Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 33
DAGBÓK 33 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand VEISTU GRETTIR... ÉG MYNDI GEFA HVAÐ SEM ER TIL ÞESS AÐ VITA HVAÐ ER AÐ GERAST Í KOLLINUM Á ÞÉR HMMM... ÞÚ GETUR MÚTAÐ MÉR MEÐ 300 KG AF LASAGNA ÞÚ ERT BYRJAÐUR AÐ SLEFA... GAMLA HATTA- BÚÐIN Á HORNINU HANN ER ALVEG FRÁBÆR! EN ÉG GET EKKI KEYPT HANN ÞAR SEM NÁGRANNI MINN Á SVONA NÚ ÞEGAR STRÁKAR, ÞIÐ ÞURFIÐ EKKI AÐ VERA SIRKUS- HUNDAR ALLA ÆVI. AF HVERJU PRÓFIÐ ÞIÐ EKKI AÐ GERA EITTHVAÐ ANNAÐ? MIG LANGAR BARA AÐ KOMA BOLTANUM AF STAÐ, EF ÞIÐ SKILJIÐ MIG, FÉLAGAR ÉG HEFÐI KANNSKI ÁTT AÐ ORÐA ÞETTA ÖÐRUVÍSI ERTU TIL Í AÐ FARA MEÐ OKKUR Í GARÐINN? ÉG ER ÞVÍ MIÐUR UPPTEKINN, KRAKKAR MÍNIR EN AF HVERJU FARIÐ ÞIÐ EKKI BARA SJÁLF? ÞIÐ ERUÐ ALVEG NÓGU GÖMUL MÉR FINNST ÞAÐ EKKI! VILTU AÐ ÉG KOMI MEÐ YKKUR Á FRUM- SÝNINGUNA? JÁ! ÞVÍ BARACK OBAMA KOMST EKKI EN EF ÞÚ ERT UPPTEKIN... NEI! AUÐVITAÐ ER ÉG LAUS ÞAÐ ER FREKAR EINMANALEGT AÐ SITJA HÉRNA KVÖLD EFTIR KVÖLD Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, vatns- leikf. kl. 10.50, útskurður/myndlist kl. 13.00 Myndlist. Kaffi/meðlæti á góðu verði. Árskógar 4 | Smíði/útsk. kl. 9. Fé- lagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Boðinn | Tiffanys gler kl. 9.05. Tálgað kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur og handav. allan daginn, leikf. og sögu- stund. Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8. Leikfimi kl. 9.15. Upplestur 2. hæð kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30. Danskennsla kl. 17. Árshátíð FEB 17. mars í Stang- arhyl 4. Hátíðarmatseðill, skemmtiatriði og dans, uppl. og skrán. s. 588-2111. Félagsheimilið Gjábakki | Leiðb. í handav. til hádegis, botsía kl. 9.15, gler- og postulín kl. 9.30/13, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15, kóræf. kl. 17 og skap- andi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- lín kl. 9. Tréskurður kl. 9.30, ganga kl. 10. Handav/brids kl. 13. Félagsvist kl. 20. Félagsmiðstöðin Sléttuvegi 11-13 | Leikfimi kl. 9.30. Félagsvist kl. 13.30. Félags- og íþróttastarf eldri borgara Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 11, námskeið um Eglu kl. 10.15, vatns- leikfimi kl. 12.15, málun kl. 14. Félagsstarf eldri borgara í Mos- fellsbæ | Hinn 31. mars ferð í Borg- arleikhúsið á Fanny og Alexander. Miða- sala til 15. mars á skrifstofu félagss. kl. 13-16, s. 5868014. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Gler og leir kl. 9. Biljard í kirkju kl. 10. Kaffispjall í krók kl. 10.30. Íþrótta- hús/hreyfing kl. 11.20. Handavinna kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9. Vatnsleikfimi kl. 9.50. Frá hád. spilasalur opinn. Kóræfing kl. 12.30. Hraunbær 105 | Handavinna o.fl. kl. 9. Leikfimi kl. 9.15. Bænastund kl. 10.15, myndlist kl. 13. Hraunsel | Ganga frá Haukahúsi kl. 10, Gaflarakór kl. 11, gler kl. 12, botsía/ félagsvist kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30/9.30. Vinnustofa kl. 9. Brids/tölvuk. kl. 13. Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl. 8.50. Félagsvist kl. 13.30. Prjónahorn kl. 13. Skapandi skrif kl. 16. Thai chi kl. 17.30. Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 13.30 í Smáranum. Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikf. kl. 9.30 Norðurbrún 1 | Leikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10. Bókm.hópur kl. 11. Útskurður kl. 13. Samverustund kl. 14. Vesturgata 7 | Setustofa /kaffi kl. 9. Botsía/handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10.30. Kóræf. kl. 13. Kaffiveit. kl. 14.30. Páskabingó þri. 20. mars kl. 12.45. Glæsilegir vinn. Veislukaffi. Vitatorg, félagsmiðstöð | Bókband, smiðja og postulín kl. 9. Morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10, framh.s. kl. 12.30, handav/spil/stóladans kl. 13. Ég hitti karlinn á Laugaveginumá föstudaginn. Hann hafði ver- ið niðri í Þjóðmenningarhúsi að hlusta á Össur Skarphéðinsson bera vitni fyrir landsdómi, svo að ég spurði hann hvað ráðherrann hefði sagt. Karlinn sagði, að þeirri spurningu hefði verið velt upp, hvort Össur hefði vitað að allir bankarnir rúlluðu samtímis. Hann sagðist ekki hafa trúað Davíð al- mennilega og þess vegna spurt ein- hvern Guðmund í Seðlabankanum hins sama, þegar þeir fóru afsíðis til þess að pissa. Síðan tuldraði karlinn fyrir munni sér: Þegar allt fór á versta veg víst urðu margir hissa þegar Gvendur Jóns og ég jafnt fórum út að pissa. Vestur-Íslendingurinn dr. Rich- ard Beck prófessor fæddist á Svína- skálastekk í Suður-Múlasýslu. Hann vann mikið að íslenkum fræðum og kynningu á landi og þjóð vest- anhafs. Eftir hann er þessi kvöld- vísa: Sígur jörðu svefn á brá, sveipast nætur skugga, dökknar himins hvelfing blá, húmar stjörnu glugga. Alþingishátíðarárið 1930 kom út bókin Vestan um haf sem hafði að geyma efni eftir Íslendinga í Vest- urheimi. Kristinn Stefánsson frá Egilsá í Norðurárdal orti og kallaði Vestanskin: Rauð eru tjöld um Ragna-stól, roðnar kvöld og vogar, kveikir í öldum aftansól: Úði á földum logar. Þessi staka hefur yfirskriftina Vegljóst: Þegar hugans húmgu lönd hafa leyst sín þokubönd, vegljós þá er vonum manns víður heimur sannleikans. Jón Runólfsson frá Gilsárteigi í Suður-Múlasýslu orti: Fjölmörg er kirkjunnar kredda og kenning um líf og hel. En allt það, sem við á og – vantar í veröld, er – bræðraþel. Og þessa: Hann mætti henni á myrkum stað og mæltı́: „Ert þú það, elskan mín?“ „Ekki er nú svo, að það sé það, það er bara konan þín.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gvendur Jóns og ég Loftventlar í kaffi- pökkum og sprengjuheldar hjólastólabrautir Hún ríður ekki við ein- teyming vitleysan í okkur Íslendingum. Þarna var Jóhannes gamli í Bónus allt í einu hættur að mala á tímabili, þannig að Bónuskaffið var ófá- anlegt í marga mán- uði. Nú er það aftur komið í gulum glans- umbúðum. Svo þegar kaffipakkinn er opn- aður sér maður ein- hvern torkennilegan hlut og heldur að þetta sé einhvers konar njósna- ventill. Nei, sérfræðingar mínir í kaffipökkum segja mér að hér sé um að ræða loftventla! Þetta er úr plasti. Hvað annað! Tilgangurinn er sjálfsagt mjög göfugur. Á sama tíma og þessi loftventlavitleysa gengur yfir deyja milljónir barna úr hungri. Og heilu þjóðirnar þurrkast eig- inlega út vegna þess að það eina sem þær vantar er vatn. Og sumir öryrkjar lifa á hungurmörkum beint fyrir framan nefið á okkur. Já, það er ekki á þjóð Jóns Sigurðs- sonar logið í smáu sem stóru. Má vel rifja það upp hér, að á liðnu af- mælisári Jóns voru byggðar hjólastóla- brautir á fæðingarstað hans úr sprengju- heldri steinsteypu sem kostuðu milljónir króna fyrir þá sömu öryrkja. Og það þrátt fyrir eitthvert besta aðgengi á Vest- fjörðum fyrir hreyfihamlaða sem fyrir var. Fróðir menn telja að það hafi einn hjólastóll komið á staðinn á afmælissumrinu. En þetta má auð- vitað ekki nefna. Það segir sig sjálft. Hallgrímur Sveinsson. Velvakandi Ást er… … móðir og dóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.