Morgunblaðið - 12.03.2012, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 12.03.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Morgunblaðið/Ómar Rommí Aðalleikararnir Hörður S. Óskarsson og Aðalheiður Sigurjónsdóttir með leikstjórann fyrir miðju. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Snúður og Snælda, leikfélageldri borgara, setur í árupp verkið Rommí eftirbandaríska leikskáldið D.L. Coburn í Iðnó. Leikstjórinn, Bjarni Ingvarsson, setti fyrst upp sýningu með leikfélaginu árið 1993 og þær eru nú orðnar alls 15 tals- ins í hans leikstjórn. Hæfir hópnum vel Leikritið gerist á vistheimili fyrir eldri borgara þar sem tveir ólíkir einstaklingar setjast niður við rommíspil. Fljótlega kemur í ljós að um afar ólíka einstaklinga er að ræða, en áhorfendur fá að kynnast fortíð þeirra og líðan á vistheimilinu. Mikil átök verða á milli þeirra og má fullyrða að þar verði áhorfendum komið á óvart og að ýmsum muni þykja nóg um. „Það er alltaf dálítið snúið að finna verk sem hentar þessum ald- urshópi. Stundum hef ég skrifað verkin sjálfur að hluta eða í heild eða breytt þannig að þau pössuðu fyrir hópinn. En Rommí hentar hins vegar mjög vel aldurslega séð fyrir leikarana. Í því eru fyndin og skemmtileg tilsvör en um leið hef- ur það djúpan og sterkan undirtón sem á vel við. Áhorfendur sýning- arinnar hafa margir hverjir kann- ast við það sem þarna fer fram,“ segir Bjarni. Æfingar hefjast snemma Í leikfélaginu eru alls á milli 20 og 30 manns en félagar eru misjafnlega virkir. Yfirleitt eru 12-16 manns í hverju verki en að þessu sinni eru aðeins tveir leik- arar á sviði, þau Hörður S. Ósk- Fá vítamínsprautu úr leiklistinni Leikfélag eldri borgara, Snúður og Snælda, setur í ár upp verkið Rommí eftir bandaríska leikskáldið D.L. Coburn. Í verkinu láta þau Hörður S. Óskarsson og Aðalheiður Sigurjónsdóttir ljós sitt skína í leikstjórn Bjarna Ingvarssonar. French Food at Home kalllast mat- reiðsluþættir Lauru Calder þar sem hún kennir áhorfendum að elda franskan heimilismat á einfaldan hátt. Þættirnir eru sýndir á BBC lifestyle-stöðinni. Laura er uppalin í Kanada og gekk í háskóla bæði þar og í Englandi. Hún hefur gefið út matreiðslubækurnar French Fo- od at Home, French Taste og Din- ner Chez Moi. Áhugi Lauru á franskri matargerð kviknaði fyrir alvöru í Frakklandi en þar bjó hún í áratug. Á vefsíðu Lauru á lifestyle- food.com-vefsíðunetinu er að finna uppskriftir að því sem hún kennir fólki að matreiða í þáttum sínum. Meðal rétta má nefna pasta með gráðosti, hrærð egg á franska vísu og lavanderkökur. Laura leggur upp úr því að elda góðan og heimilislegan mat sem þó getur sómt sér vel á veisluborði þegar gesti ber að garði. Vefsíðan www.lifestylefood.com.au Reuters Matur Frakklandsforseti, Nicolas Sarkozy, skoðar osta í opinberri heimsókn. Úr franska eldhúsinu Helgi Ólafsson stórmeistari í skák segir frá „einvígi aldarinnar“ í hádeg- isfyrirlestri í Þjóðminjasafni Íslands á morgun, þriðjudag 13. mars. Skákein- vígið var háð í Reykjavík sumarið 1972. Þar tókust á fulltrúar risaveld- anna á tímum „Kalda stríðsins“, Bandaríkjamaðurinn Bobby Fischer og sovéski heimsmeistarinn Boris Spassky. Fyrirlesturinn tengist sýn- ingu sem nú er uppi í Þjóðminjasafn- inu í tilefni þess að í ár eru liðin 40 ár frá einvíginu. Einnig er hann hluti af fyrirlestraröðinni Fræðslufyrirlestrar Þjóðminjasafns Íslands. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir Endilega… …fræðist um skákeinvígi Skák Mannganginn kunna margir. Magnús Pálsson heldur hádegisfyr- irlestur í fyrirlestraröðinni Vinnu- stofan við myndlistardeild LHÍ í dag. Magnús fæddist árið 1929. Hann lagði stund á nám í leikhús- hönnun og myndlist við The Cres- cent Theatre School of Design í Birmingham frá 1949-1951, Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands frá 1953-1954 og Akademie fur Ange- wandte Kunst í Vín frá 1955-1956. Ferill hans spannar rúma fimm ára- tugi og eftir hann liggja gjörningar, hljóðljóð, raddskúlptúrar, bókverk, leikverk, skúlptúrar og teikningar, auk fjölda leikmynda. Sjálfur telur Magnús að ást hans á leikhúsform- inu hafi haft áhrif á allan hans feril en annað listform sem stendur einnig upp úr á ferli hans er kennsl- an, sem hann lýsir sem „geggj- uðustu listgreininni“. Magnúsi hafa hlotnast margvíslegar viðurkenn- ingar fyrir framlag sitt til listar- innar. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og hefjast klukkan 12:30 í húsnæði deildarinnar á Laugarnesvegi 91 í Reykjavík. Allir velkomnir. Hádegisfyrirlestur í röðinni Vinnustofan Ástin á leikhúsforminu hefur haft áhrif á feril Magnúsar Ferill Eftir Magnús liggja gjörningar, skúlptúrar, fjöldi leikmynda og fleira. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Fjarðargata 13-15 ~ 220 Hafnarfjörður ~ Sími 565 5666 fjordur.is Vinaleg verslunarmiðstöð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.