Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 2. M A R S 2 0 1 2  Stofnað 1913  60. tölublað  100. árgangur  ŚKÁKKLIÐUR FÓR UM HÖRPUNA REYKJAVÍK FOLK FESTI- VAL LUKKAÐIST VEL SNÚÐUR OG SNÆLDA SETJA UPP LEIKRITIÐ ROMMÍ STEMNING Á ROSENBERG 34 VÍTAMÍNSPRAUTA 10REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ 16-17  Sumir íbúar í Vík í Mýrdal hafa að undanförnu verið uppteknir við sandmokstur af völdum brims og sandfoks frá Víkurfjöru. Þetta er vandamál sem upp kemur á hverju ári um þetta leyti. ,,Ég keyri með fulla kerru af sandi úr innkeyrsl- unni hjá mér,“ segir Bryndís Harð- ardóttir, íbúi í Vík. Hún vill að kraftur verði settur í sáningu mel- gresis í fjörunni. Nýr sandfangari sem reistur var í Víkurfjöru í fyrra hefur gefið góða raun en dugir þó ekki til. Sandskaflar hafa safnast báðum megin við þjóðveginn. »14 Sandplága í kjölfar stórbrims Ljósmynd/Bryndís Harðardóttir Óboðinn gestur Sandurinn fýkur upp í þorpið og veldur íbúum tjóni og ama.  Nýir aðilar hafa tekið við rekstri veitingastaðarins á Hótel Borg. Breyta á staðnum þannig að saga hans fái að njóta sín. Gamall silfur- borðbúnaður verður tekinn aftur í notkun og flestöllu breytt til upp- runalegs horfs. Hulunni verður svipt af gömlum málverkum. »2 Sagan fær að njóta sín á Hótel Borg Morgunblaðið/Ómar Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, telur að það geti haft víðtæk áhrif ef ákveðið verður að eyðileggja þá fag- legu vinnu sem liggi til grundvallar þingsályktun- artillögu um vernd og nýtingu náttúrusvæða. „Ég tel að það muni frekar skaða umhverfið en vernda, þegar til lengri tíma er litið,“ segir Gylfi og vísar til vinnu- bragðanna. Þá segir hann að það myndi hafa áhrif á horfur í at- vinnumálum. Ekki sé hægt að hefja sölu á rafmagni umræddra virkjana. Þá muni deilur um virkjanakosti takmarka möguleika á sölu orkunnar og draga úr möguleikum á að byggja upp grænt hagkerfi. Eyðileggur faglega vinnu Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hugmyndir um að fresta virkjun neðri hluta Þjórsár og fleiri virkjun- um fá hörð viðbrögð frá forsvars- mönnum Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar. „Ég spái því að þetta verði skammlífasta ályktun Alþingis, ef hún nær fram að ganga verður það bara til að binda þessa flokka þann tíma sem eftir er,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Þessar hugmyndir lýsa í hnot- skurn í hvaða ógöngum þessi mál eru, þau eru í gíslingu virkjanaand- stæðinga sem virðast bera niður alls staðar þar sem á að virkja,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins. Gylfi og Vilhjálmur eru ósammála Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra um að það ætti ekki að tefja uppbyggingu þótt ótilgreindir kostir yrðu settir í biðflokk því nægir aðrir virkjanakostir væru fyrir hendi. „Það að setja mál sem eru fullrann- sökuð í nýja rannsókn hefur áhrif. Mér finnst að frekar ætti að setja þá fjármuni í kosti sem eru í bið,“ segir Gylfi. Vilhjálmur segir að fjárfesting í atvinnulífinu sem byggist á þessum virkjunum hljóti að dragast. Annað- hvort þurfi að undirbúa nýjar virkj- anir eða bíða eftir þeim fyrri. Telur hann að það muni hafa áhrif mörg ár fram í tímann ef ákveðið verður að slá þessum virkjunum á frest. MÚr faglegum farvegi »4 Vara við breytingum á röð virkjana  Hefur áhrif á uppbyggingu atvinnu- lífs ef neðri Þjórsá verður frestað Virkjanir í neðri hluta Þjórsár » Holta- og Hvammsvirkjun í Þjórsá hafa verið taldar væn- legir virkjanakostir og um- hverfisáhrif þeirra eru minni en margra annarra virkjana. » Urriðafossvirkjun er um- deildari en er þó fyrir ofan miðjan hóp við röðun helstu virkjanakosta og neðan við miðju þegar metin voru áhrif á umhverfið. Um helgina fór fram, í tólfta skiptið, Íslandsmeistaramót Íslandsbanka í tíu dönsum á Ásvöllum í Hafnarfirði. Alls tóku 300 pör þátt í mótinu og voru þau á aldrinum 5-23 ára. Á myndinni sést dansparið Jón Eyþór Gottskálks- son og Eyrún Stefánsdóttir en þau enduðu í þriðja sæti í sínum dansflokki. Morgunblaðið/Eggert Dansinn dunaði um helgina á Íslandsmóti í tíu dönsum Um 300 pör í krefjandi danskeppni Ósnortin víðerni, eins og hugtakið er skilgreint í náttúruverndar- lögum, hafa minnkað um 68% frá árinu 1936. Þetta kemur fram í ritgerð sem Victoria Frances Tay- lor lagði fram til meistaraprófs í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Í lögum um náttúruvernd eru ósnortin víðerni skilgreind sem landsvæði sem er a.m.k. 25 km2 að stærð og er í a.m.k. fimm kíló- metra fjarlægð frá mannvirkjum og öðrum tæknilegum ummerkj- um. Þessar forsendur lagði Vic- toria, sem er hálfíslensk, til grundvallar í sinni rannsókn. Miðað við þær gætir áhrifa mannvirkja á stærstum hluta landsins. Í niðurstöðum hennar kemur fram að ósnortin víðerni hafa frá 1936 minnkað að meðaltali um 677 ferkílómetra á ári. Af þeim ósnortnu víðernum sem eftir eru eru 88% þakin jöklum. Haldi þró- unin áfram munu engin landsvæði á Íslandi falla undir þessa skil- greiningu árið 2032. »6 Minnkað um 68% frá 1936  Ósnortin víðerni látið undan síga og munu enn minnka  Árið 1936 voru 47% Íslands eitt samfellt ósnortið víðerni Morgunblaðið/RAX  Rafmagnsvespur munu ekki leng- ur flokkast sem reiðhjól heldur létt bifhjól verði frumvarp til breytinga á umferðarlögum sem nú er í undir- búningi að lögum. Það þýðir að enginn má aka raf- magnsvespum nema hafa náð fimmtán ára aldri og hlotið tilskilda þjálfun og staðist ökupróf. Í frumvarpsdrögunum kemur fram að léttum bifhjólum megi aka á götum með 50 km hámark, á hjólastígum og hjólareinum. Ákvæðum um rafmagnshjól verður einnig breytt. »20 Rafmagnsvespur fara undir ákvæði um létt bifhjól Morgunblaðið/Eggert Reiðhjól Ferðast um á rafmagnsvespu.  Á síðastliðnum áratug voru að meðaltali rúmlega 20.000 reiðhjól flutt til landsins á hverju ári. Há- marki náði innflutningurinn árið 2008, þegar flutt voru inn rúmlega 28.000 hjól, enda fluttu menn þá inn miðað við söluna árið 2007. Í kjölfar hrunsins dróst innflutn- ingur saman, þótt varla sé hægt að tala um hrun í því samhengi, og hefur innflutningur verið um 16.000 undanfarin ár. Fleiri aðilar sækja nú inn á reiðhjólamarkaðinn. »12 Fleiri takast á um sterkan hjólamarkað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.