Morgunblaðið - 12.03.2012, Page 30

Morgunblaðið - 12.03.2012, Page 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 ✝ Kristinn Finn-björn Gíslason fæddist á Skógum á Þelamörk í Eyja- firði 19. júní 1917. Hann lést á Hrafn- istu í Reykjavík 22. febrúar 2012. Kristinn var son- ur hjónanna Sig- fúsínu Halldóru Benediktsdóttur, f. 1891, húsfreyju og verkakonu, og Gísla Rósen- bergs Bjarnasonar, f. 1882 , bónda og kennara. Kristinn var elstur þriggja systkina. Eftirlif- andi systkini eru Hjálmar Bene- dikt, f. 1918 og Sigurrós, f. 1929. Kristinn kvæntist 30. maí 1942 Margréti Jakobsdóttur Líndal, f. 29. maí. 1920. Hún lést 8. október 2011. Foreldrar Margrétar voru Jónína Sigurðardóttir Líndal og Jakob H. Líndal sem bjuggu á Lækja- móti í Víðidal, V.-Hún. Kristinn og Margrét bjuggu í Reykjavík, lengst af á Hofteigi 52, síðar í Jökulgrunni 21 og síðustu fjögur árin á Hrafnistu. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Jakob Líndal, f. 7. mars 1943, kvæntur Kristínu Gísla- dóttur. Börn þeirra eru: a) Kristín Mjöll. Dóttir hennar er með foreldrum sínum í Eyja- fjarðarsýslu, lengst á Hálsi í Öxnadal. Árið 1925 fluttist fjöl- skyldan vestur að Hesteyri í Jökulfjörðum, heimahaga Sig- fúsínu Halldóru, móður Krist- ins. Kristinn stundaði nám við Héraðsskólann á Núpi í Dýra- firði 1934-1936 og lauk kenn- araprófi frá Kennaraskóla Ís- lands 1940. Kenndi við Héraðs- skólann á Reykjanesi við Ísa- fjarðardjúp 1940-1941, Laugar- nesskóla í Reykjavík 1941-1970, Æfinga- og tilraunaskóla Kenn- araháskóla Íslands 1970-1976. Var framkvæmdastjóri Bygg- ingasamvinnufélags barnakenn- ara 1976-1981 og Bygginga- samvinnufélags starfsmanna ríkisins 1981-1986. Kristinn hafði mikinn áhuga á stærð- fræði og nýrri hugsun í stærð- fræðikennslu og aflaði sér menntunar á því sviði. Hann undirbjó og stjórnaði kenn- aranámskeiðum í stærðfræði á vegum Fræðslumálastjórnar og Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og ritaði einn eða ásamt öðrum kennslubækur í stærðfræði og leiðbeiningar um stærðfræði- kennslu. Kristinn tók virkan þátt í fé- lagsmálum. Átti m.a. sæti í stjórnum Félags gagnfræða- skólakennara í Reykjavík, Landssambands framhalds- skólakennara, Bindindisfélags íslenskra kennara og Átthaga- félags Sléttuhrepps um árabil. Útför Kristins fer fram frá Áskirkju í dag, mánudaginn 12. mars 2012 kl. 13. Halldóra Kristín Alleva. b) Snorri. Dóttir hans er Áróra Hrönn. c) Margrét Rún, gift Davíð Halldóri Kristjánssyni og eiga þau Kristján Þórarin. 2) Hall- dóra, f. 18. október 1946, gift Þorkeli Traustasyni. Sonur þeirra er Kristinn Már, kvæntur Ölmu Önnu Oddsdóttur og eiga þau Kára og Fróða. Sonur Ölmu er Sölvi Ólafsson. 3) Gísli Jón, f. 26. nóvember 1950, í sambúð með Bjarneyju Sigvaldadóttur. Gísli var kvæntur Marjo Kaarina Kristinsson Raittio, sem lést 22. maí 2000. Börn þeirra eru: a) Katri Jónína. b) Jens Kristinn, í sambúð með Önnu Eyfjörð Eiríksdóttur og eiga þau Snæ- dísi Hönnu og Mikael Mána. c) Jón Benedikt, sambýliskona Marta Volina. 4) Jónína Vala, f. 12. ágúst 1952, gift Gylfa Kristinssyni. Börn þeirra eru: a) Margrét Vala, gift Stefáni Loga Sigurþórssyni og eiga þau Róbert Gylfa. b) Kristinn Björg- vin, kvæntur Ebbu Kristínu Baldvinsdóttur. c) Auður Sess- elja. Fyrstu æviárin bjó Kristinn Það eru rúmir fjórir mánuðir liðnir frá því að tengdamóðir mín Margrét Jakobsdóttir Líndal var kvödd með nokkrum orðum á þessum stað. Með þeim kveðju- orðum var dregin upp mynd af samhentum og samrýndum tengdaforeldrum. Andlát tengdaföður míns, Kristins F. Gíslasonar, kom fáum á óvart sem til þekktu. Það yrði skammt á milli kveðjustunda þeirra hjóna. Allt annað hefði stungið í stúf við lífsgöngu þeirra og ævi- starf. Sú varð líka raunin. Kristinn bjó fyrstu æviárin á Hálsi í Öxnadal í Eyjafjarðar- sýslu en Gísli faðir hans var þar bóndi og kennari. Við átta ára aldur tók fjölskyldan sig upp og fluttist í Sléttuhreppinn þar sem ætt móður hans, Sigfúsínu Hall- dóru, hafði búið mann fram af manni á Sæbóli í Aðalvík. Fjöl- skyldan setti sig niður á Hest- eyri. Þar hafði fyrirtækið Kveld- úlfur breytt norskri hvalstöð í síldarbræðslu. Í henni fengu all- ar vinnufúsar hendur verk að vinna. Kristinn var í þeim hópi þegar hann hafði aldur til. Á þessum tíma þurfti þrautseigju, einbeitni og útsjónarsemi fyrir fátækan pilt úr einni afskekkt- ustu sveit landsins að brjótast til mennta. Þessa eiginleika hafði Kristinn og sumarvinnan í „sta- sjóninni“ á Hesteyri gerði kleift að setjast í Kennaraskólann. Í ljós kom að þar var enginn au- kvisi á ferðinni heldur skarp- greindur nemandi sem stundaði námið af kappi með árangri í samræmi við það. Sléttuhrepp- urinn og Hesteyri voru Kristni alltaf ofarlega í huga. Þótt hann hafi ekki haft um það mörg orð er ekki örgrannt um að honum hafi þótt vænt um það þegar af- komendurnir tóku þátt í að reisa hús á skika úr Sæbóli sem hann og systkini hans Hjálmar og Sig- urrós erfðu eftir móður sína. Vormenn Íslands voru þeir kallaðir sem vildu efla hag þjóð- ar og stuðla að framförum á öll- um sviðum. Kristinn var í þess- um hópi. Hans hlutverk var að búa æsku landsins sem best und- ir lífsbaráttuna. Grein af sama meiði var ræktun landsins. Skóg- arlundurinn í Katlagili er tákn- rænn fyrir lífsstarf og viðhorf Kristins. Starfsfólk og nemendur í Laugarnesskólanum tóku sig til og breyttu mel og móum í sann- kallaðan sælureit. Færri vita um grenilundinn í landi Þverdals í Aðalvík. Sú gróðursetning kall- aði sannarlega á mikla bjartsýni og trú á landið. Stofnun bygging- arsamvinnufélags í því augna- miði að koma þaki yfir fjölskyld- una á Hofteigi og seta um áratugaskeið í stjórn hagsmuna- samtaka kennara að ógleymdri stjórn Átthagafélags Sléttu- hrepps vitna um áhuga fyrir fé- lags- og umbótamálum og allt unnið í sjálfboðavinnu. Kristinn var myndarlegur á velli, hávaxinn, teinréttur í baki og svipmikill. Þegar við bættist hógværð, lítillæti og góðvild þarf ekki að koma á óvart að hann var mikils metinn og eftirminnileg- ur. Nákvæmur og vandaður í smáu sem stóru. Stærðfræðin var hans eftirlætiskennslugrein og liggja eftir hann kennslubæk- ur og þýðingar um það efni. Hann var mikið fyrir íþróttir hugans eins og taflmennsku og bridge. Með Kristni er sannkall- aður höfðingi horfinn sjónum okkar en góðar minningar lifa með þeim sem nutu þeirra for- réttinda að kynnast honum. Gylfi Kristinsson. Löngu og farsælu lífi er lokið. Kristinn Gíslason kennari, faðir mannsins míns, afi barna minna og langafi ömmubarna minna er farinn héðan úr heimi. Vandaður maður og vitur. Glæsimenni, hár og beinvaxinn, fallega eygður, augnaráðið djúpt, broskrókar í augum. Röddin hljómmikil, málið vandað og ekki eytt orðum að óþörfu. Kristinn kom að vestan til Reykjavíkur að leita sér þeirrar bestu menntunar sem alþýðufólk þess tíma átti völ á, í Kennara- skóla Íslands. Þar var góður hópur kennara, skólastjóri og nemendur, hugsjónafólk innblás- ið af anda aldamótakynslóðar og ungmennafélaganna, reiðubúið að leggja sig fram í námi og skila menntuninni áfram til komandi kynslóða. Þar var Kristinn fremstur meðal jafningja. Gæfan sá til þess að hann kynntist konuefni sínu, Margréti Líndal, í skólanum. Hún mundi alla tíð hve fallega hann brosti þegar hann tók á móti henni og bauð hana velkomna í skólann. Kristinn fékk kennslustarf við nýstofnaðan Laugarnesskóla og kenndi þar stærstan hluta starfsævi sinnar. Hann lagði metnað í að uppfræða og þroska nemendur sína, kynslóð hins unga lýðveldis sem átti bjarta framtíð. Hann hlúði að öllum og hafði vökult auga. Marga nemendur sína sá hann halda áfram námi, ljúka háskólaprófum og gegna góðum störfum í samfélaginu. Hann var sáttur við sitt ævistarf. Hefði hann sjálfur fæðst nokkrum áratugum síðar og átt kost á háskólanámi hefði hann numið stærðfræði, sagði hann. Stærðfræðin var hans fag, hann hefði eflaust orðið doktor í stærðfræði. Dugandi verkfræð- ingur hefði hann líka getað orðið. Kristinn sótti síðar námskeið við danska kennaraháskólann í stærðfræði og lagði grunn að nýrri hugsun í stærðfræði- kennslu hér heima. Kristinn var gæfumaður í einkalífi sínu. Hjónaband þeirra Margrétar var farsælt. Ást, gagnkvæm virðing, traust og umhyggja ríkti í sambandi þeirra. Heimilið á Hofteigi var fallegt, bar vitni fögru hand- bragði þeirra beggja, reglusemi og virðingu fyrir gömlu og nýju. Þar var hlýtt að koma. Börnin fjögur ólust upp í því öryggi sem samheldnir foreldrar veita og fullvissu þess að eiga stuðning þeirra vísan. Fyrir rúmum fimmtíu árum var ég sem þetta skrifa svo lán- söm að kynnast Kristni og Mar- gréti og fjölskyldunni allri sem kærasta elsta sonarins. Mér var tekið opnum örmum og umvafin hlýju og umhyggju sem þeirra eigin dóttir og einstakur happa- fengur. Kristinn hafði ætíð lag á því að láta mig finna að ég væri mikils virði og að hann hefði álit á mér. Vel valin orð, hlýtt bros sem yljuðu um hjartarætur. Minningar margar og dýr- mætar á ég frá langri samleið, um atvik og góðar stundir með Kristni, þeim Margréti báðum, einum og með fjölskyldunni, með börnum mínum og barnabörn- um. Þær minningar mun ég geyma í gullastokki hugans og taka fram og gleðja mig við með- an hugurinn endist. Með kærri þökk. Kristín. Tengdafaðir minn, Kristinn Gíslason, er fallinn frá. Það var mér mikil gæfa að kynnast hon- um og tengjast fjölskyldu hans. Kristinn var mætur maður, afar háttvís og bar virðingu fyrir öll- um, stórum sem smáum. Hann var mér góð fyrirmynd og af honum hef ég margt lært. Í ná- vist hans var gott að vera og afa- og langafabörnin sóttust eftir fundum við hann. Hann var næmur á hvar áhugi þeirra lá, setti sig í þeirra spor og gaf sér góðan tíma til að sinna þeim. Kristinn var reyndur stærð- fræðikennari. Það kom sér vel fyrir mig þegar ég þurfti á reikn- ingssnilld hans að halda hvað hann var fljótur að leysa vand- ann. Hann minntist oft á nem- endur sína, talaði vel um alla og aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni. Hann hafði ein- staka kímnigáfu, var orðheppinn og skemmtilegur. Ekki er hægt að tala um Kristin án þess að minnast á Margréti, konu hans, sem stóð honum við hlið í hartnær 70 ár. Þau ræktuðu kærleikann og trúna á lífið af nærgætni og alúð. Heimili þeirra bar vitni um snyrtimennsku og reglusemi. Móðir Kristins, Halldóra, bjó hjá þeim og henni kynntist ég vel. Hún var stolt af sínu fólki og þakklát fyrir að fá að búa hjá þeim. Margrét og Kristinn ræktuðu garðinn sinn á Hofteigi 52 af kostgæfni og af þeim lærðum við Dóra að rækta okkar garð. Frá þeim eru ýmsar tegundir í okkar garði komnar. Ranfangið sem var frá bernskuheimili Mar- grétar, Lækjamóti í Víðidal, ilm- ar hér á hverju sumri. Matjurta- rækt stunduðu þau hjón frá upphafi búskapar á Hofteignum. Káljurtir og ýmsar tegundir af salati hafði ég ekki séð fyrr en hjá þeim en sumarlangt voru kræsingar af þeim toga á borð- um. Í Katlagili í Mosfellssveit höfðu þau aðstöðu fyrir kartöflu- rækt og fengum við, ungu hjón- in, að eiga okkar hlut í garðinum. Þangað var líka farið í berjamó á hverju hausti því Kristinn var kennari í Laugarnesskóla sem hafði eignast Katlagil. Þar hafði hann tekið þátt í uppbyggingu jarðarinnar við skógrækt og byggingu skólaselsins. Þar var þeirra sælureitur sem við feng- um að njóta með þeim á meðan kraftar þeirra entust. Þegar við hjónin vorum að byggja húsið okkar í Mosfellsbæ sagði Kristinn mér að hann ætti góða múrskeið sem hann kynni svolítið að nota og bauðst til að hjálpa mér við múrverkið. Í þá veggi sem hann múraði hefur ekki komið sprunga. Ber það handbragð vott um þá vand- virkni sem hann sýndi í hverju því verki sem hann tók sér fyrir hendur. Kristinn hafði gaman af ferða- lögum. Minnisstæð er mér ferð sem við Dóra fórum með þeim hjónum og Gísla mági mínum vestur á Hesteyri árið 1972. Þar ólst Kristinn upp frá átta ára aldri og hafði frá mörgu skemmtilegu að segja af fólki og staðháttum. Við gengum til Að- alvíkur og gistum hjá frændfólki hans í Þverdal og fengum góðar móttökur. Þetta voru fyrstu kynni mín af Aðalvíkursveit en þangað hefur leiðin legið oft síð- an. Kæri tengdapabbi. Nú er sól þín gengin til viðar en ég trúi því að þú vaknir í blómagarði þar sem Margrét tekur á móti þér og þið sendið okkur hlýja strauma þaðan. Guð blessi ykkur bæði. Þorkell Traustason. Þá er amma búin að sækja hann afa. Það varð ekki langt á milli þeirra, rúmlega fjórir mán- uðir, og kom það ekki á óvart. Afi og amma voru óvenju sam- rýnd hjón og áttu einstaklega fallegt hjónaband. Í mínum huga kristallaðist samband þeirra í stundinni þegar afi horfði aðdá- unaraugum á ömmu, á leiðinni út í eitt af síðustu jólaboðunum sem þau fóru í saman, og sagði með svo mikilli hlýju í rómnum: „Hún er alltaf svo falleg, hún Margrét mín.“ Við barnabörnin kynntumst afa fyrst og fremst sem miklum rólyndismanni, þrátt fyrir að hann hafi verið ákveðinn og fylginn sér. Við krakkarnir feng- um að leika okkur í fallega garð- inum á Hofteignum sem afi átti heiðurinn af, fengum spínat með sykri, jarðarber undan skúr- veggnum og slitum upp skraut- blómin til þess að skreyta drullu- kökurnar sem við frænkurnar fjöldaframleiddum. Afi var alltaf nálægur, en leyfði okkur að leika að vild, án allra inngripa sem hefðu getað truflað leikinn. Afa var umhugað um að okkur börnunum vegnaði sem best og var alltaf boðinn og búinn til þess að kíkja í stærðfræði- og ís- lenskubækurnar ef á þurfti að halda án þess þó að vera uppá- þrengjandi eða með óþarfa af- skiptasemi. Hann sá líka til þess að við krakkarnir lærðum mann- ganginn og spilaði gjarnan við okkur, enda var hann ágætur skákmaður og briddsspilari. Hann hugsaði líka til okkar systkinanna þegar við bjuggum í Svíþjóð og las nýjar barnabækur inn á snældur sem hann sendi okkur. Þessar snældur voru í al- gjöru uppáhaldi og hlustuðum við oft á þær í bílnum á löngum ferðalögum. Tvö persónueinkenni önnur voru áberandi í fari afa. Annars vegar var hann mikið snyrti- menni og voru öll verkfæri vand- lega þrifin áður en þau voru sett á sinn stað. Þá var bíllinn hans alltaf óaðfinnanlegur, hvort held- ur sem var að utan eða innan. Hins vegar var afi mikill húm- oristi, hann gerði óspart grín að sjálfum sér og sagði gamansög- ur. Hann gerði þó aldrei grín á kostnað annarra né hallmælti nokkrum manni. Það eru mörg minningabrotin sem birtast þegar horft er um öxl og ég átta mig á því hvað afi hefur mótað mig án þess að ég hafi áttað mig á því fyrr. Hann miðlaði til okkar krakkanna ró- lyndi, snyrtimennsku og húmor sem við búum að og þessa eig- inleika vil ég gjarnan rækta með mér. Margrét Vala. Röddin hans afa míns er ein af mínum skírustu æskuminning- um. Foreldrar mínir höfðu flust til náms í Svíþjóð með okkur Margréti systur mína tveggja og fjögurra ára. Afi sendi okkur segulbandsspólur, sem hann hafði lesið inn á nokkrar barna- bækur. Ég tveggja ára tengdi ekki persónu við röddina úr segul- bandstækinu, en hlýjan og glettnin í lestrinum gerði það að verkum að við systkinin undum okkur löngum stundum við tæk- ið. Eftir að við fluttum heim kynntist ég afa og hlýja og glettni raddarinnar úr segul- bandstækinu reyndist eiga sér holdi klædda mynd. Því þannig var afi, ávallt viðmótsþýður og hjálpsamur, og glensið aldrei langt undan. Húmorinn hafði afi að vestan og deildi honum óspart. Við fjöl- skyldan nutum átthaganna á Hornströndum í ýmsu fleiru. Sú hugmynd kviknaði í jarðarför Halldóru langömmu á Hesteyri að reisa sumarhús á hennar æskuslóðum. Án þeirrar virðing- ar og velvildar sem afi naut með- al sveitunga sinna hefði verkefn- ið umsvifalaust runnið út í sandinn. Hjálmfríðarból í Aðal- vík er nú griðastaður fjölskyld- unnar frá hversdagsamstri hvert sumar og áminning þess að heið- arleiki og virðing fyrir samferða- mönnum skilar mestu, þegar yfir lýkur. Afi las ekki bara fyrir okkur barnabörnin. Hann las ótal bæk- ur fyrir Blindrabókasafnið og á hverju kvöldi fyrir ömmu öll þeirra sambúðarár. Samrýndari hjón voru vand- fundin og eftir andlát ömmu 8. október síðastliðinn var afi ekki samur við sig. Nú hvíla þau sam- an. Minning þeirra lifir með okk- ur sem fengum að kynnast þeim, og röddin hans afa míns í huga okkar sem á hlýddum. Kristinn Björgvin. Á öndverðri tuttugustu öld þegar heimastjórn og fullveldi voru fengin horfðu Íslendingar vonglaðir til framfara. Menn sáu fyrir sér vegi, brýr yfir vatnsföll og góðar hafnir um allt land. Menn báru vonir í brjóstum um sitt byggðarlag, að þar yrðu framfarir og gróska jafnmikil eða jafnvel meiri en annars stað- ar. Væri ekki einmitt réttlátt að framfarirnar yrðu mestar þar sem kjörin voru rýrust? Fram- farirnar urðu meiri en nokkurn gat órað fyrir – en ekki alls stað- ar. Í þorpi nokkru voru blómleg verslun, skólahús, læknisbústað- ur og kirkja þegar á fyrsta fjórð- ungi aldarinnar en fólkið var far- ið þegar öldin var hálfnuð. Í skólanum í þorpinu við lítinn fjörð lærðu börnin að lesa og reikna eins og önnur börn ann- ars staðar og jafnvel betur þó að kennarinn væri þar aðeins hálfan veturinn; hann kenndi líka börn- unum hinum megin fjallsins við víkurnar fyrir opnu Íshafinu. Þær vinkonurnar Sigfúsína Hall- dóra Benediktsdóttir og Elísabet Halldórsdóttir áttu börnin sín í þessum skóla og þau kepptu hvort við annað í reikningi, þau Kristinn Gíslason sem nú er kvaddur og Kristín Eiríksdóttir móðir mín. Reikningskennsla varð merkt ævistarf Kristins og bæði afkomendur Kristins og Kristínar héldu merkinu á lofti og lögðu sitt til menntunar barna landsins á því sviði. En lífið í þorpinu fjaraði út. Þegar þau Kristinn og Kristín komust á fullorðinsár var fólkið horfið frá Hesteyri við Ísafjarðardjúp. Þangað komu aldrei varanlegir vegir, brýr eða hafnir. Kristinn gerðist kennari í Laugarnes- skóla í Reykjavík en hann gleymdi ekki fólkinu frá Hest- eyri. Elísabet vinkona móður hans flutti frá öllu sínu þótt þau hjón væru orðin roskin og hún hóf nýtt líf syðra eins og hitt fólkið. Kristinn hefur áreiðan- lega verið henni innan handar við að ráða sig við ræstingar í Laugarnesskóla. Kristinn varð fremstur meðal jafningja í stétt sinni. Hann ritaði kennslubók í reikningi fyrir unglinga sem var aðgengilegri en aðrar á mark- aðnum. Hann var valinn til að stýra merkri tilraun um reikn- ingskennslu þegar nýja stærð- fræðin var innleidd á miðjum sjöunda áratugnum. Þá mæddi mikið á Kristni; hann fór til Kaupmannahafnar til að kynna sér efnið, þýddi það, veitti kenn- urum handleiðslu og annaðist samskipti við foreldra. Allt var starf hans vandað og unnið af kostgæfni. Að því loknu ritaði hann skýrslu sem er einstæð heimild um brautryðjandastarf- ið. Þar má skynja aðstæður Ís- lendinga í hinu unga lýðveldi þegar fregnir af erlendum nýj- ungum bárust á skotspónum, hending réð hvort Íslendingar gátu tekið þátt í alþjóðlegu sam- starfi eða stóð það til boða og vörusendingar voru mánuði að berast. Kristinn færði mér skýrslu sína að gjöf þegar ég tók mér fyrir hendur að rita sögu stærðfræðimenntunar á Íslandi. Skýrsla Kristins var ein verð- mætasta heimildin mín, ekki síst fyrir það hvað hún var einlæg og sönn. Ég votta samúð mína systkinunum fjórum sem séð hafa á eftir báðum foreldrum sínum öldruðum með stuttu millibili. Genginn er á fund feðra sinna merkur fulltrúi tvennra tíma. Kristín Bjarnadóttir. Kristinn Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.