SunnudagsMogginn - 19.02.2012, Page 39
19. febrúar 2012 39
Jú, þeir koma alltaf annað kastið þessir dagar þar semmig dreymir um mann sem vindur sér að mér vafn-ingalaust og ræðst til atlögu með blíðmælgi og hyl-djúpri ást í augum.
Tekur svo fumlaust til við að spenna upp á mér rifjahylkið,
veður með lúkurnar inn fyrir og rífur út hnefastóra dýrmætið
sem þar slær fyrir innan.
Beina leið ratar það upp í hvoftinn á herramanninum.
Hann graðgar í sig hárautt góðgætið.
Ég horfi undrunaraugum á hann kjamsa á kjötinu sem
kippist til í sínum taktföstu slögum undir tönnum hans og
tungu.
Velti því hissa fyrir mér hvort það geti virkilega verið að
hann sé að kyngja hjartanu mínu.
Ég fálma með fingrunum um
blóðugt brjóstið og bregður við hol-
rúmið.
Sakna strax lífsins sem ég sé fljóta
frá mér þar sem bunar dreyri úr
æðum.
Svona getur ástin verið grimm.
Og hvaða rugl er það að sífellt
skuli látið í veðri vaka að það sé eft-
irsóknarvert að verða fyrir þessu
ofbeldi?
Það er jú gjarnan sagt að fólk sé svo óskaplega lukkulegt
þegar einhver hefur gjörsamlega rænt hjarta þess.
Ég hef ákveðnar efasemdir um að það geri nokkrum manni
gott að láta stela úr sér líffærum.
En fólk lætur sér ekki segjast, þessi stuldur er stundaður
grimmt í mannheimum.
Og þarf ekki til þess neina sérfróða skurðlækna.
Hömlulaust fólk og ástsjúkt veður hvað í annars brjóstkassa
með berum lúkum.
Sumir vilja reyndar helst leggjast á alvöru skurðarborð og
láta lækni fara um sig fagmannlegum, hanskaklæddum hönd-
um við verkið, með tilheyrandi stáltólum.
Hann hefur jú löngum verið kunnur þessi veikleiki kvenna
fyrir sloppklæddum doktorum.
Þau slefuðu ófá fljóðin yfir grásprengdum Clooney þar sem
hann skautaði með hlustunarpípuna um hálsinn um ganga
Bráðavaktarinnar. Barkaþræðandi eins og enginn væri morg-
undagurinn.
Kannski er hún svona örvandi tilhugsunin um að láta bjarga
sér. Læknar koma jú stundum í veg fyrir að líftóran hrökkvi
úr fólki. Konur eru almennt veikar fyrir gæsku þeirra sem
nenna að hlúa að sjúkum og sárum.
En ég held að þessi meinti læknaþokki sé einhver tegund af
blæti, þetta með klæðin og græjurnar.
Reyndar hitti ég lækni um daginn sem sagði mér í óspurð-
um fréttum að læknar væru náttúrulausir.
Þar fór það.
Ætli ég kjósi þá ekki frekar að verðtryggingargeimsjávarlíf-
fræðingur gleypi mig í einum bita.
Viltu skera
mig upp
’
Þessi
meinti
lækna-
þokki er ein-
hver tegund af
blæti.
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
vík, Austurver, Suðurver, Glæsibær, Grímsbær og Kjörgarður auk
Skeifunnar. Kringlan, eins og verslunarmiðstöðin var nefnd, var
samt sem áður fyrsta eiginlega miðstöðin og þótti algjört nýmæli að
innandyra væru heilar göngugötur þaðan sem var innangert í versl-
anir. Árið 1991 var svo Borgarkringlan opnuð, minni verslunar-
miðstöð milli Kringlunnar og Borgarleikhússins sem hýsti meðal
annars Kringlukrána og margar gjafavöruverslanir. Árið 1997 voru
síðan Kringlan og Borgarkringlan tengdar saman í eina byggingu
með stórri millibyggingu.
Og nú þegar komið er fram á árið 2012 eru í Kringlunni starfræktar
yfir 170 búðir, veitinga- og þjónustustaðir. Þar eru og bókasafn, fast-
eignasala, kvikmynda- og leikhús, læknastofa, áfengisverslun og svo
mætti áfram telja. Kringlan er líklega einn fjölsóttasti staður lands-
ins. Á tuttugu ára afmæli Kringlunnar árið 2004 var til dæmis áætlað
að þangað kæmu yfir fjórar milljónir gesta árlega.
Stór verkefni eru jafnan verk margra manna og hugmyndir þróast
á löngum tíma enda þótt tíminn sverfi söguna til og einfaldi umræðu.
Ekki verður þó farið í grafgötur um að Kringlan var fyrst og síðast
byggð að frumkvæði Skagfirðingsins Pálma Jónssonar, sem var mað-
ur sem markaði skil. „Hann er duglegur bisnessmaður og hefur sýnt
það í sínu lífi að hann er kraftmikill. Hefur gert marga mjög góða
hluti. Hvort hann er að færast um of í fang með Kringluævintýrinu
getur auðvitað aðeins sagan sagt til um, en hann hefur aldrei troðið
neinum um tær með óheiðarlegum hætti og á allt gott skilið. Það er
kraftur í honum,“ sagði í nærmynd af Pálma í Helgarpóstinum árið
1987, en hann lést í Reykjavík árið 1991, tæplega sjötugur að aldri.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Hvort hann er
að færast um of
í fang með
Kringluævintýrinu
getur auðvitað aðeins
sagan sagt til um.
Pálmi Jónsson
Dúkkuútgáfur af her-
toganum og hertoga-
ynjunni af Cambridge
koma brátt á mark-
að. Mattel, framleið-
andi Barbie-dúkka,
tilkynnti í vikunni að
fyrirtækið ætli að
setja dúkkurnar á
markað í apríl í tilefni
af eins árs brúð-
kaupsafmæli Katrínar og Vilhjálms. Dúkkurnar verða
hluti af sérstakri safnaraútgáfu Barbie og verða í
brúðarfötum parsins. Parið verður selt á um 12.000
krónur.
Konunglegar
Barbie-dúkkur
Fjölskylda rússnesks milljarða-
mærings keypti íbúð í New York fyrir
88 milljónir dala eða um 11 millj-
arða íslenskra króna og samkvæmt
frétt Wall Street Journal er þetta þar
með dýrasta íbúðin í borginni. Eins
og gefur að skilja er þetta engin
venjuleg íbúð heldur svokölluð
„penthouse“-íbúð á efstu hæðum í
glæsilegu húsi sem stendur við Central Park vestan-
verðan. Borgin hefur upp úr sölunni ríflega 310 millj-
ónir króna vegna skatta og gjalda og fasteignasalinn
græddi tæpar 440 milljónir á sölunni.
Dýrasta íbúðin í New York
Aðdáendur um allan heim minnast nú söngdrottningarinnar sem fallin er frá fyrir aldur fram.
AP
Hjónin Bobby Brown og Whitney Houston áttu sínar
góðu stundir. Þessi mynd var tekin árið 1997.
Reuters
’
Houston fannst látin bað-
kari í herbergi sínu á Be-
verly Hilton-hótelinu í
Kaliforníu og er dánarorsökin
ekki ljós ennþá en rannsókn
stendur yfir.