Morgunblaðið - 05.06.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012
NJÓTTU
LÍFSINS Í
SÆNSKU
KLOSSUNUM
EIKJUVOGI 29, 104 RVK | Sími 694 7911 | Opið: mán. - fim. 12–18, fös. 12–16
VERSLUN - HEILDVERSLUN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Einn sjaldgæfasti viðburðurinn í sólkerfi okkar, þver-
ganga reikistjörnunar Venusar fyrir sólina, hefst klukk-
an 22.04 í kvöld og eru Íslendingar í sérstaklega góðri
stöðu til að bera viðburðinn augum. Hins vegar er ólík-
legt að þvergangan komi til með að sjást vel á öllu landinu
sökum mikilla breytinga í veðri.
„Það er spáð skýjuðu veðri en það er kannski helst á
suðvesturhorninu sem gæti sést þokkalega til himins.
Þar eru bestar líkur,“ segir veðurfræðingur hjá Veður-
stofu Íslands. Líkurnar á því að sjá þvergönguna eru
taldar vera minnstar á Austurlandi en þar er spáð úr-
komu. Einnig má búast við skýjuðu veðri norðantil.
Svalt veður í kortunum
Undanfarna daga hefur verið rjómablíða á landinu öllu
og hefur hitinn á Þingvöllum t.a.m. farið yfir tuttugu stig.
Í dag og næstu daga verður breyting þar á en Veðurstof-
an spáir svölu veðri með norðan og norðaustan 5-13 m/s,
rigningu með köflum og slyddu eða snjókomu til fjalla á
Norðaustur- og Austurlandi. Þurrt verður vestantil og
hiti á landinu 3-12 stig.
Á morgun og fimmtudag spáir Veðurstofan norðaustan
5-10 m/s og rigningu á Norður- og Austurlandi en stöku
síðdegisskúrum annars staðar. Hiti verður á bilinu 3-13
stig, hlýjast sunnanlands.
Helgin ætti að vera góð víðast hvar en þá er spáð frem-
ur mildu og úrkomulitlu veðri um land allt með austan- og
norðaustanátt. »17
Þverganga ástarstjörn-
unnar verður falin flestum
Morgunblaðið/RAX
Fegurð Þverganga Venusar fyrir sólina hefst í kvöld.
Viðburðurinn verður sýnilegur á suðvesturhorninu.
Hitabylgjan sem ríkt hefur
á landinu er á undanhaldi
Sigurður Aðalsteinsson
Neskaupstaður | Briard-tíkin
Auðnu-Gríma gaut á dögunum fjór-
tán hvolpum. 13 voru lifandi við
fæðingu, einn dó strax og sá þriðji
fljótlega þegar tíkin lagðist ofan á
hann. Tíkin er sex ára, í eigu Elín-
bjargar Stefánsdóttur og Þórarins
Smára á Norðfirði.
Talsverð vinna fylgir svo mörg-
um hvolpum á heimilinu og vakta-
skipti voru fyrstu dagana, segja El-
ínbjörg og Smári. Dætur þeirra,
Guðrún og Vilhelmína, hafa að-
stoðað við uppeldið ásamt barna-
börnum. Hvolparnir fá að sjúga í
hollum, fjórir og þrír í einu, auk
þess fá þeir minni að sjúga oftar.
Tíkin er með átta virka spena.
Fyrsti hundurinn af Briard-kyni,
sem er franskt fjárhundakyn, var
hvolpafull tík sem kom til landsins
árið 1993. Hundar af þessu kyni
hér á landi voru orðnir 21 áður en
Gríma gaut og um svipað leyti gaut
tík af sama kyni í Hafnarfirði níu
hvolpum. Með þessum 20 nýfæddu
hvolpum nær tvöfaldaðist stofninn
af þessu kyni. Allir þessir 20 hvolp-
ar eiga sama föðurinn, Imbir, sem
er margverðlaunaður hundur með
ættbók eins og tíkurnar báðar.
Þetta got mun vera stærsta Bri-
ard-got á landinu til þessa. Hvolp-
arnir eru fæddir 11. og 12. maí og
þeir sem lifðu voru á bilinu 289-423
grömm við fæðingu, en eru nú
1322-1719 grömm. Fjöldinn kom á
óvart því sónar hafði gefið til
kynna að hvolparnir yrðu sex til
átta.
Hvolparnir ellefu fá að
sjúga Grímu í hollum
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Nóg að gera Barnabörnin og frændsystkinin Ólafía Ósk, María Bóel og Elmar Örn ásamt tíkinni Grímu með hvolpa-
hrúguna. Það er ekki nema von að móðirin Gríma sé svolítið þreytuleg, það er álag að eiga svona mörg afkvæmi.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bráðabirgðaákvæði um heimild sjáv-
arútvegsráðherra til að taka frá allt
að 2000 lestir af skötusel á ári og
leigja út falla niður, nái breytingar á
lögum um stjórn fiskveiða sem þing-
ið fjallar nú um fram að ganga.
Skötuselsákvæðin settu allt á annan
endann í samskiptum ríkisstjórnar
og Samtaka atvinnulífsins á árinu
2010 og urðu meðal annars til þess að
SA sögðu sig frá stöðugleikasátt-
mála sem gerður hafði verið við ríkið.
Jón Bjarnason, þáverandi sjávar-
útvegsráðherra, beitti sér fyrir
skötuselsákvæðinu. Rökin voru með-
al annars þau að fiskurinn veiddist
meira fyrir vestan land en áður.
Trúnaðarbrestur varð í samskiptum
hans og forystu Landssambands ís-
lenskra útvegsmenna vegna þessa
máls.
Forysta útvegsmanna lagði mikla
áherslu á að viðhalda aflahlutdeild-
arkerfinu, þar sem úthlutað er á skip
ákveðnu hlutfalli af heildarkvóta í
hverri tegund. Ráðherra boðaði síð-
ar að tekið yrði af kvóta helstu nytja-
stofna og leigt út með sama hætti.
Umfram ráðgjöf
Það er meðal annars inntak þeirra
breytinga sem unnið er að á Alþingi.
Þær fela í sér að bráðabirgðaákvæð-
ið fellur niður en hluti skötuselskvót-
ans, eins og annarra tegunda, verður
tekinn frá og leigður út í gegnum
svokallað kvótaþing.
Einnig var gagnrýnt að sá kvóti
sem ráðherra fékk til útleigu var all-
ur umfram ráðgjöf Hafrannsókna-
stofnunarinnar og voru aðgerðirnar
taldar stuðla að ofveiði.
Ríkið hefur leigt út 700 lestir af
þeim 1200 sem heimild er til á þessu
fiskveiðiári og talið líklegt að bætt
verði við á næstunni, samkvæmt
upplýsingum úr ráðuneytinu. Skötu-
selsveiði hefur minnkað talsvert frá
fyrra ári og er nú aðeins búið að
veiða liðlega helming kvótans. Meðal
annars eiga þeir sem hafa leigt af
ríkinu ónotaðar heimildir. Þrátt fyrir
það hefur leiguverð ekki lækkað að
marki og er mun hærra en leiguverð
ríkisins sem er 176 krónur á kíló.
Ákvæði um skötu-
sel fellur niður
Aflinn hefur minnkað mikið í ár
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Einn kjaftur Stór og ófrýnilegur
skötuselur kom á land á Siglufirði.
Stórfjölskyldan hefur tekið þátt í
álaginu við fæðingu hvolpanna.
Barnabörnin hjálpuðu til við að
taka á móti sjö þeirra. Gríma kar-
aði þá fyrst, síðan tóku krakk-
arnir þá og vöfðu inn í handklæði
og þurrkuðu meðan tíkin
gaut þeim næsta. Gotið
tók 16 tíma.
Hvolparnir heita
allir upp á Þ og
fundu krakkarnir
nöfnin. Fyrir valinu
urðu Þota, Þór,
Þrasi, Þula, Þokki,
Þöll, Þruma, Þrösk-
uldur, Þróttur,
Þoka og Þvæla.
Þoka, Þvæla,
Þokki, Þruma
ÖLL NÖFNIN BYRJA Á Þ
Brotist var inn í Kirkju- og menning-
armiðstöðina á Eskifirði aðfaranótt
laugardags. Öryggiskerfi til varnar
bruna og innbrotum er í húsnæðinu
og bárust lögreglu því fljótt boð um
óboðinn gest í kirkjunni. Þegar lög-
reglumenn bar að garði blasti við
þeim brotin rúða og stóð karlmaður
á miðjum aldri fyrir utan kirkjuna.
Maðurinn, sem var í annarlegu
ástandi eftir hátíðarhöld helgar-
innar, var handtekinn en ástæðu
innbrotsins sagði hann vera þá að
hann þráði að leika á kirkjuorgelið.
khj@mbl.is
Braust inn í kirkju
til að leika á orgel
Maður liggur mikið slasaður á
Landspítala eftir að hafa fallið í
fjallgöngu á austanverðu Vatns-
dalsfjalli í A-Húnavatnssýslu. Mað-
urinn var einn á ferð og gekk langa
leið alblóðugur og beinbrotinn.
Það var vegfarandi sem átti leið
um Vatnsdal í fyrrakvöld sem sá
manninn liggja í vegkanti við bíl
sinn. Maðurinn var fluttur með
sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnunina á
Blönduósi og þaðan með sjúkra-
flugvél á Landspítalann. Maðurinn
fékk höfuðhögg og bein brotnuðu í
efri hluta líkama hans.
Slasaðist í göngu
á Vatnsdalsfjalli