Morgunblaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Nú þegar rétt tæplega þrír mánuðir
eru liðnir frá dómi Hæstaréttar um
vexti gengistryggðra lána er loks von
á frumniðurstöðu samráðshóps full-
trúa fjármálastofnana, Samtaka fjár-
málafyrirtækja, umboðsmanns
skuldara, Neytendastofu og tals-
manns neytenda um hvernig beri að
túlka hann og greina álitaefni sem
tengjast honum.
Lögfræðingar fyrir hönd umboðs-
manns skuldara og bankanna voru í
gær að fínpússa skjal þar sem álita-
efni sem komu upp við dóminn í febr-
úar eru greind. Búist er við að nið-
urstaða þeirra verði kynnt fljótlega.
Þarf nokkur dómsmál
Sá fjöldi fólks sem bíður eftir að fá
lán sín endurreiknuð þarf þó að bíða
enn því að greining lögfræðinganna
lýtur að því hvaða spurningum þurfi
að svara áður en hægt verður að
byrja að reikna upp á nýtt.
„Úr þessum álitaefnum verður
ekki skorið nema fyrir dómi. Þau eru
það mörg að það er ekki hægt að end-
urreikna lánin á grundvelli dómsins.
Einhver mál eru fyrir dómstólum
núna,“ segir Svanborg Sigmarsdótt-
ir, upplýsingafulltrúi hjá umboðs-
manni skuldara. Hún segir þó ekki
víst hvort hægt verði að notast við
niðurstöðu þeirra dómsmála sem séu
þegar í gangi eða hvort lántakendur
eða lánastofnanir eftir atvikum þurfi
að höfða ný mál.
„Það geta verið önnur álitamál fyr-
ir lögaðila en fyrir einstaklinga, hvort
fólk var í skilum eða ekki og hvort
lánið hafi verið til lengri eða skemmri
tíma. Sumum spurningum verður
væntanlega hægt að svara í einu
dómsmáli en ég held að það þurfi
örugglega nokkur sem vonandi verð-
ur hægt að reka samhliða svo þetta
taki sem stystan tíma,“ segir hún.
„Ég tel að það þurfi ekkert samráð
til að finna út stöðuna á þessu láni.
Dómurinn hefur fordæmisgildi. Slita-
stjórn er ekki dómstóll og á að inn-
heimta kröfur eftir því sem lög
standa til. Það er búið að dæma
hvernig á að gera þetta,“ segir Ragn-
ar Hall, lögmaður hjónanna sem
höfðu sigur gegn slitastjórn Frjálsa
fjárfestingarbankans í hæstaréttar-
málinu. Hann hefur lagt fram kröfu
til Héraðsdóms Reykjavíkur um að
slitastjórninni verði vikið frá þar sem
lán þeirra hafi enn ekki verið reiknað
upp á nýtt. Þeir sem séu læsir á dóm-
inn sjái það að því sé slegið föstu að
bankinn mátti ekki reikna lægstu
óverðtryggðu vexti Seðlabankans aft-
urvirkt fram að dómnum 2010 þar
sem gengistryggingu var hnekkt.
„Hann þarf að leiðrétta þá útreikn-
inga og það er mjög einfalt mál. Það
þarf enga þrjá mánuði,“ segir hann.
Engin niðurstaða um vexti
fyrr en eftir fleiri dómsmál
Gjaldeyrir Gengislán voru dæmd ólögleg árið 2010. Í febrúar gekk annar dómur um vexti gengisláns.
Niðurstaða samráðshóps um álitaefni eftir vaxtadóm Hæstaréttar væntanleg
Sérstakur saksóknari hefur ákært
fjóra karlmenn á þrítugsaldri fyrir
skjalafals, umboðssvik, fjárdrátt og
hylmingu. Þáttur hvers og eins er
mismunandi en mönnunum tókst að
hafa af Íbúðalánasjóði og eignar-
haldsfélagi tugi milljóna króna á
árinu 2009.
Málið komst í hámæli síðsumars
2009 en um miðjan júlí barst efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
kæra á hendur fimm mönnum
vegna skjalafals og fjársvika.
Maður sem lenti í klóm svika-
hrappanna lýsti því að þeir hefðu
náð til sín eignarhaldsfélagi hans
með því að falsa tilkynningu til
hlutafélagaskrár. Síðan seldu þeir
íbúð í eigu félagsins til konu einnar,
sem hafði ekki hugmynd um að
brögð væru í tafli.
Ákærðir fyrir að
svíkja tugi milljóna
út úr Íbúðalánasjóði
„Það er trúnaðarmál. Portus er
einkahlutafélag og fellur því ekki
undir reglur opinberra aðila um
upplýsingagjöf,“ segir Pétur J.
Eiríksson, stjórnarformaður Totus,
spurður hverjir sóttu um stöðu for-
stjóra hjá Hörpunni.
Fjörutíu og fjórir sóttu um starf-
ið sem auglýst var í mars og var
Halldór Guðmundsson ráðinn for-
stjóri í síðustu viku. Höfðu þá fimm
verið valdir úr hópnum eftir for-
viðtöl og fóru þeir sem hæfastir
þóttu í alls þrjú viðtöl.
Að sögn Péturs er ætlunin að
bræða Portus og dótturfélögin tvö,
Totus og Ago, saman í eitt félag
sem nýráðinn forstjóri fer fyrir.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um nafn félagsins.
Við Reykjavíkurhöfn Harpa að kvöldlagi.
Trúnaður um um-
sækjendur í Hörpu
Morgunblaðið/Júlíus
Hæstiréttur staðfesti í gær gæslu-
varðhaldsúrskurð yfir karlmanni
sem hefur játað að hafa reynt að
verða eiginkonu föður síns að bana
þann 1. apríl sl. Í úrskurðinum segir
að tilviljun hafi ráðið því að bani
hlaust ekki af. Maðurinn réðst tví-
vegis að konunni með nokkurra
klukkustunda millibili og vitni að
seinni árásinni segjast hafa heyrt
hann segja: „Ég er að reyna að drepa
hana.“
Konan leitaði á lögreglustöð laust
eftir miðnætti og sagði að sonur eig-
inmanns hennar hefði lagt á hana
hendur þar sem þau voru stödd í íbúð
hennar og hún flúið af vettvangi.
Hún óskaði eftir að manninum yrði
vísað úr íbúðinni, sem lögregla gerði.
Í kjölfarið skýrði konan frá því að
maðurinn hefði ráðist á hana í kjölfar
ásakana um að hún hefði stolið af
honum 1.500 krónum. Hann hefði
tekið hana kverkataki og kýlt hana í
síðu, hendur og andlit. Þá hefði hann
reynt að kæfa hana með því að halda
kodda fyrir andliti hennar. Áður
hefði maðurinn sagt við hana að hún
yrði að hverfa úr lífi föður hans ann-
ars myndi hann drepa hana.
Síðar sömu nótt, eða kl. 5.15, barst
tilkynning um að kona væri fyrir
framan umrætt hús og hrópaði eftir
hjálp. Þegar lögregla kom á vettvang
héldu þrír karlmenn umræddum
árásarmanni en konan lá meðvitund-
arlaus í jörðinni um tveimur metrum
frá. Á vettvangi fannst stór kerta-
stjaki sem reyndist vera bareflið sem
notað var við árásina.
6 ára sonur skelfingu lostinn
Fjöldi vitna hafi verið að árásinni
en þau lýsi því að hafa heyrt brot-
hljóð frá íbúð konunnar og einhverjir
hafi orðið varir við hana hlaupa um
stigaganginn og þaðan út. Vitni segj-
ast hafa heyrt mikil öskur og læti. Út
um gluggann hafi vitnin síðan séð
árásarmanninn ofan á konunni.
Fyrst hafi kærði slegið konuna ítrek-
að í höfuðið með áhaldi en síðan hafi
hann gert sig líklegan til að kyrkja
hana. Vitni segjast hafa heyrt kærða
segja „ég er að reyna að drepa
hana“. Þá hafi einnig verið á vett-
vangi lítið barn, sem reyndist vera 6
ára gamall sonur konunnar sem einn
nágranninn hafi tekið inn í íbúð til
sín til að hlúa að honum en hann hafi
óttast það mjög að móðir hans væri
dáin.
Klifraði upp á 2. hæð
Árásarmaðurinn var blóðugur á
höndum og viðurkenndi á vettvangi
að hafa skorist þegar hann braut sér
leið gegnum svalahurð á íbúð kon-
unnar en íbúðin er á 2. hæð og hafði
hann klifrað upp. Hann viðurkenndi
jafnframt á vettvangi að hafa ætla að
drepa konuna sem hefði eyðilagt líf
hans og föður hans.
Í vottorði sérfræðilæknis kemur
fram að konan hafi verið með þrjá
djúpa skurði á höfði og þann fjórða á
enni, marin og blá.
Í úrskurði héraðsdóms segir að
maðurinn sé talinn hættulegur um-
hverfi sínu og óttast bæði faðir hans
og konan að hann muni reyna að
drepa konuna verði hann látinn laus.
Manninum var gert að gangast undir
geðrannsókn.
„Ég er að reyna
að drepa hana“
Réðst tvívegis að eiginkonu föður síns með stuttu millibili
Morgunblaðið/Kristinn
„Eins og Ragn-
ari er fullkunn-
ugt um og búið
er að fara yfir
með honum á
fundum og bréf-
lega leikur veru-
legur vafi á
hvernig beri að
haga end-
urútreikningi þessara lána,“
segir Hlynur Jónsson, formaður
slitastjórnar Frjálsa fjárfesting-
arbankans, um kröfu Ragnars
Hall um að stjórninni verði vikið
frá.
Dómsorðið hafi verið efnt að
fullu og hjónunum hafi verið
greiddur dæmdur málskostn-
aður.
„Hvað varðar endurútreikn-
inginn eru umbjóðendur hans
ekki í neinni sérstöðu. Það þarf
að endurútreikna hjá öllum í
sambærilegri stöðu,“ segir
Hlynur.
Búið að fullnusta dóminn
SLITASTJÓRN FRJÁLSA FJÁRFESTINGARBANKANS
Hlynur Jónsson
Vísindadagar
unga fólksins
Undanfarin vor hafa nemendur fram-
haldsskóla átt þess kost að koma að
Hvanneyri og dvelja þar í nokkra daga til
að kynnast ýmsum greinum náttúru-
vísinda og komast í snertingu við
vísindalegt starf. Enn er hægt að sækja
um pláss á vísindadögum 21. - 24. maí.
Nemendur á náttúrufræðibrautum ganga fyrir.
Miðað er við að umsækjendur séu að hefja
annað eða þriðja ár í framhaldsskóla í haust.
Hópinn skipa 20 nemendur.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu LbhÍ
www.lbhi.is