SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Blaðsíða 2
2 19. febrúar 2012
Við mælum með
Sunnudagur 19. febrúar
Karlakórinn Þrestir er 100 ára í dag. Til að fagna því, en um leið
minna á 100 ára starf íslenskra karlakóra, efna Þrestir til tónleika á
þessum degi, undir nafninu Söngveisla í Hörpu. Tónleikarnir eru í
Eldborgarsal Hörpu og hefjast kl. 20 þetta sunnudagskvöld, sem
reyndar er einnig Konudagurinn 2012!
Þröstum í Hörpu
13 Hönnuðir sjá rautt
Tískuvikan í New York var haldin í vikunni og þar sýndu hönnuðir
haust- og vetrartískuna 2012-13.
20 Fram úr skugganum
Saga blökkumanna í ensku knattspyrnunni er saga um fordóma og
mótlæti en um leið þrautseigju.
24 Yrði eltur upp á Vatnajökul
Hinn stimamjúki Gunnar Jósefsson í Laugarásvídeói er fyrir löngu orð-
inn holdgervingur vídeómenningarinnar á Íslandi.
28 Keppnismanneskja í
matseld
Þrátt fyrir ungan aldur er Hrefna Sætran orð-
in einn virtasti matreiðslumaður landsins.
Hún rekur tvo veitingastaði, er með eigin sjón-
varpsþátt og er að skrifa matreiðslubók.
31 Örn og Arnarungarnir
Um þessar mundir er öld liðin frá fæðingu Arnar Snorrasonar kenn-
ara. Jóhann Lárus Jónasson minnist hans fyrir hönd Arnarunganna.
40 Á tali með Maríu
Mér finnst aðeins of skemmtilegt að tala. Ef enginn nennir að hlusta
tala ég bara við sjálfa mig.
Lesbók
44 Lífið í landi óttans
Í nýrri skáldsögu skáldar Adam Johnson sögu af fáránlegu lífshlaupi
Norður-Kóreubúa sem er þó ekki eins fáránlegt og raunveruleikinn í
landi óttans.
32
36
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Sigurði Hr. Sigurðssyni og dóttur
hans Lólu.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
Þegar fjölskyldan mætti í Ráðhús Reykja-víkur síðastliðinn sunnudag var gjör-samlega stappað í húsinu. Fólk varþangað komið til þess að virða fyrir sér
undraheim LEGO, sem búið var að setja upp í
Tjarnarsalnum en dagskráin var hluti af Vetr-
arhátíð í Reykjavík. Legóinu var búið að skipta
upp á nokkur borð, stærstur hluti var aðeins til
sýnis en einnig mátti prófa sig áfram á einu borð-
inu.
Langmestu athyglina hjá mínum drengjum
(tveggja og fjögurra ára) fékk borðið með lest-
unum. Þar var búið að stilla upp tilkomumikilli
lestarbraut sem þrjár lestir gengu um, annaðhvort
allar í einu eða til skiptis. Í kringum teinana var
síðan að finna blokkir, slökkvistöð, lögreglustöð
og fleira.
Þó að það mætti ekki snerta sást til nokkurra
drengja laumast til að skipta um spor á teinunum
og þannig láta lestina fara nýja leið. Hver getur
líka staðist slíka freistingu?
Sjónin var tilkomumikil en ein kunningjakona
mín, tveggja barna strákamamma með eitt á leið-
inni, sagði. „Þetta myndi ekki standa lengi svona
heima hjá mér!“ og vísaði til þess að börnum virð-
ist þykja ekki síður gaman að taka í sundur en
setja saman. Það versta í því er ábyggilega að næst
þegar á að setja herlegheitin saman vantar alltaf
eitthvert mikilvægt stykki.
Legó er reyndar skemmtilegra en margt annað
að því leyti til að það virkjar ímyndunaraflið og
það er hægt að búa til allt það sem manni dettur í
hug, ekki bara setja saman eftir leiðbeiningabækl-
ingnum.
Þessi legósýning gladdi svo sannarlega reykvísk
börn og barnafjölskyldur. Aðsóknin sem sýningin
fékk virðist benda til þess að það vanti viðburði
sem þessa (Laundromat tekur nú bara aðeins við
svo og svo mörgum í einu!) og gaman að því að
dagskrá fyrir yngstu börnin hafi verið hluti af
Vetrarhátíð.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Það voru töluvert fleiri í Ráðhúsinu en þarna eru þegar greinarhöfundur heimsótti undraheim LEGO.
Morgunblaðið/Eggert
Ómótstæðilegt
legó og lestarteinar
Meistaradeild
Evrópu
Enska félagið
Chelsea sækir
Napoli heim á
Ítalíu í 16. liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu á þriðjudag-
inn kl. 19.45. Manchester-liðin,
United og City, eru þegar fallin
úr leik og Arsenal í hægðum upp
fyrir höfuð. Bjargar Chelsea
heiðri ensku knattspyrnunnar?
Orð skulu standa
Einn alvinsæl-
asti útvarps-
þáttur þjóð-
arinnar
undanfarin ár,
Orð skulu standa, snýr aftur í
Þjóðleikhúskjallaranum.
Stjórnandi „þáttarins“ er sem
fyrr Karl Th. Birgisson og næsta
sýning á fimmtudag kl. 21.
Frægasta kjötkveðjuhátíð í heimi stendur yfir þessa dagana í borg-
inni Ríó í Brasilíu og eiga heimamenn von á 850 þúsund ferðamönn-
um af því tilefni. Meðfylgjandi mynd er tekin á æfingu síðastliðinn
föstudag en hátíðin stendur fram á þriðjudag.
Veröldin
AP
Ríó iðar af fjöri