Morgunblaðið - 12.03.2012, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
FormaðurSamfylking-arinnar og
forsætisráðherra
flutti ræðu á
flokksstjórnarfundi
um helgina og spól-
aði sig þar enn
dýpra í sömu hjól-
förin og hún hefur verið í frá
því hún lét af embætti félags-
málaráðherra og tók við stjórn-
arforystunni fyrir rúmum
þremur árum.
Fundurinn átti að snúast um
framtíðina, unga fólkið og tæki-
færin hér á landi og marka upp-
haf kosningabaráttu flokksins.
Tækifærin eru vissulega mörg
og hafa verið lengi, en ríkis-
stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
hefur verið ótrúlega ófundvís á
þau og er enn ef marka má
ræðu formannsins um helgina.
Eina framtíðin sem Samfylk-
ingin ætlar að bjóða ungum Ís-
lendingum upp á er innganga í
Evrópusambandið og upptaka
evrunnar. Ekkert annað er í
boði og að mati formanns Sam-
fylkingarinnar á Ísland sér
enga framtíð utan Evrópusam-
bandsins.
Formaðurinn hefur að því er
virðist ekki enn frétt af erfið-
leikum evrunnar og þeim efna-
hagslegu hamförum sem eiga
sér stað í Evrópusambandinu
og ekki sér fyrir endann á. Um
gjaldmiðlamál segir hún
„óbreytt ástand kemur ekki til
greina“ og segir valið á milli
þess að taka einhliða upp annan
gjaldmiðil með full-
veldisafsali í pen-
ingamálum eða
ganga í Evrópu-
sambandið og taka
upp evru. Að henn-
ar mati er ekkert
annað inni í mynd-
inni en að ganga í
Evrópusambandið og taka upp
evruna og svo virðist sem allir
fyrirvarar séu foknir út í veður
og vind.
Nú er ekki lengur látið eins
og skoða eigi aðildarsamninginn
og meta hvort hann þjóni hags-
munum Íslands eða ekki, eins
og þó hefur verið talað hingað
til. Örvæntingin er slík og ótt-
inn við framtíð Íslands utan
Evrópusambandsins svo ofsa-
fenginn að nú er allt lagt undir
til að Íslendingar samþykki að
ganga valdhöfum í Brussel á
hönd.
En hvað ætlar Samfylkingin
að gera þegar aðlögunarbrölt-
inu lýkur og Ísland hefur hafn-
að því að selja sig inn í Evrópu-
sambandið? Flokkur sem telur
gjaldmiðil Íslands – sama gjald-
miðil og hefur gert Ísland að
einni ríkustu þjóð heims – bera
feigðina í sér fyrir íslenskt
efnahagslíf, hvernig ætlar hann
að halda áfram þegar aðild að
Evrópusambandinu hefur verið
hafnað? Er flokkurinn staðráð-
inn í að vera áfram sá einsmáls-
flokkur sem hann hefur verið og
fara í sögubækurnar sem flokk-
urinn sem lifnaði og dó fyrir
Evrópusambandið?
Stefna sem byggist
á meintu getuleysi
Íslands er ekki
burðug fyrir
kosningabaráttu}
Allt fyrir ESB?
Nýlega var nefntá þessum
vettvangi að óhjá-
kvæmilegt væri að
endurmeta kosti og
galla Schengen-
samningsins af ein-
urð og raunsæi. Í frétt Morgun-
blaðsins um helgina heyrðust
sömu sjónarmið, en úr óvæntri
átt, og var þó sýnu fastara
kveðið að en Morgunblaðið
hafði sjálft talið ástæðu til. Þar
sagði: „Nicolas Sarkozy, forseti
Frakklands, hótaði því dag að
hann myndi binda enda á þátt-
töku Frakklands í Schengen-
samstarfinu ef reglum þess yrði
ekki breytt í þeim tilgangi að
hindra flæði ólöglegra innflytj-
enda.
„Að 12 mánuðum liðnum, ef
það hafa engar alvarlegar fram-
farir átt sér stað í þessum mál-
um, þá mun Frakkland binda
enda á þátttöku sína í Schen-
gen-samstarfinu þangað til að
samningaviðræðum um málið
lýkur,“ sagði Sarkozy á kosn-
ingafundi í nágrenni við París,
höfuðborg Frakklands, í dag.“
Og í fréttinni sagði einnig: „Við
verðum að ráðast í endurbætur
á Schengen sem
eru jafn skipulegar
og endurbæturnar
sem við erum nýbú-
in að ráðast í á evr-
unni,“ sagði Sar-
kozy.“
Verulegar efasemdir má
vissulega hafa um að nýlegar
„endurbætur á evrunni,“ sem
forseti Frakklands vísar til, séu
gott veganesti við endurskoðun
á Schengen-samningnum. Því
þær „endurbætur“ ganga allar
út á það að auka vald skrifræð-
isins í Brussel á kostnað full-
veldis aðildarríkjanna og al-
mennrar skerðingar á
lýðræðislegu umboði. En það
eru á hinn bóginn veruleg tíð-
indi að annar aðalmáttarstólpi
ESB skuli taka svo harkalega
til orða. Auðvitað má þó benda
á að Sarkozy sé á lokaspretti
kosningabaráttu, þar sem hann
stendur höllum fæti og stjórn-
málamenn í Evrópu á at-
kvæðaveiðum tali iðulega illa til
Brusselvaldsins. En hvað sem
því líður sýna ummæli forset-
ans skýrt hvernig vindurinn
blæs gagnvart Schengen-
samningnum í Frakklandi.
Sarkozy hefur í
hótunum gagnvart
Schengen-
samningnum}
Sarkozy hótar að
ganga úr Schengen
E
kkert hættulegt?“ segir stór-
meistarinn Jón L. Árnason
með spurnarsvip.
„Er þetta ekki stórhættu-
legt?“
Hann er að fara yfir skák nýs stórmeistara
Íslendinga, Stefáns Kristjánssonar, gegn Vla-
dimir Baklan í skákskýringarsalnum í Hörp-
unni. Þar eru jafnan líflegar umræður um
skákirnar um leið og þeim vindur fram, sem
jafnt lærðir sem leikir hafa gaman af.
„Er Stefán með svart?“ spyr einhver.
„Já.“
„Aumingja Stefán,“ heyrist þá. Og fleiri
leggja orð í belg.
„Máthótunin er falleg.“
„Heyrðu er þetta búið?“
„Sleppur hann út?“
„Þetta er bara búið.“
„Svartur dagur yfir Íslendingana.“
„Ja hérna.“
„Þetta er ekki nógu gott.“
„Bragi gerði jafntefli reyndar. Þannig að hann er með í
baráttunni.“
Það eru háðar miklar orrustur á Reykjavíkurskákmótinu
þessa dagana, sem vakið hefur heimsathygli, enda eru þar
meðal öflugra skákmanna tvær af skærustu stjörnum skák-
heimsins, Fabiano Caruana og Hou Yifan, heimsmeistari
kvenna, en ég hef áður fjallað um hana á þessum vettvangi.
Full ástæða er til gefa komu Caruana til landsins gaum,
en hann ólst upp í sama hverfi og Bobby Fischer,
Park Slope í Brooklyn. Það sýnir styrkleika hans
að í janúar varð hann í öðru sæti á ofur-
stórmeistaramóti í Wijk aan Zee með Magnúsi
Carlsen og Teimour Radjabov, þar sem Levon
Aronian sigraði.
Það má segja að Reykjavíkurskákmótið hafi
hækkað í styrkleika í lok vikunnar þegar Caruana
færðist með sigri á hollenska stórmeistaranum
Erwin L‘ami upp í sjötta sætið í heiminum að
styrkleika. Hann fór upp fyrir bandaríska stór-
meistarann Hikaru Nakamura, sem kvartaði
raunar undan því á bloggi að Caruana tæki þátt í
Reykjavíkurskákmótinu, sem væri veikara en of-
urstórmeistaraskákmótin, í því skyni að reyta inn
skákstig með auðveldum hætti.
Hingað til hefur kenningin reyndar verið sú, að ofurst-
órmeistararnir forðist veikari skákmót, vegna þess að það
getur reynst þeim dýrt ef eitthvað út af bregður. Það sýnir
því ekki aðeins mikið sjálfstraust hjá hinum unga Caruana
að koma til Reykjavíkur, heldur er það einnig lofsvert, því
auðvitað stuðlar það að frekari útbreiðslu fagnaðarerindis
skákarinnar.
„Það er hægt að sullast áfram í þessu endalaust,“ segir
Jón L. og hlær eftir að hafa kannað ótal afbrigði í skák Guð-
mundar Gíslasonar gegn L‘ami. Möguleikarnir eru óþrjót-
andi í þessu litla úniversi skákborðsins.
Guðmundur er með vænlega stöðu á hvítt. Mikil sókn á
kóngsvæng og svarti kóngurinn berskjaldaður. Það skyldi
þó ekki vera von fyrir Íslendingana? pebl@mbl.is
Pétur Blöndal
Pistill
Úr sama hverfi og Bobby Fischer
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Ínýjum drögum að umferðar-lögum sem væntanlega verðalögð fyrir Alþingi á næstudögum eru verulegar breyt-
ingar gerðar á skilgreiningu á létt-
um bifhjólum og á reiðhjólum. Þeir
sem eiga rafmagnshjól eða svokall-
aðar rafmagnsvespur ættu að gefa
þessu máli sérstakan gaum.
Frumvarp til breytinga á um-
ferðarlögum verður nú lagt fyrir Al-
þingi í þriðja sinn frá árinu 2009 en
málið hefur ekki verið útrætt á
þingi. Nokkrar breytingar eru gerð-
ar á frumvarpinu frá fyrri gerð og
m.a. bætt inn ákvæði um innanríkis-
ráðherra geti veitt sveitarfélögum í
þéttbýli heimild til að innheimta
gjald vegna brota á reglum um há-
marksökuhraða þegar brotið er
numið í löggæslumyndavél. Lög-
regla hefur hingað til ein haft slíkar
heimildir.
Reiðhjól verða bifhjól
Eins og þeir vita sem nota
göngu- og hjólreiðastíga borgar-
innar hafa margir á undanförnum
árum fest kaup á rafmagnsvespum
eða öflugum rafmótorum sem settir
eru á venjuleg reiðhjól. Nýju frum-
varpsdrögin, verði þau að lögum,
munu hafa veruleg áhrif á þá sem
nota þessa fararskjóta.
Í núgildandi umferðarlögum
falla rafmagnsvespur, sem ná allt að
25 km hraða, undir sömu reglur og
reiðhjól. Þar með gilda engin aldurs-
takmörk um notkun á vespunum,
ekki hjálmaskylda nema fyrir yngri
en 15 ára og engin skylda til að
sækja námskeið. Verði frumvarpið
samþykkt munu rafmagnsvespurnar
ekki lengur flokkast sem reiðhjól
heldur sem létt bifhjól í flokki I.
Skilgreiningin á léttu bifhjóli er eft-
irfarandi: „Vélknúið ökutæki á
tveimur eða þremur hjólum með
sprengirými ekki yfir 50 cm³ eða
með rafgeymi og ekki hannað til
hraðari aksturs en 45 km á klst. Létt
bifhjól greinast í létt bifhjól í flokki I
sem ekki er hannað til hraðari akst-
urs en 25 km á klst. og létt bifhjól í
flokki II sem er hannað til hraðari
aksturs en 25 km á klst.“
Til þess að mega stjórna léttu
bifhjóli í flokki I, þ.m.t. rafmagns-
vespum, verður ökumaður að vera
15 ára og hafa hlotið tilskilda þjálfun
og hafa staðist ökupróf. Í frumvarp-
inu er kveðið á um að léttu bifhjól-
unum megi aka á götum með 50 km
hámark, á hjólastíg, hjólarein og á
öðrum vegum sem eru sérstaklega
merktir til aksturs slíkra bifhjóla.
Ekki verður annað ráðið af frum-
varpinu en að áfram verði heimilt að
aka þeim á göngustígum.
Í skýringum með frumvarpinu
kemur fram að hér sé að nokkru tek-
ið mið af dönskum umferðarlögum
að þessu leyti.
Stígi með mótornum
Í núgildandi umferðarlögum
eru rafmagnsreiðhjól ekki skil-
greind sérstaklega en með nýja
frumvarpinu verður breyting þar á.
Þar segir að ákvæði um hjólreiðar
gildi einnig um hjól með stig eða
sveifarbúnaði „þar sem samfellt há-
marksafl er 0,25 kW og afköstin
minnka smám saman og stöðvast al-
veg þegar hjólið hefur náð hrað-
anum 25 km/klst. eða fyrr ef hjól-
reiðamaðurinn hættir að stíga
hjólið.“
Morten Lange, sem á sæti í
stjórn Landssamtaka hjólreiða-
manna, segir að stjórnin styðji
breytingarnar, bæði hvað varðar
rafvespurnar og rafhjólin, eink-
um að því leytinu að þau tæki
sem flokkist sem reiðhjól eigi
að hafa eiginleika reiðhjóls en
ekki mun öflugri tækja.
Herða reglur um
nýju fararskjótana
Morgunblaðið/Ómar
Breyting Rafmagnsvespur falla nú í sama flokk og reiðhjól en verða
flokkaðar sem bifhjól í flokki I, verði breytingarnar að veruleika.
Töluvert hefur verið selt af raf-
magnsvespum og einnig búnaði
til að breyta venjulegum hjólum í
rafmagnshjól. Rafhjól ehf. hafa
selt sérstakar gjarðir sem settar
eru á hjól. Í gjörðinni er mótor
sem gefur 0,5 kW afl. Rafhjólin
eru stillt þannig að þau nái 25
km hraða en með einu handtaki
má breyta stillingunni þannig að
þau komist mun hraðar, upp í
40-50 km hraða og jafnvel hrað-
ar. Slíkur búnaður er nú á um
400 reiðhjólum.
Sölvi Oddsson, hjá Rafhjólum,
segir að ef lögunum verði breytt
með þeim hætti sem rakið er hér
til hliðar muni Rafhjól taka að
sér að breyta þeim búnaði
sem fyrirtækið hefur selt
þannig að hann rúmist
innan ramma laganna.
Hægt sé að setja stýr-
ingu á mótorinn þann-
ig að hann gefi ekki
meira afl en 0,25
kW og pedala-
stýringu.
Munu breyta
búnaðinum
KOMAST HRATT