Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Handpoint hlaut á dögunum Chan- nel Awards 2012, en verðlaunin voru veitt á ráðstefnunni Merchant Pay- ment Ecosystem sem haldin var í Berlín. Þar komu saman allir helstu fagaðilar heims á sviði korta- greiðslulausna. Handpoint er að gera mjög áhuga- verða hluti og gæti mögulega gjör- bylt því hvernig fólk og fyrirtæki greiða og taka við greiðslum með kreditkortum. „Við fengum verðlaun fyrir vöruna Handpoint Headstart en um er að ræða lausn sem gerir fyrirtækjum, söluaðilum og ein- staklingum kleift að taka á móti svo- köllðum „kort og pinn“ greiðslum með snjallsíma eða spjaldtölvu,“ út- skýrir Davíð Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. Handpoint er með starfsstöðvar á Íslandi, Úkraínu og svo í Cambridge í Englandi. Alls eru starfsmenn um 30 talsins, og um 20 þeirra á Íslandi. Þröskuldarnir lækkaðir Handpoint Headstart samanstendur af hugbúnaði sem setja má upp með einföldum hætti í snjallsímanum, og svo fyrirferðarlitlum búnaði sem les örgjörvann á greiðslukortinu og leyfir greiðandanum að slá inn pin- númerið og talar við símann yfir blátannartengingu. Farsíminn teng- ist svo greiðslukortaþjóni og er út- koman handhæg og hagkvæm lausn. „Það er merkilegt, þegar maður hugsar til þess, að ég og þú getum greitt fyrir vöru okkar á milli með reiðufé eða ávísun, en getum ekki greitt hvor öðrum með greiðslukorti. Við sjáum að á ýmsum sviðum er yf- irleitt ekki í boði að greiða með korti og er þá kostnaður og óhagræði helsta fyrirstaðan. Lausnin okkar lækkar þennan þröskuld verulega og þýðir að mun fleiri munu geta byrjað að taka við kortagreiðslum.“ Í Bandaríkjunum hafa tvær svip- aðar lausnir valdið straumhvörfum. „Annars vegar er um að ræða Square og hins vegar Intuit, en með tilkomu þessara lausna vestanhafs varð á tveimur árum 20% fjölgun þeirra aðila sem tekið geta við korta- greiðslum,“ segir Davíð en banda- rísku lausnirnar eru þó ólíkar Handpoint Headstart að því leyti að þar er segulrönd kortsins lesin en ekki örgjörvinn. „Það þýðir einfald- lega minna öryggi. Ástæða þess að kort með örgjörva eru að ryðja sér til rúms er að með „kort og pinn“ greiðslum verða öll kortaviðskipti mun öruggari.“ Til viðbótar við kortalesturinn býður Handpoint Headstart upp á að gera farsímann eða spjaldtölvuna að fjölhæfum afgreiðslukassa, með fullkomnu sölukerfi. „Við munu sennilega sjá allt umhverfi verslunar og þjónustu breytast að þessu leyti, þar sem í stað afgreiðslukassa og af- greiðsluborða verða sölumenn á ferð um verslanir með spjaldtölvu við höndina og afgreiða kúnnan þar sem hann stendur. Pípulagningamað- urinn, smiðurinn og hvers kyns minni söluaðilar munu geta notað farsímann sinn til að halda utan um öll viðskipti og taka við greiðslum.“ Síminn gerður að afgreiðslukassa  Íslenskt fyrirtæki með vöru sem gæti gjörbreytt greiðslu- kortaviðskiptum  Þurftu að bíða í 8 ár eftir að tæknin réði við hugmyndina  Gott að byrja á Íslandi en erfitt að stökkva út Framför Davíð hampar verðlaunagripnum sem Handpoint fékk á sýningunni í Berlín. Lausnin sem fyrirtækið hefur þróað ætti að auðvelda minni aðilum að taka við kortagreiðslum og jafnvel breyta afgreiðsluháttum í verslunum. Davíð segir að frumkvöðlaumhverfi sé orðið ágætt á Íslandi. Aðgengi að fólki og fyrirtækjum sé með besta móti, stuðningurinn orðinn mun betri en hann var og hægt að prufukeyra vörur og hugmyndir. „Það er erfiðara skref að stökkva yfir pollinn og komast á erlenda markaði. Þar skortir íslenska frum- kvöðla tengsl og róðurinn verður mjög þungur. Við höfum verið heppnir og feng- ið til liðs við okkur gott starfsfólk en okkar helsti akkilesarhæll hefur samt oft verið skortur á hugbún- aðarsérfræðingum á Íslandi. Jafn- framt vorum við svo lánsamir að fá Þórð Magnússon í stjórnarfor- mannssætið fljótlega eftir stofnun en hann og Eggert Claessen hjá Frumtaki mynda stjórn félagsins í dag. Án þeirra værum við ekki á þessum stað sem við erum á í dag.“ Davíð myndi vilja sjá íslensk há- tæknifyrirtæki koma sér fyrir t.d. í Kísildal, en þangað virðast allir vegir liggja og hann vera suðupott- ur bæði fjármagns og góðra hug- mynda. „Þetta hafa t.d. Ísraelarnir gert með góðum árangri. Þeir stofnuðu skrifstofu í Kísildal og þar verður til gátt fyrir ísraelsk fyrirtæki til að færa sig yfir á þenn- an nýja stað með öllum möguleik- unum sem honum fylgja.“ Vantar gátt út í heim ÆTTI AÐ STOFNA SKRIFSTOFU Í KÍSILDAL? Handpoint á sér langa sögu. Fyrirstækið stofnaði Dav- íð er hann var í námi ásamt skólabræðrum sínum úr verkfræðideild HÍ, þeim Þórði Heiðari Þórarinssyni og Magnúsi Þóri Torfasyni. Sá síðastnefndi hætti hjá fyr- irtækinu árið 2005 og kennir nú við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Fyrst ráku þeir netfyrirtæki en seldu árið 1999 og áherslan þá lögð á að þróa sölukerfi fyr- ir afgreiðslukassa og lager- og aflestrarhugbúnað fyr- ir lófatölvur. Innanlandsreksturinn var svo seldur árið 2007 og áherslan þá öll lögð á greiðslukortalausn Handpoint fyrir alþjóðamarkað. „Handpoint-nafnið varð til strax árið 1999 en við deildum þeirri sýn með finnska farsímaframleiðand- anum Nokia að lófatölvur og farsímar myndu á end- anum renna saman í eitt og valda straumhvörfum. Vandinn var hins vegar að tæknin þróaðist ekki eins hratt og við væntum, og í stað þess að taka 2-3 ár varð 8 ára bið þar til að snjallsímatæknin fór að ryðja sér til rúms.“ Næsta skref er að láta Handpoint vaxa. „Við vorum núna í febrúar að kynna þessa vöru og erum komin í þá stöðu að þurfa ekki lengur að leita að við- skiptavinum heldur koma þeir til okkar. Síminn stopp- ar ekki,“ segir Davíð en bætir við að það þurfi að halda vel um taumana. „Það er dýrt að vaxa og kallar á vandaða stjórnun að láta allt ganga upp í vextinum, en við höfum stuðninginn og mannskapinn til að ráða við þetta verkefni.“ „Síminn stoppar ekki“ ÁSKORUN AÐ TAKAST Á VIÐ VÖXTINN SEM ER FRAMUNDAN Neytendur eru ólmir í að eignast nýju iPad-tölvuna sem Apple kynnti í lið- inni viku. Í yfirlýsingu frá bandaríska tæknirisanum kom fram að þær birgð- ir sem teknar hafa verið frá fyrir forsölu á netinu hafi selst upp. Ekki bara það, heldur verða tafir á afhendingu svo að þeir sem pöntuðu á netinu fá tölvuna í hendurnar 19. mars, en nýja iPad verður sett í hillur verslana Apple þann 16. mars. Þessi þriggja daga bið mun, að sögn Reuters, leggjast illa í Apple-aðdáendur, sem leggja mikið upp úr því að fá nýjustu græjurnar í hendurnar sem allra fyrst. Er talið víst að fyrir vikið verði meira kraðak í Apple-búðunum á föstudag. Á síðasta ári seldust yfir 40 milljónir iPad-spjaldtölva og er því spáð að á þessu ári fari salan yfir 60 milljóna markið. ai@mbl.is Seldist upp í forsölu  Enn eitt iPad-æðið í uppsiglingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.