Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012
AF LISTUM
Hallur
hallur@mbl.is
Allir tónlistaraðdáendur semeru með hjartað á réttumstað hafa væntanlega verið
ánægðir með framtak Ríkissjón-
varpsins í febrúarmánuði. Á mið-
vikudagskvöldum voru sýndar vand-
aðar og merkilegar
heimildarmyndir um erlendar
hljómsveitir og tónlistarmenn.
Myndirnar voru að mínu viti mjög
vel valdar og ættu að snerta taugar
hjá flestum sem hafa verið í nánd við
útvarpstæki síðustu 40 árin eða svo.
Vúdúbarnið Jimi Hendrix reiðá vaðið þar sem glys-pinninn
Bootsy Collins sá um að túlka orð
goðsins. Svo komu þær ein af ann-
arri: Sagan af því hvernig The Roll-
ing Stones í sinni sukkuðu og úr-
kynjuðu útlegð á frönsku rívíerunni
náðu að halda einbeitingu og skapa
klassíska rokkplötu sem lifir góðu
lífi enn í dag; Sigur Rós á heimaslóð-
um hafa margir væntanlega verið
Menning sem flestir skilja
Innlifun Það er ekki laust við að maður hafi betri skilning á andlitsfalli gítarleikarans aldna eftir að hafa horft á
myndina um gerð plötunnar Exile on main street. Hér fer meistarinn hamförum eins og honum einum er lagið.
búnir að sjá en engu að síður fengur
að þeirri sýningu; þá var komið að
miðaldra metal-jálkunum í Iron Mai-
den sem ögra fjölmörgum nátt-
úrulögmálum í hvert sinn sem þeir
flytja lög sín á tónleikum og að lok-
um voru það írsku hálfguðirnir í U2
sem gerðu upp stórmerkilega tíma í
kringum gerð plötunnar Achtung
Baby.
Allir þessir tónlistamenn hafamikla tengingu við fólkið í
landinu og áhugavert væri að vita
hvað þeir hefðu selt margar plötur á
Fróni. Í mínu tilfelli voru þessar
myndir allar til umræðu í kaffi- og
matartímum daginn eftir sýningu.
Hugsanlega hafa einhverjir verið
undrandi á framtaki Ríkissjónvarps-
ins, ég var einn þeirra, en þetta er
sjónvarpsefni sem ég tel að hafi ekki
verið nægilega vel sinnt af RÚV í
gegnum tíðina. Sem er að sjálfsögðu
í þversögn við þær staðhæfingar
sem oft heyrast á tyllidögum að við
séum svo mikil tónlistarþjóð. Samt
sem áður hefur lítil rækt verið lögð
við eitt vinsælasta tónlistarform hér
á landi, erlenda dægurtónlist.
Upp á síðkastið hefur þó boriðá því að þessari tegund menn-
ingar sé sinnt af meiri alvöru hjá
RÚV. Hinn frábæri Hljómskáli er að
sjálfsögðu gott dæmi um það. Ein-
hverra hluta vegna hefur verið á
brattann að sækja fyrir erlent efni
af sama toga. Hvernig væri t.d. að
sýna þættina hans Jools Hollands
sem sýndir eru á BBC, þar sem fram
koma helstu tónlistarmenn samtím-
ans, þ.á m. íslenskir, og leika í beinni
útsendingu. Þetta er t.d. frábært
sjónvarpsefni. ’68-kynslóðin hefur
nú lengi stýrt þessu þjóðfélagi er
undarlegt hversu erfitt hefur reynst
að veita dægurtónlistinni, einu
helsta breytingarafli hippanna, það
pláss sem hún á skilið. Annars átti
þetta nú ekkert að vera neitt nöldur
þar sem febrúar var flottur á RÚV.
»Hvernig væri t.d.að sýna þættina hans
Jools Hollands sem
sýndir eru á BBC?
Svíar völdu lagið Euphoria með
söngkonunni Loreen sem framlag
sitt til Evróvisjón s.l laugardags-
kvöld. Undanfarnar 6 vikur hefur
Melodifestivalen staðið yfir og fór
lokakvöldið fram í Ericsson Globe að
viðstöddum u.þ.b. 14.000 áhorf-
endum. Tíu lög kepptu til úrslita.
Svíar fara þá leið að 32 lög alls keppa
á fjórum kvöldum og eru tvö lög val-
in á hverju kvöldi með símakosn-
ingu. Á lokakvöldinu ræður sænskur
almenningur 50% niðurstöðunnar í
símakosningu. Hinn helmingur at-
kvæðanna kemur frá dómnefndum
11 landa víðsvegar um Evrópu.
Loreen keppir fyrir Svía
Hætta þurfti við fyrirhugað Sálar-
ball sem átti að vera síðastliðinn
laugardag vegna veðurs. Það er ekki
oft sem veðrið kemur í veg fyrir tón-
leika og hvað þá þegar nálgast vorið
en að þessu sinni þurftu strákarnir í
Sálinni að láta í minni pokann fyrir
veðurguðunum. Fyrirhugaðir tón-
leikar hljómsveitarinnar Sálarinnar
áttu að vera á skemmtistaðnum
Mælifelli á Sauðárkróki. Samkvæmt
tilkynningu frá Videosport hefur
verið ákveðið að færa tónleikana
fram til 4. maí næstkomandi og er
vonast til að sem flestir láti sjá sig þá
með vor og sól í sinni. Frá þessu
greindi fréttavefurinn Feykir.is.
Sálartónleikar blásnir af
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Tónleikar Sálin hans Jóns míns
þurfti að gefa sig fyrir veðrinu.
10
EGILSHÖLL
12
16
16
L
7
7
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS.
SÝND Í 2D OG 3D
MÖGNUÐ
ÆVINTÝRAMYND Í 3D
ÁLFABAKKA
10
7
7
7
12
VIP
16
16
L
JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40 3D
JOHN CARTER kl. 10:10 2D
JOHN CARTER Luxus VIP kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D
THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D
JOURNEY 2 : THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 5:50 - 8 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:30 2D
HUGO Með texta kl. 5:30 - 8 2D
CONTRABAND kl. 10:10 2D
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN M/ ísl. Tali kl. 5:50 2D
10
10
7
7
16
KRINGLUNNI
JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40 3D
THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D
JOURNEY 2 : THE MYSTERIOUS ISLAND 3D kl. 5:50 - 8 3D
HUGO Með texta kl. 10:10 2D
EXTREMLY LOUD AND INCREDIBLY CLOSE M/ ísl. Tali kl. 5:20 3D
KEFLAVÍK
7
12
16
JOHN CATER kl. 8 3D
SVARTUR Á LEIK kl. 10:40 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D
AKUREYRI
7
7
12
16
JOHN CARTER kl. 8 3D
JOURNEY 2: THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 6 3D
THE WOMAN IN BLACK kl. 10:40 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:20 2D
PLEASANT SURPRISE
- C.B, JOBLO.COM
EXPLOSIVE
– J.D.A, MOVIE FANATIC
“PURE MAGIC”
– H.K, AIN’T IT COOL NEWS
“VISUALLY STUNNING”
– K.S, FOX TV
JOHN CARTER kl. 5:10 - 8 - 10:10 - 10:50 3D
THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:20 2D
JOURNEY 2: THE MYSTERIOUS ISLANDkl. 5:50 - 8 3D
FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl tali kl. 6 3D
HAYWIRE kl. 10:10 2D
HUGO kl. 5:20 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 2D
blurb.com
Frá höfundi Death at a Funeral.Frábær
gamanmynd
með
sótsvörtum
húmor
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VANESSA HUDGENS, MICHAEL CAINE OG DWAYNE „THE
ROCK“ JOHNSON TRYGGJA ÓSTÖÐVANDI BÍÓSKEMMTUN
MÖGNUÐ ÞRÍVÍDD
Toppmyndin á Íslandi
og vinsælasta myndin
í heiminum í dag
Time
Movieline
Myndin sem hefur setið síðustu 3
vikur á toppnum í Bretlandi og notið
gríðarlega vinsælda í USA.
Ein besta draugamynd síðari ára
Ferskir og framandi fiskréttir
Hádegisverðartilboð
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is