Morgunblaðið - 12.03.2012, Side 19

Morgunblaðið - 12.03.2012, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Heildarlausnir í hreinlætisvörum Sjáum um að birgðarstaða hreinlætis- og ræstingarvara sé rétt í þínu fyrirtæki. Hagræðing og þægindi fyrir stór og lítil fyrirtæki. Við sjáum um þig! Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700 Hafðu samband og fáðu tilboð sími 520 7700 eða sendu línu á raestivorur@raestivorur.is raestivorur.is Í gær voru haldnar minningarathafnir víða um Japan til að minnast þeirra 19 þúsund sem létust í náttúruhamförunum í fyrra. Þá varð stór jarð- skjálfti úti á hafi og í kjölfarið skall flóðbylgja á landinu sem varð flestum að bana. Enn er mikið uppbyggingarstarf í gangi en nærri 100 þúsund íbúar í nágrenni kjarnorkuversins í Fukushima þurftu að yfirgefa heimili sín. Enn er óheimilt að búa á stóru svæði við kjarnorkuverið. Reuters Minningarathafnir í Japan Fórnarlamba náttúruhamfara minnst í Japan Samkomulag Grikkja við lánar- drottna sína og banka er stærsta endurskipulagn- ing ríkisskulda í sögunni. Bankar og fjármálastofn- anir munu tapa nokkru á sam- komulaginu en eru öruggari um að fá eitthvað af lánveitingum sínum til baka. Að sögn Evangelos Venize- los, fjármálaráðherra Grikklands, falla bankar og fjármálastofnanir frá kröfum í skuldabréfum og öðrum lánum á hendur Grikkjum en fá þess í stað ný skuldabréf í hendur sem eru minna virði og bera lægri vexti. Moodys hefur í kjölfarið gefið út að Grikkland hafi vanrækt skuldir sín- ar og um eiginlegt gjaldþrot væri að ræða. Matsfyrirtækið mun meta stöðu Grikklands í kjölfarið og gefa því lánshæfiseinkun í samræmi við stöðu mála. Grikkir uppfylla skilyrðin  Skrefi nær öðrum björgunarpakka Evangelos Venizelos Bandarískur hermaður skaut í gær 15 manns til bana og særði nokkra til við- bótar í Afganistan. Hann fór inn á heimili fólks í Kandahar-héraði sam- kvæmt upplýsingum frá afgönskum stjórnvöldum og NATO. Samkvæmt upplýsingum frá banda- ríska hernum fór hermaðurinn af her- stöð sinni snemma um morgun líklega í þeim tilgangi að ráðast á saklausa borgara í þorpi nærri herstöðinni. Níu börn eru meðal þeirra sem skotnir voru til bana. Upplýsingar sem komu frá Hvíta húsinu í kjölfarið gefa til kynna að bandarísk stjórnvöld muni rannsaka atburðinn strax en ekki er vitað hvort fleiri en einn hermaður tók þátt í voðaverkinu. Sumar heimildir herma að á ferðinni hafi verið fleiri en einn hermaður og að mögulegt sé að öryggissveitir Afganska hersins hafi tekið þátt í verknaðinum. Málið er til rannsóknar á þessu stigi og ekkert hefur verið gefið út hversu margir voru á ferð eða hvaða her- maður eða hermenn unnu voðaverk- ið. Ásamt því að skjóta fólk til bana voru líkin brennd samkvæmt heim- ildum frá stríðsfréttaritara BBC á svæðinu. Bæði bandarísk og afgönsk stjórnvöld óttast að verknaðurinn auki tortryggni á uppbyggingar- starfi Bandaríkjanna og NATO í landinu og að bakslag verið í sam- skiptum Afgana við Bandaríkin og bandalagsherina og hjálparstarfs- menn í landinu. Andúð í garð Banda- ríkjanna er nú þegar mikil í landinu og er mikið starf framundan í að byggja upp traust aftur. Drap 15 saklausa borgara í Afganistan  Bandarískur hermaður gekk milli húsa og drap saklausa borgara Reuters Her Bandarískir hermenn að störfum í Afganistan. Baráttan um útnefningu Repúblik- anaflokksins fyrir forsetakosning- arnar í haust er í fullum gangi. Rick Santorum sótti lítillega á keppinaut sinn Mitt Romney um helgina þegar hann sigraði í vali flokksins í Kansas. Kansas-ríki fær 40 kjörmenn á landsfund Repúblik- anaflokksins sem haldinn verður í Tampa í Flórída í ágúst. Mitt Rom- ney svaraði þó strax fyrir sig og fór með sigur af hólmi í Wyoming- ríki en það hefur öllu færri kjör- menn eða 12. Til að hljóta útnefningu flokks- ins þarf frambjóðandi að tryggja sér 1144 kjörmenn inn á landsfund flokksins. Mitt Romney leiðir enn baráttuna með 454 kjörmenn. Þar á eftir kemur Rick Santorum með 217, Newt Gingrich með 107 og lestina rekur læknirinn frá Texas Ron Paul með 47 kjörmenn. Þessar tölur eru þó ekki öruggar því í þeim ríkjum þar sem ekki fer fram forval heldur prófkjör eru kjör- menn ekki bundnir af úrslitum í prófkjörinu. Því kann að vera að frambjóðendur hafi fleiri eða færri kjörmenn en áætlað er. Talið er að Ron Paul geti til dæmis haft allt að 140 kjörmenn og Mitt Romney ekki nema um 350. Baráttan um útnefninguna skýrist þó líklega með vorinu þegar kosið verður í Texas og Kaliforníu. Frjálslyndur Mitt Romney er tals- maður hófsamra hægrimanna. Reuters Íhaldsmaður Rick Santorum er talsmaður kristilegra íhaldsmanna. Baráttan um kjörmennina Reuters

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.