Morgunblaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 ÚR BÆJARLÍFINU Albert Eymundsson Hornafjörður Menningarverðlaun Horna- fjarðar eru veitt á hverju ári. Gunn- laugur Þröstur Höskuldsson varð fyrir valinu að þessu sinni en hann hefur verið viðriðinn tónlist á Hornafirði í meira en hálfa öld. Hann hefur komið víða við á tónlist- arferlinum, m.a. stofnað og verið þátttakandi í fjölbreyttum hljóm- sveitum og kórum ásamt því að kenna tónlist og nú síðast stofnaði hann Stórsveit Hornafjarðar sem gert hefur stormandi lukku.    Leikfélag Hornafjarðar fagn- ar 50 ára afmæli um þessar mundir og sýndi á dögunum sjónleikinn 8 konur í samstarfi við nemendur framhaldsskólans. Sýningar voru í Nýheimum, sem ekki er hefðbundið leikhús, en leikstjóranum Guðjóni Sigvaldasyni hefur með hugkvæmni tekist að gera leiksviðið og umgjörð- ina sérstaklega áhugaverða. Aðdá- unarvert er hvað áhugafólk leggur mikið á sig til að halda úti menning- ar- og félagsstarfi á landsbyggðinni. Sýningin var öllum sem að komu til sóma og ánægjulegt að sjá hversu vel samstarf eldri leikfélaga og ungu kynslóðarinnar tókst.    Fjárhagsleg staða sveitarfé- lagsins er sterk eins og fram kom við fyrri umræðu um ársreikning fyrir árið 2011. Þar kemur fram að hagn- aður af rekstri A- og B-hluta var 137 milljónir króna. Fjárfestingar námu 253 m. kr. og skuldir og skuldbind- ingar, í hlutfalli af tekjum, eru 74% og hafa lækkað milli ára. Humarvertíð fór vel af stað eftir góða vetrarvertíð hjá vertíðarbátum og uppsjávarskipum. Ákveðin eft- irvænting ríkir ávallt hjá fólki þegar humarveiðar hefjast því humarinn skapar mörg störf og kemur sér sér- staklega vel fyrir um 60 framhalds- skólanema sem fá vinnu við vinnsl- una.    Hreinsun rusls og slæm um- gengni í bæjum og höfuðborginni hefur verið fréttaefni undanfarið og átak íbúa Reykjavíkur í þeim efnum gerð góð skil í fjölmiðlum. Hornfirð- ingar hafa verið svo lánsamir að grunnskólanemar hafa snemma á hverju vori farið um bæinn og næsta umhverfi hans og hreinsað allt sjá- anlegt rusl. Átakið byrjaði fyrir ára- tugum sem hluti af umhverf- isfræðslu í skólanum og aukinni umhverfisvitund. Skólafólkið í humarvinnslu Morgunblaðið/ Albert Eymundsson Leikkonur á sviði Guðrún Ingólfsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Guðlaug Jóna Karlsdóttir, Sigríður Jóhannesdóttir, Kristín Gestsdóttir og Róslín Alma Valdemarsdóttir. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá eða hafnað þremur kröfum verjenda sakborninga í Al-Thani- málinu svonefnda. Allar lutu kröf- urnar að gögnum í málinu, framlagn- ingu eða aðgengi. Málið var höfðað gegn Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi for- stjóra Kaupþings, Sigurði Einars- syni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, Magnúsi Guðmunds- syni, fyrrverandi forstjóra Kaup- þings í Lúxemborg, og Ólafi Ólafs- syni sem var stór eigandi hlutafjár í bankanum. Allir eru þeir ákærðir fyrir um- boðssvik og markaðsmisnotkun, í einhverjum tilvikum hlutdeildar- brot. Meðal gagnanna er að finna 127 blaðsíðna greinargerð rannsakenda en það er ítarlegt yfirlit um lögreglu- rannsóknina með athugasemdum rannsakenda um sönnunargögnin en einnig um ýmisleg lagaatriði. Einnig hefur komið fram að emb- ætti sérstaks saksóknara hefur í vörslum sínum rafræn gögn af ýmsu tagi, sem hald var lagt á í þágu lög- reglurannsóknarinnar en ekki voru lögð fram með ákærunni, svo sem at- burðaskrár um símtöl sem hleruð hafa verið, upptökur af þeim, svo og mikið magn tölvuskeyta. Verjendur sakborninga í málinu kröfðust þess að umrædd greinar- gerð verði felld út úr skjölum máls- ins og að verjendur fái afhent eintak atburðaskrár um tengingar milli símtala og afrit allra tölvupósta sak- borninga sem lagt var hald á við rannsókn málsins. Héraðsdómur féllst ekki á þessar kröfur verjendanna, eins og fyrr segir. Úrskurður féll saksóknara í vil Guðbjartur Hannesson vel- ferðarráðherra hefur skipað Jó- hann Ársælsson, fyrrverandi al- þingismann Sam- fylkingarinnar, formann stjórnar Íbúðalánasjóðs. Jafnframt hef- ur ráðherra skipað Henný Hinz hagfræðing sem aðalmann í stjórn- ina og Steinunni Valdísi Óskars- dóttur, sérfræðing í innanríkis- ráðuneytinu, sem varamann. Stjórn Íbúðalánasjóðs er þar með skipuð eftirtöldum fulltrúum: Jó- hann Ársælsson, fyrrverandi al- þingismaður, formaður, Sjöfn Ing- ólfsdóttir, fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavík- urborgar, varaformaður, Henný Hinz hagfræðingur, Lárus L. Blön- dal hæstaréttarlögmaður og Elín R. Líndal framkvæmdastjóri. Jóhann Ársælsson skipaður stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs Jóhann Ársælsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.