Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 5

Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 5
FRÉTTIR 5Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 Gunnhildur Á. Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Næstbest er að vera móðir á Íslandi samkvæmt nýútkominni skýrslu Barnaheilla - Save the Children um stöðu mæðra í heiminum. Færist Ís- land upp um eitt sæti á listanum frá því í fyrra en Noregur er í efsta sæti. Verst er að vera móðir í Níg- er. Best að vera barn á Íslandi Þrettánda árið í röð er umrædd skýrsla gefin út en í henni eru að- stæður mæðra í 165 löndum bornar saman út frá þáttum á borð við heilsu, menntun og efnahag. Einnig eru aðstæður barna skoðaðar sér- staklega út frá þáttum í umhverfinu á borð við heilsu, menntun og nær- ingu. Ísland kemur vel út í sam- anburði á milli landa í þessum flokki og er í efsta sæti listans yfir lönd þar sem börn hafa það best. Vannæring vandamál Sérstakri athygli er beint að nær- ingu og fæðu í skýrslunni en talið er að meira en 171 milljón barna þjáist af dulinni vannæringu sem getur haft hamlandi áhrif á líkamlegan og andlegan þroska þeirra og getu til að ná árangri þegar fram í sækir. Það er einnig nöturleg staðreynd að undirliggjandi orsök a.m.k. fimmt- ungs dauðsfalla mæðra og þriðjungs barna í heiminum má rekja til van- næringar. Vannærðar mæður eign- ast t.d. oft börn undir ákjósanlegri fæðingarþyngd þar sem þau hafa ekki fengið næga næringu í móður- kviði. „Til að rjúfa þennan vítahring þarf alþjóðasamfélagið að taka höndum saman um að þróa og koma á fót næringaráætlunum sem skila sér til mæðra og ungbarna til að tryggja heilsu þeirra og lífslíkur,“ segir Sigríður Guðlaugsdóttir, verk- efnastjóri hjá Barnaheillum. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðar- ráðherra í barneignarleyfi, tók til máls á kynningu Barnaheilla en hún sá aðstæður kvenna í Afríku með eigin augum í Gíneu-Bissá fyrir nokkrum árum. Hún segir það hafa verið ógleymanlegt. „Að finna núna fyrir því frá fyrstu hendi hvernig þjónusta er veitt hér á landi; hún er algjörlega stórkostleg.“ Barnaheill standa nú fyrir undir- skriftasöfnun sem hvetur alþjóða- leiðtoga til að bregðast við en talið er að einfaldir hlutir á borð við áætlanir sem styðja mæður til að hafa börn sín á brjósti gætu forðað allt að einni milljón ungbarna frá dauða á ári hverju. Næstbest að vera móðir á Íslandi Niðurstöður nýútkominnar skýrslu Barnaheilla - Save the Children kynntar  Ísland efst á lista yfir lönd þar sem best er að vera barn  Aðstæður verstar fyrir mæður í Níger og Afganistan Morgunblaðið/Ómar Tvíburamóðirin Katrín Júlíusdóttir segir dásamlegt að vera móðir á Íslandi. Bestu lönd að vera móðir í: 1. Noregur 2. Ísland 3. Svíþjóð 4. Nýja-Sjáland 5. Danmörk 6. Finnland 7. Ástralía 8. Belgía Verstu lönd að vera móðir í: 156. Lýðveldið Kongó 156. Suður-Súdan 156. Súdan 159. Tsjad 160. Erítrea 161. Malí 162. Gínea Bissá Heimild: State of the World’s Mothers 2012 Norðurlöndin öll efst á blaði BESTU OG VERSTU Laugardagur Miðvikudagur Mánudagur Það er auðvelt að safna. Þú færð Aukakrónur fyrir: » alla innlenda veltu af kreditkorti » viðskipti við samstarfsaðila » þjónustuþætti hjá Landsbankanum landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn J ó n s s o n & L e ’m a c k s • jl .i s • s Ía

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.