Morgunblaðið - 12.03.2012, Side 8

Morgunblaðið - 12.03.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Listmunauppboð í Gallerí Fold Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012 mánudaginn 12. mars, kl. 18, í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg BirgirA ndrésson BirgirA ndrésson Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Verkin verða sýnd mánudag kl. 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Sundurlyndið innan Samfylking-arinnar tekur á sig ýmsar myndir. Össur Skarphéðinsson hef- ur frá fyrsta degi unnið að því að grafa undan eftirmönnum sínum í formannsstóli og fer misjafnlega fínt í það verk.    Um áramótin gafhann til dæmis út yfirlýsingu um hve lengi Jóhanna Sigurðardóttir mætti sitja sem for- maður.    Var það meðóvenjulegri yf- irlýsingum frá sam- ráðherra úr sama flokki og fór eins og við mátti búast ekki nema hæfilega vel í formanninn.    Í gær fór Össur í viðtal og stóðst þáekki heldur mátið að tala niður til formanns síns.    Forsetinn og framboð hans barst ítal og þá sagði Össur að nú væru allir „að röfla og rífa svolítinn kjaft út í forsetann fyrir það að hann sé að stíga inn á hið pólitíska svið“.    Nú er það ekki svo að „allir“ hafiverið að gagnrýna forsetann fyrir þetta, en sú sem hafði gert það daginn áður og einmitt með þessum sömu orðum, um að „stíga inn á hið pólitíska svið“, var Jóhanna Sigurð- ardóttir.    Pólitískur lærisveinn forsetanskunni þessu illa og notaði tæki- færið til að setja ofan í við formann sinn með sínum hætti.    Óheflað yfirlætið er aldrei langtundan og vélráðin ekki heldur. Össur Skarphéðinsson Rætt um að röfla og rífa kjaft STAKSTEINAR Jóhanna Sigurðardóttir Veður víða um heim 11.3., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík -1 snjóél Akureyri 3 skýjað Kirkjubæjarkl. 3 skýjað Vestmannaeyjar 3 rigning Nuuk -16 snjókoma Þórshöfn 8 þoka Ósló 11 heiðskírt Kaupmannahöfn 10 skýjað Stokkhólmur 7 heiðskírt Helsinki 3 léttskýjað Lúxemborg 10 skýjað Brussel 12 léttskýjað Dublin 11 alskýjað Glasgow 11 skúrir London 15 heiðskírt París 12 skýjað Amsterdam 11 léttskýjað Hamborg 7 skýjað Berlín 7 skýjað Vín 7 skýjað Moskva -3 skafrenningur Algarve 16 heiðskírt Madríd 20 heiðskírt Barcelona 16 heiðskírt Mallorca 17 heiðskírt Róm 17 heiðskírt Aþena 6 alskýjað Winnipeg 5 léttskýjað Montreal 6 léttskýjað New York 8 heiðskírt Chicago 12 skýjað Orlando 20 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:55 19:21 ÍSAFJÖRÐUR 8:02 19:24 SIGLUFJÖRÐUR 7:45 19:07 DJÚPIVOGUR 7:25 18:50 Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Jóhanna Sigurðardóttir kom víða við í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Þau mál sem hún lagði áherslu á í upphafi ræðunnar og taldi að þyrfti að ljúka á kjörtíma- bilinu voru að lokið yrði við samningaferlið gagn- vart Evrópusambandinu, að komið yrði á nýju fiskveiðistjórnunarkerfi, nýrri stjórnarskrá og nýrri umgjörð um auðlindamál m.a. með stofnun auðlindasjóðs og afgreiðslu rammaáætlunar. Jóhanna sagði að stefnt væri að þjóðaratkvæða- greiðslu um hina nýju stjórnarskrá samhliða kom- andi forsetakosningum í vor en stjórnlagaráð væri að ljúka sérstökum aukafundi vegna málsins. Þá kom fram í máli forsætisráðherra að áhersla væri lögð á lögfestingu nýs fiskveiðistjórnunarkerfis á yfirstandandi þingi og yrði lagt fram frumvarp þess efnis seinna í þessum mánuði. Jóhanna sagði tækifærið sem nú gæfist vera sögulegt og því mætti ekki glutra niður meðan nú- verandi stjórnarflokkar væru við völd. Hörðustu glímu stjórnmálanna sagði Jóhanna vera baráttuna við að ná tökum á gjaldmiðlinum og tryggja stöðugleika krónunnar samhliða aflétt- ingu gjaldeyrishafta. Þá sagði hún afar brýnt að skipta um gjaldmiðil þar sem íslenska krónan væri helsta ógn stöðugleika. „Það sem helst ógnar hér stöðugleika og hagfelldri þróun efnahagsmála um þessar mundir er íslenska krónan og sú erfiða staða sem hún og efnahagsstjórn árin fyrir hrun hefur komið okkur í,“ sagði Jóhanna í ræðu sinni og bætti því við að Samfylkingin væri eini flokk- urinn sem hefði beitt sér að fullu fyrir inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evrunnar. Hún fagnaði um leið þeirri umræðu sem skapast hefði um einhliða upptöku annarra gjaldmiðla svo sem kanadadollar, norskrar krónu, evru og jafnvel svissneskra franka. Þá samþykkti flokksstjórn Samfylkingarinnar nýjar siðareglur flokksins en þar er m.a. kveðið á um bann við að þiggja gjafir og fríðindi frá hagsmunaaðilum og að flokksmönn- um beri að virða þagnarskyldu í störfum sínum. Stefnt að nýrri stjórnarskrá og fiskveiðistjórnunarkerfi  Jóhanna segir sögulegt tækifæri til breytinga ekki mega glutrast niður Morgunblaðið/Golli Samfylkingin Flokksstjórnarfundur Samfylk- ingarinnar var haldinn um helgina. Jóhanna Sigurð- ardóttir, formað- ur Samfylkingar- innar og forsæt- isráðherra, gagnrýndi Ólaf Ragnar Gríms- son í ræðu sinni á flokksstjórnar- fundi Samfylk- ingarinnar um helgina. Sagði hún forsetann vera að stíga enn frekari skref í þá átt að færa emb- ætti forsetans inn á átakavettvang stjórnmálanna. Það væri þvert gegn þeim hugmyndum og hefðum sem gilt hafi um hlutverk forsetans sem sameiningartákns þjóðarinnar. Í viðtali við RÚV sagði Jóhanna það mikilvægt að sitjandi forseti hefði skilning á stjórnskipun landsins. Forsætisráðherra skýtur föstum skot- um að forsetanum Ólafur Ragnar Grímsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.