Morgunblaðið - 12.03.2012, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.03.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Reykjavíkurskákmótið er nú í fyrsta skipti haldið í Hörpu en það hefur hingað til verið haldið í Ráð- húsi Reykjavíkur. „Mér finnst um- gjörðin stórkostleg en kannski eini gallinn er kliðurinn í húsinu og mörgum finnst hann geta verið truflandi. En flestir eru þó sam- mála um að kostirnir séu fleiri en gallarnir,“ segir Þorvarður Fannar Ólafsson, keppandi á mótinu. Þá voru áhorfendur sem Morgunblaðið ræddi við í gær flestir á því að að- staðan og umgjörðin á mótinu sé með allra besta móti. Gunnar Björnsson, forseti Skák- sambands Íslands, segir kliðinn ekki vera stórt vandamál og að á næsta ári verði gerðar ráðstafanir til að minnka hann. „Stórmeistarar sem eru komnir hingað hafa bent á að aðstaðan hér í Hörpu sé með því besta sem völ er á.“ Skákin hefur verið í mikill sókn undanfarin ár og er talið að fjórð- ungur þjóðarinnar tefli einu sinni eða oftar á ári. Hlutfall kvenna hef- ur líka lagast mikið að sögn Gunn- ars. „Það eru yfir tíu íslenskar stelpur að keppa í ár og við buðum heimsmeistara kvenna á mótið til að undirstrika að skákin er bæði fyrir karlmenn og konur.“ Sýnt á stóru tjaldi Áhorfendur eru töluvert margir og kemur kannski ekki á óvart enda eiga Íslendingar flesta stór- meistara í heiminum miðað við höfðatölu. Þá eru skákirnar sýndar á stóru tjaldi svo fólk þurfi ekki að rápa um salinn. Ivan Sokolov, Ivan Cheparinov og Fabiano Caruana eru efstir og jafnir með 5,5 vinn- inga að lokinni sjöttu umferð Reykjavíkurskákmótsins í gær. Stórmeistarar Í upphafi sjöttu umferðar Reykjavíkurskákmótsins í gær kepptu þeir Bragi Þorfinnsson og Kryvor- uchko Yuriy frá Úkraínu og endaði leikur þeirra með stórmeistarajafntefli. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skákmót í Hörpu Ungir sem aldnir skákmenn af báðum kynjum etja kappi á Reykjavíkurskákmótinu og bjóða fáar íþróttir upp á jafnmikla breidd. Taflmenn Ekki eru allir taflmenn eins en víst er að í gegnum aldirnar hafa margir setið og staðið hugsi yfir taflborðinu. Skákkliður fór um Hörpuna Blindir tefla Pólski taflmaðurinn Piotr Dukaczewski er blindur og teflir með aðstoð sérstaks skákborðs. Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is Tæki til verklegra framkvæmda Stofnað 1957

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.