Morgunblaðið - 17.03.2012, Page 31
FRÉTTIR 31Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012
Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu
Reykjavíkur á árinu 2011 nam 12,35
milljörðum króna og jókst um 6,4
milljarða frá fyrra ári. Launa- og
rekstrarkostnaður dróst sömuleiðis
töluvert saman á milli ára, auk þess
sem rekstrartekjur fyrirtækisins juk-
ust um 5,7 milljarða. Fram kemur í
fréttatilkynningu frá OR að allir
þættir aðgerðaáætlunar fyrirtækis-
ins, sem samþykkt var fyrir ári, hafa
staðist.
Tap Orkuveitu Reykjavíkur nam
hins vegar 556 milljónum króna á
síðasta ári samanborið við hagnað
upp á 13,7 milljarða króna árið 2010.
Helsta skýringin á tapi OR eru fjár-
magnsgjöld upp
á 19,7 milljarða
króna árið 2011
samanborið við
fjármagnstekjur
upp á 10,8 millj-
arða árið 2010.
Í tilkynning-
unni er haft eftir
Bjarna Bjarna-
syni, forstjóra OR, að skuldabyrðin
sé „þung og sveiflur í ytri þáttum
hafa mikil áhrif á fjármagnsliði upp-
gjörsins. Álverð og gengi krónunnar
skiluðu þannig 14 milljörðum tekju-
megin 2010 en svipaðri fjárhæð
gjaldamegin 2011“. hordur@mbl.is
Sex milljarða rekstr-
arbati hjá OR
OR Afkoman batn-
aði á síðasta ári.
Launa- og rekstrarkostnaður dregst sam-
an á meðan tekjur aukast um 5,7 milljarða
Margt Fjöldi fjárfesta og fulltrúa útgerða sótti fund Sjávarklasans um nýsköpun sem haldinn var í Grindavík.
Tíu fyrirtæki á Suðurnesjum hafa að
markmiði margháttaða fullvinnslu
afurða allt frá hausaþurrkun til pró-
teinframleiðslu. Þetta er meðal þess
sem kom fram á fundi sjávarklasans
í Grindavík á fimmtudaginn. Þar
kynntu tólf lítil tæknifyrirtæki starf-
semi sína og framtíðaráætlanir.
Fulltrúar allra viðskiptabankanna
sóttu fundinn ásamt ýmsum fjár-
festum og forsvarsmönnum útgerð-
arfyrirtækja.
Fyrirtækin sem kynntu áætlanir
sínar eiga það sameiginlegt að hafa
þróað ýmsan búnað eða tækni við
vinnslu sem stefnt er að því að auka
útflutning á.
Á fundinum kom fram að í und-
irbúningi væri stofnun sérstaks
klasa um fullvinnslu afurða á Íslandi
með aðsetur í Grindavík. Þá er í und-
irbúningi á svæðinu ný verksmiðja
sem mun vinna úr aukaafurðum
fisksins. Framtíðarsýnin er að þessi
verksmiðja breyti fiskislógi í verð-
mæt heilsubótarefni og lyf.
Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri
Vísis í Grindavík, sagði á fundinum
að ný tæknifyrirtæki sem sprottin
eru úr sjávarútvegi opnuðu ný og
spennandi atvinnutækifæri.
Á fundinum voru m.a. kynntir
plástrar úr roði, snyrtivörur sem
gerðar eru úr maga þorsksins, tækni
sem bætir geymsluþol fisks, skynj-
arar sem fylgjast með hitastigi vör-
unnar frá því fiskurinn er veiddur og
þar til hann er kominn í borð versl-
unar og ýmsar umhverfisvænar
tæknilausnir.
Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri
Íslenska sjávarklasans, sagði
ánægjulegast eftir svona fundi hve
margir gestanna hefðu ekki gert sér
grein fyrir þeim krafti sem væri í
tæknifyrirtækjum í sjávarklasanum.
„Markmið okkar var að tengja sam-
an frumkvöðla og fjárfesta og vekja
áhuga fjárfesta á fullvinnslu og
tæknifyrirtækjum í sjávarklasanum.
Svo kemur bara í ljós síðar hvort
þetta hafi skilað raunverulegum ár-
angri,“ segir Þór.
borkur@mbl.is
Gróska í hliðargrein-
um í sjávarútvegi
Fyrirtækin á fundinum
» Þau fyrirtæki sem kynntu
starfsemi sína eru Controlant,
Dis, Gaia, Ice-West, iMonIT, Ís-
lensk matorka, Kerecis, Mode
Slurry Ice, Optimal, Zymetech
og Trackwell.
» Auk fyrirtækjanna sem eru í
sjávarútveginum kynnti Orf líf-
tækni starfsemi sína en fyrir-
tækið hefur meðal annars að-
setur í Grindavík.
Í undirbúningi er stofnun klasa um fullvinnslu afurða
með aðsetur í Grindavík Ný verksmiðja mun rísa þar
Verð kr. 34.980.-
Stgr. kr. 31.800.-
Magnari, útvarp, iPod stöð
og klukka.
Magnari, útvarp, iPod stöð
og klukka.
Verð kr. 98.600.-
Stgr. kr. 86.800.-
EARS WiFi Rating
Hönnun
10.0
Tengimöguleikar
10.0
Hljómgæði
10.0
4 litir.
fermingargjöfin...
genevalab.com
GENEVA XS
Verð kr. 68.800.-
Stgr. kr. 58.800.-
Ferðatæki með hleðslurafhlöðu.
Stereo Bluetooth móttakari,
útvarp, klukka og vekjaraklukka.
3 litir.
3 litir.
GENEVA S
GENEVA M
Grandagarði 8 | Sími: 862 9010 | kokkurinn@kokkurinn.is
veisluþjónusta hinna vandlátu
Kokkurinn hjálpar þér að halda
hina fullkomnu veislu
Árshátíðir
Brúðkaup
Erfidrykkjur
Fermingar
Fundir
Kynningar
Þema
kokkurinn.is