Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 28

Morgunblaðið - 09.05.2012, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012 Guðmundur, þessi brosmildi og skemmtilegi strákur, var nýorð- inn 14 ára þegar ég kynnist hon- um fyrst. Hann var litli bróðir Helgu konu minnar og hafði gam- an af því þegar ég var að koma í heimsóknir í Skipasundið en ég var sjálfur nýkominn með bílpróf og á gömlum bíl. Guðmundur byrjaði snemma að hjálpa mér við að bóna og gera við bílinn enda mjög laghentur frá unga aldri og var þekktur fyrir það að taka marga hluti í sundur til þess að skoða og rannsaka. Oftast gekk vel að koma öllu saman aftur og þessi árátta gerði Guðmund að miklum handverksmanni. Þegar hann byrjaði með sinn eigin rekst- ur kom þessi reynsla honum og mörgum öðrum til góða. Guð- mundur var mjög farsæll í sínu starfi og fagi, metnaðarfullur, vandvirkur og sanngjarn. Þegar Guðmundur var 15 ára fór hann með mér og Helgu í okkar fyrsta sumarfrí á gamla bílnum; tjald- ferð sem stóð í heila viku og þótti langt á þeim tíma. Við vorum ung og höfðum aldrei farið ein í svo langa útilegu en fórum í ógleyma- lega ferð að Hreðavatni sem oft hefur verið vitnað í. Seinna, eftir að Guðmundur kynnist Fjólu og þau voru komin með sín börn, urðu sameiginlegu ferðalögin svo- lítið öðruvísi. Við ferðuðumst mik- ið saman innanlands og erlendis með börnin okkar sem eru á svip- uðum aldri. Mörg skemmtileg ferðalög rifjast upp fyrir manni en ógleymanleg er þó fjölskylduferð til Spánar. Við skipulögðum ferð- ina með góðum fyrirvara og lent- um í ótal óvæntum ævintýrum sem aldrei gleymast. Við Guð- mundur náðum strax mjög vel saman. Hann var einn af þeim sem manni þótti strax vænt um. Guð- mundur var mikill sögumaður enda átti hann ekki langt að sækja þann hæfileika því faðir hans var annálaður sögumaður. Guðmund- ur þróaði með sér skemmtilegan frásagnarstíl sem vinir hans nutu fram á síðasta dag. Guðmundur var vinmargur og virkilegur vinur vina sinna. Allir mínir vinir urðu góðir vinir hans. Hann var hrókur alls fagnaðar og hafði svo góða nærveru að auðvelt var að gleyma Guðmundur Hannes Jónsson ✝ GuðmundurHannes Jóns- son fæddist í Reykjavík 30. apríl 1953. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi 29. apríl 2012. Útför Guð- mundar fór fram frá Grafarvogs- kirkju 7. maí 2012. sér með honum. Mér þótti það mikill heið- ur, og þykir sérstak- lega vænt um það, þegar Guðmundur spurði mig einn dag- inn hvort ég vildi vera svaramaður hans, þar sem hann var að fara að giftast henni Fjólu sinni í Dómkirkjunni. Stuttu fyrir andlátið áttum við einir góða samveru- stund, sem aldrei mun gleymast. Ég votta öllum aðstandendum Guðmundar mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning góðs drengs sem allt of fljótt þurfti að kveðja þennan heim. Guðjón H. Bernharðsson. Guðmundur Hannes Jónsson, góðvinur fjölskyldu minnar í rúm þrjátíu ár, hefur kvatt eftir stutta en snarpa baráttu við krabba- mein. Hans er sárt saknað. Veik- indum sínum tók hann af einstöku æðruleysi og styrk, reyndi eins og honum var tamt í lífinu að finna lausnir lengi framan af, en þegar sýnt var að meinið væri illviðráð- anlegt hóf hann að undirbúa brott- förina þannig að hans nánustu hefðu það sem bærilegast. Það er einstök gæfa að eignast svona góða vini eins og þau Fjóla hafa verið okkur í byrjun fullorð- insáranna þegar sálar- og tilfinn- ingaþroski manns er kannski heldur brokkgengari en síðar verður með aukinni lífsreynslu. Þau hafa verið sannir vinir sem hafa auðgað líf manns. Guðmund- ur hafði einstakt lag á að ræða málin af yfirvegun og skynsemi, „þrautakóngur“ í eðli sínu. Hann vildi velta upp sem flestum mögu- leikum og finna ásættanlegar leið- ir, enda skarpgreindur og víð- sýnn, fyrir utan hvað hann gat verið þrjóskur ef svo bar undir. Hann sagði gjarnan við mann ef maður kvartaði yfir einhverju í fari annarra: „Það er best að taka fólki bara eins og það er.“ Það tók nú nokkur árin að láta það síast inn. Þessi eiginleiki Guðmundar gerði hann að einstaklega vin- mörgum manni en ófáir hafa leitað til hans með margvísleg úrlausn- arefni í gegnum árin, þó hann væri ekki að flíka slíku. Hann taldi aldr- ei eftir sér að gera okkur greiða og eru ófá skiptin sem við höfum not- ið frábærrar þekkingar hans og verkfærni í gegnum árin. En það sem hlýjar þó mest í minningunni er samveran sem var svo hlý, fölskvalaus og traust, þannig að maður bara vissi að honum þætti vænt um mann eins og maður var án þess að það væri sérstaklega haft á því orð. Það er margs að minnast, skemmtilegra samverustunda, bæði hér heima og erlendis, og allra heimboðanna og góðu máltíð- anna hjá Fjólu. En við höfum haft vissar hefðir í gegnum árin, t.d. alltaf borðað saman á þrettándan- um. Á meðan krakkarnir okkar voru yngri ferðuðumst við mikið innanlands. Við nutum þess að skrönglast um fáfarnar leiðir á gömlu jeppaskrjóðunum og æja á einhverjum kyrrlátum stað. Í náttstað var oft glatt á hjalla og þá tók Guðmundur oft lagið og söng gjarnan eitt af sínum uppáhalds- lögum, „On the road again“, sem passaði ágætlega við viðfangefni dagsins. Við fórum saman í ein- staklega eftirminnilega ferð til Kúbu þar sem Guðmundur leigði sér bíl til að skoða svæði sem ekki voru beint ætluð ferðamönnum til áhorfs, en leigusalinn fékk sér- stakar mætur á Guðmundi og vildi allt fyrir hann gera. Guðmundur naut sín í þessari ferð. Síðustu ár höfum við bæði hjónapörin gert okkur lítil hreiður í Borgarfirði og samverustundirn- ar gjarnan snúist um eitthvað tengt sumarbústaðalífinu. Þessar stundir hafa verið bæði ljúfar og einstaklega skemmtilegar. Að leiðarlokum viljum við fjöl- skyldan þakka fyrir dýrmæta vin- áttu. Hugur okkar og samúð er hjá hans nánustu. Lífið verður ekki samt án Guðmundar. Þorgerður Gunnarsdóttir og fjölskylda. Hann Guðmundur, minn góð- vinur og félagi til þriggja áratuga, er látinn, sorg og söknuður leggst að. Efst í huga er samúð með fjöl- skyldu, þakklæti fyrir kynni og ljúfar minningar um svo góðum dreng. Mannkostir hans og hæfi- leikar aðdáunarverðir, mörg erfið þrautin var leyst en þessi sú hin síðasta reyndist honum ofjarl. Við áttum stutta kveðjustund tveir saman á krabbameinsdeildinni í vikunni sem hann lést og sálar- styrkur hans ótrúlegur. „Náðu í stól, sestu hérna og haltu í hönd- ina á mér.“ Hann horfði á mig sín- um stóru rólegu augum og sagði: „Þetta er bara búið.“ Ég reyndi að kjökra um að til væru kraftaverk. „Það er ekkert hálmstrá,“ sagði þessi hetja af sama æðruleysinu og hann sýndi rúma árið sem bar- áttan við sjúkdóminn tók, vann sína vinnu þegar hann gat og þurfti jafnframt sem verktaki að takast á við erfiðar afleiðingar hrunsins fyrir fyrirtæki sitt. „Mér finnst ég hafi átt góða ævi, ég er sáttur.“ Geta jafnaldrar manns yf- irleitt horfst svona í augu við dauðann? spyr maður sig. Guð- mundur hafði þessa greind og hæfni sem sumum er gefin til sjálfsmenntunar, að tileinka sér nýjungar og vera samkeppnishæf- ir. Hann var gjafmildur og heið- arlegur, lagði aldrei illt orð til nokkurs manns, gerði gott úr deilumálum, lausnamiðaður, bar klæði á vopn. Húmorískur sögu- maður, hafði góða nærveru og fimmaurabrandarar voru síður en svo fyrir neðan hans virðingu. Hann var afburðafagmaður, eftir- sóttur til starfa, hafði yfirburða- þekkingu á öllu sem viðkom raf- magni, stjórnaði m.a. ljósleiðaralagningu þvert yfir landið um Sprengisand og víðar. Mín tilfinning er að íslenska þjóð- in hafi misst einn af sínum nýtustu þegnum um aldur fram. Ég sakna hans sárt og á honum margt að þakka. Ásgeir Sigurðsson. Genginn er drengur góður, Guðmundur Hannes Jónsson raf- virkjameistari. Kynnin hófust í kringum bílasport, rally og þ.h. brek ungra og kappsamra manna. Þar var Guðmundur fremstur á meðal jafningja, ekki endilega í sportinu sjálfu þó svo hann ætti þar góða takta, heldur þegar kom að því að halda við bílaflotanum. Mátti þá oftar en ekki líta biðröð af misbiluðum keppnisbílum fyrir utan verkstæði Guðmundar í Kópavoginum. Þá var ekki alltaf verið að velta sér upp úr smámun- um eins og hvort væri dagur eða nótt, hvort menn ættu yfirleitt fyr- ir viðgerðarkostnaðinum, stund- um var kappið dálítið meira en forsjálnin. Margar eru sögur af verkefnum sem Guðmundur leysti með útsjónarsemi er aðrir höfðu gefist upp. Má þar nefna bílinn sem flautaði á nóttunni, og hinn sem kveikti framljósin þegar stig- ið var á bremsuna. Uppþvottavél á veitingahúsi var talin ónýt, engir varahlutir til og því síður þeir hundraðþúsundkallar er til þurfti að kaupa nýja. Guðmundur var kallaður til og áður en dagur var að kvöldi kominn var vélin komin í lag og gekk eins og klukka í mörg ár til viðbótar. Hann var sannur meistari í sínu fagi, starfaði við rafmagn alla tíð, hvort sem það voru húsalagnir, viðgerðir og nú síðustu árin við ljósleiðaralagnir víðsvegar um landið. Þetta lék allt í höndunum á honum svo eftir var tekið. Kannski var það tímanna tákn er hann skrapp út á Álftanes í miðjum önnum við allt annað verk og kippti í lag rafmagnsvandræð- um í fornbíl sem aðrir voru að gef- ast upp á. Þá áttum við saman góða stund og nú voru fornbílar teknir við af rallíbílunum en um- ræðuefnið var aðallega Landro- verar sem voru sérstakt áhugamál Guðmundar. Nú um nokkra hríð hafa sam- ferðamenn og vinir Guðmundar leitt hugann til þessa góða drengs í trú, von og bæn er hann í ein- stöku æðruleysi ásamt fólkinu sínu tókst á við sín erfiðu veikindi. Nú tekur við söknuður og sorg í bland við virðingu, góðar minning- ar og þakklæti, er Guðmundur Hannes Jónsson yfirgefur sviðið. Hans kæru fjölskyldu eru send- ar innilegustu samúðarkveðjur. Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Bragi Guðmundsson. Okkur þótti leiðinlegt að heyra af fráfalli vinar okkar og fyrrver- andi yfirmanns, hans Gumma, sem hefur nú fallið frá allt of snemma. Við sem þessa grein skrifum vorum öll starfsmenn Ljósvirkis um og í kringum alda- mótin. Þá var Ljósvirki ört vax- andi og var framarlega í öllum framkvæmdum sem tengdust ljósleiðaraveitu. Á þessum tíma vann margt ungt fólk hjá fyrir- tækinu og mikil og góð stemning í þessum hóp, þar sem Gummi var jafnan innsti koppur í búri. En hann vildi yfirleitt vera þar sem aðalfjörið var og þar sem mestu lætin voru. Gummi hafði gaman af því að hafa svona unga stráka í kringum sig og leiddist seint að segja okkur til og miðla af sinni miklu reynslu. Stundum kom þó fyrir að sama sagan væri endur- tekin ansi oft en við höfðum nú nokkuð gaman af því. Það verður seint sagt að Gummi hefði ekki trú á okkur strákunum, því að hann var jafnan fljótur að átta sig á hvort okkur væri treystandi og gaf mönnum tækifæri til að sanna sig og treysti okkur fyrir verkefn- unum, þó að sumir væru að stíga sín fyrstu spor í faginu. Alltaf vildi hann sínu starfsfólki vel, jafnvel löngu eftir að leiðir okkar skildi. Af mörgum fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum Ljós- virkis á þessum árum stendur þó Sprengisandsverkefnið upp úr í minningunni. Þar var okkar mað- ur svo sannarlega á heimavelli, með tæki og tól yfir allan sandinn og naut sín svo í botn að stundum héldum við að hann vildi ekki klára verkefnið. Á meðan við minnumst hans með þakklæti og gleði yfir skemmtilegum stund- um, þá finnum við til með fjöl- skyldu hans sem við þekkjum einnig svo vel. Okkar innilegustu samúðarkveðjur fara til þeirra og er hugur okkar hjá þeim á þessum erfiðu stundum. F. h. fyrrv. samstarfsfélaga hjá Ljósvirki, Almar Danelíusson og Gísli Freyr Björgvinsson. Góður vinur er fallinn frá í blóma lífsins. Guðmundur í Rafgát var hann kallaður er okkar kynni hófust, Guðmundur rafvirki þegar árin liðu. Ég hitti Guðmund fyrst vorið 1979 í aðdraganda æfingaralls BÍKR vegna rafmagnsbilunar í bílnum rétt fyrir keppnina. Mér var bent á mann sem rak rafvéla- verkstæði í Kópavogi, þann eina sem gæti bjargað málum á svo stuttum tíma. Það stóð heima, við- gerð framkvæmd á mettíma og aldrei þurfti að kíkja á meir. Vand- virkni var raunar einkennismerki Guðmundar alla tíð enda kom ekk- ert annað til greina, þegar ég ein- hverjum árum síðar hóf húsbygg- ingu, en að fá hann til að annast raflagnir. Með okkur Guðmundi tókst á næstu árum traust og góð vinátta. Oft sátum við og ræddum málin, gjarna síðla kvölds, en Guðmund- ur hafði þann eiginleika að hann virtist þurfa að sofa mun minna en flestir aðrir sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Hann vann líka oftast lengri vinnudag en aðrir. Óleysan- leg vandamál að kvöldi heyrðu oft- ast sögunni til að morgni. Ég hafði oft áhyggjur af þessu, ræddi að hann, eins og allir aðrir, yrði að hvílast. Þá brosti hann gjarnan og hló létt eins og honum var lagið. Guðmundur virkaði í fyrstu sem miklu eldri en ég. Þannig virt- ist hann ávallt kunna skil á hvers kyns vandamálum sem ég leitaði til hans með, hafði séð og leyst áð- ur. Þegar ég áttaði mig á því að hann var aðeins tæpu ári eldri en ég velti ég fyrir mér að hann hlyti að vera góður námsmaður, svo víðfeðm var þekking hans á ólík- um málum. Síðar, þegar verkefni Guðmundar höfðu breyst í að halda meira utan um og stýra rekstri fyrirtækis, sýndi sig að hann var ótrúlega fljótur að læra hvort sem um var að ræða bók- haldskerfi eða flókin stýrikerfi fyrir raf- eða mælibúnað. Fann þar enn á ný einhverja auka klukkutíma í sólarhringnum eins og svo oft áður. Æðruleysi einkenndi alla tíð fas Guðmundar, hann tókst á við verkefnin eins og þau bar að. Þannig var það líka þegar hann veiktist fyrir rúmu ári. Á haust- dögum leit þó allt vel út og allar líkur á að hann hefði sigrast á meininu. Það varð mér því mikið áfall þegar við spjölluðum saman einn laugardag í febrúarmánuði og hann sagði mér frá því að mein- ið hefði tekið sig upp og myndi að öllum líkindum hafa betur. Við ræddum málin opinskátt, eins og oftast, en ég dáðist að því á hve yf- irvegaðan og þroskaðan hátt Guð- mundur tókst á við stöðuna sem upp var komin. Ég hitti Guðmund í síðasta sinn tveimur dögum fyrir andlátið. Þá var mjög af honum dregið, ljóst að endaspretturinn var hafinn. „Maður heldur alltaf í vonina,“ sagði hann þegar ég spurði hvort hann væri eitthvað á leiðinni að yf- irgefa okkur. Minn maður enn ekki búinn að gefast upp við verk- efnið, það erfiðasta á lífsleiðinni. Við bundumst um það fastmælum að ef svo færi að endalokin væru skammt undan myndum við hitt- ast aftur um leið og ég kæmi síðar. Ekki þarf að kvíða þeirri stund vitandi af góðum vini sem tekur á móti. Elsku Fjóla og fjölskylda. Inni- legar samúðarkveðjur frá okkur Þórönnu. Megi almættið styrkja ykkur í sorginni. Örn Stefánsson (Össi). ✝ Sævar ÞórKristþórsson fæddist í Hafn- arfirði 12. maí 1960. Hann lést á lungnadeild Land- spítalans í Foss- vogi 28. apríl 2012. Hann var sonur hjónanna Kristþórs Sveins- sonar, f. í Ólafs- vík 18. júní 1932, og Ernu Guðnýjar Þórð- ardóttur, f. í Reykjavík 7. jan- úar 1938. Systkini hans eru Sigríður, f. 23. nóvember 1957, og Guðmann, f. 14. september 1967. Síðustu ár bjó Sævar á sambýlinu í Krókamýri 54 í Garðabæ. Útför Sævars Þórs verður gerð frá Keflavík- urkirkju í dag, 9. maí 2012, kl. 13. Í dag kveðjum við elskulegan bróður okkar, Sævar Þór. Sævar varð fyrir súrefnis- skorti í fæðingu og hlaut varan- legan heilaskaða. Hann var fal- legt og yndislegt barn en þurfti stöðuga umönnun það sem eftir var ævinnar. Sævar var heilsu- hraustur og þótt hann hafi orðið fyrir ýmsum áföllum og stundum veikst alvarlega jafnaði hann sig venjulega fljótt og tók gleði sína á ný. Heilsu hans hafði þó hrakað og að lokum veiktist hann af bráðalungnabólgu sem honum tókst ekki að sigrast á. Þótt Sævar hafi þurft mikla umönnun og ekki getað tjáð sig var fjarri því að hann lifði í eigin heimi. Hann fylgdist vel með öllu sem gerðist í kringum hann og lét skoðun sína á því í ljós á sinn eigin hátt. Þótt hann væri yfir- leitt glaðlyndur fór heldur ekki á milli mála þegar hann var óánægður með eitthvað. Sævar hafði gaman af því að vera innan um fólk, hann naut þess að fá at- hygli og þegar honum fannst skorta á hana lét hann til sín taka og minnti á sig. Hann var alltaf stríðinn og hafði gaman af að fylgjast með viðbrögðum fólks. Á ævi sinni kynntist Sævar vel þeim breytingum sem hafa orðið á aðbúnaði og umönnun fatlaðra. Fyrstu tólf árin bjó hann heima, síðan dvaldist hann á Kópavogs- hælinu og síðustu fjórtán árin bjó hann á sambýli í Krókamýri í Garðabæ. Þar var Sævari og sambýlingum hans, sem einnig komu af Kópavogshæli, búið fal- legt heimili þar sem þau fengu alla þá umönnun og þjónustu sem þau þurftu. Við fjölskylda Sævars viljum þakka öllu því góða fólki sem starfar og hefur starfað í Krókamýrinni fyrir alla umhyggjuna og félagsskapinn sem það veitti honum þessi ár. Sérstaklega viljum við þakka Hildi, fyrrverandi forstöðukonu þar, og Ingibjörgu forstöðukonu heimilisins fyrir þá velvild og væntumþykju sem þær sýndu Sævari. Þá viljum við þakka Hildi og Dóru, sem tvívegis lögðu á sig ómælda vinnu til að fara með Sævari og sambýlingum hans til útlanda þar sem þau fengu ómetanlegt tækifæri til að upplifa ævintýri, sjá framandi staði og njóta lífsins á sólar- strönd. Við kveðjum Sævar með sökn- uði en minnumst góðu stund- anna. Sigríður (Siddý) og Guðmann. Í dag kveðjum við vin okkar Sævar Þór en hann lést á Land- spítalanum í kjölfar skamm- vinnra veikinda. Sævar fæddist í Hafnarfirði og bjó í foreldrahús- um fyrstu tólf árin en fluttist þá á Landspítalann í Kópavogi vegna fötlunar sinnar. Árið 1997 fluttist Sævar á heimilið Krókamýri 54 í Garðabæ ásamt fjórum öðrum frá Landspítalanum í Kópavogi. Á heimili sem Krókamýri þar sem fatlaðir búa saman hafa margir komið að þjónustu Sæv- ars og er ekki hægt fyrir okkur sem ekki þurfum á slíkri þjón- ustu að halda að setja okkur full- komlega í spor hans eða annarra sem búa við slíkar aðstæður. Starfsmannabreytingar hafa gegnum tíðina verið miklar og það hefur örugglega oft reynst Sævari erfitt að þurfa að treysta nýjum starfsmanni hverju sinni. Það hafði Sævar lært að lifa við og höndla með sinni glaðværð og lífsgleði að njóta þess sem lífið hafði upp á að bjóða. Hann var skapgóður, félagslyndur en gat verið stríðinn. Hann var mikill útivistarmaður, naut þess að fara um utandyra í hjólastólnum sín- um og var duglegur að minna starfsmenn á það að hann vildi komast út. Við eigum eftir að sakna göngutúranna með hon- um. Sævar hafði mjög gaman af tónlist og tók undir söng á sinn hátt og sló taktinn gjarnan. Við þökkum Sævari fyrir kynnin og hans er sárt saknað. Sævar hefur sannarlega kennt okkur að meta margbreytileika mannlífsins. Við sendum foreldrum og systkinum Sævars samúðarkveðjur sem og sambýlisfólki hans. F.h. starfsfólks í Krókamýri 54, Ingibjörg Friðriksdóttir forstöðuþroskaþjálfi. Sævar Þór Kristþórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.