsku amma mín, hjarta fjöl-
skyldu okkar. Þú hefur verið
mér svo margt í gegnum lífið og
umfram allt fyrirmynd styrks og
ástúðar. Frá því að ég man eftir
mér hafa dyr þínar ávallt staðið
okkur öllum opnar með hlýju
faðmlagi, heimabökuðu brauði
og kæfu. Ég mun ávallt hugsa til
þín af einstakri virðingu fyrir
allt sem þú hefur áorkað í gegn-
um lífið, þú gafst 40 manns, og
enn telur, líf og góða fjölskyldu
til að njóta og standa með í
gegnum súrt og sætt. Ég sé þig
í hverjum einasta fjölskyldu-
meðlim, þú gafst okkur allt sem
við eigum.
Þú varst tekin alltof snemma
frá okkur og ég harma það svo
mjög að geta ekki notið lengri
tíma með þér en ég veit að þú
verður alltaf til staðar í anda til
að leiðbeina okkur og vernda.
Mín eina von er sú að ég geti
einhvern tímann orðið að jafn
mikilli manneskju og þú ert í
mínum augum. Ég elska þig svo
mikið og ég sakna þín svo sárt
en ég leyfi öllum góðu stund-
unum sem við áttum saman og
öllu því sem þú kenndir mér að
leiða mig áfram í gegnum þessa
kveðjustund. Þú kenndir mér
mikilvæga hugsun þegar ég var
bara lítil stelpa, það var að gráta
ekki dauða hluti. Ég skildi ekki
mikilvægi kennslunnar þá en nú
þegar ég er að nálgast þrítugt
og lífið hefur sýnt mér hvað það
er mikil sorg til í heiminum þá
skil ég. Þú kenndir mér að vera
hamingjusamari og þakklátari
fyrir lífið og ég mun búa að því
alla mína ævi. Það eru svo ótal-
margir hlutir sem mig langar að
segja þér en mest af öllu vil ég
segja takk. Takk fyrir að vera
nákvæmlega eins og þú ert og
fyrir að fylla líf mitt af ynd-
islegum minningum og fjöl-
skyldu. Ég elska þig og mun
ávallt sakna þín.
Karen Drífa.
Elsku amma Bertha. Þá er
komið að kveðjustund. Það er
erfitt að trúa því að þú sért far-
in. Þú varst alltaf til staðar fyrir
okkur, alltaf til í spjall og með
kaffi á könnunni og það var
ávallt stutt í hláturinn. Það var
svo sannarlega alltaf gaman að
kíkja í heimsókn, jafnvel bara
stutta heimsókn til þín í vinnuna
þar sem þú tókst svo vel á móti
manni og ávallt með rauðan
ópal. Allar góðu stundirnar á
Háaleitisbrautinni og uppi í bú-
stað, það er svo sannarlega
margt sem rifjast upp á svona
erfiðum stundum.
Hreinskilin, ákveðin og sterk
eru orð sem koma upp í hugann
þegar við minnumst þín en einn-
ig er það hjartahlýjan og ein-
lægnin sem situr eftir. Þú ert
fyrirmynd fyrir okkur hin og lif-
ir áfram í hjarta og huga allra
sem þekktu þig. Við erum svo
sannarlega stolt af því að til-
heyra þessum frábæra hópi sem
þú skilur eftir þig. Takk innilega
fyrir allar góðu stundirnar.
Þín barnabörn,
Kjartan, Stefán og Kristín.
Elsku amma.
Því meira sem ég eldist því
meira skil ég hversu mikið þú
hefur gert og hvernig mann-
eskja þú ert. Þegar ég labba inn
til þín á Háaleitisbrautinni sé ég
alla fjölskylduna, hvort sem að
þau eru þar eða ekki. Ég hef
horft á listaverk systur minnar
uppi á vegg hjá þér og verið
stoltur. Ég hef horft á myndir af
fjölskyldunni og lífinu, fullt af
minningum og tengingum við líf-
ið sem þú lifðir og verið stoltur.
Þegar mamma talar um gamla
tíma veit ég að ég er kominn af
alvörufólki. Þú verður alltaf
stolt í mínu hjarta, þú verður
alltaf nálægt mér og ég mun
alltaf segja þér að ég elska þig.
Ég verð að þakka þér einu
sinni enn fyrir naglasúpuna,
kæfuna, bækurnar og brauðið.
Mun ávallt sakna þín.
Ástþór.
Bertha frænka mín var góð
manneskja. Hún var ein af þeim
sem almættið vildi að bæru
þungar byrðar. Hún bar sínar
með reisn. Bertha var yngsta
systir móður minnar. Reykja-
víkurstúlka. Alvöru kelling.
Mest gaman þegar var partí.
Fondú í stofunni. Músík, smá í
glasi, einstaka sígó. Það var oft
gaman á Háaleitisbraut 24.
Íbúðin var kannski ekkert
óskaplega stór. Fólkið var
margt. Lítið um peninga. Samt
nóg pláss fyrir þá sem þurftu at-
hvarf. Nóg til handa þeim sem
voru svangir. Á Háaleitisbraut
24 var kvennaveldi. Þar ríkti
umburðarlyndi, frjálslyndi, víð-
sýni. Fólkið á Háaleitisbraut 24
hafði rúmgóð hjörtu. Mest man
ég eftir tónlistinni. Ella. Djass.
Ný tónlist. David Bowie. Hunky
Dorie. Spilað hátt. Allt þetta
hafði pláss á Háaleitisbraut 24.
Bertha frænka mín átti fyrir
þessu öllu. Hún var höfðingi.
Með henni var gott og gaman og
létt að gleðjast. Tilhlökkunar-
efni að hitta hana aftur. Bið að
heilsa stelpunum.
Ástráður Haraldsson.
Kona sem mér þótti svo vænt
um hefur kvatt okkur öll fyrir
fullt og allt. Hún var mikilvægur
hluti af lífi mínu og því þykir
mér miður að vera erlendis og
geta ekki tekið þátt í að kveðja
með fólkinu hennar.
Bertha var mér sérstaklega
kær vegna þess hve vel hún
reyndist mér. Hún tók mig inn á
sjö barna heimili sitt ótímabund-
ið um vetur og þótti það ekki til-
tökumál.
Hún var mjög sérstök kona,
sterkur persónuleiki og stjórn-
aði sinni stóru fjölskyldu af ró-
semi en ákveðni.
Snemma fór ég að upplifa
Berthu sem drottningu eldhúss-
ins, hún var einstaklega skap-
andi á því sviði, enda ekkert til
sparað, hvorki fyrirhöfn, undir-
búningstími né útvegun hráefn-
is.
Hún hafði góðan húmor,
leyndi á sér, gat virkað þung en
samt hlegið dátt. Hún sagði sög-
ur og rifjaði upp minningar á lif-
andi hátt.
Heil ævi er liðin, allt í einu er
nauðsynlegt að tala í þátíð.
Hugurinn leitar til baka.
Bertha frænka var ekki al-
vöru frænka mín heldur var hún
gift móðurbróður mínum. En í
mínum huga var hún og verður
alltaf Bertha frænka. Eldri
börnin hennar eru jafnaldrar
mínir, ég tengist þeim vinuáttu-
böndum og ein dóttir hennar er
besta vinkona mín. Þannig hafa
sterku strengirnir milli okkar
Berthu haldist og gamla vænt-
umþykjan lifir enn.
Ég þakka hér með fyrir að
hafa átt Berthu að sem sam-
ferðamann. Að vera mér alltaf
sem fósturmamma og vinur.
Kær samúðarkveðja til ykkar
allra sem tengjast Berthu á Háó
tilfinningaböndum.
Helga Jóhannesdóttir.
Bertha
Sigurðardóttir
Leiði þig gæfunnar gullfagra hönd,
glóbjarta sveiga þér hnýti úr rósum,
hvert sem að liggur þín leið yfir lönd
þér leiðbeini Guð með skínandi ljósum.
(N.N.)
Elsku Gagga frænka. Við
systkinin í Víðihvammi þökkum
þér samfylgdina í gegnum lífið.
Þú tókst alltaf vel á móti okk-
ur, hvar sem þú bjóst, og gott var
að koma til þín.
Þér var margt til lista lagt og
Geirlaug
Jónsdóttir
✝ Geirlaug Jóns-dóttir fæddist á
Suðurgötu 24 á
Siglufirði 19. sept-
ember 1930. Hún
lést á Hrafnistu,
Boðaþingi, Kópa-
vogi 31. janúar 2012.
Útför Geirlaugar
fór fram frá Digra-
neskirkju 8. febrúar
2012.
öll sú gullfallega
handavinna sem eft-
ir þig liggur ber því
fagurt vitni.
Við biðjum góðan
Guð að umvefja og
styrkja Birgi
frænda, Sólveigu og
Nönnu Láru.
Birna, Sigríður,
Jón Orri og
Benedikt Þór.
Gott er sjúkum að sofna,
meðan sólin er aftanrjóð,
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
(Davíð Stefánsson)
Anna Jóna, Lára og
Guðmundur Heimisbörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Sigga á Hvítanesi,
Höfða,
Akranesi,
lést laugardaginn 11. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju laugardaginn 25. febrúar
kl. 14.00.
Ástríður Þ. Þórðardóttir,
Ester Teitsdóttir,
Ævar Hreinn Þórðarson, Þórey J. Þórólfsdóttir,
Sigurður Þórðarson, María Lárusdóttir,
barnabörn, langömmubörn, langalangömmubörn
og fjölskyldur.
✝
Yndislegur eiginmaður minn og besti vinur,
faðir, tengdafaðir, afi og mágur,
HALLDÓR GUÐBJÖRNSSON,
Stóragerði 5,
Vestmannaeyjum,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar
miðvikudaginn 15. febrúar.
Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 24. febrúar kl. 16.00.
Helga Símonardóttir,
Símon Halldórsson, Jóna Guðlaug Þorvaldsdóttir,
Jóhann Halldórsson, Guðný Ólafsdóttir,
Anna Halldórsdóttir, Halldór Sölvi Haraldsson,
Helga Lind Halldórsdóttir,
Bríet Eva Jóhannsdóttir,
Líney Símonardóttir, Friðþjófur Árnason.
✝
Ástkærir foreldrar okkar, tengdaforeldrar, amma, afi,
langamma og langafi,
BJÖRN JÓNSSON
frá Fossi,
Hrútafirði,
andaðist mánudaginn 13. febrúar,
og
GUÐNÝ HELGA BRYNJÓLFSDÓTTIR
frá Ormsstöðum,
Breiðdal,
andaðist laugardaginn 18. febrúar.
Til heimilis á Suðurbraut 2, Hafnarfirði.
Útför þeirra verður frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 24. febrúar
kl. 13.00.
Ármann Björnson, Stefanía Ingimundardóttir,
Pétur Björnsson,
Þröstur Ármannsson,
Sigríður Elva Ármannsdóttir, Illugi Hartmannsson,
Guðný Birna Ármannsdóttir, Árni Einarsson,
Birgir Ármannsson,
Guðrún Birta Pétursdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Elsku mamma mín, tengdamamma, systir og
mágkona,
VALDÍS GUÐRÚN ÞORKELSDÓTTIR,
Vallý,
Bollagörðum 57,
Seltjarnarnesi,
áður Fornhaga 22,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 20. febrúar.
Guðrún V. Haraldsdóttir, Guðlaugur H. Jörundsson,
Inga Þorkelsdóttir, Haraldur L. Árnason,
Hugrún B. Þorkelsdóttir , Jón Þ. Jónasson.