SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Qupperneq 15

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Qupperneq 15
19. febrúar 2012 15 Venjulegt fólk segirðu. Hver eru Sig- urður Hr. Sigurðsson og Elvira Mendez Pinero? „Við erum íslenskt-spænskt par. Ég er menntaður kvikmyndagerðarmaður og starfa sjálfstætt við hljóðvinnslu fyrir bíó- og heimildarmyndir. Konan mín er frá Madríd, lögfræðingur að mennt og prófessor við lagadeild Há- skóla Íslands. Líklega fyrsti útlending- urinn sem ráðinn er til deildarinnar.“ Þið hafið væntanlega notið góðs af menntun hennar í þessum málarekstri? „Tvímælalaust. Elvira er doktor í Evr- ópurétti og þekkir til dæmis neytenda- löggjöf Evrópusambandsins út og inn en sú löggjöf virðist af einhverjum ástæðum ekki vera hátt skrifuð í kerfinu hér heima. Meðan á málinu okkar stóð sýndi Elvira meðal annars fram á það að belg- íska ríkið hafði á sínum tíma verið látið bakka með afturvirka lagasetningu sem var um margt sambærileg við lögin sem málið snerist um hérna.“ Hvar kynntust þið? „Við kynntumst árið 1999 í Noregi. Ég var búsettur þar með annan fótinn en Elvira á ferðalagi. Eftir það vorum við í tölvupóstsamskiptum og hún kom svo í heimsókn hingað til Íslands. Fyrstu kynni hennar af landinu voru svolítið skemmtileg. Hún kom annan í jólum 1999, lenti klukkan fjögur í kolniða- myrkri og vaknaði aftur klukkan tíu morguninn eftir – í kolniðamyrkri. Ég held henni hafi ekkert litist á blikuna.“ Hann hlær. „Elvira var fljót að jafna sig á þessu og hefur líkað ákaflega vel hérna. Er meira að segja komin með íslenskan ríkisborg- ararétt. Við hófum okkar búskap hér í Reykjavík og hún lærði íslensku í Háskóla Íslands en síðan bauðst henni starf í Lúx- emborg, þar sem við bjuggum í þrjú ár. Á þeim tíma eignuðumst við dótturina Lólu sem nú er sjö ára. Hún er tvítyngd, talar spænsku við mömmu sína en íslensku við mig. Það er mjög skemmtilegt og á örugglega eftir að koma sér vel fyrir hana í framtíðinni.“ Hugleidduð þið á einhverjum tíma- punkti að flytja utan eftir hrun? „Já, við veltum oft fyrir okkur hvort einhver framtíð væri í því að búa á Íslandi og nurla saman fyrir skuldum sem maður vissi ekki hvort maður gæti á endanum staðið undir. Það væri auðveldara fyrir okkur að fara en marga aðra, þar sem konan mín talar fimm tungumál og er fyrir vikið vel gjaldgeng víða um heim, en auðvitað er leiðinlegt að fara vegna þess að manni er ekki vært. Þess vegna létum við á rétt okkar reyna.“ Hafði tröllatrú á sigri Hefði dómurinn fallið á hinn veginn, hefðuð þið þá hugsanlega flutt úr landi? „Við höfðum rætt þann möguleika, já. Ég hafði hins vegar alltaf tröllatrú á því að við myndum vinna þetta mál.“ Efuðust þið aldrei? „Jú, jú. Við veltum allskonar nið- urstöðum fyrir okkur, meðal annars þeirri að dómurinn myndi freistast til að taka pólitíska pólinn í hæðina, þar sem mikið væri undir og háar fjárhæðir í spilinu. Þessi niðurstaða eykur tvímæla- laust tiltrú manns á íslenska dómskerf- inu. Það er ekki ómögulegt fyrir hinn al- menna borgara að bjóða fjármálafyrirtækjum og löggjafanum sjálfum birginn. Þessi niðurstaða hlýtur að vekja von um að hægt verði að dreifa byrðunum af hruninu á sanngjarnari hátt. Það er alltaf erfitt að missa eitthvað en fjarskalega ósanngjarnt að láta skuld- ug heimili axla ábyrgðina að langmestu leyti. Með fullri virðingu fyrir lífeyris- sjóðunum og öðrum. Við verðum að finna einhvern milliveg.“ Ertu með einhver skilaboð til stjórn- málamanna þessa lands? „Stærsta vandamál þeirra, að mínu mati, er það að þeir vinna ekki nægilega vel saman. Stjórnlagaráð hefur sýnt fram á að vel er hægt að vinna saman að lausn erfiðra álitamála. Því miður virðist Al- þingi ekki hafa lært neitt af því. Að mínu mati er það ekki dæmigert pólitískt álita- mál hvort skipta eigi byrðunum af hruninu jafnt milli allra. Það er dapurlegt að stjórnmálamenn geti ekki snúið sam- an bökum og fundið lausnir. Þar ber eng- inn einn maður, enginn einn flokkur, meiri ábyrgð en aðrir.“ Ertu bjartsýnn á að þetta lagist? „Já, ég er það. Ég held að breytt kosn- ingakerfi með persónukjöri komi til með að breyta flórunni inni á Alþingi og þessu valdaspili flokkanna. Ég er alls ekki að spá gömlu flokkunum dauða en það mun breyta þeim að færa aukin völd til kjós- enda – til hins betra. Alþingismenn mega ekki gleyma því að þeir eru kosnir af fólkinu í landinu en ekki fjármálafyrir- tækjunum. Ég er líka mikill áhugamaður um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Það er mikilvægur þáttur í uppgjörinu.“ Hvernig finnst þér uppgjörið við hrunið ganga? Nú eru liðin þrjú og hálft ár. „Mér finnst það ganga mjög hægt. Hafandi sagt það vil ég samt að embætti sérstaks saksóknara taki sinn tíma í þeirri von að málin sem unnið er að þar á bæ skili á endanum ásættanlegri niður- stöðu, frekar en að þeim verði vísað frá vegna þess að menn gáfu sér ekki nægi- lega langan tíma. En auðvitað er erfitt að bíða. Mér finnst rannsókn á einkavæð- ingu bankanna líka vera knýjandi. Ég myndi vilja sjá svart á hvítu hvernig að því máli var staðið á sínum tíma. Búið er að byggja upp nýja banka, fyrir al- mannafé að miklu leyti, og ég vil síður eiga á hættu að sömu mistökin verði gerð aftur. Menn verða að læra af mistökum sínum og annarra.“ Áfallið hefði þurft að vera stærra Höfum við eitthvað lært sem þjóð? „Eitthvað hljótum við að hafa lært. Eigi að síður held ég að áfallið hefði þurft að vera stærra á sínum tíma. Okkur var bjargað strax eftir hrun, fengum lán frá vinveittum þjóðum og Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum. Það hefði verið betra fyrir þjóðarsálina að upplifa vöru-, lyfja- og bensínskort. Þá hefðu allir fengið að reyna hrunið á eigin skinni, ekki bara þeir sem misstu húsnæðið sitt vegna skulda.“ ’ Það verður að segja eins og er að það hef- ur verið mikil lífs- reynsla að kynnast íslenska dómskerfinu sem er bæði formfast og svifaseint en samt skilvirkt – að lokum.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.