Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 8

Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 Nýlegar „fréttir“ RÚV af skoð-anakönnunum um stuðnings- leysi við aðlögunarbrölt Steingríms og Jóhönnu vöktu vorkunnarhlátur víða.    En RÚVer ekki eitt um vinstrislag- síðu í fréttameðferð. BBC hefur átt í erfiðleikum með sig, eins og þekkt er.    Sú stofnun er þó eins og hvítskúr-aður engill við hliðina á RÚV, sem er eins og síamstvíburi Samfylk- ingarinnar, sem læknar þora ekki að skilja í sundur þar sem aðeins eitt hjarta slær fyrir bæði.    En tvær pínulitlar fréttir í BBCsama daginn sýna vandann:    Boris Johnson won by a „tightmargin“ (BBC), „he got 51.5%“.    Francois Hollande won „a clearvictory“, „he got 51.7%“.    Fréttamenn RÚV sæju auðvitaðekkert athugavert við svona fréttamennsku frekar en þeir hjá BBC.    Þeir hjá RÚV sjá heldur ekkert at-hugavert við það að spila inter- nationalinn eins og þjóðsöng hinn 1. maí ár hvert.    Og þeir sjá ekkert athugavert ogheldur síður þó, þótt þeirra helsti fréttaskýringaþáttur hljómi gjarnan eins og garg út úr gamalli talstöð, sem einhver hirti upp á háa- lofti í Tjarnargötu 20, löngu eftir að Fylkingin flutti. Svipuð hjörtu víðar en í Súdan og Grímsnesinu STAKSTEINAR Veður víða um heim 8.5., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Bolungarvík 3 skýjað Akureyri 4 skýjað Kirkjubæjarkl. 5 skýjað Vestmannaeyjar 4 skýjað Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 3 skýjað Ósló 11 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Stokkhólmur 12 heiðskírt Helsinki 12 heiðskírt Lúxemborg 17 skýjað Brussel 17 skýjað Dublin 11 skýjað Glasgow 11 léttskýjað London 17 léttskýjað París 17 skýjað Amsterdam 16 skúrir Hamborg 18 heiðskírt Berlín 18 skýjað Vín 21 léttskýjað Moskva 16 skýjað Algarve 21 heiðskírt Madríd 23 léttskýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 20 heiðskírt Róm 21 léttskýjað Aþena 25 skýjað Winnipeg 10 skýjað Montreal 11 skúrir New York 16 skýjað Chicago 18 léttskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:31 22:19 ÍSAFJÖRÐUR 4:15 22:45 SIGLUFJÖRÐUR 3:57 22:28 DJÚPIVOGUR 3:55 21:53 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Michael Hancock, borgarstjóri Den- ver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum, kom til landsins í gær og heimsótti Höfða í hádeginu í boði Jóns Gnarr borgarstjóra. Fyrsta flug Icelandair til Den- ver verður á morgun og er það til- efni heimsóknar Michaels Hancocks og 16 manna föruneytis til landsins. Hópurinn heimsækir Akureyri í dag og með í för verður Luis E. Arrega, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Að lokinni kynnisferð um Akur- eyri og nágrenni undirrita borgar- stjórinn í Denver og bæjarstjórinn á Akureyri viljayfirlýsingu í Menning- arhúsinu Hofi um að komið verði á formlegu vinabæjasambandi á milli Denver og Akureyrar í náinni fram- tíð með áherslu á samvinnu á sviði menningarmála, menntunar og við- skipta. Aukin samskipti Starfsemi Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins (AMÍS) verður endurvakin í fyrramálið með það að markmiði að styrkja samskipti Ís- lands og Bandaríkjanna á sviði við- skipta, verslunar, menningar- og menntamála. Stofnfundur ráðsins verður á Nordica Hilton Reykjavík hótelinu kl. 8.00-9.00 og ávarpar Michael Hancock fundinn. Í fylgdarliðinu eru borgar- fulltrúar frá Denver ásamt fulltrú- um ferðamálayfirvalda í Colorado. Denver er níunda borgin sem Icelandair flýgur til í áætlunarflugi í Norður-Ameríku og verður flogið fjórum sinnum í viku allt árið. Hinar borgirnar eru New York, Boston, Washington, Orlando, Minneapolis og Seattle í Bandaríkjunum, og To- ronto og Halifax í Kanada. Ferðaþjónustan er næstöflug- asta atvinnugreinin í Colorado-ríki. Væntanlegt flug Icelandair til Den- ver var kynnt í borginni á liðnu hausti og kom þá fram hjá Michael Hancock að áhrif flugsins á efna- hagslífið í ríkinu væru metin á um 28 milljónir dollara á ári. Morgunblaðið/Ómar Gjafir Michael Hancock og Jón Gnarr skiptust á gjöfum - bandaríski borgar- stjórinn fékk íslenska lopapeysu og sá íslenski fékk kúrekahatt. Tengsl Íslands við Colorado-ríki styrkt í Höfða  Fyrsta flug Icelandair til Denver Um 15% fullorðinna Íslendinga segjast hafa farið í ljós á síðustu tólf mánuðum, samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup fyrir sam- starfshóp um varnir gegn út- fjólublárri geislun. Dregið hefur verulega úr ljósabekkjanotkun undanfarin ár. Fyrir átta árum svöruðu 30% sömu spurningu ját- andi. Þetta kemur fram á vef Geisla- varna ríkisins. Þar segir að tvöfalt fleiri konur en karlar fari í ljós og ljósabekkja- notkun sé mest í yngstu aldurshóp- unum. Þeir sem fari í ljós á annað borð virðist fara mun sjaldnar en áður hafi verið. Nú fari aðeins 1,2% fullorðinna í ljós mánaðarlega eða oftar. Nýlega hefur komið fram að sam- kvæmt gögnum Krabbameinsskrár- innar er farið að draga úr nýgengi sortuæxla í húð, bæði hjá körlum og konum. Sífellt færri leggjast í ljósabekkiMeirapróf Næsta námskeið byrjar 9. maí 2012 Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.