Morgunblaðið - 12.03.2012, Síða 40
MÁNUDAGUR 12. MARS 72. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Augu heimsins á mynd frá Íslandi
2. Lést eftir slys í skíðabrekkum
3. Sló Íslandsmet í armbeygjum
4. United á toppinn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tenórarnir tveir, saxófónleikararnir
Stefán S. Stefánsson og Ólafur Jóns-
son, verða með tónleika á Kex Hosteli
á morgun kl. 20.30. Með þeim leika
Agnar Már Magnússon, Þorgrímur
Jónsson og Einar Scheving.
Tenórarnir tveir á
Kex Hosteli í kvöld
Næstu tónleik-
ar Jazzklúbbsins
Múlans verða á
miðvikudag.
Hljómsveitin Tusk
verður í Norræna
húsinu. Tusk er
skipuð bassaleik-
aranum Pálma
Gunnarssyni, Eð-
varði Lárussyni á gítar, Kjartani
Valdimarssyni píanóleikara og Birgi
Baldurssyni á trommur. Þeir leika
djass- og blússkotinn bræðing.
Hljómsveitin Tusk
í Jazzklúbbnum
Áfram heldur tónleikaröðin „Kaffi,
kökur & rokk & ról“ í Edrúhöllinni,
SÁÁ-húsinu í Efstaleiti 7. Á morgun,
þriðjudag, koma fram Sin Fang og hin
færeyska Guðrið Hansdóttir.
Húsið verður opnað kl. 20 og tón-
leikarnir hefjast kl.
20.30. Sem fyrr er
kaffi og kökur í
massavís fyrir
tónleika-
hungraða.
Sin Fang og færeyska
Guðrið í Edrúhöllinni
Á þriðjudag Sunnan 8-13 m/s og dálítil væta, en hægari og léttir
til á NA-verðu landinu. Hiti 1 til 7 stig.
Á miðvikudag Gengur í norðan og NV 8-15 m/s A-til, ofankoma.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil ofankoma af og til, en úrkomulaust á
A-verðu landinu. Víða hægur vindur framan af degi og dálítil slydda
eða rigning á S- og V-lands. Hiti um og yfir frostmarki.
VEÐUR
Manchester United situr á
toppi ensku úrvalsdeildar-
innar í knattspyrnu í fyrsta
sinn síðan 2. október á síð-
asta ári. Englandsmeistar-
arnir skutust í toppsætið
með því að leggja WBA að
velli, 2:0, á sama tíma og
Manchester City tapaði fyr-
ir Gylfa Sigurðssyni og sam-
herjum í Swansea á Liberty
Stadium í Wales í gær með
einu marki gegn engu. »7
United í efsta
sæti á Englandi
Óvissa ríkir um það hvort Fannar Þór
Friðgeirsson getur leikið með ís-
lenska landsliðinu í handknattleik
gegn Þjóðverjum á miðvikudags-
kvöldið í Mannheim. Hann hefur verið
frá keppni í þrjá vikur og fer í skoðun
í dag þar sem
úr því fæst
skorið hvort
hann verður
með í leiknum
eða ekki. »1
Óvissa ríkir vegna
meiðsla Fannars Þórs
Róbert Kristmannsson og Thelma
Rut Hermannsdóttir, bæði úr Gerplu,
urðu um helgina Íslandsmeistarar í
fjölþraut í fimleikum, Thelma Rut
þriðja árið í röð en Róbert í fyrsta
sinn. Róbert bætti síðan um betur og
sigraði á öllum áhöldum og Thelma
Rut krækti í fjóra verðlaunapeninga,
einn gullsleginn, einn úr silfri og tvo
bronslitaða. »4
Róbert og Thelma sigur-
sæl á meistaramóti
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Það er búið að standa til í mörg ár,“
segir Guttormur Björn Þórarinsson,
húsasmíðameistari, sem fór í 15
manna hópi sunnudaginn 4. mars sl.
í Botnsúlur til að sækja fjallaskálann
Bratta. Hópurinn
sem stendur að
verkefninu kallar
sig Vini Bratta og
kemur úr nokkr-
um áttum, frá Ís-
lenska Alpa-
klúbbnum, sem á
skálann, úr
björgunar-
sveitum, m.a. af
Akranesi.
„Við höfum
verið að bíða eftir tækifæri í nokkur
ár til að sækja skálann,“ segir Gutt-
ormur. Hann segir að undanfarin ár
hafi verið snjólétt og því ekki gefist
tækifæri. Hópur hafi farið á snjóbíl
fyrir nokkrum vikum í könnunar-
leiðangur og „við sáum að þetta yrði
framkvæmanlegt“.
Hann segir að beðið hafi verið eft-
ir rétta augnablikinu sem hafi skap-
ast um næstsíðustu helgi. Fjórar
hjálparsveitir lögðu til tæki og
mannskap í ferðina. Farið var á
snjóbílum af Mosfellsheiði um kl. 6
að morgni og tók ferðin um 12 tíma.
Til að flytja skálann var honum
lyft á staðnum og hann síðan dreg-
inn á snjórampi upp á sleða.
Nú leitar hópurinn að stað þar
sem hægt er að endurgera húsið inn-
andyra.
Til stendur að fara með Bratta
aftur í Súlnadal vorið 2013.
Guttormur segir
mikla hagræðingu
fólgna í því að
lagfæra skál-
ann í byggð,
en þegar hús-
ið var fyrst
byggt var það smíðað í Reykjavík og
dregið á sinn stað 1986. Sá skáli
splundraðist í óveðri um vorið og nú-
verandi hús var byggt strax um
haustið á sama stað.
Félagsmenn Íslenska Alpaklúbbs-
ins nýttu húsið töluvert fyrstu árin
við ísklifur og skíðamennsku.
Guttormur segir hins vegar að
ferðamennskan hafi breyst talsvert
eftir að skálinn var upphaflega smíð-
aður og að menn hafi farið meira út í
það að skreppa í dagsferðir og dreg-
ið hafi úr því að gist væri á staðnum.
Orsökina segir hann m.a. þá að bíl-
arnir séu orðnir mun betri en áður
og að notkun snjósleða hafi aukist
hin síðari ár og meiri hraði sé í ferð-
um.
Fjallaskálinn Bratti er um 20 fer-
metrar og tekur 10-12 manns.
Röðin komin að lúnum Bratta
Fluttu skálann
á snjóbílum til
Reykjavíkur
Ljósmynd/Atli Pálsson
Ferðaskáli Hópurinn Vinir Bratta sóttu skálann sem staðið hefur í Botnsúlum frá því haustið 1987. Til stendur að
endurgera hann í Reykjavík og flytja til baka 2013. Á myndinni má sjá hópinn vinna að því að koma húsinu á sleða.
Íslenski Alpaklúbburinn á einnig
Tindfjallaskála, sem upphaflega
var byggður árið 1941 úr rekavið
úr Skógafjöru af félaginu Fjalla-
menn.
Árið 1979 tók Alpaklúbburinn
við húsinu og árið 2008
tók hópur innan klúbbs-
ins sig saman og
stofnaði hópinn Vinir
Tindfjallaskála, sem
fluttu húsið til Reykja-
víkur í ágúst 2008.
Þar var það endurgert og flutt
aftur á sama stað rúmu ári síðar.
Leitast var við að koma húsinu í
upprunalega mynd við endur-
gerðina.
Þegar Tindfjallaskáli var upp-
haflega byggður var rekaviðurinn
sóttur í Skógafjöru, tilhöggvinn í
Reykjavík og efnið í húsið svo
flutt á hestum í Tindfjöll. Þegar
skálinn var endurgerður var hins
vegar kominn bílvegur á staðinn.
Tindfjallaskáli tekur 10 manns.
Eiga einnig skála í Tindfjöllum
HAFA ÁÐUR ENDURBYGGT FJALLASKÁLA Í BYGGÐ
Endurbyggður
Tindfjallaskáli
Guttormur Björn
Þórarinsson