Morgunblaðið - 12.03.2012, Síða 6

Morgunblaðið - 12.03.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Ferðafélag íslands • www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533 Aðalfundur Ferðafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 22. mars kl. 20 í sal félagsins, Mörkinni 6. Hefðbundin aðalfundarstörf, Stjórnin FRÉTTASKÝRING Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Ósnortin víðerni hafa minnkað um 68% frá árinu 1936. Þetta kemur fram í rannsóknarritgerð sem Vict- oria Frances Taylor gerði við Há- skóla Íslands. Þar skoðar Victoia allt landið og metur þessa þætti út frá vegakerfi og raflínum landsins. Í lögum um náttúruvernd eru ósnortin víðerni skilgreind sem „landsvæði sem er a.m.k. 25 km2 að stærð eða þannig að hægt sé að njóta þar einveru og náttúrunnar án trufl- unar af mannvirkjum eða umferð vélknúinna farartækja á jörðu, er í a.m.k. 5 km fjarlægð frá mann- virkjum og öðrum tæknilegum um- merkjum.“ Þegar þessir tveir þættir í rannsókninni eru metnir út frá lög- unum kemur í ljós að áhrif mann- virkja gæti orðið á stærstum hluta Íslands. Í niðurstöðunum kemur fram að ósnortin víðerni hafi frá árinu 1936 minnkað að meðaltali um 677 ferkíló- metra á ári. Af því landi sem eftir er undir þessari skilgreiningu er 88% þakið jöklum sem minnka nú um 0,3% árlega. Á síðasta áratug hafa ósnortin víð- erni verið á talsverðu undanhaldi, en þessi ár hafa þau minnkað um 1.077 ferkílómetra að meðaltali á ári. Ef sú þróun heldur áfram munu engin landsvæði á Íslandi geta fallið undir þessa skilgreiningu á árinu 2032. Í ritgerðinni kemur fram að svæð- um ósnortinna víðerna, stærri en 200 ferkílómetrar, hafi fækkað um 70% á árunum 1936-2010. Tvö láglendissvæði eftir Stærsta einstaka víðerni árið 1936 var um 50.000 ferkílómetrar eða um 47% af Íslandi. Árið 2010 var stærsta svæðið einungis 10.000 ferkílómetr- ar, eða 9% Íslands. Á láglendi eru bara tvö svæði sem falla undir þessa skilgreiningu, Hornstrandir og Skeiðarársandur. Rannveig Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, og Micael Runn- ström, lektor við Háskólann í Lundi, hafa einnig gert rannsóknir á þessum málum. Í grein sem þau skrifuðu í tímaritið Náttúrufræðinginn er fjallað um þróun þeirra. Þar skil- greina þau hugtakið víðerni með öðr- um hætti en Victoria og notast m.a. við útsýnisgreiningar og skoða staði þar sem engin mannvirki eru í sjón- máli. Samkvæmt þeirra niðurstöðum reiknast um 33% Íslands sem víðerni, eða 34.161 ferkílómetrar í heildina. Í greininni segja þau að hlutfallið yrði talsvert lægra ef fleiri þættir yrðu teknir með inn í reikninginn „en nýting eins og t.d. beit hefur í tímans rás sett sitt mark á íslensk víðerni og þannig breytt ásýnd landsins,“ segir í greininni. Þau segja að hratt hafi verið gengið á víðernisauðlind landsins á síðustu áratugum. Rannveig og Micael segja í nið- urstöðum sínum að friðlýst svæði veki bæði forvitni og eftirspurn meðal ferðamanna. Þau segja ferða- þjónustuna svara slíkri eftirspurn „með aukinni uppbyggingu innviða, þjónustu og afþreyingu sem styrki efnahagslega sjálfbærni svæða“. Síðan segja þau: „Án skýrrar stefnu- mörkunar um nýtingu nátt- úruverndarsvæða, hvað varðar úti- vist og ferðamennsku, er hins vegar hætta á að þessi svæði glati bæði upprunalegu aðdráttarafli sínu og því verðmæti sem verið er að vernda.“ Í rannsókn Victoriu kemur fram að sívaxandi fjöldi ferðamanna komi til landsins og að það sé æ algengara að ferðamenn leiti út í víðerni. Í grein Rannveigar og Micaels segir að í þjóðgörðunum þrem- ur falli 65% lands undir skil- greininguna um víðerni án sjónrænna áhrifa frá mann- virkjum. Þau segja 32% friðlanda og 18% fólk- vanga flokkast undir þessa skilgreiningu. Ósnortin víðerni á undanhaldi  Hafa minnkað um 68% á 74 árum  88% þeirra eru í dag þakin jöklum  Stærsta einstaka svæðið er 10.000 ferkílómetrar eða 9% landsins  Árið 1936 voru 47% Íslands eitt samfellt ósnortið víðerni Ósnortin víðerni á Íslandi árin 1936 og 2010 1936 2010 Vegna vegagerðar og tilkomu raflína á hálendinu hafa ósnortin víðerni á Íslandi minnkað um 68% á 74 árum, þar af eru 88% þakin jöklum. Ósnortin víðerni eru skilgreind í náttúruverndarlögumsemað lágmarki 25 ferkílómetra landsvæði þar sem hægt er að njóta einveru og náttúrunnar án truflunar frámannvirkjum semþurfa að vera í a.m.k. 5 km fjarlægð. Morgunblaðið/RAX Ósnortið víðerni Jökulgil við Landmannalaugar er vinsæll ferðamanna- staður, en flokkast ekki sem ósnortið víðerni skv. náttúruverndarlögum. „Þetta er þróun sem hefur átt sér stað alls staðar í Evrópu,“ segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Ís- lands. Hann segir að á fáum stöðum í Evrópu megi nú sjá svæði sem teljist ósnortin. Árni segir að fyrir 40 árum hafi Vestfirðingar stofnað sam- tök til að friðlýsa Hornstrandir. „Í dag eru Hornstrandir ein stærsta auðlind Ísafjarðar- bæjar,“ segir Árni og segir að þangað fari nú um straumur ferðamanna til þess að njóta útivistar á Hornströndum. „Stjórnvöld þurfa að skoða hvort ekki sé hægt að taka frá þessi víðerni á hálendi Íslands og setja í verndarflokk í heild sinni.“ Árni segir Íslend- inga þurfa að gera sér grein fyrir því að þeir búi yfir mjög sérstakri auðlind. Víðernin séu ekki bara ómanngerð, heldur líka öðruvísi en annars staðar. Öðruvísi en annars staðar ERU SÉRSTÖK AUÐLIND Árni Finnsson Erlendir ferðamenn 1949-2010 Ósnortin víðerni 1936-2010 km2 500.000 400.000 300.000 200.000 100.000 0 80.000 70.000 60.000 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 0 1950 2010 1930 2010 Í gær gerði fólk sér ferð með börn sín í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn til að fylgjast með Guðmundi Hall- grímssyni rýja kindur garðsins. Þegar rúið er á þessum tíma árs er snoðið tekið, en það er reyfið kallað þegar það er ekki fullvaxið. Konur frá Ullarselinu á Hvann- eyri sýndu einnig handbrögðin við nýtingu á ullinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kindurnar losna við snoðið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.