Morgunblaðið - 09.05.2012, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir hópa og
fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið. Sími 486-1500,
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Atvinnuhúsnæði
Lítil og stór skrifstofuherbergi
til leigu í Ármúla og við Suðurlands-
braut. Hagstæð kjör.
Upplýsingar í síma 899 3760.
Tómstundir
POOLBORÐ frá RILEY
Lækkað verð, 12mánaða vaxtalaus
kortalán.
www.billiard.is
Suðurlandsbraut 10 (2. h.),
108 Reykjavík, s. 568 3920.
Til sölu
Kristals-hreinsisprey
Hreinsisprey fyrir kristalsljósakrónur
og kristal.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Þjónusta
Sandblástursfilmur
í öllum stærðum og gerðum fyrir
heimili og fyrirtæki. Sendið fyrir-
spurn á audmerkt@audmerkt.is
eða skoðið heimasíðu okkar
www.audmerkt.is
Bílaþjónusta
Bílavarahlutir
VW og Skoda varahlutir 534-1045
Eigum til notaða varahluti í VW,
Skoda, Audi og Pajero frá '02.
Eigum einnig til nýja gorma í VW
og Skoda á lager. Kaupum bíla til
niðurrifs og uppgerðar.
Bílabúið, Kaplahrauni 11,
s. 534 1045.
Hjólbarðar
Kebek- og Nama-heilsársdekk
205/50 R 17 kr. 18.900.
215/55 R 17 kr. 20.600.
235/55 R 17 kr. 24.900.
235/45 R 17 kr. 21.390.
225/55 R 17 kr. 23.900.
225/65 R 17 kr. 24.290.
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 544 4333.
Traktorsdekk rýmingarsala
11.2-24 kr. 35.900.
14.9-24 kr. 49.900.
13.6-24 (1 stk) kr. 49.900.
12.4- 24 kr. 49.900.
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
Kópavogi, s. 544 4333.
Kebek Blacklion sumardekk
175/65 R 14 kr. 10.700.
195/65 R 15 kr. 12.500.
205/55 R 16 kr. 14.900.
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði
(á móti Kosti), Dalvegi 16 b,
Kópavogi, s. 544 4333.
Rýmingarsala á vörubíladekkjum
315/80 R 22.5 75.000 + vsk
13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk
12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk
11 R 22.5 kr. 36.600 + vsk
425/65 R 22.5 kr.78.885 + vsk
1100 R 20 kr. 39.500 + vsk
1200 R 20 kr. 39.500 + vsk
205/75 R 17 kr. 23.745 + vsk
8.5 R 17.5 kr. 34.900 + vsk
Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
✝ Garðar Skag-fjörð Björg-
vinsson fæddist í
Reykjavík 3. jan-
úar 1979. Hann
lést á heimili sínu
22. apríl 2012. For-
eldrar hans eru
Björgvin M. Garð-
arsson, f. 15. apríl
1957, maki Sigríð-
ur Helga Ein-
arsdóttir, f. 11.
október 1961, og Rósa Skag-
fjörð Ingólfsdóttir, f. 12. des-
ember 1958. Garðar átti eina
alsystur, Önnu Sjöfn, f. 16.
október 1983, maki Magnús
Halldór Pálsson, f. 25. ágúst
1978, dóttir þeirra Áróra Ingi-
björg, f. 14. október 2009.
Önnur systkini samfeðra eru
Elín Ósk Björgvinsdóttir, f. 4.
febrúar 1993, og Baldvin Heið-
ar Björgvinsson, f. 24. júní
1996. Sammæðra eru Ingólfur
Pálmi Heimisson, f. 22. sept-
ember 1976, maki
Sigrún R. Sigurð-
ardóttir, f. 10.
maí 1983, sonur
þeirra er Bóas, f.
17. apríl 2008,
Ingólfur átti son
frá fyrra sam-
bandi, Frans, f.
13. júní 1999.
Guðjón Karl Guð-
jónsson, f. 12.
nóvember 1992,
og Aron Freyr Guðjónsson, f.
18. febrúar 2000. Garðar átti
líka tvær stjúpsystur, dætur
Sigríðar frá fyrra sambandi,
Sigrúnu Lenu Ingvarsdóttur, f.
23. desember 1979, og Helgu
Völu Ingvarsdóttur, f. 21. maí
1985.
Garðar trúlofaðist 16. júní
2007 unnustu sinni Andreu
Eygló Sigurðardóttur, f. 27.
janúar 1985.
Jarðarför hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Sá dagur sem við vorum bú-
in að kvíða fyrir rann upp þeg-
ar Garðar okkar lést á heimili
sínu 22. apríl sl. Þar með er
stórt skarð höggvið í þær fjöl-
skyldur sem að Garðari stóðu.
Garðar átti við veikindi að
stríða en þrátt fyrir veikindin
heyrðist hann aldrei kvarta eða
gráta sín örlög heldur tókst á
við sjúkdóminn af æðruleysi,
lét fátt eða nokkuð aftra sér
frá því að gera það sem hann
vildi og hafði gaman af. Garðar
var trúlofaður eftirlifandi unn-
ustu sinni, Andreu Eygló Sig-
urðardóttur, og áttu þau fal-
legt heimili í Árbænum og
bjuggu saman þar í sex ár. Það
kemur margt upp í hugann
eins og útilegurnar og ferðalög
hringinn kring um landið.
Garðar hafði sérstaklega gam-
an af að fara í veiðiferðir með
fjölskyldunni og út á sjó með
pabba sínum og afa, og oftar
en ekki var hann með mestan
aflann.
Garðari var umhugað um
náungann, þá sérstaklega þá
sem voru minni máttar eins og
börnin. Mátti ekkert aumt sjá
án þess að leggja sitt af mörk-
um til að bæta úr. Foreldrar
hans og systkini, afar og ömm-
ur og vinir voru honum ávallt
ofarlega í huga eins og Barna-
deild Hringsins, minnugur
þess sem hann gekk í gegnum
sem barn og dvöl svo vikum og
mánuðum skipti á spítalanum.
Minnast systkini hans og vinir
þess þegar þau komu í heim-
sókn á meðan hann dvaldi á
spítalanum í skiljumeðferð og
hann kannski ekki búinn að
borða allan daginn. Spurði
hann þau hvort þau ættu pen-
ing, sem var auðsótt mál. Í
stað þess að fara á hjólastóln-
um í sjoppu spítalans að næra
sig fór hann rakleiðis í anddyri
barnaspítalans þar sem stað-
settur er stór peningahnöttur
til styrktar barnadeildinni.
Rakleiðis þangað fór pening-
urinn, ekki í hann sjálfan held-
ur til þeirra sem honum fannst
þurfa meira á að halda en
hann. Ef systkinabörnin voru
veik var hann ekki í rónni fyrr
en hann heyrði af þeim og líð-
an þeirra. Það gengu allir fyrir
áður en hann fór að leiða hug-
ann að sjálfum sér og sínum
þörfum. Hafði húmor fyrir
sjálfum sér eins og hversu út-
skeifur hann var. Sagði hverj-
um sem vildi heyra, ef sáust
spor eftir hann í snjónum, að
ekki væri vitað hvort hann
væri að koma eða fara! Má
segja að það hafi verið ein-
kennandi fyrir líf hans. Ekki
vitað hvort hann væri að koma
eða fara, svo veikur var hann
oftar en ekki. Hann lifði fyrir
daginn og hann lifði fyrir aðra
en sjálfan sig.
Sérstaklega viljum við þakka
starfsfólki 13E og læknum
Garðars fyrir alla þeirra hjálp,
vináttu og hlýhug.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér
…
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hvíl í friði elsku Garðar.
Pabbi, Sigríður og Baldvin
Heiðar.
Elsku Garðar minn. Með
nokkrum orðum langar mig að
kveðja þig hinstu kveðju og
þakka þér fyrir allt, allar góðu
stundirnar sem við áttum sam-
an. Þú varst mér alltaf svo
góður. Ég minnist stundanna
þegar ég kom til ykkar Andreu
í bæinn og við brölluðum ým-
islegt saman, öll ferðalögin
sem við fórum kringum landið
með fjölskyldunni og vöktum
langt fram á nætur og gerðum
ýmis prakkarastrik. Það var
alltaf svo mikið líf og fjör í
kringum þig.
Þú hvorki talaðir né kvart-
aðir um þín veikindi, ef maður
vissi ekki betur hefði mann
aldrei grunað að þú værir al-
varlega veikur því þú varst
alltaf svo hress og skemmti-
legur. Þú varst sá allra sterk-
asti perónuleiki sem ég þekki
og með sérstaklega góða nær-
veru. Ég get ekki lýst því með
orðum hvað ég á eftir að sakna
þín mikið elsku Garðar minn,
og það er svo óraunverulegt að
hugsa um það að ég eigi aldrei
eftir að sjá þig aftur eða heyra
þig hlæja. Ég á svo margar
góðar minningar um þig elsku
bróðir, þær geymi ég í hjarta
mínu. Nú ertu kominn á betri
stað þar sem þér líður vel, þú
átt það svo skilið. Ég kveð þig
elsku bróðir með söknuð í
hjarta. Ég elska þig.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Hvíldu í friði
Þín systir,
Helga Vala.
Elsku Garðar bróðir. Ég get
eiginlega ekki lýst því með orð-
um hvað það er ótrúlega erfitt
að sitja hérna og skrifa minn-
ingargrein um þig. Þú sem
varst alltaf svo jákvæður og
yndislegur bróðir og vildir allt
fyrir mig gera. Ég get ekki
trúað að ég fái aldrei aftur að
sjá þig brosa, heyra þig hlæja,
koma í heimsókn til þín í
Árbæinn og vera með þér heila
helgi, hlæja og fíflast með þér
og rifja upp gamlar minningar.
Af hverju þarf lífið að vera
svona ótrúlega ósanngjarnt?
Þessi spurning er allavega búin
að koma svolítið oft upp í hug-
ann þegar ég hugsa um þig.
Ég veit að þú ert núna á
betri stað og ég vona að þér
líði vel þar sem þú ert. Ég get
ekki lýst því hversu mikið ég á
eftir að sakna þín elsku Garðar
minn. Ég er svo ótrúlega þakk-
lát fyrir að hafa fengið að eiga
þig sem stóra bróður minn,
alltaf svo góður við mig og
hringdir oft í mig um helgar og
spurðir hvað ég væri að fara að
gera um helgina til að passa
upp á að ég gerði ekki neitt
sem þér líkaði ekki. Þú vildir
passa upp á að ekkert kæmi
fyrir mig. Varst alltaf að passa
upp á litlu systur. Þú varst
alltaf í svo miklu uppáhaldi hjá
mér og ég vildi óska þess að þú
værir ennþá hjá mér og við
gætum búið til miklu fleiri
minningar saman.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Hvíldu í friði elsku Garðar
minn og megi englarnir og Guð
passa upp á þig þangað til ég
kem til þín.
Elska þig að eilífu.
Þín litla systir,
Elín Ósk Björgvinsdóttir.
Garðar Már Björgvinsson
lést aðfaranótt sunnudagsins
22. apríl klukkan fjögur um
nóttina í faðmi fjölskyldunnar.
Eftir langar spítalalegur ósk-
aði hann eftir því að fá að
kveðja þennan heim í rúminu
sínu heima í íbúðinni sinni í
Árbæ.
Það var þung sorg þegar
uppgötvaðist að hann hafði
fæðst með alvarlega gölluð
nýru, en allir lifðu í voninni að
það mundi koma sú tíð að hann
fengi gjafanýra, sem hann svo
fékk frá móður sinni og var
grætt í hann í Bandaríkjunum.
Foreldrar hans slitu samvistir
og var Garðar hjá föður sínum
í Hveragerði þar sem hann átti
oft góðar stundir heima hjá
ömmu.
Það var stutt á milli húsa og
hann hafði sinn inngang gegn-
um stofugluggann og í sófann.
Það þurfti ekki mörg leik-
föng handa Garðari, hann vildi
stóra pappakassa sem hann bjó
til hús úr með gluggum og
margvíslegum viðbyggingum.
Hann var inn og út af spít-
alanum og oft þurfti að fara
með hann í flýti á spítalann þar
sem hann dvaldi oft langdvöl-
um á barnadeild Hringsins og
síðar á deild 13 E.
Líkami hans hafnaði nýranu
sem hann fékk svo hann þurfti
í nýrnavel upp á Landspítala
annan hvern dag.
Það var einhver erfiðasta
ákvörðun sem við gengum í
gegnum þegar þurfti að fá íbúð
fyrir hann í Hátúni, húsi ör-
yrkjabandalagsins, en þangað
flutti hann árið 2000. Of erfitt
var fyrir hann að ferðast milli
Reykjavíkur og Hveragerðis –
hann var oft mjög veikur eftir
meðferð í nýrnavélinni.
Það ár greindist hann með
eitlakrabbamein, sem hvarf án
aðgerða lækna.
Ég hafði ekki nóg húsnæði
til að hann gæti búið hjá mér
en ég var þá flutt til Reykja-
víkur og sótti hann alltaf í rút-
una á morgnana og í nýrnavél-
ina eftir skilun.
Hann var mikil hetja þessi
drengur og gekk í gegnum
þessar hörmungar án þess að
mögla, enda þekkti hann ekk-
ert annað.
Hann sagði alltaf skoðun
sína við hvern sem var og
sannfæringu hans varð ekki
hnikað.
Hann hafði ofurást á heimili
sínu, lítilli íbúð í nágrenni við
mig sem Öryrkjabandalagið út-
vegaði honum og var ég afar
þakklát þeim sem studdu það
því margar voru ferðirnar nið-
ur í Hátún.
Þar var hans líf utan spít-
alans og svo kynntist hann
stúlku sem deildi með honum
síðustu árunum, Andreu Eygló.
Hann lærði að meta fróðleik
og það var sama um hvað var
rætt, hann var með allt í koll-
inum því hann notaði mikinn
tíma í að lesa og skoða margs
konar fræðsluefni.
Fjölskylda hans lagðist öll á
eitt að gera honum síðustu
mánuðina léttbæra, en hann
var þá orðinn mjög veikur.
Við munum öll sakna hans
alla ævi, hann gaf svo mikið
þótt veikur væri og var svo vit-
ur.
Hans besti vinur af mörgum
góðum var Bjöggi vinur hans
sem var alltaf til staðar ef eitt-
hvað var að.
Ég veit að honum verður vel
tekið hinum megin og hann
mun eiga betra líf þar.
Hann verður samt alltaf til
hér í hug okkar og hjarta.
Hans er sárt saknað en það
léttir sorgina að vita að langri
þrautagöngu er lokið.
Erla Magna amma.
Garðar Skagfjörð
Björgvinsson