Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 2

Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. NÝHÖFN 1-3 ÚTSYNISÍBÚÐIR - GBÆ. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Um er að ræða sex 3ja - 4ra herbergja íbúðir frá 152 fm til 160 fm með bílskúrum sem er cirka 25 fm. . íbúðiranar er tæplega tilbúnar til innréttinga. Glæsilegt sjávarútsýni. Gott skipulag. Til afhendingar strax. Verð 28-29 millj. Hlynur sölumaður s. 698-2603 sýnir ykkur strax Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hópur fjallgöngumanna lenti í ógöng- um á Hvannadalshnúki í slæmu skyggni um liðna helgi. Fennt hafði yfir för sem áttu að leiða fólk niður fjallið og erfitt var að sjá sprungur sem eru margar á svæðinu. GPS- staðsetningartæki fjallaleiðsögu- mannsins, sem fór fyrir hópnum, virkaði ekki sem skyldi og þurfti hann að notast við reynslu sína til þess að leiða hópinn niður. Fólkið sat fast í þrjár klukkustundir en er vanalega um hálftíma á toppnum. Fólkið hafði skilið bakpoka sína eftir neðar í fjall- inu og var því matarlaust. Nokkurt óöryggi kom upp í hópn- um sem var í símasambandi við vanan fjallamann til að fá leiðbeiningar. Til tals komst hvort hringja ætti í björg- unarsveitir en á endanum skilaði hóp- urinn sér niður heilu og höldnu án þess að þess gerðist þörf. Kallað eftir auknu öryggi Miklar umræður spruttu um málið á vef Íslenska alpaklúbbsins þar sem kallað var eftir hertum kröfum um þjálfun leiðsögumanna. Ekki eru til neinar reglur um þjálfun leiðsögu- manna á Íslandi eins og tíðkast víða um Evrópu. Eins og er getur hver sem er leiðbeint hópum hvar sem er á landinu. Leiðsögumaður hópsins sem lenti í vanda á hnúknum var á eigin vegum og var þar með hóp vina og vanda- manna. Tekið skal fram að hann hef- ur áralanga reynslu af ferðum á Hvannadalshnúk og hefur farið þang- að í fleiri tugi skipta. Ferðafélagar hans höfðu ekkert út á hans starf að setja. Grafalvarlegt mál Leifur Örn Svansson er leið- sögumaður hjá Íslenskum fjallaleið- sögumönnum ehf. Hann var á sama tíma á Hvannadalshnúki með hóp skíðamanna. „Kona úr hópnum hringdi óörugg í bróður sinn sem er vanur fjallamaður og svo var hringt í mig þar sem vitað var af veru minni á fjallinu. Ég sinnti ekki símtalinu fyrr en ég var kominn neðar í fjallið og þá var fólkið komið úr hættu. Eftir að fólkið kom í hús mátti heyra af því að það var komið á fremsta hlunn með að kalla út björgunarsveitir,“ segir Leifur. „Það að vera fastur á hnúkn- um í langan tíma í miklum kulda er grafalvarlegt mál. Einn maður í hópnum var mjög þreyttur á leiðinni upp. Þegar menn eru búnir að skilja eftir bakpokann sinn og eru næring- arlitlir þá þarf lítið til svo að illa fari. Við hjá Íslenskum fjallaleið- sögumönnum förum með vel yfir 10 þúsund manns í ferðir á okkar veg- um. Ef við lítum blákalt á tölfræði þá hlýtur eitthvert slys að koma upp á endanum,“ segir Leifur. Unnið að reglugerð Í iðnaðarráðuneytinu er unnið að reglugerð um þjálfun starfsfólks í af- þreyingariðnaði. „Á Íslandi er dæmigert það viðhorf að ekki séu gerðar kröfur um fag- mennsku í leiðsögn,“ segir Leifur sem kallar eftir því að stífar kröfur um þjálfun leiðsögumanna verði sett- ar í reglurnar. Morgunblaðið/RAX 12-14 tíma ganga Venjulega tekur ferð á Hvannadalshnúk 12-14 klukkustundir. Síðasti leggurinn tekur um klukkutíma og oft er stoppað um hálftíma á toppnum. Myndin tengist ekki þeim sem lentu í ógöngunum. Sátu föst á hnúknum í þrjár klukkustundir  Kom af stað umræðu um öryggismál  GPS virkaði ekki Öryggismál » Hópur fólks lenti í ógöngum á Hvannadalshnúki. » Atvikið vakti umræður um öryggismál meðal leiðsögu- manna. » Unnið er að reglugerð um afþreyingariðnað á Íslandi. Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir samþykkti á fundi sínum í gær smíði nýrr- ar brúar yfir Al- mannagjá. Gjáin hefur verið lok- uð frá því í október í fyrra. Ólafur Örn Har- aldsson þjóðgarðsvörður segir að verkið muni taka nokkrar vikur og að því ljúki fyrri hluta júní- mánaðar. Hann segir að verkið hafi farið seinna af stað en vonir hafi staðið til. „Við erum ekki ánægð með hversu seint gengið er í þessar framkvæmdir. En það þurfti að fara nákvæmlega yfir öryggismál áður en samþykki fékkst. Að verkinu hafa komið margar stofnanir. Þarna fara um hundruð þúsunda manna og því betra að hafa öll öryggis- að- gengismál á hreinu,“ segir Ólaf- ur. Samkeppni um hönnunina fór fram í vetur. Arkitektastofan Studio Grandi og verkfræðistofan Efla urðu fyrir valinu. Framkvæmdir við smíði nýrrar brúar yfir Almannagjá að hefjast og lýkur í júní Ólafur Örn Haraldsson BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Markmiðum um sjálfbæra uppbygg- ingu raforkuframleiðslunnar er stefnt í hættu með flutningi vatns- aflsvirkjana úr nýtingarflokki. Það skapi aukinn þrýsting á hraðari nýt- ingu jarðvarmans með tæknilegu og efnahagslegu óöryggi. Kemur þetta fram í umsögn Orkustofnunar um þingsályktunartillögu iðnaðarráð- herra um áætlun um vernd og orku- nýtingu landsvæða. Atvinnuveganefnd Alþingis er með þingsályktunartillöguna til um- fjöllunar. Fjöldi umsagna hefur þeg- ar borist, 74 í gærkvöldi og fleiri eiga eftir að bætast við. Umsagnirnar eru af ýmsum toga. Margar ítarlegar greinargerðir hafa komið fram þar sem tilteknum atriðum í tillögunum er mótmælt, svo sem flutningi virkj- ana í neðri hluta Þjórsár úr nýting- arflokki. Þá eru margir stuttorðir tölvupóstar þar sem tilteknum kost- um sem fyrirhugað er að nýta er mótmælt, ekki síst jarðvarmavirkj- unum á Reykjanesi. Víkur frá faglegri vinnu Orkustofnun vekur athygli á því að tillagan víki frá faglegum niður- stöðum verkefnisstjórnar og upphaf- legri þingsályktunartillögu. Það eigi einkum við um flutning á þremur virkjunarkostum í neðri hluta Þjórs- ár. „Tillagan gerir þannig ráð fyrir að hagkvæmustu og best rannsök- uðu virkjunarkostnir verði allir flutt- ir úr orkunýtingarflokki í biðflokk,“ segir í umsögninni. Einnig er vakin athygli á öðrum virkjanakostum sem fluttir eru úr nýtingarflokki, án þess að faglegum forsendum sem lágu til grundvallar mati faghópa sé hnekkt. Orkustofnun vekur athygli á því að þeir virkjanakostir sem eftir eru tengist nær eingöngu háhitasvæðum en ekki vatnsaflsvirkjunum, sam- kvæmt tillögu ráðherra. „Það er mat Orkustofnunar að með þessu verði markmiðum um sjálfbæra uppbyggingu raforku- framleiðslunnar stefnt í hættu. Þrýstingur á hraðari nýtingu jarð- varmans eykst, það tæknilega og efnahagslega öryggi og þar með sú hagkvæmni, sem fæst með því að virkja samhliða jarðhita og vatnsafl verður ekki fyrir hendi. Orka í sí- felldri endurnýjun sem ekki er beisl- uð í vatnsföllum er glötuð meðan orku í jarðvarmalindum má að ein- hverju marki líta á sem forða sem bíður nýtingar,“ segir í umsögn Orkustofnunar og því bætt við að fyrirheit um endanlega afgreiðslu innan tveggja ára gæti sett alla nýja orkuframleiðslu í bið- stöðu þar til ákvörðun liggur fyrir. Uppbyggingu stefnt í hættu  74 umsagnir hafa borist um áætlun um orkunýtingu  Orkustofnun segir að með frestun virkjana í Þjórsá sé settur þrýstingur á hraðari nýtingu jarðvarmans Landvernd vekur athygli á því í umsögn að mikil óvissa ríki um líftíma og framleiðslugetu jarð- varmavirkjana og viðbrögð þeirra við vinnsluálagi. Öll há- hitakerfin séu ósjálfbær í þeim skilningi að með nýtingu sé gengið á varmaforðann. Samtökin telja að allt of margar virkjunarhugmyndir á Reykjanesskaganum falli í orku- nýtingarflokk, ekki síst í Reykja- nesfólkvangi og vestan hans. Verndargildi svæðisins sé ótví- rætt og meta þurfi betur mögu- leika sem felast í verndun. Lagt er til að mörg svæði þar verði færð úr nýtingar- flokki. Háhitasvæði úr nýtingu UMSÖGN LANDVERNDAR Hæstiréttur hefur snúið við úr- skurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að aflétta frystingu á hagnaði AK-fasteigna af meintum fjár- drætti við sölu á fasteign við Skúla- götu. Rétturinn taldi ekki efni til að fella haldlagninguna úr gildi. Um er að ræða 92 milljóna króna bankainnistæðu sem lagt var hald á vegna rannsóknar á sölu á húsnæði til kínverska sendiráðsins. Féð var inni á reikningi í eigu AK-fasteigna en það var félag í eigu Karls Stein- grímssonar og Arons Karlssonar. Umræddur Aron hefur verið ákærður af sérstökum saksóknara vegna þáttar síns í málinu og fer þingfesting fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. andri@mbl.is Hæstiréttur úrskurðar að heimilt sé að leggja hald á hagnað af húsasölu Morgunblaðið/Golli Sendiráð Kínverska sendiráðið keypti húsið að Skúlagötu 51.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.