Morgunblaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 Dagana 8. maí til 7. júní mun sveit frá bandaríska flughernum sinna loftrýmisgæslu NATO á Íslandi. Það er stefna NATO að aðildarríki þess sjái um loftrýmisgæslu á Ís- landi til þess að tryggja loftrými að- ildarríkjanna. Flugsveitir bandaríska flughers- ins koma frá þremur löndum (Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi) til að taka þátt í verk- efninu. Þrír starfsmenn frá Eist- landi, sem er aðildarríki NATO, taka þátt í verkefninu en þeir eru í starfskynningu. Bandarísku sveit- irnar verða á vakt allan sólarhring- inn við loftrýmisgæsluna. F-15 orr- ustuþoturnar geta tekið á loft með innan við fimm til tíu mínútna fyrir- vara. Gæta loftrýmis yfir landinu Ákveðið hefur verið að endur- vekja starfsemi Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins (AMÍS) með það að markmiði að styrkja samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta, verslunar, menningar- og menntamála. Stofnfundur verð- ur haldinn fimmtudaginn 10. maí, kl. 8.00-9.00 á Hilton Nordica. Þegar hafa 60 fyrirtæki skráð sig í ráðið. Á stofnfundinum verður kjörin stjórn og formaður ráðsins. Meðal þeirra sem ávarpa fund- argesti að lokinni stofnun verða nýkjörinn formaður AMIS, Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra, Luis E. Arrega, sendi- herra Bandaríkjanna, og Michael B. Hancock, borgarstjóri í Denver í Colorado. Starfsemi AMÍS endurvakin Erik Rothgard frá Bandaríkjunum segir frá róttæku verkalýðssamtök- unum IWW (Industrial Workers of the World) á opnum fundi Rauðs vettvangs í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, fimmtudagskvöldið 10. maí kl. 20.00. Rothgard starfar með IWW í Bandaríkjunum, þar sem hann hef- ur m.a. fengist við að skipuleggja inngöngu starfsfólks Starbucks- keðjunnar í verkalýðsfélög. Eftir framsögu hans verða umræður. Allir eru velkomnir. Rauður vettvangur „Stjórnmálaþátt- taka við eldhús- borðið – er það framtíðin?“ er yf- irskrift opins fyr- irlesturs dr. Hauks Arnþórs- sonar um netlýð- ræði sem haldinn verður miðviku- daginn 9. maí kl. 12-13 í Lögbergi, stofu 101 Háskóla Íslands. Fyrirlesari er dr. Haukur Arn- þórsson, stjórnsýslufræðingur og sérfræðingur á sviði rafrænnar stjórnsýslu. Í fyrirlestri sínum mun hann m.a. fjalla um vaxandi áhrif netsins á lýðræðið. Dregnar eru fram jákvæðar og neikvæðar sviðs- myndir um hið fullkomna upplýs- ingasamfélag og nýja möguleika netsins til lýðræðisumbóta. Ræðir vaxandi áhrif netsins á lýðræðið Haukur Arnþórsson STUTT Rannsókn á hnífstunguárás á lög- mannsstofu í Lágmúla hinn 5. mars sl. er á lokastigi, að sögn Björgvins Björgvinssonar, aðstoðaryfirlög- regluþjóns hjá embætti ríkislög- reglustjóra. Vonast er til að málið verði sent til ákærusviðs lögreglunnar í næstu viku en þaðan fer það til ríkissak- sóknara. Björgvin segir að verið sé að bíða eftir niðurstöðum DNA-rannsóknar sem var gerð í Svíþjóð og niðurstöð- um úr geðrannsókn sem Guðgeiri Guðmundssyni, sem játaði á sig árásina, var gert að undirgangast. „Við vonumst til að geta lokið þessu í næstu viku og sent málið til ákæru- sviðs en það er háð því að við fáum þessi gögn,“ segir Björgvin. Karlmaður á sextugsaldri hlaut mörg stungusár í árásinni en sam- starfsfélagi hans, sem reyndi að skakka leikinn, var stunginn tvisvar í lærið. Manninum var haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Land- spítalans í nokkrar vikur og var um tíma í lífshættu. Á lokastigi Rannsókn á hnífstunguárás, sem gerð var á starfsmenn lög- fræðistofu, er á lokastigi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn á hníf- stunguárás að ljúka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.