Morgunblaðið - 23.02.2012, Síða 34

Morgunblaðið - 23.02.2012, Síða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Tíunda mars næstkomandi verður haldin í annað sinn á Ís- landi Fluguveiði kvik- myndahátíð undir merkjum RISE. Hátíðin verður í Bíó Paradís, þar sem hún var hald- in í fyrsta sinn í fyrravetur og seldist þá upp á sýninguna. Forvígismaður um fram- kvæmdina hér er Kristján Benediktsson veiðileið- sögumaður og eru miðar seldir í Veiðivon, Mörkinni 6. RISE-hátíðin var fyrst haldin í Ástralíu en hún er runnin undan rifjum leikstjórans Nick Reyga- ert sem gerði The Source-þríleikinn, en ein þeirra mynda fjallar um fluguveiði á Íslandi. Kvikmyndir Kvikmyndahátíð um fluguveiði Kristján Benediktsson Á morgun, föstudag, klukkan 21 stendur Podium festival fyr- ir tónleikunum Myrkfælin? í Sölvhóli, tónleikasal LHÍ á Sölvhólsgötu. Tónleikarnir eru hugmynd norsku tónlistar- mannanna Mathias Susaas Halvorsen og Magnus Boye Hansen sem hafa haldið slíka tónleika við góðar viðtökur í Noregi og Þýskalandi. Tónleikarnir fara fram í niðamyrkri og eru því ekki fyrir myrkfælna eða þá sem þjást af innilokunarkennd. Áhorfendur öðlast algjörlega nýja upplifun á tónlistinni sem er tjáningarfull en brýtur þó regl- ur um hefðbundna tónleikadagskrá. Tónlist Halda tónleika í niðamyrkri Magnus Boye Hansen Dagskrá verður í Hlégarði í Mosfellsbæ í kvöld, fimmtudag, klukkan 20, um bæjarlistamann Mosfellsbæjar Bergstein Björg- úlfsson kvikmyndaleikstjóra og framleiðanda. Bergsteinn er einn okkar kunnustu kvikmyndatöku- manna og vinnur einnig að sjálf- stæðum verkefnum. Vera Sölvadóttir fjallar um verk Bergsteins og Bergsteinn fjallar síðan um og sýnir atriði úr kvikmyndum sem hann hefur unnið að. Arnhildur Valgarðsdóttir pí- anóleikari og Bjarni Atlason barítónsöngvari flytja lög úr kvikmyndum Bergsveins, sem sýnir einnig úr mynd í vinnslu, um Landeyjahöfn. Kvikmyndagerð Dagskrá um bæjarlistamanninn Bergsteinn Björgúlfsson Glerlistamaðurinn Leifur Breiðfjörð vinnur nú að listaverki sem sett verður upp í Southwark dómkirkju í Lundúnum í tilefni af sextíu ára valdaafmæli Elísabetar II. Breta- drottningar. Hugmynd hans varð hlutskörpust í samkeppni sem The Worshipful Company of Glaziers and Painters of Glass og British So- ciety of Master Glass Painters stóðu fyrir. Verkið, sem er steindur gluggi, verður sett upp í maí á þessu ári og vígt fyrstu helgina í júní. Áður hefur Leifur gert steindan glugga fyrir St. Giles dómkirkju í Edinborg, minningarglugga um þjóðskáld Skota Robert Burns og einnig nýtt listaverk, anddyri fyrir neðan steinda gluggann, fyrir sömu kirkju er var vígt fyrir ári. Drottningu til heiðurs Verk Leifs Breið- fjörð sett upp ytra Valdaafmæli Glerlistamaðurinn Leif- ur Breiðfjörð við listaverkið. ...sýnir vel eymdina og súrrealískan veru- leika í þessu alræmda sósíal- istaríki 37 » Árni Matthíasson arnim@mbl.is Þýska sópransöngkonan Simone Kermes syngur aríur úr óperum eft- ir Händel og Vivaldi á barokktón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu í kvöld, en einnig verða fluttir barokkkonsertar. Kermes valdi aríur úr óperum Vivaldis og Händels og þar á meðal er arían Agitata de due venti úr óp- erunni Griseldu eftir Vivaldi, en líf- legur flutningur Kermes á þeirri ar- íu hefur slegið í gegn á YouTube þar sem tugþúsundir hafa horft á mynd- skeið frá tónleikum hennar. Hún segist einmitt hafa valið aríurnar vegna þess að þær séu í uppáhaldi, aríur sem hún elski að syngja. „Ann- ars gæti ég ekki sungið þær,“ segir hún ákveðin, „ef maður elskar ekki tónlistina er ekki hægt að syngja hana.“ Að því sögðu þá kemur fljót- lega í ljós þegar spjallað er við Kermes um tónlist að hún kann vel að meta flesta ef ekki alla tónlist. Hún hefur þannig mikið dálæti á klassíkri tónlist almennt, hvort sem það er Mozart, Bellini, Wagner, Sjostakovitsj eða Bernstein, „en svo held ég líka mikið upp á Björk og Rammstein“, segir hún og rifjar upp hversu gaman það hafi verið að syngja Rammstein-lag í barokk- útsetningu eiginmanns síns fyrir stuttu. „Það má kannski orða það svo að ég vilji helst syngja allt,“ seg- ir hún og skellir upp úr. „Það er mitt og hljómsveitarinnar að miðla til- finningum, að deila því sem við finn- um í tónlistinni. Við lifum í augna- blikinu og eigum að njóta þess, það er stutt og kemur ekki aftur. Tónlist er töfrar og mitt hlutverk er að skila þeim töfrum.“ „Við lifum í augnablikinu og eigum að njóta þess“  Simone Kermes syngur uppáhalds- aríur í Hörpu Morgunblaðið/Sigurgeir S. Tilfinning Þýska sópransöngkonan Simone Kermes á æfingu með Sinfóní- unni: „Tónlist er töfrar og mitt hlutverk er að skila þeim töfrum.“ Eins og getið er hafa tugir þús- unda skoðað myndskeið með Simone Kermes á YouTube þar sem hún syngur Agitata de due venti. Hún segist þó ekki hafa sett neitt þar inn sjálf, það séu aðdáendur og áhugafólk sem setji inn myndskeið, ýmist sem þeir taki sjálfir á tónleikum eða upp úr sjónvarpi. „Ég hef þó ekkert á móti því, það er bara gott ef fólk sem ekki á kost á að komast á tónleika með mér get- ur séð mig syngja og auðvitað er það líka góð kynning. Við lif- um á tímum netsins og ekkert við því að gera. Það getur þó haft sínar nei- kvæðu hliðar, ekki síst ef verið er að setja inn myndskeið þar sem manni verður á í messunni, en ég get hlegið að sjálfri mér og tæki því létt ef einhver setti inn slíkt myndband af mér á YouTube,“ segir hún og hlær. „Get hlegið að sjálfri mér“ VINSÆL Á YOUTUBE AF LISTUM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hamingjan verður ekki her-tekin. Þessi yfirlýsing úrSvartfugli Gunnars Gunn- arssonar hljómar áhrifamikil í leiksýningu leikhópsins Aldrei ós- telandi, Sjöundá, í Kúlu Þjóðleik- hússins þessa dagana. Og atburð- irnir sem sviðsettir eru á litlu sviðinu staðfesta þessi spöku orð skáldsins; taumlaus losti og svik í nafni hamingjunnar leiða þar til morða og hátt er fallið í afskekktu kotinu.    Uppsetning leikhópsins áFjalla-Eyvindi Jóhanns Sig- urjónssonar vakti verðskuldaða athygli í fyrra. Eins og þá leik- stýrir Marta Nordal verkinu nú og Edda Björg Eyjólfsdóttir leikur annað kvenhlutverkið, auk þess að vera höfundur leikgerðarinnar ásamt Mörtu. Verkið byggist á þeim drama- tísku atburðum sem leiddu til tveggja morða á Sjöundá við Rauðasand á 19. öld og urðu úruöflin; eða ætti að vera það. Lostinn tók hinsvegar yfir. Og þá var æði stutt í svikin. Þetta er líkamlegt leikhús og afar vel gert hvernig hreyfingar, tog, skak, lyftur og nudd gefa í skyn hvað gekk á. Stundum er lif- andi myndum af nöktum líkömum varpað á tjald fyrir aftan til að undirstrika hvað gengur á, en það er eiginlega óþarfi; leikararnir gera þetta svo vel. Tilfinning- arnar eru sterkar, hatur og reiði, enda svikin stór og leiða til dauða- dóms, yfir öllum sem í hlut eiga. Dramatískara verður það ekki.    Í fyrri uppfærslu Aldrei óstel-andi hafði leikhópurinn þraut- reynt leikrit að vinna með. Hér er nálgunin önnur; sviðsverk unnið úr heimildum og skáldskap, og er afraksturinn bæði hrífandi og sannfærandi. Taumlaus lostinn og syndafallið Morgunblaðið/Kristinn Í kastljósinu Í dramatískri sýningunni liggur leiðin til glötunar. Gunnari efni í eina kunnustu skáldsögu íslenskra bókmennta. Leikgerðin er þó ekki unnin úr verki Gunnars nema að hluta. Meira er stuðst við réttarskjölin, og einkum yfirheyrslur yfir Stein- unni Sveinsdóttur og Bjarna Bjarnasyni, sem bjuggu ásamt mökum sínum og börnum í tvíbýli á Sjöundá, en myrtu makana og létu sig dreyma um að ekki kæm- ist upp og þau fengju að eigast.    Í þröngu leikrýminu er tendr-að sannkallað lostabál milli hinna seku en allan tímann er líka vitað að leiðin getur aðeins verið ein, til glötunar. Þarna fylgjumst við með þessum tvennu hjónum, sem auk Eddu Bjargar eru leikin af Stefáni Halli Stefánssyni, Sveini Ólafi Gunnarssyni og Hörpu Arn- ardóttur, og samskiptum þeirra. Á sviðinu eru fjögur rúm og flakka persónur milli þeirra, þar sem áhorfendur eru settir inn í at- burðarásina, með vel unnum til- vitnunum í málsskjölin. Umbún- aður er allur hinn einfaldasti. Fjórir litlir ljóskastarar eru á sviðinu og ljósamaður við hvern; fylgir hvert ljós sínum leikara á hugvitssamlegan hátt og eru ljósin notuð til að undirstrika kenndir og kringumstæður. Brot úr lestri Gunnars úr Svartfugli setur áhorfendur inn í aðstæðurnar á þessum fallega en afskekkta stað, og útvarp veðurfregna sem hljóma hver ofan í aðra undir- strika um hvað lífið snýst þarna í fásinninu, þetta er glíma við nátt- » Tilfinningarnareru sterkar, hatur og reiði, enda svikin stór og leiða til dauðadóms, yfir öllum sem í hlut eiga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.