SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Blaðsíða 24

SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Blaðsíða 24
24 19. febrúar 2012 Svartur Benz rennir í hlaðið. Eigandinn drepur ísígarettunni, stígur út. Hann er fínn í tauinu, ísvörtum jakkafötum, svartri skyrtu og svört-um frakka. Gengur í hægðum sínum að inn- ganginum, heilsar kumpánlega. Hann er á leið í vinnu. Vinnustaðurinn er þó hvorki virðuleg lögmannsstofa né Kauphöll Íslands, heldur vídeóleiga. Hafa ber þó í huga að Laugarásvídeó er engin venjuleg vídeóleiga. „Ég hef alltaf verið svona til fara, á tíu svört jakka- föt,“ segir Gunnar Jósefsson, eigandi Laugarásvídeós, og glottir. „Ég ber virðingu fyrir starfi mínu og kúnn- anum og þykir sjálfsagt að vera vel til hafður í vinnunni. Fátt fer meira í taugarnar á mér en áhuga- lausir afgreiðslumenn, þannig fólk á að finna sér annað að gera.“ Stíll Gunnars hefur víða vakið athygli og honum er kunnugt um að einhverju sinni hafi heil kennslustund í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti farið í að ræða klæða- burðinn á honum. „Ég veit ekki hvernig þetta kom til, sennilega hefur einhver nemandi tekið málið upp. Ég hef örugglega fengið marga kúnna út á þetta, flestir nemendurnir sem voru í tímanum hafa örugglega þurft að koma og kíkja á karlinn,“ segir hann og hlær. Margra grasa kennir í Laugarásvídeói, um 24.000 titlar í boði. Mest voru þeir ríflega 39.000 en hluti safnsins brann þegar kveikt var í leigunni fyrir hálfu þriðja ári, þar á meðal öll VHS-myndbönd sem Gunnar hafði komið sér upp gegnum árin. „Það stefndi í 40.000 titla fyrir bruna. Kannski nær maður því tak- marki síðar,“ segir Gunnar sem keypt hefur gríðarlega inn eftir brunann. Allt er vandlega flokkað. Harðhausahorn fyrir strák- ana, dramahorn fyrir stelpurnar, myndir flokkaðar eft- ir leikurum, leikstjórum, löndum og guð má vita hvað. Allir kvikmyndaunnendur ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. „Hér inn hafa komið fínar frúr í pelsum og dáðst að skipulaginu. Það gleður mig,“ segir eigandinn. Skipulagið er þó hvergi betra en í höfðinu á Gunnari sjálfum. Inn kemur ungmenni og spyr um gamla ræmu, Great Balls of Fire!, þar sem Dennis Quaid leikur Jerry Lee Lewis. „Ég á hana,“ svarar Gunnar um hæl án þess að líta á tölvuna. „Hún er hérna.“ Ungmennið fylgir honum agndofa að einum rekkanum. „Er það? Geð- veikt!“ Grænt hulstur, ef ég man rétt „Fólk verður stundum hissa þegar ég geng beint að myndunum án þess að fletta þeim upp í tölvunni,“ segir hann þegar ungmennið hefur verið afgreitt, „en ég þekki safnið býsna vel eftir allan þennan tíma.“ Nú hringir síminn. „Laugarásvídeó,“ svarar Gunnar. „Já, einmitt, ég man eftir henni, grænt hulstur, ef ég man rétt. Nei, hún fór í brunanum eins og allt vídeó- spólusafnið mitt. Því miður.“ Fæstir koma þó bónleiðir til búðar. Á dögunum mætti hjá Gunnari kona sem hafði farið á sjö aðrar víd- eóleigur að leita að Forrest nokkrum Gump. Hún var hvergi til – sumir vissu ekki einu sinni hvernig skrifa á nafnið. En auðvitað átti Gunnar Gumparann. „Konan stökk upp eins og hún hefði fengið lottóvinning. Fólk hefur oft sagt við mig að ég hafi bjargað lífi þess. Auð- vitað eru það ýkt viðbrögð en gaman að heyra eigi að síður.“ Laugarásvídeó er með gott úrval af sjónvarpsþáttum og segir Gunnar það efni njóta vinsælda. „Sjáðu til dæmis þessa þætti hér, The Wire. Eftir að Jón Gnarr talaði um að enginn gæti starfað inna borgarkerfisins án þess að kunna skil á þeim voru þeir rifnir út, stopp- uðu varla inni mánuðum saman. Fyrir það er ég Jóni þakklátur.“ Gunnar leggur mikið upp úr heimildarmyndum af ýmsu tagi. Adolf gamla Hitler verður starsýnt á mann úr hillunum. „Ég hef verið spurður að því hvort Hitler sé í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Svo er ekki en Hitler er samt partur af mannkynssögunni, hvort sem okkur líkar betur eða verr, og um hann hafa verið gerðar margar áhugaverðar myndir, bæði heimildarmyndir og leiknar myndir.“ Gunnar er líka með mikið af gömlu og góðu efni, Er- rol Flynn og sú kynslóð, og svo leggur hann mikla áherslu á tónlistarmyndir enda gamall trymbill sjálfur. Það er engin tilviljun að gamla rokkið hljómar í bak- grunni á leigunni, Boston, George Harrison, Bruce Springsteen. Það eru hans menn. Hvar varst þú á sunnudaginn, Gunnar? Í einu horninu eru eingöngu Blu-rey-myndir sem eru í sexfaldri skjáupplausn miðað við DVD-diska. Gunnar ber lof á þá tækni. „Hún dregur fram hverja einustu hrukku,“ segir hann sposkur á svip. Gunnar segir fjölbreytt úrval algjört lykilatriði eigi vídeóleiga að ganga. „Ég nenni heldur ekki bara að selja kúlur og karamellur.“ Líkurnar á því að hitta á einhvern annan en Gunnar bak við borðið í Laugarásvídeói eru hverfandi en eig- andinn vinnur alla daga vikunnar sjálfur á leigunni, svo að segja allt árið um kring. „Ég stel svona degi og degi,“ svarar hann spurður um frí. Þegar spurt er hvort hann nái kannski viku á ári hrekkur Gunnar í kút. „Ertu frá þér, svo mikið frí tek ég aldrei.“ Komið hefur fyrir að Gunnar hafi fengið skömm í hattinn frá viðskiptavinum fyrir að bregða sér frá. Yrði eltur upp á Vatnajökul Gunnar Jósefsson í Laugarásvídeói er fyrir löngu orðinn hold- gervingur vídeómenningarinnar á Íslandi. Í aldarfjórðung hefur þessi hægláti og virðulegi maður staðið sína plikt við af- greiðsluborðið og hrist af sér allar mögulegar tækninýjungar, löglegar og ólöglegar, og risið upp eftir íkveikju. Skýringin liggur í þremur orðum: Verði, fjölbreytni og þjónustu. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.