SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Page 21
19. febrúar 2012 21
annars unnið að framgangi íþróttarinnar í
Bermúda og Bandaríkjunum.
Fyrstur í landsliðið
Árið 1978 urðu vatnaskil í ensku knatt-
spyrnunni þegar svartur leikmaður varð í
fyrsta skipti Englandsmeistari og lék með
enska landsliðinu, téður Viv Anderson.
Albert Johanneson var á mála hjá Leeds
þegar liðið varð enskur meistari 1969 en
lék ekki nógu marga leiki til að hljóta me-
dalíu. Anderson var á hinn bóginn lyk-
ilmaður í fyrsta og eina liði Nottingham
Forest sem unnið hefur enska meistaratit-
ilinn, lék 37 leiki af 42.
Þessi álappalegi en trausti bakvörður lét
raunar ekki þar við sitja heldur vann
einnig deildabikarinn með Forest vorið
1978. Ári síðar bætti hann öðrum deilda-
bikar og sjálfum Evrópubikarnum í safnið.
Þann stóra varði Forest vorið 1980 og hef-
ur þar af leiðandi oftar orðið Evrópu- en
Englandsmeistari. Knattspyrnustjóri For-
est á þessum tíma var sjálfur Brian Clough.
Jafnaldri Andersons, Laurie Cunn-
ingham, hafði árið 1977 orðið fyrsti
blökkumaðurinn til að leika fyrir yngri
landslið Englands, þegar hann tók þátt í
leik með 21-árs liðinu. Anderson varð á
hinn bóginn fyrri til að verja heiður þjóðar
sinnar í a-landsleik. Það gerðist á Wem-
bley 27. nóvember 1978 og var andstæð-
ingurinn Tékkóslóvakía.
Cunningham var næstur í röðinni, lék
sinn fyrsta landsleik fyrir England gegn
Wales 23. maí 1979, og varð um leið fyrsti
blökkumaðurinn til að taka þátt í móts-
leik, Anderson hafði leikið vináttuleik.
Anderson lék alls 30 landsleiki en Cunn-
ingham sex. Sá síðarnefndi lést langt fyrir
aldur fram í bílslysi árið 1989.
63 þeldökkir menn hafa nú klæðst bún-
ingi Englands, þeirra oftast Ashley Cole
(93 leikir), Rio Ferdinand (81) og John
Barnes (79). Sá síðastnefndi varð sá fyrsti
úr röðum svartra til að hljóta nafnbótina
„leikmaður ársins“ árið 1988, bæði hjá
samtökum leikmanna og íþróttafrétta-
manna. Þá lék hann með Liverpool.
Íþróttafréttamenn hafa aðeins valið
einn annan litaðan mann leikmann ársins,
Frakkann Thierry Henry. Raunar í þrí-
gang. Leikmenn hafa valið þrjá, Paul
McGrath (Aston Villa), Les Ferdinand
(Newcastle) og Henry (Arsenal).
Ísinn brotinn
Árið 1978 var líka eftirminnilegt fyrir þær
sakir að þá stillti félag í fyrsta skipti upp
þremur svörtum leikmönnum í einum og
sama leiknum, þegar téður Cunningham,
Cyrille Regis og Brendon Batson léku allir
með West Bromwich Albion í efstu deild
undir stjórn Rons Atkinsons. Var þeim
gefið samnefnið „Gráðurnar þrjár“ eftir
samnefndum sjónvarpsþætti.
Allir máttu þessir menn þola kynþátta-
fordóma í einni eða annarri mynd en samt
var ísinn endanlega brotinn. Þeldökkir
leikmenn streymdu inn í ensku knatt-
spyrnuna og auðguðu hana með hæfi-
leikum sínum.
Ýmsir þessara svörtu leikmanna hafa
líka látið sig hagsmunamál leikmanna
varða, þeirra á meðal Brendon Batson,
sem vann lengi ötullega fyrir samtök leik-
manna, og Garth Crooks sem í eina tíð lék
með Tottenham Hotspur en hann varð
fyrsti svarti formaðurinn í þeim sam-
tökum.
Samkvæmt nýlegum tölum eru 25%
allra leikmanna í ensku knattspyrnunni
nú dökk á brún og brá sem er merkilegt í
ljósi þess að blökkumenn eru innan við
3% bresku þjóðarinnar. Á hitt ber að vísu
að líta að fjölmargir þeldökkir leikmenn í
Englandi eru af öðru þjóðerni.
Guði sé lof fyrir þessa þróun, segja ef-
laust margir. Hefðum við viljað missa af
mönnum á borð við Thierry Henry, John
Barnes, Rio Ferdinand, Paul McGrath,
Ryan Giggs, Ian Wright, Didier Drogba og
Yaya Touré? Varla!
Að ekki sé talað um Ade gamla Ak-
inbiyi.
ir höfuð inn á völlinn. Hann lét sig hafa
það. Hann var afar teknískur leikmaður
en umfram allt drengur góður. Er það
ekki aðalatriðið?“
Tony Collins var samtímamaður Jo-
hannesons en lék einkum í neðri deildum.
Hann náði hins vegar þeim merka áfanga
að verða fyrsti litaði knattspyrnustjórinn í
Englandi þegar hann tók við Rochdale ár-
ið 1960. Collins stýrði liðinu í gömlu 4.
deildinni í sjö ár og kom því meðal annars
í úrslit deildabikarsins 1962. Þar laut
Rochdale í gras fyrir Norwich City en get-
ur grobbað sig af því að vera eina liðið úr
neðstu deild í Englandi til að leika bik-
arúrslitaleik.
Fyrsti þeldökki maðurinn til að stýra
liði í efstu deild var Hollendingurinn Ru-
ud Gullit sem var hjá Chelsea frá 1996-98.
Í dag eru aðeins tveir af 92 knatt-
spyrnustjórum í ensku deildunum fjórum
svartir, Chris Powell (Charlton) og Chris
Hughton (Birmingham City).
Trebilcock brýtur blað
Fyrsti blökkumaðurinn til að vinna enska
bikarinn var Mike Trebilcock. Gerði meira
að segja tvö mörk í 3:2-sigri Everton á
Sheffield Wednesday 1966. Trebilcock,
sem kom úr snauðri fjölskyldu, var nokk-
uð ljós á hörund og sennilega myndi Silvio
Berlusconi frekar segja að hann væri sól-
brúnn en svartur.
Þrátt fyrir Öskubuskuævintýrið á
Wembley festi Trebilcock sig ekki í sessi
hjá Everton og fór þaðan til Portsmouth
1968. Hann er enn við góða heilsu í Ástr-
alíu.
Meðan Trebilcock og Johanneson klifu
þrítugan hamarinn í Englandi voru tveir
bestu knattspyrnumenn heims svartir,
Brasilíumaðurinn Pelé og Portúgalinn
Eusébio. Léku þeir meðal annars listir
sínar á heimsmeistaramótinu í Englandi
1966.
Skömmu síðar kom Bermúdamaðurinn
Clyde Best fram á sjónarsviðið með West
Ham United. Stór og sterkur miðherji – og
sannarlega svartur á hörund. Hann átti
erfitt uppdráttar í upphafi vegna lit-
arháttar síns en vann stuðningsmenn
„Hamranna“ fljótt á sitt band með vask-
legri framgöngu.
Á þessum tíma var farið að sjónvarpa
með reglubundnum hætti frá kapp-
leikjum og Best hafði gríðarleg áhrif á
kynslóð svartra leikmanna sem á eftir
honum kom. „Á þessum árum var Clyde
Best eini svarti maðurinn sem maður sá í
sjónvarpi,“ sagði einn þessara manna, Viv
Anderson, einu sinni í viðtali.
Clyde Best er enn í fullu fjöri, sextugur
að aldri, en í seinni tíð hefur hann meðal
sagði Leslie sposkur í viðtali löngu seinna.
Leslie var framsækinn leikmaður og
skoraði á annað hundrað marka.
Fyrsti svarti maðurinn, sem ekki var af
blönduðum kynþætti, til að leika deild-
arleik í Englandi var Alf Charles sem lék
einn leik fyrir Southampton í annarri
deild 1937. Síðan ekki söguna meir.
Roy nokkur Brown tók við kyndlinum
eftir seinna stríð en hann lék meðal ann-
ars 70 leiki fyrir Stoke City í efstu deild á
árunum 1946-53. Brown átti hvíta enska
móður og nígerískan föður og var að
sumra mati nógu góður til að leika fyrir
England. Af því varð þó ekki.
Hinn afríski Albert
Á sjöunda áratugnum var röðin komin að
blökkumanni frá Suður-Afríku að láta ljós
sitt skína hjá Leeds United. Hann hét því
ágæta nafni Albert Johanneson. Þessi knái
vinstri-útherji lék yfir 170 leiki fyrir fé-
lagið, þar af þónokkra í efstu deild og varð
fyrsti þeldökki maðurinn til að taka þátt í
úrslitaleik ensku bikarkeppninnar, 1965.
Leeds laut þó í gras gegn Liverpool.
Eftir að ferlinum lauk varð Johanneson
Bakkusi að bráð og lést langt fyrir aldur
fram árið 1995. Hans verður þó minnst
um ókomna tíð á Elland Road, ekki síst
fyrir hugrekki. Johanneson mátti nefni-
lega ítrekað þola apahermur, bananaköst
og andstyggilegheit af öðru tagi frá stuðn-
ingsmönnum annarra liða.
Einn samtímamanna hans í ensku
knattspyrnunni, George Best, vottaði Jo-
hanneson einu sinni viðingu sína í viðtali.
„Albert var hugrakkur maður, að stíga yf-
sig í breska herinn. Hann hélt á vígvöllinn
og vann sig hratt upp metorðastigann
vegna ósérhlífni og leiðtogahæfileika. Var
gerður að liðsforingja enda þótt reglur
hersins bönnuðu á þessum tíma að þel-
dökkir menn gegndu ábyrgðarstöðum
innan hersins. Tull biðu grimm örlög –
hann féll í bardaga í Frakklandi 25. mars
1918, 29 ára að aldri.
Árið 1999 afhjúpaði Northampton
Town minnismerki um Walter Tull á
heimavelli sínum, Sixfields Stadium. Þar
stendur skrifað að hann hafi alla tíð boðið
fordómunum birginn og verið staðráðinn
í að ryðja öllum hindrunum úr vegi.
„Enda þótt hann hafi fallið frá í blóma
lífsins slær hjarta hans ennþá hátt og
snjallt.“
Fyrir rúmum þremur árum sýndi BBC
Four sjónvarpsmynd um líf Tulls og nú
eru uppi áform um að gera kvikmynd eftir
handriti Phils Vasilis sem einnig hefur
skrifað ævisögu Tulls.
Hættu við valið
Á millistríðsárunum settu sárafáir litaðir
menn svip sinn á ensku knattspyrnuna, sá
frægasti, Jack Leslie, lék í þrettán ár með
Plymouth Argyle, frá 1921-34, aldrei þó í
efstu deild.
Eins og aðrir sem nefndir hafa verið til
sögunnar var Leslie af hvítu og svörtu for-
eldri. Hann fæddist í Lundúnum og þegar
völlurinn á honum var hvað mestur kom
til álita að velja hann í enska landsliðið.
Það var raunar gert en valið afturkallað án
skýringa. „Ætli þeir hafi ekki bara gleymt
því um stundarsakir að ég var litaður,“
Tom Adeyemi bendir á áhorfandann sem svívirti hann á Anfield. Lögregla gekk í málið og Liverpool setti sökudólginn í ævilangt bann.
Reuters
Bakvörðurinn Viv Anderson varð fyrsti þel-
dökki enski landsliðsmaðurinn árið 1978.
Skotinn Andrew Watson, fyrsti blökkumað-
urinn til að leika landsleik í knattspyrnu.