SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Blaðsíða 30
30 19. febrúar 2012 Þ að er tekið eftir því, sem Jón Sig- urðsson, forstjóri Össurar hf., segir vegna þess, að hann hefur látið verkin tala. Hann tók við fyrirtækinu árið 1996 með 42 starfsmenn að því er fram kom í Viðskiptablaði Morg- unblaðsins í fyrradag en hjá því starfa nú 1.850 manns, þar af 360 á Íslandi. Þetta er mikill árangur. Þetta er afrek. Jón Sigurðsson sagði í ræðu á Við- skiptaþingi sl. miðvikudag: „Mér finnst við vera að tala um afleið- ingar þess að hafa gjaldmiðil, sem enginn treystir … Eina leiðin út úr þessu er að tengja krónuna við evruna, því 80% við- skiptanna eru við Evrópu.“ Nú er það að vísu svo, að ekki eru allir sammála því að 80% viðskipta okkar séu við Evrópu. Þannig sé það að vísu fært í bókhald þjóðarbúsins vegna þess, að álið er allt flutt út til Rotterdam. En þótt skipin sigli til Rotterdam sé álið nánast allt borgað í dollurum. Þegar við það bætist að um og yfir helmingur útflutnings sjávarafurða sé borgaður í dollurum og jafnvel meir séu frekar rök fyrir því að tengjast dollar en evru. Þetta segja spakir menn í íslenzka ál- heiminum. Svo er hægt að horfa á gjaldmiðilsmál okkar Íslendinga út frá öðru sjónarhorni. Það gerir Ragnar Arnalds, fyrrverandi fjár- málaráðherra og fyrrverandi formaður Al- þýðubandalags, í grein hér í Morg- unblaðinu í fyrradag. Hann hefur líkt og Jón Sigurðsson í Össuri látið verkin tala. Sumir telja, að sem fjármálaráðherra á ár- unum 1980-1983 hafi Ragnar komið fram á sjónarsviðið sem sannur íhaldsmaður á al- mannafé. Í grein sinni sagði Ragnar: „Langt er síðan farið var að reikna út hve mikið samræmi væri í sögulegu samhengi með hagsveiflum í ríkjum ESB-ríkja svo og á Íslandi og í Noregi, þ.e. hversu sam- hverfar (symmetric) sveiflurnar væru. Út- reikningarnir hafa m.a. sýnt tvo mikilvæga þætti hagsveiflunnar, þ.e. viðskiptakjör og hagvöxt. Samræmið reyndist mest hjá kjarnaríkjum evrusvæðisins en sveiflur í efnahagslífi Svíþjóðar, Danmerkur og Bret- lands reyndust áberandi ósamhverfar mið- að við evruríkin. Ísland og Noregur skáru sig þó algerlega úr. Í báðum þessum lönd- um hafa hagsveiflur reynst í furðulitlu samræmi við hagþróun á evrusvæðinu. Þetta sýnir að Íslendingar og Norðmenn eiga ekkert erindi inn á evrusvæðið og gætu orðið þar fyrir stóráföllum vegna þess hve efnahagslíf þeirra er í litlum takti við evruríkin. Skýringin er augljós: engin þjóð í ESB er jafnháð sjávarútvegi og við Íslend- ingar. Stór hluti tekna og útgjalda atvinnu- lífsins er auk þess í öðrum myntum en evru. En hjá Norðmönnum er það tvennt, sjávarútvegur og olíuvinnsla, sem veldur því að hagkerfi þeirra sveiflast með allt öðrum hætti en almennt er á evrusvæð- inu.“ Þeir Jón Sigurðsson í Össuri og Ragnar Arnalds horfa á þessi mál út frá ólíkum sjónarhólum. Jón horfir á það sem gerist í sínu fyrirtæki og kannski á stöðuna í at- vinnugreinum, sem eru í svipaðri stöðu, þótt þau séu ekki í sömu grein atvinnulífs- ins og Össur. Ragnar horfir á málið út frá sjónarhorni manns sem vegna ráðherra- starfa og áratuga þátttöku í stjórnmálum hefur öðlast yfirsýn yfir málefni íslenzka þjóðarbúsins alls. Svo getum við, hinir almennu borgarar á Íslandi, fylgzt með því sem er að gerast í kringum okkur. Grikkir búa við evru, sem töluverðum hópi Íslendinga finnst eft- irsóknarvert að taka upp. Hverjar hafa af- leiðingarnar orðið fyrir Grikki af að taka upp evru? Um helgina var eldur settur að nær 50 húsum í miðborg Aþenu. Ævareitt fólk fór ránshendi um 150 verzlanir á því svæði. Eitt hundrað þúsund manns voru á götum Aþenu og Þessalóníku að mótmæla 22% launalækkun, uppsögnum, atvinnuleysi (um 45% ungs fólks eru atvinnulaus) og skerðingu á lífeyrisréttindum. Á götum Aþenu eru 25 þúsund heimilislausir ein- staklingar, sem sofa á götunni eða í tjöld- um. Þýzkur blaðamaður kom að fimm manna fjölskyldu, sem hafðist við í tjaldi. Fjöldi þeirra, sem fremja sjálfsmorð, hefur tvöfaldazt á síðustu árum. Þetta neyðarástand hjá grískum almenn- ingi verður ekki afgreitt með því einu að segja að þeim sé nær, þeir hafi ekki kunnað fótum sínum forráð. Sl. miðvikudag reis forseti Grikklands upp og beindi orðum sínum að Þjóðverjum, Hollendingum og Finnum, sem hafa verið hvað gagnrýnastir á Grikki, og spurði hvaðan þeim kæmi réttur til að tala niður til Grikkja. Grikkir hefðu lagt sitt af mörkum til að verja frelsi Evrópu. Það var rifjað upp af þessu tilefni, að forseti Grikklands hefði verið meðlimur andspyrnuhreyfingar Grikkja, þegar Grikkland var hernumið af Þýzkalandi Adolfs Hitlers. Þá fengu þessi orð hins ald- urhnigna gríska forseta nýja merkingu. Sama dag sagði Mario Monti, forsætis- ráðherra Ítalíu, að rót vanda evrusvæðisins væri að Þjóðverjar og Frakkar hefðu brotið allar reglur þess, þegar það hentaði þeim sjálfum árið 2003. Það er alveg rétt hjá gagnrýnendum ís- lenzku krónunnar að veikleikar hennar eru margir. En svo er að sjá, sem veikleikar evrunnar séu ekki minni og raunar marg- falt meiri fyrir sumt af því fólki, sem við hana býr. Jafnvel í Bandaríkjunum, sem búa við dollar, er „skuldavandi heimila“ ekki óþekkt fyrirbrigði. Frá ársbyrjun 2008 hafa fjórar milljónir Bandaríkjamanna misst heimili sín. Fyrir nokkrum dögum var undirritað samkomulag milli fimm stærstu banka Bandaríkjanna, alríkisstjórnarinnar og einstakra ríkja um 26 milljarða dollara aðgerðir til þess að leysa úr skuldavanda heimila í Bandaríkjunum. Getur verið að hinn „ónýti“ gjaldmiðill, krónan, hafi bjargað okkur frá „grísku“ ástandi? Íslenzka krónan og „gríska“ ástandið Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Á þessum degi fyrir 82 árum lá dóms-málaráðherra þjóðarinnar, Jónas Jónsson fráHriflu, veikur heima hjá sér. Þá kemur tilhans Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, sem Jónas hafði sjálfur skipað í embætti ári fyrr. Fljót- lega fóru að ganga miklar sögur í Reykjavík sem og á landinu öllu um fund þeirra Helga og snerust þær eink- um um geðheilsu ráðherrans. Gerði Jónas málið op- inbert með stórri grein í Tímanum 26. febrúar undir fyr- irsögninni „Stóra bomba“. Greinin er rituð sem opið bréf til Helga Tómassonar og rekur Jónas þar málavexti. Í greininni segir Jónas m.a.: „Ekki eruð þér fyrr sestur en þér segið að þér komið frá forsætisráðherra og hafið verið að reyna að hindra að framkvæmt yrði eitthvert reginhneyksli. Þér bætið við að ýmsar sögur gangi um mig í bænum, sem séu kenndar yður, en þér segist treysta mér til að trúa ekki slíkum áburði. Þér sátuð dá- litla stund, undarlega nervös og flöktandi. Erindi kom aldrei neitt, en eitt sinn létuð þér í ljós að yður fyndist ýmislegt abnormalt við framkomu mína. Ég spurði spaugandi hvort þér kæmuð til að bjóða mér á Klepp. Þér svöruðuð því ekki, en af óljósu fálmi yðar þóttist ég vita um bombuna og segi að ef þér sendið eitthvert skjal út af þessu tagi þá myndi það vera historískt plagg. Þér þögðuð við, en virtust vera að tæpa á því að ég léti und- an læknunum um veitingu embætta. Ég benti yður á að ekki væri læknislegt að koma í heimsókn á þessum tíma dags. Um læknana væri ekkert nýtt að segja. Nokkrir þeirra hefðu gert uppreisn móti lögum landsins. Stjórn- in hefði gert sínar ráðstafanir. Þar væru engar millileið- ir. Sá sterkari mundi sigra að lokum. […] Konan mín fylgdi yður til dyra. Á ganginum var ljós og fólk þar á ferli. Skrifstofa mín er næsta herbergi við stofu þá, er ég lá í, og þunnt skilrúm á milli. Þar var dimmt. Þér genguð þar inn og konan mín á eftir inn fyrir þröskuldinn. Þér kveiktuð ekki á rafljósinu þótt þér hlytuð að vita að kveikja mátti við dyrnar, en þær voru opnar fram á ganginn. Er konan mín var komin inn fyrir þröskuldinn grípið þér þétt með báðum höndum um handleggi hennar og segið dauðaþungum og alvarlegum rómi: Vit- ið þér, að maðurinn yðar er geðveikur?“ Helgi svaraði bréfi Jónasar með grein í Morgunblaðinu tveimur dögum síðar. Þar segir hann m.a.: „Jeg neita því algerlega, að hafa fundið upp og borið út þá sögu, að dómsmálaráðherra væri geðveikur. Sá orðrómur lá á, löngu áður en jeg kom hingað til lands í mars 1928. Sam- kvæmt Alþingistíðindum 1927, D-deild 261 dálki, hefir einn af merkustu læknum landsins, hr. Jónas Krist- jánsson, þá þegar látið upp svofelt álit: „Þótt háttvirtur 1. landsk. (J.J.) hafi lagt mig í einelti og ofsótt, sem vottanlegt er, þá veit jeg, að honum gengur ekki einungis illgirni til, … heldur er það hans andlegi sjúkleiki, sem því veldur, eftir því sem jeg hefi komist næst um sálarástand hans. Hann er ekki andlega heilbrigður, og því get ég fyrirgefið honum.“ Ekki sjest að neitt hafi komið fram til að hnekkja þessu. Nokkru fyr, eða um líkt leyti, hefir eini geð- veikralæknirinn, sem hjer var þá, hr. Þórður Sverrisson, látið uppi samskonar álit við einn merkasta flokks- bróður dómsmálaráðherra á Alþingi.“ Eftirmál stóru bombunnar stóðu árum saman en Helga Tómassyni var vikið úr starfi yfirlæknis á Kleppi 30. apríl 1930 og var hann einnig látinn hætta ýmsum öðrum trúnaðarstörfum, t.d. þátttöku í starfræksluund- irbúningi Landspítalans. Síðar vann Helgi mál gegn rík- issjóði vegna ólögmætrar brottvikningar frá Kleppi. Í kjölfarið sneri hann aftur til starfa síðla árs 1932 og vann á Kleppi allt til æviloka 1958. Mikil samúðarbylgja reis upp með Jónasi og ekki hafði málið áhrif á stjórnmálaferil hans. Hann varð formaður Framsóknarflokksins 1934 og sat á Alþingi til 1949. orri@mbl.is Stóra bomba Jónas Jónsson frá Hriflu var umdeildur maður á sinni tíð. ’ Jeg neita því algerlega, að hafa fundið upp og borið út þá sögu, að dómsmálaráðherra væri geðveikur. Dr. Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, fór í örlagaríka vitjun. Á þessum degi 19. febrúar 1930

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.